Þjóðviljinn - 07.10.1978, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 07.10.1978, Qupperneq 1
UÚÐVIUINN Laugardagur 7. október 1978—219. tbl. 43. árg. Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra um vandamál húsgagnaiðnaðarins: F or gangs verkefni iðnþróunamefhdar „Söngfuglarnir hugöust hreiöur sér byggja”. Naumast þarf aö óttast, aö nokkur hrafn komi og rffi þaö hreiöur. Hitt mun væntanlega fremur reynast, aö þeir veröi ekki látnir einir um hreiöurbygginguna. — A fundi meö fréttamönnum i gær „tók Söngskólafólk nokkur lög á gang- stéttinni framan viö hiö nýja heimili sitt. — Mynd: Leifur. Söngskólinn í Reykjavík: Flytur í eigið hús Söngskóiinn I Reykjavik hefur nú starfaö i fimm ár. Til þessa hefur hann rekiö starfsemi sina i leiguhúsnæði viö Laufásveg, (Laufásvegur 8), en nú hefur hann fest kaup á eigin ibúö, húsi norska sendiráösins, Hverfisgötu 45. Húsið kostaöi 45 milj. kr. Greiösluskilmálar eru þeir, aö 2 miljónir greiöast viö undirritun kaupsamnings, 18 milj. I febrúar á næsta ári og 20 milj. i lok næsta árs. Hér er þvi ekki i litið ráðist af fólki, sem á nánast ekkert nema áhugann, þegar staöiö er gagn- vart svona stórfelldu viöfangs- efni. En bjartsýni fylgir söngfólki og bregst þvi sjaldan. Eru þegar ýmis spjót höfö úti til aö afla fjár. Framhald á bls. 18. ,/Ég tel aö það þurfi að fara ofan i málefni hús- gagnaiðnaðarins nú á næstunni og samstarfs- nefnd um iðnþróun er ætlað að hafa það eitt af sinum forgangs- verkefnum, " sagði Hjör- leifur Guttormsson iðnaðarráðherra í samtali við Þjóðviljann i gær. Hann sagði að unnið hefði verið aö ýmsum úttektum i sambandi viö húsgagnaiðnaðinn og eitt af þvi sem þurfi að athuga, sé hvort veruleg brögð séu að þvi að sömu aöilar standi i innflutningi og framleiðslu, hugsanlega til tjóns fyrir iðngreinina. „Það þarf að reyna að tryggja að islensk hús- gagnaframleiðsla verði sam- keppnisfær við innfluttar vörur og að æskileg hagræðing náist innan iðngreinarinnar. Það er eðlilegt að stjórnvöld styðji að þvi,” sagði iðnaðarráðherra. Hann sagði að takmörkun á innflutningi hefði ekki verið rædd enn á milli ráðuneyta. Trésmiðir hafa sem kunnugt er krafist þess nýlega , að hömlulaus inn- flutningur húsgagna og innrétt- inga verði stöðvaður. „Þaö er málefni viðskiptaráðuneytisins að taka á þvi,en það tengist auð- vitað friverslunarmálunum og niðurfellingu tolla á innfluttum iðnvarningi,” sagði iðnaðarráð- herra að lokum. -eös Hjörleifur Guttormsson: Athuga þarf hvort veruleg brögð séu að þvi að sömu aðilar flytji inn og framleiði húsgögn. Neínd um eitt lands- fyrirtæki Iðnaðarráðherra hefur skipað nefnd sem á að gera tillögur um það, með hvaða hætti vænlegast er að framkvæma yfirlýsta stefnu rikisstjórnarinnar i orkumálum. einkum að þvi er varðar það, að koma á fót einu landsfyrirtæki, sem annist meginraforkufram- leiðslu og raforkuflutning og frygg* sama heildsöluverð á raf- orku i öllum landshlutum. Er þess óskað i skipunarbréfi að nefndin ljúki störfum fyrir næstu áramót. Formaður nefndarinnar er Tryggvi Sigurbjarnason raf- magnsverkfræðingur en varafor- maður Helgi Bergs bankastjóri. Aðrir i nefndinni eru Egill Skúli Ingibergsson borgarstjóri, Jakob Björnsson orkumálastjóri, Jóhannes Nordal stjórnarfor- maður Landsvirkjunar, Kristján Jónsson Rafmagnsveitustjóri rikisins, Magnús E. Guðjónsson framkvæmdastjóri Sambands isl. sveitarfélaga og Valur Arnþórs- son stjórnarformaður Laxár- virkjunar. ÞORSKKLAKIÐ 1978 TÓKST VEL: Hiö ýjóróa besta síðan áriö 1970 Mikið hcfur verið rætt um loðnuna og hvernig klaki hennar reiddi af sl. vetur. Minna hefur verið rætt um þorsk og ýsu- ktakið og þvi snérum við okkur til Hjálntars Vilhjálmssonar