Þjóðviljinn - 01.08.1978, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 01.08.1978, Blaðsíða 20
ÞJODVIUINN Þriðjudagur 1. ágúst 1978 Aðalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tlma er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfs- menn blaðsins f þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. Skipholti 19, R. I BÚÐlKÍ sfmi 29800, (5 iinurN^^^" Verslið í sérverslun með litasjónvörp og hljómtæki Blaðamannafundur Alþýðubandalagsins: GEN GISFELLIN G ARKR AF AN SPRENGDI VIÐRÆÐURNAR er um það hver á að — Viðræðurnar um myndun vinstri stjórnar strönduðu ekki á tillögum Alþýðubandalagsins um niðurfærslu og millifærslu. Þær tillögur voru ekki sett- ar fram sem úrslitaatriði og við vorum til viðtals um breytingar. Viðræðurnar strönduðu á tillögum Alþýðuf lokksins um 15% gengisfellingu# sem þeir töldu með öllu ó- hjákvæmilega og að 7% verðhækkanir sem af því myndu leiða yrðu í engu bættar launþegum. Viðræðunefnd Alþýðu- bandalagsins neitaði að fallast á þessar tillögur# og gerði þaðað höfðu samráði við þingflokk og þá for- ystumenn verkalýðshreyf- ingarinnar sem i Alþýðu- bandalaginu eru. Þá taldi Benedikt Gröndal að þýð- ingarlaust væri að halda á- fram viðræðum. Þetta sagði Lúðvík Jósepsson á blaðamannafundi sem Abl. hélt i gærmorgun. A fundinum voru auk hans þeir Svavar Gestsson, Kjartan Olafsson og Olafur Ragn- ar Grimsson. LUðvik kvaðst einnig vilja leið- rétta þær rangtUlkanir sem væri reynt að breiða Ut um tillögur Al- þýðubandalagsins. I fyrsta lagi væri það hreinn Ut- UrsnUningur að segja að „milli- færsluleiðin” fæli i sér afturhvarf til gamla uppbótakerfisins. Þessi millifærsla væri i gangi i augna- blikinu, og núverandi rikisstjórn hefði ákveðið aö viðhalda henni til ágUstloka, en Alþýðubandalagið vildi halda henni Ut árið. Og <A1- þýðubandalagið vildi afla fjár til að standa undir þessu, veltu- skatti á fyrirtæki, nema þau sem eru i Utflutningsframleiðslu. Einnig taldi LUðvik það UtUr- Tillögur Alþýðuflokksins framhald núverandi stjórnarstefnu borga brúsann”, segja forystumenn Alþýðubandalagsins „Deilan Þaðsprakk á gengislækkunarkröfu AlþýðufIokks,sögöu forystumenn Alþýðubandalagsins á fundinum. snUning að Alþýðubandalagið væri með vitlausar tölur varðandi niðurfærsluleiðina. Þeir hefðu sjálfir bent á að tölurnar gætu verið eitthvað of lágar, en það heföi allt verib til umræöu um annað hvort aðeins meiri tekju- öflun eða aðeins minni verðlækk- un. LUðvik lagði fram Utreikninga með samanburöi á tillögum Al- þýðubandalagsins og Alþýðu- flokksins og eru þær birtar á bls. 11 i dag. Þar sem fram kemur að tillögur Alþýðuflokksins ganga ekki upp. Sagði LUðvik að er þetta var borið undir Alþýðuflokksmenn hefðu þeir sagt að einhver vaxta- lækkun kæmi til greina svo að Framhald á 18. siðu Þau afla vel líka Þessa glæsilegu lúðu veiddu strákarnir á Haftindi, en báturinn er gerður út frá Upptökuheimilinu i Kópavogi.Krakkarnir á heimilinu eru hásetar og einnig hefur starfsfólk farið einn og einn túr, en oft hafa krakkarnir farið ein með skipstjóra og velstjóra. Þau hafa fiskað allvel frá þvi f júníbyrjun, er byrjað var að fara á skakið. Lúðan, sem þau veiddu I siðustu ferð, og sést hér á myndinni, er óvanalega stór, eða um einn og hálfur meter að lengd. (Mynd-eik-) Ákvörðun loðnunefndar: 13 bátar í eina ferð Loðnunefnd ákvað i gær að 13 bátar gætu hafið veiðar á mið- nætti sl. nótt. Bátarnir sem heim- ild fengu til einnar veiðiferðar eru Albert, Gullberg, Helga II, Helga Guðmundsdóttir, Hrafn, Huginn, Húnaröst, Kap lí, Magnús, Ljós- fari, Skarðsvfk, Helga og Skirnir. Allir aðrir bátar eru I loðnuveiði- banni a.m.k. til 3. ágúst. Skömmtun loðnunefndar tekur við af vikulöngu loönuveiðibanni sem sett var vegna vinnsluerfið- leika er mikil áta I loðnunni olli. NU hefur móttökugeta verk- smiðja i landi takmarkast enn vegna yfirvinnu- og vaktávinnu- banns verkalýðsfélaganna á Siglufirði og i Vestmannaeyjum. Þrjár afkastamestu loðnuverk- smiðjur landsins eru af þessum sökum óvirkar. Þær afkasta milli 3 og 4 þUsund lestum á sólarhring og vegna góðs tækjabUnaðar hef- ur átan ekki hindrað eðlilega vinnslu. Það voru Félag fiskmjölsfram- leiðenda og Llú sem fólu loðnu- nefnd að annast stjórnun á loðnu- veiðunum meðan þetta ástand varir. —ekh. „Atvinnurekendur eru ekki einir í heiminum” — rætt við Jón Kjartansson, form. Verkalýðsfélags Vestmannaeyja vegna fjöidauppsagna atvinnurekenda I tilefni af því, aö nær allar vinnslustöövar í Vest- mannaeyjum hafa sent starfsfólki sínu uppsagn- arbréf sem svar viö á- framhaldandi útflutnings- banni starfsfólksins, hafði Þjóðviljinn samband við Jón Kjartansson, formann Verkalýðsfélags Vest- mannaeyja. Hann hafði eftirfarandi um málið að segja: „Við fréttum nU ekkert af þessu fyrr en fólk fór að segja okkur, að það hefði fengið uppsagnarbréf frá atvinnurekendum. Það virðist vera orðið nokkuð mikið sam- bandsleysið milli aðila vinnu- markaðarins, eins og það er orðað svo hátlðlega. Við- brögð okkar voru einfaldlega þau að setja á yfirvinnubann á öll hUsin, sem sagt höfðu upp fólki, en eitt hUsið hefur ekki sagt upp, og var þvi undanþegið. Hins vegar hefur þvi verið fleygt, að það muni ekki hefja vinnslu eftir þjóðhátíð. Þetta svar okkar var ákveðið á sameiginlegum fundi stjórna og trUnaðarráða Jón Kjartansson, formaður Verkalýösfélags Vestmannaeyja. Verkakvennafélagsins Snótar og Verkalýðsfélags Vestmannaeyja. NU, eftir að atvinnurekendur höfðu haldið á fund bæjarráðs og kvartað undan okkur, voru stjórnir félaganna sem i hlut eiga, Snótar og Verkalýðsfélagsins, boðaðar á fund bæjarráðs. Þar lýstum við þvi yfir, að aðgerðir okkar væru svör einhliða ákvörðun atvinnurekenda. Persónulega finnst mér. á- kvarðanir atvinnurekenda i þessu máli einkennilegar, þar sem ráð- stafanir, sem gerðar hafa verið af hálfu hins opinbera, eru þær sömu hér og gerðar hafa verið annars staðar. Og ekki virðist betur séð, en að þær ráðstafanir a.m.k. dugi annars staðar. En það er nU svo, að atvinnurekend- ur, hvort heldur er hér I Eyjum Framhald á 18. siðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.