Þjóðviljinn - 19.09.1978, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 19.09.1978, Qupperneq 1
ÓTRÚLEGT EN SATT 36 undan einu og sama grasinu t»að er ótrúlegt en ku vera hreinasatt aö þessar 36 kartöfl- ur eru undan einu og sama gras- inu úr garöi þeirra Guðrúnar Jónsdóttur og Salbjargar Eyjólfsdóttur, Hverfisgötu 6 B I Hafnarfiröi. Sjálfsagt munu fáir trúa, en þær GuörUn og Salbjörg eru grandvarar konur og hafa ekki hingað til veriö vændar um aö fara meö staðlausa stafi. Ljósm. Leifur. NÝJASTA í FARGIÖLDUM Ódýrara til Ameríku en Evrópu Áöur litu feröamenn varla i vesturátt en nU er svo komiö aö Amerika er oröiö ódýrasta feröa- mannalandiö fyrir islendinga. Vetraráætlun Flugleiöa er ný- komin fram og skv. henni kostar farseöillinn frá Heykjavik til New York 45.800 kr. aöra leiö en 91.600 kr. báöar leiðir og gildir farseöiil- inn i eitt ár. Hægt er aö fá góöa næturgistingu á hóteli I New York fyrir 38-40 dollara (12-13 þúsund krónur meðan t.d. hótelkostnaöur I London i samsvarandi hóteli er 40 pund (ca 24.000 kr.) Þcssar upplýsingar veitti Sveinn Sæmundsson blaöafulltrUi Flug- leiöa i samtali viö Þjóöviljann i gær. Framhald á 14. siöu UOÐVIUINN Þriðjudagur 19. september 1978 — 203. tbl. 43. árg. wo\f/im Skrifstofur Þjóöviljans aö Síöumúla 6 veröa lokaöar milli kl. 15 og 17 i dag vegna jafnréttisgöngu Sjálfsbjarg- SAMTÖK KAUPSÝSLUMANNA: Ætlaað halda hám álagnlngu Hvetja til samblásturs um að fara ekki að lögum! ,/Samtök verslunar- innar" telja lögbundnar reglur um verslunar- álagningu ólögmætar og ráðleggja kaupmönnum og verslunarfyrirtækjum að virða þær að vettugi. Virðist hér vera í uppsiglingu samblástur um lagaandóf og sjálf- tekinn rétt/ sem byggir á „siðferðilegum sandi". Verslunarráð Islands, Félag islenskra stórkaupmanna og Kaupmannasamtök Islands hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þau mótmæla framkomnum bráðabirgöalögum ríkisstjórnar- innar um lækkun álagningar- ákvæöa sem ólöglegum. Þessi „samtök verslunarinnar” telja aö tilkynning verölagsnefndar nr. 33/1977 sé enn i gildi, en á þessu ári hefur álagningu tvisvar verið breytt til lækkunar, fyrst af fyrr- verandi ríkisstjórn og siðan af núverandi stjórn með nýsettum bráöabirögalögum. „Samtök verslunarinnar” telja aö það sé stjórnarskrárbrot aö hreyfa álagningu til lækkunar (!) og benda á aö þau hafi þegar kært siöustu álagningarákvæði fyrri rikisstjórnar fyrir dómstólunum! Þjóöviljinn átelur mjög þann anda sem fram kemur i til- kynningu kaupsýslumanna þvi hann ber vitni um upplausn viöskiptasiðferðisins. Hér er um beina hvatningu til lögbrota aö ræða sem þau stjórnvöld sem gæta skulu laga og réttar i landinu hljóta aö telja mjög alvarlegt mál. Þessar ömurlegu staðreyndir um siðferði og lög- hlýöni kaupsýslumanna koma nú i kjölfar þess að uppvist hefur orðið um miljarða króna stuld is- lenskra innflytjenda Ur þjóðar- bUinu. Stuldurinn felst sem kunn- ugt er i þvi að kaupa vörur á hærra verði en markaðsverði erlendis og stinga mismuninum að verulegu leyti i eigin vasa. —h. Þorvardur Elíasson, framkv.stjóri Versl- unarráds íslands Fást ekki til að brjóta lögin ,,Viö höfum ekki hvatt neinn kaupmann til þess aö brjóta verö- lagsákvæði um áiagningu, en viö höfum skýrt Ut fyrir ölium sem hafa samband viö okkur hvernig i málum liggur. Hinsvegar hefur okkur verið bent á aö eina ieiöin til þess aö fá Ur þvi skorið fyrir dómstólum hvaö séu gildandi verðlagsákvæöi sé aö kaupmaður fái á sig kæru fyrir brot á lög- gjöfinni og málið sé þannig tekiö upp. Hingaö til hefur okkur ekki tekist aö fá kaupmann til þess aö brjóta lög meö þessum hætti.” Þetta sagði Þorvarður Ellas- son, framkvæmdastjóri Versl- unarráðs Islands, i samtali við ^Framhald á 14. siðu Ganga Sjálfsbjargar hefst kl. 3 í dag undir kjörorðinu Viö höfum alls staöar fengiö góöar undirtektir og jafnvel betri en björtustu vonir hafa staöiö til. Ef vel tekst tii getur þessi ganga oröiö upphaf aö örri þróun á tslandi. sagöi MagnUs Kjartansson framkvæmdastjóri jafnréttisgöngu Sjálfsbjargar á blaöamannafundi i gær. Samtök launafólks og Vinnu- veitendasambandið hafa lofaö stuöningi við gönguna og þau siðarnefndu hafa lýst þvi yfir að þau styðji að fólk, sem þess ósk- ar, fái fri Ur vinnu til aö taka þátt i henni. Auk þess hefur ver- ið haft samband við Iþrótta- samband Islands og fjöimörg önnur samtök og einnig menntaskólana á höfuðborgar- svæðinu og hafa nemendur lofað aö vera til aðstoðar meö góðfUs- legu samþykki skólameistara. Búist er við að a.m.k. 4-500 fé- lagar I Sjálfsbjörg taki þátt i göngunni og einnig koma hópar frá skólum sem hafa fatlaða nemendur. Þá er allt fólk, sem vill leggja málstaðnum liösinni, hvatt til að taka þátt i henni. Safnast verður sama n v ið Sjó- mannaskólannog lagtafstað kl. 3 en fundurinn á Kiarvalsstöð- um hefst kl. 4. Fyrir göngunni fara Hreinn Halldórsson Kúlu- varpari með islenska fánann og Arnór Pétursson formaöur tþróttafélags fatlarða með fána Ganga Sjáifsbjargar I dag gæti oröiö upphafiö aö örri þróun. Hér er einn þeirra sem unniö hafa aö undirbUningi göngunnar aö draga upphafsstafinn ikröfu dagsins á boröa f HátUni 12 i gær. Krafan er jafnrétti. — Ljósm.: Leifur. Sjáifsbjargar. A eftir þeim koma fatlaöir i hjólastólum, þá aðrir fatlaðir t.d. þeir sem ganga við staf,, þá foreldrar með barnavagna og einnig er búist Viö aö nokkrir hestamenn komi riðandi en á Reykjalundi er þáttur i endurhæfingu fólks að sitja hesta. Næst koma strætis- vagnarmeðþá sem ekki treysta sér I gönguna og einnig nokkrir einkabilar. Þar á eftir kemur lúörasveit unglinga úr Breið- holti og Arbæjarhverfi undir stjórn ölafs Kristjánssonar en hún er ein fjölmennasta lúðra- sveit landsins. Unniö hefur veriö ötullega að þvi að undanförnu að mála á borða og verða milli 70 og 80 bornir i göngunni og stendur á þeim öilum Jafnrétti. Ef vel tekst getur hún orðið upphaf að örri þróun á íslandi, sagði Magnús Kjartansson á blaðamannafundi í gær Búist er við aö ekki komist fleiri inn i Kjarvalsstaði en þeir son fatlaðir eru og eru aðrir beðnir að safnast saman fyrir simnanhúsiöoghlýðaá þaðsem fram fer i hátölurum sem þar verður komið fyrir. A Kjarvalsstöðum tekur borg- arstjórn á móti göngunni og verða þar flutt nokkur örstutt ávörp. Af hálfu göngumanna tala þau Rafn Benediktsson for- maður Sjálfsbjargar, Theodór Jónsson formaður Landssam- bands fatlaðra, Arnór Péturs- son formaður Iþróttafélags fatlaðra, Magnús Kjartansson og Vilborg Tryggvadóttir.ritari Sjálfsbjargar. -GFi

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.