fiskifræðings, en hann, ásamt Eyjólfi Friðgeirssyni og Vilhelminu Vilhjálmsdóttur fiskifræöingum, annaðist rann- sóknir á þorsk, ýsu, karfa og loönuklakinu i ágúst sl. „Samkvæmt okkar niður- stöðum viröist sem þorsk og ýsuklakið sl. vetur hafi tekist i meðallagi vel og okkur sýnist sem klakið i ár sé það 4. besta frá þvi rannsóknir okkar hófust 1970”, sagði Hjálmar. Frá þvi 1970 hafa komið 3 mjög góðir árgangar en 5 lélegir en útlit er fyrir að árgangurinn i ár verði sterkur. Hjálmar sagöi að þetta hefði ekki komið svo. mjög á óvart, en væri gleöiefni, þar sem hrygningarstofninn hjá Ysuklakið í ár hið 2. besta, að sögn Hjálmars Vilhjálmssonar fískifræðings þessum fisktegundum væri svo litill. Þvi væri það svo mikils virði ef utanaðkomandi skilyrði i sjónum væru með þeim hætti að klakið tækist vel, en svo virðist hafa verið sl. vetur og vor. Hjálmar sagði að útlit væri fyrir að klak ýsunnar hefði tekist svo vel s.l. vetur, að sá árgangur yrði 2. besti frá þvi 1970. Greinilegt er að sögn Hjálmars, að ýsustofninn er á uppleið hér við land og hann benti á, að 1976 hefði ýsuklak tekist með afbrigðum vel. Aftur á móti er minna vitað um karfann. Hann er mjög sein- vaxta og þvi liða svo mörg ár þar til hann kemur i gagnið. Og þar sem seiðarannsóknir hófust ekki fyrr en 1970, er svo litið til að miða við. Þó væri ijóst, að nú væri ekki nema 10-20% af þvi seiðamagni af karfa i sjónum, sem var á árunum 1972 til 1975. Annars er karfinn á svo dreiföu svæði i hafinu að erfiðara er að átta sig á honum en þorsk og ýsu, sagöi Hjálmar. -S.dór Hjálmar Vilhjálmssson. Sjálfstæöis- flokkurinn snýr viö blaöinu Villfulla aöild starfs- manna að stjórnum fyrirtœkja Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur skyndilega snúiö við blað- inu og tekið þá afstöðu tii aðildar starfsmanna að stjórnun fyrirtækja borgar- innar að þeir eigi að sitja i stjórnunum með fullum rétt- indum, þ.á.m. atkvæðisrétti. Þessum sinnaskiptum var fagnað i borgarstjórn Reykjavikur s.l. fimmtudag, en árum saman hafa borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins kolfellt allar tillögur nú- verandi meirihlutaflokka um samstarf og samráð við starfsmenn borgarinnar. Tilefni umræðnanna var til- laga meirihlutans um að starfsmenn borgarbókasafns og strætisvagnanna til- nefndu 1 fulltrúa i stjórnir þessara stofnana og skyldi hann hafa málfrelsi og til- lögurétt. Er það i fullu sam- ræmi við samstarfssamning meirihlutaflokkanna og lýstu borgarfulltrúar þeirra þvi yfir á fundinum að svipuðu fyrirkomulagi yrði komið á i sem flestum stjórnum fyrir- tækja og stofnana borgarinn- ar. Jafnframt lýstu þeir þvi yfir að þeir væru hlynntir fullum réttindum til handa starfsmönnum, eins og raun- ar borgarfulltrúar Alþýðu- bandalagsins hafa itrekað flutt tillögur um i borgar- stjórn og að lagalegur grundvöllur fyrir sliku yrði kannaður svo og áhugi starfsmannafélagsins á sliku fyrirkomulagi. Sjá nánar frá umræðunum á siðu 9. —AI SJÁ 9. SÍÐU Fram- kvæmda- ráð stofn- að í Reykjavík Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti s.l. fimmtudag að stofna sérstakt fram- kvæmdaráð sem fara skai með framkvæmda verkefni, sem ekki heyra sérstaklega undir aðrar stjórnarnefndir borgarinnar. Sigurjón Pétursson sagði i framsögu sinni meö tillög- unni að á þessu ári verði varið um 8 miljörðum króna til verklegra framkvæmda á vegum borgarinnar, en öll þessi verkefni heyra beint undir embætti borgarverk- fræðings og ekki undir stjórn kjörinna fulltrúa borgar- stjórnar. Ráðið verður skipað 7 fulltrúum, kosnum af borgarstjórn og verður liklega kosið i það á næsta borgarstjórnarfundi. —AI SJÁ 9. SÍÐU

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.