Þjóðviljinn - 19.09.1978, Blaðsíða 3
HERLÖG
í ÍRAN
TEHERAN, 18/9 (Reuter) — 1
gær samþykkti þing trans herlög
sem gilda eiga i tólf borgum
landsins næstu sex mánuöi.
Hundraö fimmtiu og tveir þing-
menn greiddu atkvæöi meö til-
lögunni, en tuttugu og tveir á
móti. Atján þeirra sem á móti
voru, gengu Ut úr þingsal i mót-
mælaskyni. Þeir sögöu forsætis-
ráöherra landsins vera ósam-
kvæman sjálfum sér, þar sem
hann hefur lýst þvi yfir aö hann
væri fylgjandi frjálsri stjórn-
málastarfsemi i Iandinu. Hann
svaraöi þvi til aö herlögin séu
nauösynleg eins og nú er ástatt,
en þau muni tekin Ur gildi þegar
ástæöa þykir tii. Upplýsingaráö-
herra trans ásakaöi kommUnista-
leiötoga i Vestur-Evrópu um aö
styöja mótmælaaögeröirnar sem
veriö hafa i landinu aö undan-
förnu. Yfirvöld segja aö ró sé aö
færast yfir landiö á ný.
Andstæöingar stjórnarinnar
gagnrýna að hermenn hafi verið
látnir skjóta á mannfjöldann
föstudaginn 8. september, en
þann dag voru herlögin sett á.
Búist er við að handtökur haldi
áfram i þessari viku I kjölfar
mótmælaaðgerðanna, en i siðustu
viku voru margir handteknir, þar
á meðal þrir fyrrverandi ráð-
herrar. Fjöldi fólks sem óttast að
veröa handtekið, hefur leitab
skjóls á heimili trúarleiðtoga eins
i heilögu borginni Qom. Meðal
þeirra eru fimm starfsmenn
mannréttindahreyfingarinnar, en
forseti hennar, Hahdi Bzargan,
var handtekinn i siðustu viku.
Erlendar fréttir
rs
I stuttu
máli
v _____________
Haröir jaröskjálftar i íran
TEHERAN, 18/9 (Reuter) — Miklir jarðskjálftar sem urðu I Iran á
laugardag lögðu borgina Tabas gersamlega i rúst. Enn er ekki vitað
hve margir létust, en giskað er á ellefu þúsundir manna. Lik flestra
þeirra sem fórust liggja enn undir rústum húsa, en yfirvöld telja að tvö
af fimmtán þúsundum bæjarbúa hafi komist lifs af. Jarðskjálftinn er
talinn sá versti I Iran á þessari öld, en fyrir sextán árum fórust þrettán
þúsundir manna i slikum hamförum. Jarðskjálftinn á laugardag
mæltist sjö stig á Richter-kvarða. Auk hermanna, lögreglumanna og
hjálparsveita aðstoða ibúar nálægra bæja við björgunarstarfið I
Tabas.
Indjánar mótmœla meöferö á fóngum
SIOUX FALLS, 18/9 (Reuter) — t gær héldu foringjar Amerisku
indiánahreyfingarinnar (AIM) fund i fylkisfangelsinu f Sioux Falls til
aö mótmæla aöstæöum pólitiskra fanga af indiánaættum. Sams konar
fundur var haldinn daginn áöur og mebal þeirra sem mættu, voru leik-
arinn Marlon Brando, söngvarinn Harry Belafonte og lögfræöingurinn
William Kunstler sem ávarpaöi viöstadda. A fundinum I gær mætti
einnig foringi hreyfingarinnar, Russel Means, þrátt fyrir meiösli sem
hann hlaut þegar hvitur meöfangi hans réöst á hann i fyrradag. Means
afplánar nU fjögurra ára fangelsisdóm, fyrir aö efna til óeiröa.
Yfirmenn fangelsisins halda þvi fram að meiðsl Means séu látalæti
ein, en segja að málið sé i rannsókn.
í fangelsinu i Sioux Falls eru fimm hundruð og sextiu fangar og er
fjórðungur þeirra amerlskir indiánar.
Lögreglumenn í gíslingu og fangelsi
NICOSIA, 18/9 (Reuter) —Forseti Kýpur, Spyros Kyprianou neitar aö
veröa viö kröfum sjö manna sem halda jafn mörgum lögreglumönnum
og fangavöröum i gislingu i stærsta fangelsi Kýpur.
Foringi hópsins er talinn vera Vassos Pavlides en hann skipulagði
ránið á syni forsetans i fyrra. Hann situr nú i fangelsi ásamt fimm
öðrum föngum, sem þátt taka i bessum aðgerðum. en siöunda mann-
eskjan er unnusta hans, Androula Neocleous sem smyglaði skamm-
byssu inn i fangelsið. Fangarnir reyndu fyrst aö flýja, en þegar það
mistókst tóku þeir lögreglumennina. i glslingu gegn þvi að þeir fengju
aö fara úr landi.
