Þjóðviljinn - 07.10.1978, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 07.10.1978, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. október 1978 UJODVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfirelsis Útgefandi: útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Ritstjóri: Kjartan Ólafsson. Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaöi: Arni Bergmann. Aug- lýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson. Ritstjórn, afgreiðsla, aug- lýsingar: Siðumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaöaprent hf. Meðvituð breikkun á forystuvanda? Geir Hallgrímsson formadur Sjálfstæðisf lokksins spil- aði út trompi sínu á aukaþingi Sambands ungra Sjálf- stæðismanna um síðustu helgi: Með því að setja mig af, vinna Sjálfstæðismenn það eitt að staðfesta f ullyrðingar um óeiningu innan flokksins. Þessvegna býður Geir Hallgrímsson Sjálfstæðismönnum upp á illskárri kost; það er að segja að hann sitji áfram sem formaður til þess að hægt sé að sýna einingu útávið að minnsta kosti. Morgunblaðið sem harla lítið hefur sinnt hugðaref num ungra Sjálfstæðismanna hefur í vikunni með miklum fyrirgangi reynt að gefa í skyn að niðurstöður ungliða- þingsins hafi verið stuðningsyfirlýsing við stjórnarfor- mann Árvakurs h.f., útgefenda blaðsins. Sannleikurinn er hinsvegar sá að Geir Hallgrímsson slapp naumlega undan vantrausti Valhallarþingsins. Það sést best á þvi að tengdasyni Alberts Guðmundsson- ar tókst að skapa öruggan meirihluta í allsherjarnefnd þingsins sem lagði til að í ályktun um starf semi og skipu- lag Sjálfstæðisflokksins yrði þess krafist að fram færi „markviss endurnýjun á forystu flokksins". Á sama hátt komu fram tiilögur á þinginu þar sem sagt var að forsenda þess að Sjálfstæðisflokkurinn öðlaðist þann sess sem hann ætti skilið væri endurnýjun á forystunni. Fleiri gagnrýnistillögur á þinginu áttu mik- inn hljómgrunn en margir þingfulltrúar halda þvi fram að baráttuhugur ungra Sjálfstæðismanna hafi verið svæfður með kirkjulegum hátíðastundum og með stað- hæfingum um að það væri í verkahring landsfundar en ekki ungra Sjálfstæðismanna að þrýsta á um forystu- skipti. Auk þess héldu forystumenn Sambands ungra Sjálfstæðismanna því f ram að þeir yrðu settir í óþolandi aðstöðu ef aukaþingið ætlaði sér að gera bindandi sam- þykktir um að fela þeim að berjast opinberlega gegn nú- verandi f lokksforystu. Vandi Sjálf stæðisf lokksins er svo margþættur að teikn eru á lofti um að hnignunarskeiðið geti orðið viðvarandi. Eins og títt er um f lokka á slíku stigi verður það helst fyrir í naflaskoðun þeirra sem mesta ábyrgð bera á ósigrum og upplausnarástandi að krefjast skipulags- breytinga og nýrra hugmynda. í báðum þessum efnum virðist Sjálfstæðisf lokkurinn dæmdur til þess að ganga blindgötuna á enda. Hugmyndir Geirs Hallgrimssonar og Morgunblaðs- klíkunnar um þrígreiningu forystunnar og samkosningu varaformanns og flokksformanns á landsfundi er ekki annað en meðvituð breikkun á forystuvandamáli. Ljóst er að Albert Guðmundssyni væri í lófa lagið að tryggja sér varaformannssætið á næsta landsfundi. Til þess að setja undir þann leka leggur Geirsklíkan til að kosið verði sameiginlega um formann og varaformann. Með þessu lagi er talið einsýnt að Geirsmenn geti orðið í öll- um þremur virðingar og valdaembættum Sjálfstæðis- flokksins eftir næsta landsfund sem flokksforystan ætlar ekki að halda fyrr en þetta markmið er tryggt. Engin ástæða er þó til að ætla að f lokkadráttum Ijúki þótt forræði Geirsarmsins yfir Sjálfstæðisflokknum verði staðfest. Til þess eru önnur viðhorf innan f lokksins of sterk. Viðhorf sem eru tengd nöfnum Alberts og Gunnars og málefnum eins og verkalýðsmálum og aronsku. Verkalýðsklúbburinn eins og ungir Sjálfstæðismenn nefna forystumenn flokksins í verkalýðshreyfingunni mun til að mynda varla una því að verða settur til hliðar nú þegar það er yfirlýst stefna f lokksforystunnar að beita honum í auknum mæli sem Trójuhesti í samtökum launafólks. Forystumenn ungra Sjálfstæðismanna hafa haft á orði að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ekki