Þjóðviljinn - 11.08.1978, Blaðsíða 9
Föstudagur 11. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Árni Jónsson, erindreki
Jardakaupalánin pólitískt
vandamál, sem verdur leyst
„Þaö er verst núna aö ekkert
fjármagn hefur fengist til jaröa-
kaupalána, og sá lánaflokkur þvi
algerlega óvirkur aö sinni. Siö-
astliöiö ár var hægt aö lána tvær
miljónir króna á hverja jörö, en
þaö kom seint, dróst fram undir
áramót. Þaö er ljóst aö jaröar-
kaupalánin geta ekki og mega
ekki stöövast. Þaö er hreinlega
ekki hægt. Þetta er einfaldlega
pólitiskt mál, sem alltaf er leyst,
þótt seint gangi stundum”, sagöi
Arni Jónasson, erindreki Stéttar-
sambands bænda, i viötali viö
Þjóöviljann i gær.
„Þaö hggur í augum uppi aö
ungir menn halda áfram aö byrja
búskap”, sagöi Arni ennfremur,
„og þeir kaupa jaröir. Viö jaröar-
kaup gera þeir ráö fyrir þessari
lánafyrirgreiösiu, sem á aö vera
fyrir hendi. Þvi hlýtur þrýstingur
Arnór Karlsson, Bóli:
Lánað hefur
veriö skipu-
lagslaust
„Meginvandinn i lánamálum
bænda i dag er sá aö til eru regl-
ur um lán og þaö góö lán til
framkvæmda, en sjóöirnir sem
þessar reglur visa til eru tómir.
Ef lögin og reglurnar sem sett
hafa veriö í þessum efnum væru
virk, þá væri allt gott um þessi
mál aö segja”, sagöi Arnór
bóndi á Bóli, þegar hann var
inntur eftir ástandinu i lána-
málum bænda.
„Einn þáttur vandans er þaö
hversu stefnulaust hefur veriö
lánaö til framkvæmda”, sagöi
Arnór ennfremur, „þaö er án
þess að til grundvallar væru
lagðar reglur um æskilegar/ ó-
æskilegar framkvæmdir. Lána-
starfsemin hefur ekki veriö not-
uðtilskipulagningar á landbún-
aðinum. 1 lögum eru ákvæöi
sem mæla fyrir um aö svo skuli
gert, en til þessa hafa þau ekki
veriö framkvæmd. Þaö er ein af
orsökum þess aö nú eru allir
sjóöir tómir og, aö mér skilst,
ekkért lánað út á nýjar fram-
kvæmdir i ár.
Hiðsama er aö segjaum Veö-
deildina, þar er allt tómt. Þar
fást nú engin lán til jaröar-
kaupa. Þessir lánamöguleikar,
sem eiga aö vera fyrir hendi,
þótt takmarkaöir séu, eru því ó-
virkir. Sérstaklega er þetta erf-
itt fyrir þá sem eru aö byrja og
fá ekkert.
Þaö hlýtur öllum aö vera
ljóst, aö margir bændur hafa
geysimikla þörf fyrir aö auka
hjá sér hagræöingu. Þaö kemur
ílla við þá þegar þeir lánasjóöir,
sem þeir eiga rétt á lánum úr,
eru hreinlega tómir og svörin
við öllum umsóknum eru NEI.
Þaö verður aö útvega fé til
nauösynlegra framkvæmda i
landbúnaði. En þaö er ekki nóg,
þvi einhver verður aö taka á sig
þann vanda, aö vega og meta
þær framkvæmdir sem sótt er
um lán til og ákvaröa hverjar
þeirra eru æskilegar, hverjar ó-
æskilegar. Ef halda á áfram aö
lána til einhverra framkvæmda,
þá veröur aö gera þaö skipu-
lega”.
Tilkynnmg til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir júlimán-
uð er 15. ágúst. Ber þá að skila skattinum
til innheimtumanna rikissjóðs ásamt sölu-
skattsskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið,
10. ágúst 1978.
aö koma á, þegar frá liöur. Um
leiö og viö höfum rikisstjórn til aö
þrýsta á.
t öörum lánaflokkum er hiö
sama uppi, aö mörgum lánaum-
sóknum hefur ekki veriö hægt að
sinna vegna fjárskorts. Þó veit ég
aö reynt hefur.veriö aö sinna þvi
sem brýnast er.
Bústofnskaupalánin, sem lif-
eyrissjóöur bænda fjármagnar,
hafa gengiöeöhlega fyrir sig. Hiö
samaeraösegjaum lán til kaupa
á dráttarvélum, en þar hafa allir,
sem uppfyllt hafa skilyröi, fengiö
jákvæöa afgreiöslu. Ibúöarhúsa-
lánin hafa einnig verið i lagi.
Þeir, sem hófu framkvæmdir
viö útihúsabyggingar i fyrra og
þeir sem búnir voru aö byggja aö
hluta, hafa einnig fengiö fyrir-
greiöslu til aö geta haldiö áfram.
Fjármagnsskorturinn er hinn
sami f landbúnaöi og viöa annars
staöar og vissulega er þaö bæöi
erfittog óeölilegt aö sú lánafýrir-
greiösla, sem vera á fyrir hendi,
samkvæmt lögum og reglum,
skuli liggja niöri, aö einhverju
eöa öllu leyti”.
Magnús Finnbogason, Lágafelli:
Jákvætt að nú er
mikilvægi metið
„Staöan i lánamálum landbún-
aöarins er einföld i dag. Stofn-
lánadeildin erhreinlega lokuö og i
vor var þar aö lang-mestu leyti
neitaö um framkvæmdalán. Þvi
hlýtur aö veröa meö minna móti
af framkvæmdum hjá bændum á
næstunni”, sagöi Magnús Finn-
bogason, bóndi á Lágafelli, þegar
Þjóöviljinn haföi samband viö
hann I gær.
„Ég held ég fari rétt meö að
gefin hafi verið loforö um lán út á
ibúðarhúsabyggingar og eitthvaö
út á hlöður”, sagöi Magnús jafn-
framt, „en hins vegar ákaflega
litið út á gripahús. Vera má aö
þaö hafi verið gert i einstökum
neyðartilvikum.
Þetta þýöir aö sjálfsögöu kyrr-
stööu I bili og stöðvun eftir
skamman tima. Þaö er svo fljótt
aö segja til sin ef framkvæmdir
stöövast, þvi I þessum atvinnú-
vegi, svo sem öörum, veröur aö
vera stöðug og sigandi endurnýj-
un.
1 þessum málum hygg ég aö
höfuöörsökin sé dýrtiöin. Þaö fé,
sem stofnlánadeildin hefur fengiö
til sinna nota dugir svo skammt
vegna hennar.
Hins vegar hefur þessi staöa
einnig nokkuö jákvætt i för meö
sér. Nú er, vegna þess aö sjóöir
erumargir, ifyrsta sinn beitt ein-
hverju mati á mikilvægi fram-
kvæmdanna sem lánað er til. Þaö
er vel og ætti aö halda áfram.
Annars hef ég allt annað aö
gera, núna um hásláttinn, heldur
enaöhugsa um lánamál og rabba
viö blaöamenn. Og um lifeyris-
sjóðsmál er ég bara alls ekki nógu
fróöur til aö leggja orö i belg”.
Það er ekkert
Sambandsleysi á
Landbúnaðarsýningunni
Kynnum þar alveg sérstaklega:
Duovac-mjaltir: öll mjaltatadd i f jósi og á okk-
ar sýningarbás, auk kvikmynda — Duovac
mjaltir kl. 16.19 og 20.19 daglega.
Intemational Kraftlipurð — nýju traktoramir
á sinum bás og kvikmyndasýning kl. 16 og 20
Kemper — baggahirðing — hvemig hirðir 1
maður 3000 bagga á dag auðveldlega?
Trioliet — heymatari — brúar bilið milli hey-
hleðsluvagnsins og blásarans .
Auk þessa — mörg önnur ný tæki frá Internati-
onal — Kuhn — Weeks — Lister — Duks —
Reime.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900