Fangarnir eru sagöir vera félagar i öfgasinnuðum hægri samtökum,
Eoka, en talið var að þau hefðu verið leyst upp i byrjun þessa árs.
Námsmenn i hœttu
LONDON, 18/9 (Reuter) —I dag sendi Amnesty International áskorun
til Leonid Brésnéfs, um aö senda ekki heim námsmenn frá Eþiópiu,
sem eru viö nám I iSovétrikjunum , þar sem þeir gætu átt á hættu aö
vera pyntaöir og jafnvel drepnir eftir heimkomuna. Minnst var á fjóra
námsmenn sem komu frá ódessa og voru handteknir viö komuna til
Addis Ababa þann 23. ágúst. Einnig var tveggja Eritreumanna getiö,
sem eru nU I felum i Ódessa, af ótta viö aö veröa sendir heim.
Amnesty skýrði frá þvl að margir námsmenn I Eþióplu hefðu verið
drepnir fyrir stjórnmálastarfsemi. ,
Samtökin skoruðu einnig á þjóðhöfðingja Eþiópiu, Mengistu Haile
Marjam að tryggja öryggi námsmanna er heim kæmu.
Franskir fimmburar
NANCY, Frakklandi, 18/9 (Reuter) — t gærmorgun fæddi frönsk kona
aö nafni Francine Huber fimmbura. Börnin fæddust sjö vikum fyrir
timann, og voru samstundis sett I sUrefniskassa. Tvö barnanna eiga
vist viööndunarerfiöleika aöstriöa, en hin eru viö bestu heilsu. Móöirin
sagöist hafa bUist viö þriburum, en fæöingin heföi gengiö vel og aöeins
fimm minUtur liöiö á milli barna.
Þriöjudagur 19. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Camp DaYÍd-YÍðræöur
WASHINGTON, 18/9 (Reuter)
— Fundi ráðamanna lsraels,
Egyptalands og Bandarikjanna
lauk I gærkveldi, með þvi að
þremenningarnir undirrituðu
samninga, sem voru svohljóö-
andi:
Ráöamenn Egyptalands,
Israels, Jórdaniu og fulltrúar
Palestinumanna semji um
lausn vandamála Palestinu-
araba. Samningar varðandi
vesturbakka Jordanár og
Gaza-svæðið fari fram I þremur
skrefum:
a. Egyptar og ísraelsmenn
samþykki ráðstafanir á svæð-
unum næstu fimm árin. tsra-
elsher fari af svæðinu, þegar
ibúarnir hafa kosið sjálfs-
stjórn sem leysa á herstjórn-
ina af. Ráöamönnum Jódaniu
verði boðin þátttaka i samn-
ingagerðinni.
b. Egyptar, tsraelsmenn og
Jórdanir samþykki sjálfs-
stjórnina, og mega Palestinu-
menn vera meðal fulltrúa
Egypta og Jórdana. Gerðar
verði ráðstafanir til aö
tryggja öryggi og ró. Sterku
lögregluliði verði komið á fót
og geta Jórdanir verið i þvi
liði. Asamt tsraelsmönnum
muni þeir hafa eftirlit til að
tryggja öryggi á landamær-
unum.
c. Eftir að sjálfsstjórn verður
komin á, byrjar umrættfimm
ára timabil. Ekki seinna en á
þriöja ári verði samið um
endanlega framtið vestur-
bakkans og Gaza.
Samningurinn á að vera i
samræmi við ályktun öryggis-
ráðs S.Þ. númer 242 og á að
tryggja réttindi Palestinu-
manna. Allt skal gert til að
tryggja öryggi tsraelsmanna á
timabilinu. Til að svo megi
vera, verði öflugu lögregluliöi
komið á. A timabilihu ræði full-
trúar Jódaniu, Egyptalands,
tsraels og ibúa á svæöunum um
framtiö fólks þess sem flúöi um-
rædd svæði árið 1967. Egyptar,
tsraelsmenn og aðrir sem hags-
muna eiga að gæta hafi náiö
samstarf um lausn á vandamál-
um flóttamanna.
Þannig hljóðaði sá hluti
samningsins sem snertir
Palestinumenn, en eftirfarandi
eru aðalatriði samningsins um
aðaideiiumál tsraelsmanna og
Egypta:
Þessi tvö lönd gripi ekki til
hótana eða vopna til að jafna
deilumál sin, heldur veröi þau
leystá friðsamleganhátt. ihnan
þriggja mánaða frá undirritun
þessa samnings, fallist þjóðirn-
ar á undirritun friðarsáttmála.
