Þjóðviljinn - 11.08.1978, Síða 7
Föstudagur 11. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN SIÐA 7
Hólahátídin n.k. sunnudag
Hólahátiöin veröur haldin aö
Hólum i Hjaltadal nk. sunnu-
dag, 13. ágúst og hefst kl. 2 meö
þvi, aöklukkum dómkirkjunnar
verður hringt og prestar ganga i
skrúðgöngu til kirkju.
Þar fer fram hátiöarguös-
þjónusta. Sr. Gunnar Gislason,
prófastur i Glaumbæ, predikar,
en altarisþjónustu annast sr.
Pétur Sigurgeirsson, vigslu-
biskup, sr. Hjálmar Jónsson á
Bólstað og sr. Sighvatur Birgir
Emilsson á Hólum.
Kirkjukór Sauöárkrókskirkju
syngur undir stjórn Jóns
Björnssonár, organista.
Klukkan 5 e.h. verður sam-
koma i dómkirkjunni, er hefst
með ávarpi formanns Hólafé-
lagsins, sr. Arna Sigurðssonar.
Hljómlistarfólk frá Akureyri
leikur á orgel, trompet og
flautu. Gyða Halldórsdóttir
leikur á orgel. Hjálmar og
SVeinn Sigurbjörnssynir leika
tvileik á trompet. Rún Halldörs-
dóttir leikur á altblokkflautu,
Kristján Einarsson skáld frá
Djúpalæk flytur ræðu, Kirkju-
kór Sauðárkróks syngur. Aö
endingu flytur sr. Pétur Sigur-
geirsson vigslubiskup lokaorð
og bæn.
t sambandi viö Hólahátiðina
verður aðalfundur Hólafélags-
ins haldinn i setustofu Bænda-
skólans og hefst hann kl. 10.30
f.h.
Fundarefni: Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Fjölmennum ,,heim að Hól-
um” á sunnudaginn kemur.
—mhg
Mjólkursamsalan
Nú eru mjólkurflöskurnar ekki lengur viö liöi.
Fjölbreyttar
mjólkurafuröir
Mjólkursamsalan er eitt þeirra
afurðasölufyrirtækja landbún-
aðarins, sem þátt tekur i sýning-
unni á Selfossi.
Við verðum þarna með sérstak-
an kynningarbás, sagði Oddur
Helgason hjá Mjólkursamsöl-
unni. Þar munum við kynna okk-
ar framleiðsluvörur, sem eru
ýmiskonar mjólkurafurðir. Auk
þess rekum við isgerð, (Emm-ess
is), brauðgerð o.fl. Við munum
reyna að kynna þeim, sem sýning
una sækja, þessar framleiðslu-
vörur okkar og einn liðurinn i
þeirri viðleytni verður sá, að við
komum lil meö að vera þarna
með sérstaka kynningarsölu.
Þjóðdansafélag
Reykjavíkur
Happ-
drætt-
isvinn-
ingar
Starfsemi Þjóðdansafélags
Reykjavikur hefur á liðnum vetri
veriðmeð nokkuð svipuðum hætti
og undanfarin ár. í barnaflokkun-
um var kennt i Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu. Lauk námskeiðinu
þar með sameiginlegri sýningu
barna á Hótel Sögu þann 9. april
sl. Námskeið i gömlu dönsunum
voru haldin og sóttu þau um 400
manns sl. vetur.
Félagar úr Þ.R. tóku þátt i
listahátiö með um klukkustundar
langri sýningu i sibylju dagskrá
listahátiðar þ. 10. júni sl. Þessari
sýningu stjórnaði Sigriður Val-
geirsdóttir. Auk þess hafa smærri
hópar úr Þ.R. sýnt islenska dansa
við ýmis tækifæri, svo sem á 17.
júni' i' Reykjavik á hestamanna-
móti á Þingvöllum, á barnakóra-
móti Norðurlanda i Háskólabiói,
ánokkrum norrænum eöa alþjóð-
legum ráðstefnum i Reykjavik og
nágrenni ofl.
Hópur dansara, söngvara og
hljóðfæraleikara úr Þ.R. tekur
um þessar mundir þátt i alþjóö-
legu þjóðdansa- og þjóðbúnings-
móti i Neustadt i Norður-Þýska-
landi. Mótið stendur yfir dagana
28. júli — 5. ágúst og mun hópur-
inn sýna fslenska dansa á ýmsum
stöðum i borginni alla þessa
daga.
1 vor gekkst félagið fyrir happ-
drætti.Dregið varþ.lS.júlis.l. og
komu vinningar á eftirfarandi
miöa,
1. Utanlandsferð nr. 3197
2. Utanlandsferð 1323
3. Tölva 4667
4.Svefnpoki 3601
5. Svefnpoki 725
6. Tréstytta 4960
7. Vasatölva 2698
Vinninga má vitja i sima 44109
til 12. ágúst og i simum 71042 og
75770 eftir 12. ágúst.
WfoMkMk,
OPNUM í DAG...OPNUM í DAG...OPHUMí DAG..
KL.16:00
Landbúnaðarsýningin
á SELFOSSI 1978
Rúmlega 200 sýnendur á 32000m2 sýningarsvæði
Vélasýning Blómasýning
Búfjárræktarsýning Heimilisiðnaðarsýning
Jarðræktarsýning Ga rðyrkjusýn i n g
Þróunarsýning Tækjasýning
Afurðasýning Byggðasafn
NÝIPNC
Sýningartorg með sérstökum kynningaratriðum. Dómhringur fyrir búfé.
Hestaleiga fyrir unglinga.
co
Glæsilegar tískusýningar á hverjum degi.
Sérstök dagsskrá með fræðslu- og skemmtiefni hvern
dag.
Veitingasalir. Sérstakt húsvagnastæði.
K vikmyndasýningar. Tjaldstæði.
Komið á Selfoss — Komið á Landbúnaðarsýninguna 1978.
\
)
11.-20. AGUST
Ævintýri fyrir alla Ijölskylduna