Þjóðviljinn - 12.09.1978, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 12. september 1978
/
Miðstöð vísindalegra rannsókna á náttúru Islands
Sýnlngarsalur 100 fermetrar
og bókasafnið á átta stöðum
— Ariö 1965 voru samþykkt á
Alþingi lög um almennar náttúru-
rannsóknir og Náttúrufræöistofn-
un tslands. Um hlutverk Náttúru-
fræðistofnunar tslands segir aö
aðalverkefni stofnunarinnar sé
m.a. ,,að vera miðstöð almennra
visindalegra rannsókna á náttúru
íslands, vinna að slikum rann-
sóknum, samræma þær og efla.
Að koma upp sem fullkomnustu
visindalegu safni islenskra og er-
lendra náttúgugripa og varðVeita
það.
Að koma upp sýningarsafni, er
veiti sem gleggst yfirlit um
náttúru Islands og sé opið al-
menningi”.
Ævar Petersen er deildar-
stjóri dýrafræðideildar. Ævar tók
stúdentspróf við Menntaskólann i
Reykjavik 1968. Þá lá leið hans i
Háskóla tslands, þar sem hann
nam ensku og efnafræði i eitt ár.
Þá fór hann utan til náms i dýra-
fræði og nam við Saint Andrews
háskólann i Skotlandi og siðar i
Aberdeen, þar sem hann lauk B.
Sc.(honours) prófi i dýrafræði. Að
loknu þessu námi starfaði Ævar
við Náttúrufræðistofnuna i eitt
ár, en haustið 1974 fór hann i
framhaldsnám til Oxford i Eng-
landi. Aðalverkefni hans þar var
að athuga atferli teistunnar og
hefur Ævar dvalið sex mánuði á
ári hverju við þessar rannsóknir,
i Flatey á Breiðafirði. Ævar vinn-
ur nú að doktorsritgerð um þess-
ar rannsóknir.
Við báðum Ævar að segja okkur
frá Náttúrufræðistofnuninni,
hvað hann fúslega gerði og við
gefum honum orðið.
Stjórn og skipulag
— Náttúrufræðistofnun tslands
er skipt i þrjár deildir, dýrafræði-
deild og jarðfræði- og landafræöi-
deild. Deildarstjórar eru þrir,
einn yfir hverri deild. Einn af
þeim er forstööumaður alls safns-
ins i heild, til þriggja ára i senn,
þá tekur næsti við, og þannig
gengur þetta koll af kolli. Við
hverja deild vinna tveir sérfræð-
ingar, og er annar þeirra deildar-
stjóri. Við dýrafræðideild er ég
deildarstjóri og jafnframt fugla-
og spendýrasérfræðingur, og
Erling ölafsson sérfræðingur i
skordýrum. Við grasafræðideild
er Eyþór Einarsson deildarstjóri,
og jafnframt forstöðumaður
safnsins, og erhann sérfræðingur
i æðri plöntum. Bergþór Jóhanns-
son er sérfræðingur i mosum. 1
jarð- og landafræðideild er Sveinn
Jakobsson deildarstjóri, og er
hann bergfræðingur. Hann er nú i
ársleyfi og staðgengill hans er
Kristján Sæmundsson jarðfræð-
ingur.
Við i dýrafræðideild höfum svo
hamskera sem stoppar upp fugla
fyrir safnið og sér um aðra
náttúrugripi sem til okkar koma,
og gengur frá þeim.
Aðbúnaður er lakur
og starfslið fámennt
— Aðbúnaður safnsins er væg-
ast sagt mjög lakur. Til dæmis er
bókasafnið dreift um alla stofn-
unina. Einsog málin standa núna
er það á átta stöðum. Húsnæðið
sem við höfum er orðið allt of
litið, það þarf stórar geymslur
fyrir náttúrugripi, þvi þeir taka
mikið pláss. Stöðugt eru að berast
nýir gripir að safninu og til þess
að geta varðveitt þá á þann hátt
sem æskilegast er, það er að
segja svo þeir eyðileggist ekki, þá
verður að hafa mjög góöar hirslur
og yfirleitt eru þessar hirslur
rúmfrekar
Starfslið stofnunarinnar er
mjög fátt. Samkvæmt fjárlögum
þá höfum við heimild fyrir tveim-
ur sérfræðingum viö hverja deild,
og dýrafræðideild þar að auki ein-
um hamskera. Hinar tvær deild-
irnar, grasafræðideild og jarð-
fræði- og landafræðideild, hafa
fengið fjárveitingu fyrir aðstoð-
armenn. Það hafa verið tveir að-
stoðarmenn hér við vélritun, og
þar með er talið upp allt starfslið
stofnunarinnar. Svo hefur verið
maður sem hefur séð um sýn-
ingarsalinn, þegar hann er opinn,
en hann er opinn sunnudaga,
þriðjudaga fimmtudaga og laug-
ardaga frá 1-4. Það segir sig sjálft
að með svona fámennu starfsliði,
sérstaklega það að sérfræðing-
arnir hafa ekki aðstoðarfólk til að
vinna fyrir sig ýmis störf, að þá
er náttúrulega mjög illa að okkur
búið. Við þurfum að vinna margs-
konar störf, og kannski má segja
að menntun okkar að mörgu leyti
sem sérfræðinga nýtist alls ekki.
A mörgum sviðum myndi hún
nýtast mun betur ef að við hefum
aðstoðarfólk, fólk sem er út-
skrifað úr til dæmis raunvisinda-
deildinni hér i Háskólanum og
yrði til aðstoðar sérfræðingunum
hér. Annað sem má benda á, er að
samkvæmt lögunum um náttúru-
fræðistofnun er sagt að hún eigi
,,að vera miðstöð almennra vis-
indalegra rannsókna á náttúru ís-
lands, vinna að slikum rann-
sóknum, samræma þær og efla”.
Það er gert ráð fyrir i fjárlögum
1978 að hver sérfræðingur fái 120
þúsund i ferðapeninga á þessu
ári. Ef að hver sérfræðingur ætti
að taka ferðapeninga, eins og þeir
eru hjá hinu opinbera núna, 8 þús-
und á dag, þá gæti hver sérfræð-
ingur aðeins ferðast 15 daga á ári.
Við höfum haft það þannig að við
höfum gjarnan verið með við-
leguútbúnað og lifað við skrinu-
kost. A þann hátt höfum við getaö
verið lengur úti. Auðvitað getum
við það án þess að fá ferðapen-
inga, en það er nú eins og það er.
Söfnin eru nokkuð
notuð til kennslu
Safnið er nokkuð notað til
kennslu. Það koma hérna skóla-
hópar á vissum timum árs, fyrst
og fremst hér af Reykjavikur-
svæðinu. Hins vegar er það orðið
algengt að liffræðinemar i Há-
skólanum sækja hingað. Það er
fyrst og fremst bókakosturinn
sem þeir hafa áhuga á, þvi Há-
skólinn hefur ekki fyri að ráða
góðum bókakosti til liffræði-
kennslu, sem stafar einna helst
af þvi að liffræðideildin var ekki
stofnuð fyrr en fyrir 10 árum sið-
an. En hinsvegar hefur verið
markvisst unnið að uppbyggingu
bókasafns hér. Finnur Guð-
mundsson, sem var deildarstjóri i
dýrafræðideild á undan mér,
hafði mikinn áhuga á fuglum og
þess vegna er safnið mikið byggt
upp i kringum fugla, sem að visu
eru mest áberandi þáttur i okkar
lifriki. Auðvitað eru önnur dýr
ekki siður merkileg út frá lif-
fræðilegu sjónarmiði. Um siðustu
áramót kom hér til starfa sér-
fræðingur i skordýrafræðum.
Hann er fyrsti sérfræðingurinn i
hryggleysingjum sem er ráðinn
við þessa stofnun. Hans aðalverk-
efni nú, er að byggja upp hrygg-
leysingjasafnið, en það er lika
hans að reyna að byggja upp
bókakostinn, sem hingað til hefur
mjög mikið verið bundinn við
spendýr og hryggdýr almennt, og
þá fyrst og fremst fugla.
FJárveitingar rýrar
— A þessu ári er fjárveiting til
bókakaupa, bæði fyrir áskrift að
timaritum, bækur og bókband,
tæpar 200 þúsund krónur á þessa
deild. Þessi fjárhæð þyrfti að
vera miklu hærri, ekki sist nú
þegar annar sérfræðingur er
kominn til starfa, á öðru sviði og
þá þarf að byggja upp bókakost-
inn fyrir hann. Hann er eini sér-
fræðingurinn á þessu sviði i land-
inu, og þvi er litið til af þvi sem
hann þarf að nota.
Það getur farið svo, að við
verðum að hætta áskrift að sum-
um timaritum sem við höfum
keypt frá byrjun, vegna fjár-
skorts. Það eru margar bækur
gefnar út, og til þess að fylgjast
Ævar Petersen er hér að segja okkur frá þessum kvenfálka. Myndin
af fálkanum, sem er í bakgrunni mun vera fyrsta mynd sem tekin er
af fálka á tslandi. Mynd :Leifur