öðrum deiluaðilum verði gefinn
kostur á svipuðum friðarsamn-
ingum. Egyptar og lsraelsmenn
erusammálaum aö hinir siðar-
nefndu semji um eftirfarandi
atriði við alla nágranna sina,
þ.e. Egypta, Jórdani, Sýrlend-
inga og Libani. Samningsaðilar
komi á eölilegum samskiptum
sin ámilli, þeir viðurkenni hver
annan, forðist fjarhagslegar
refsiaðgerðir og tryggi að borg-
arar i þessum löndum njóti
sannmælis I skjóli settra laga.
Samningsaðilar stuöli að fjár-
hagslegr i uppbyggingu i löndum
sinum sem miði aö friöi, sam-
vinnu og vináttu.
Bandarikjamönnum verði
gefinn kostur á að taka þátt i
viöræðum um framkvæmd
samninganna. öryggisráð S.Þ.
verði beðið um að staðfes ta
samningana og sjá til þess að
þeir verði ekki slitnir.
Þremenningarnir voru heldur
hressir yfir afrekum sinum og
minntustá hve mikil vinna hefði
farið i viðræðurnar. Sadat og
Begin töluðu hlýlega um Carter
og kváðu hann hafa unnið gott
verk og mikið. Begin skýrði frá
þvi að Bandarikjamenn myndu
byggja tvo herflugvelli I
Negev-eyðimörkinni handa
tsraelsmönnum til að bæta þeim
upp aðra sem þeir munuláta af
hendi á vesturbakka Jódanár.
Viðbrögö manna við úrsiitum
Camp David-viöræðnanna hafa
verið mjög mismunandi og þyk-
ir sumum aö gengið hafi verið
fram hjá Palestinu-aröbum.
1 ísraei sagði náinn samstarfs-
maður Begins, Shmuel Katz, að
varnir lands hans myndu veikj-,
ast mikið ef Israelsmenn létu
flugvelli af hendi. Geula Cohen
sem situr i ráðuneyti Begins
sagði samningana vera þjóðar-
sjálfsmorð og lagöi til að van-
traustsyfirlýsing yrði samþykkt
á hendur Begin. Iönaðarráð-
herra landsins segist efast um
að Sadat vilji friö. Borgarstjór-
inn I Betlehem segist þó vera
ánægður með árangurinn sem
náðist. Fjármálaráðherra Isra-
els taldi aö samningarnir gætu
stuðiað að fjárhagslegu sjálf-
stæði Israels og ekki siöur
Egyptalands. Tillögur Begins
munu koma fyrir Israelska
þingiö innan skamms og er enn
óvist hve mikils stuðnings hann
muni njóta þar. Sumir búast við
að tveir þriðjungar þingsins
muni samþykkja samningana.
Begin gaf I skyn aö brottflutn-
ingur tsraelsmanna frá Sinai
myndi hefjast þremur til niu
mánuðum eftir að undirritun
samninga myndi eiga sér stað,
en það yröi liklega i lok þessa
árs.
Sýrlendingar og Palestinu-
arabar (PLO) hafa mótmælt
samningunum harðlega og telja
þá skerða rétt Araba, og auka
striðshættuna fyrir botni Mið-
jarðarha f s. Þeir hy ggjast halda
fund Arabarikjanna og útiloka
ekki möguleika á samvinnu við
Sovétmenn. Fundurinn verður
haldinn á miðvikudag, en auk
Sýrlendinga og Palestinuaraba
munu sitja fundinn fulltrúar frá
Alsír, Suöur-Jemen og Libýu en
þessar fimm þjóöir hafa komið
tvisvar saman til fundar eftir
óvænta heimsókn Sadats
Egyptalandsforseta til lsraels
fyrir tæpu ári.
Palestinu-arabar lýstu þvi
yfir i dag, að þeir viðurkenndu
enga samninga sem forseti
Egyptalands gerði i þeirra
nafni. Yfirmaður hers
Palestinuaraba, Zoheir Mohsen,
sagði að atburöirnir i Camp
David væru aðeins enn ein svik
af hálfu Sadats. Hann sagði fólk
sitt ekki hafa áhuga á atriðum
samningsins. þar sem það for-
dæmdi svik og frábyði sér allt
sllkt. Hann sagði ennfremur aö
samningurinn kæmi ekki i veg
fyrir áframhaldandi baráttu
Palestinumanna og að þeir
myndu ekki beygja sig fyrir
samsæri Bandarikjamanna,
Zionista og Sadats. Að lokum
sagði hann að sigurinn væri
Paiestinumanna en Sadat
myndi biða ósigur.
XUNS
Kenndir verða
Barnadansar
Táningadansar
Djass-dansar
Stepp
Samkvœmisdansar
Tjútt, Rock
og Gömlu dansarnir
Innritunarsímar:
84750 kl. 10-12 og 13-19,
53158 kl. 14-18,
66469 kl. 14-18.
Verið ávallt velkomin.
Innritun
stendur yfir
Kennslustaðir
Reykjavík,
Kópavogur,
Breiðholt II,
Hafnarfjörður a
Mosfellssveit.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS