Þjóðviljinn - 01.08.1978, Síða 13
Þriöjudagur 1. ágúst 1978 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 13
Skákmót erlendis
í sumar og haust
/
Veitingaskálinn Brú Hrútafirði
1 fréttatilkynningu frá Skák-
sambandi tslands er greint frá
skákmótum, sem islenskir skák-
m.enn eiga kost á að sækja i sum-
ar og i haust. Ahersla er lögð á, að
dvöl á mótsstöðum sé sem ódýr-
ust, og er hér um að ræða kjörin
tækifæri fyrir islenska skákmenn
að sameina sumarleyfi og skák-
keppni á erlendum vettvangi.
A Englandi er um að ræða
Loyds Bank Masters, 24.-31. ágúst
og Aaronson Chess Congress, sem
haldið er dagana 15.-17. septem-
ber. 011 þessi mót fara fram i
Lundúnum, keppt verður í mörg-
um flokkum og há verðlaun iboöi.
Flugfargjöld báðar leiðir kosta
Tímarit
Máls og
menningar
komið út
Timarit Máls og menn-
ingar, 2 hefti 1978, er
nýkomið út og hefst á
þremur ljóðum eftir Stefán
Hörð Grimsson Heftið er að
hluta helgað Jóhannesi úr
Kötium og skáldskap hans.
Prentað er áður óbirt kvæöi
eftir Jóhannes og greinar um
skáldskap hans eru eftir
Svein Skorra Höskuldsson og
Njörð P. Njarðvik.
Meðal annars efnis i
heftinu má nefna greinina
Popperismi og marxismi
eftir Kristján Arnason, grein
um kúbönsku byltinguna
eftir Gabriel Garcia Mar-
quez, ræðu Kjartans Flög-
stad sem hann flutti er hann
tók á móti bókmenntaverð-
launum Norðurlandaráðs og
sögur eftir Vagn Lundbye og
Kristján Jóhann Jónsson. Þá
eru ljóð eftir Kristján Árna-
son, Steinunni Sigurðar-
dóttur og Njörð P. Njarðvik.
Ádrepur eru eftir Magnús
Kjartansson, Helgu Hjörvar
og Þröst Ólafsson, bóka-
umsagnir eftir Véstein
Olason, Silju Aðalsteins-
dóttur, Kristján Arnason og
ritstjórann, Þorleif
Hauksson.
Timaritsheftið er 112 blað-
siður, prentað i Prent-
smiðjunni Odda hf.
Magnús
Oddsson
endur-
rádinn
bæjar-
stjóri
A fundi bæjarstjórnar Akraness
I fyrradag var Magnús Oddsson
ráðinn bæjarstjóri á Akranesi til
næstu fjögurra ára.
Magnús hefur verið bæjarstjori
á Akranesi undanfarin fjögur ár,
en var þar áður rafveitustjóri á
Akranesi.
Upphaflega var Magnús ráðinn
til starfa af þáverandi meirihluta
bæjarstjórnar, sem samanstóð af
Alþýðubandalagsmönnum,
Framsóknarmönnum og Alþýöu-
flokksmönnum.
Fyrir um það bil ári klofnaði sá
meirihluti og myndaður var nýr,
þar sem sjálfstæðismenn komu i
stað framsóknarmanna.
Það meirihlutasamstarf heldur
áfram á þessu kjörtimabili.
A fundinum i gær var kosið i
flestar nefndir á vegum bæjarins.
eng
kr. 63.900 — týrir fullorðna, en
49.300 krónur fyrir 20 ára og
yngri.
Dagana 4.-9. ágúst verður
„Scandinavia Grand Prix —
Ibsen Jubilée 1978” I Skien 1
Noregi, en 1. verölaun þar nema
hálfri miljón islenskra króna. 1
unglingaflokki undir 17 ára veröa
veitt verðlaun til bæði pilta og
stúlkna i hverjum aldursárgangi.
Nokkru siöar, eða 11.-18. ágúst
verður „Gausdal - Chess
International 1978” haldið 1
Gausdal. Þangað verður boðið 6
stórmeisturum og hafa margir af
fremstu skákmönnum
Norðurlanda þegar tilkynnt þátt-
töku. Flugfargjöld báöar leiöir til
Osló kosta fullorðna kr. 68.600 en
20 ára og yngri kr. 51.500
Alþjóðlegt unglingaskákmót
verður haldið i Hollandi dagana
11.-19. ágúst i Sas-vanGhent. Þaö
mót er ætlaö þeim sem fæddir eru
eftir 31. ágúst 1958.
Skáksamband Filippseyja hef-
ur boðið félögum innan Skáksam-
bands Islands mjög hagstæð kjör
áferðum á heimsmeistaraeinvig-
ið i skák sem hófst 16. jUli sl.
Flogið er á laugardögum frá
London með Philippine Airlines,
og kostar 8 daga ferð með gist-
ingu uþb. 255.000 kr„ en 12 daga
ferð um 280.000 kr.
Allar nánari upplýsingar um
ofangreind skákmót veita stjórn-
armenn Skáksambands tslands.
Mörg undanfarin ár hefur Um-
dæmisstúkan nr. 1 og Islenskir
ungtemplarar gengist fyrir úti-
móti um verslunarmannahelgina
i skóginum fyrir ofan Galtalæk.
Mót þessi hafa oftast verið vel
sótt, enda leitast við að búa svo i
haginn fyrir gesti, að þeir kunni
vel við sig.
Staöurinn er vel fallinn til
mótshalds, þurr og þokkalegur
þótt rigni, bjartur og fagur þegar
sólin skin. Ylmur af björk og
Veitingaskálinn að Brú i Hrúta-
firði hefur verið starfræktur um
nokkurra ára skeið við vinsældir
ferðamanna á leið að norðan og
sunnan. Starfstimi skálans er
sumarmánuðirnir, frá byrjun
maf og þar til seint f september.
í veitingaskálanum eru seldir
m.a. fljótlagaðir smáréttir Ur
nautakjöti, kindakjöti og fiski, og
grasi fyllir vit manna og söngur
smáfuglanna og niður Rangár er
hörpuhljómur, sem ekki gleym-
ist.
Ennþá gefst fólki, sem ekki r.ot-
ar áfengi, kostur á að vera þátt-
takendur i móti, sem haldið verö-
ur um verslunarmannahelgina nú
i sumár.
Mótið hefst á föstudagskvöld
með kvöldvöku og dansi eftir
diskóteki. A laugardag verða
sömuleiðis er þar á boðstólum
fjölbreytt úrval af smurbrauði.
Einnig eru þar á boðstólum kök-
ur, kaffi, te, mjólk og kakó, sem
og allar almennar feröamanna-
vörur. Þá eru þar á boðstólum
bensin og oliur og auk þess er þar
þvottaplan til afnota fyrir feröa-
menn. Skálinn er opinn alla daga
frá kl. 9 á morgnana tilJ23.30. For-
ýmsir leikir og iþróttir fyrir börn,
góðaksturskeppni, flugeldasýn-
ing og dans við undirleik hljóm-
sveitarinnar Galdrakarlar.
Dagskrá sunnudagsins hefst
með guðsþjónustu, siðan kemur
barnatimi með Tóta trúð og
Galdrakörlum og dansi. A kvöld-
skemmtuninni syngur MagnUs
Jónsson, óperusöngvari,
hátiðaræða verður flutt, Baldur
Brjánsson lætur til sin taka og
stööumaður starfseminnar i sum-
ar er Úlfar Reynisson.
Veitingaskálinn Brú stendur
viö Noröurlandsveg i Hrútafirði,
þar sem vegurinn norður á
Strandir liggur út af honum. Um
Strandaveg er nú vaxandi ferða-
mannastraumur, enda tengist
vegurinn vegakerfi Vestfjarða á
þremur stööum.
Jörundur hermir eftir nýjum ráð-
herrum, söngtrió, leikþáttur og
hin bráðskemmtilé'ga Bára
Grimsdóttir syngur eigin lög við
gitarundirleik. Hljómsveitin
Galdrakarlar leikur fyrir dansi.
Allt er þetta fyrir 5000.- kr. að-
gangseyri.
Ferðir frá Umferðamiðstöðinni
verða kl. 20,00 á föstudag og kl.
13.00 á laugardag.
—mhg
Launajafnréttí fjar-
lægur draumur?
Karlmenn med 40% hærri laun en konur viö sömu vinnu
Alþjóða vinnumála-
stofnunin, UNESCO og
Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna hafa nýverið
sameinast um að vinna að
ákveðnum fræðsluverk-
efnum í sveitahéruðum í
sjö Afríkulöndum. Mark-
miðið er að kenna börn-
um og unglingum ýmis
hagnýt fræði, meðal ann-
ars verkfærasmiði og
tækni við að bora eftir
vatni með tiltölulega ein-
földum tækjabúnaði.
Miklar vonir eru bundnar við
þetta verkefni, en það er svo i
þróunarlöndum, eins og raunar
•viða annarsstaöar að launajafn-
rétti á þar enn býsna langt i
land. Þar sitja hlið við hlið karl-
ar og konur á sama vinnustaðn-
um, en vegna þess að karl-
maðurinn er karlmaður ber
hann töluvert meira úr býtum
en konan. t sumum tilvikum
getur munurinn veriö þannig að
laun karlmannsins séu allt að
40% hærri en laun konunnar fyr-
ir nákvæmlega sömu vinnu. All-
ir gera sér grein fyrir þvi að
þessu mun taka langan tima að
breyta, en markvisst er nú unn,-
ið að þvi að reyna aö breyta
þeim hugsunarhætti, sem alltof
lengi hefur verið við lýði og aö
þvi vinna meðal annars þær
stofnanir, sem nefndar voru hér
að ofan.
Svo lengi, sem við aðeins lit-
um á orðanna hljóðan, þa er það
svo að grundvallarsjónarmiðið,
— sömu laun fyrir sömu vinnu,
er viðurkennt um næstum viða
veröld. En þegar komið er að
framkvæmdinni, þá verður
óneitanlega dálitið annað uppi
á teningnum.t fjölmörgum
löndum eru til lagaákvæði, sem
eiga að tryggja þetta, en þvi
miöur er það svo, að i mörgum
tilvikum eru lögin þannig, að
það er ákaflega auðvelt aö fara i
kringum þau, eða að þau eru
erfið i framkvæmd.
Arið 1970 voru samþykkt lög
um launajafnrétti i Bretlandi.
Nokkur aðlögunartimi var gef-
inn, en frá og með desember
1975 átti ekki að vera unnt að
skjóta sér undan þvi að hlita
ákvæðum laganna.
Rannsókn, sem Alþjóða
vinnumálastofnunin beitti sér
fyrir gefur til kynna að siðan i
desember 1975 hafi þeim kon-
um, sem voru i fullu starfi i
Bretlandi fækkaö verulega. Þeir
sem stóöu að rannsókninni
halda þvi fram aö þarna geti
varla verið um einskæra tilvilj-
un að ræða. Þeirhalda þvi frain,
inni svarað lagasetningunni
með þvi að ráöa konur i auknum
mæli i hlutastörf, og samkvæmt
bókstaf laganna, og vegna þess
hve fáir karlmenn eru i hluta-
störfum, þá hefur þetta haft það
i för með sér aö næstum er Uti-
lokaö að fylgjast með þvi hvort
um er aö ræða launajafnrétti i
reynd.
Þá benda athuganir Alþjóða
vinnumálastofnunarinnar til
þess að þvi miður sé þaö enn svo
bæði i iðnvæddu löndunum og
þróunarlöndunum aö konum sé
enn verulega mismunað i laun-
um miðað við karlmenn. Þetta
er lika sagt gilda ekki siöur um
Norðurlöndin, sem lengi hafa þó
státað af þvi að standa i þessum
efnum feti framar en aörir.
Arið 1976 sendu fimmtiu lönd i
öllum heimshlutum upplýsingar
til Alþjóða vinnumálastofnun-
arinnar, þá voru konurnar til-
tölulega vel settar og fengu
næstum þvi sömu laun og karl-
menn, sem unnu með þeim.
Einkum var þó áberandi að kon-
ur i þróunarlöndunum voru bet-
ur settar en konur í iðnvæddu
löndunum. Hvað þrjár seinni
starfsgreinarnar snerti þá var
þessu öfugt farið. (SÞ-Fréttir)
Verslunarmannahelgin:
Fjölbreytt skemmtun ung-
templara í Galtalækjarskógi