nýtt skipulag heldur nýjar hugmyndir og baráttumál. Það er átakan- legt dæmi um vesöld f lokksins í dag að í stað raunsæis- hyggju og framfarastefnu í atvinnumálum sem Sjálf- stæðismenn með jarðsamband í atvinnulíf inu hafa fylgt vilja ungliðarnir snúa aftur til frjálshyggjuhugmynda nítjándu aldar. Hugmynda sem íhaldsf lokkar í nálægum velferðarríkjum hafa fyrir löngu snúið baki við. Slíkt afturhvarf yrði vinstri mönnum fagnaðarefni með þvi að það drægi enn úr fylgi og áhrifum Sjálfstæðisflokks- ins í landsmálunum. fslendingur berst Þeir lögðu á flótta og fengu með Ródesíuher r r - * ■ gegn skæruhöum: kulumar i bakið eða rassinn >• hcppmr iAirrj wlmn >1 prwjfjr fjur [riu snru frlturr i vel skipuUgón jógerðir 141 vliióu ■ slrr 1 fjeir* >Uu segu ungur I' )in|iur Hjrjklur SigurAvym 1 hrefi >j|iMjA.itis rn Hjtalúu' hervi meó KiHleMuliei (Xgn skrrulióum Nknnm :m \kvri >ar frk 1 frfiium fvrir nokkru \kutu skrrrulkUr niAur rtvlCMskj íjrpegjílugvei 1 kzllurur flugi uf herferAan. tem Heraklur nefmr her ið ufjn. *jr hefmUraðgeró hersms tegru pest ..Minnfjll tjr gifurlegl hji skjcru liAum þfti t*>' 'irtusi *er» tiðhunir okkur ng hiðu heinlinis 1 tkocgrofum Þeir tnru með skotfcn og maur hirgðu M margra daga. h J m ilanskar sjrdmur sem *ið lókum rtokkra kataa af nf nuium *el " f r Haraklur þarna að Ivu ai hurðum. vem aiiu sír Uað um 70 km landarruera granmikrsint n þar eiga skmiliðar — tetur ad 400 til 500 skatmliiar haf i f allió í Mosambique Nkiunie. griðund N jr hcrfkikknum fkigið mn tfir Undið og tarpað ut I fjllhlifuni Hirjklur hekiur afrjm ,,l m leið ng herfkikkjr nkkar nklguðusl skol grifirrur logðu ..heljurnar" á flðlla og fengu kulurnar 1 hakið cða rasainn Pað er ekki huið að biru neinar tölur um hd vem sið felkium. en tg reikna með að það hafi ekki »erið frrn en 400 nl S00 Einu áfðll okkar voru að iveir ungir menn fellu og iveir uerðusl Eg gel ekki senl ykkur nemar myndir þvi okkur er ilrangiega bannað að hafa með okkur Ijóamynda Til skyringar skal þesa getið að Nkomo og tvarur liðamenn hana berj asi gegn sijOm hvttra marma I land inu. en nu sunda yfir umrungar um Viðtoku svaru meirihluuns á sljðm landsins I áfðngum ■ G5. Undarlegt bréf Undarlegt bréf verður tilefni forsiðuuppsláttar Dagblaðsins i fyrradag. Það er frá ungum Is- lendingi sem Haraldur heitir Sigurðsson, og hefur hann gerst málaliði i her þeirra sem stjórna Ródesiu með meira en vafasömu umboði, að ekki sé meira sagt. Haraldur þessi er að lýsa þátttöku sinni i áhlaupi inn fyrir stöðvar grannrikisins Mosambique, þar á sveit hans að leita uppi skæruliða úr þjóð- frelsishreyfiingu þeirri sem Nkomo stjórnar. Glefsurnar úr bréfi hins islenska málaliða eru á þessa leið: Kúlur í bakið ,,Ég var svo heppinn að vera valinn til þessarar farar, þetta voru frábærlega vel skipulagðar aðgerðir og stóðu þær yfir i f jóra daga.. Mannfall var gifurlegt hjá skæruliöum þótt þeir birtust viðbúnir okkur og biðu veinlinis i skotgröfum. Þeir voru með skotfæri og matarbirgðir til margra daga, þ.á.m. danskar sardinur, sem við tókum nokkra kassa af og nutum vel... Um leið og herflokkar okkar nálguðust lögðu „hetjurnar” á flótta og fengu kúlurnar i bakið eða rassinn. Það er ekki búið að birta neinar tölur um þá sem við felldum, en ég reikna með að það hafi ekki verið færri en 400- 500. Einu áföll okkar voru að tveir ungir menn féllu og tveir særöust.” Fáránleiki og alvara Fyrstu áhrif slikrar lesningar gætu verið þau, að mönnum finnist þeir hafi fyrir framan sig bréf manns sem haldinn er sibernsku og heldur áfram að lifa i dagdraumum um indijána- leiki von úr viti. Þarna er allt sem þarf: Það er stórkostleg skemmtun að lenda i þessu ævintýri (,,ég var svo heppinn að vera valinn”). Alit gengur eins og i sögu, hetjurnar hvitu þurfa ekki annað en að sýna sig, þá flýja þeir innfæddu eins og fætur toga (þeir geta ekki verið hetjur nema innan gæsalappa, enda miklu ómerkilegri menn), það er tekið herfang (danskar sardinur), og siðan kemur drjúgur fögnuður og stolt yfir þvi hve marga hefur tekist að drepa — þeir misstu 400-500 manns, við þrjá. En þaö er ekki hlæjandi að þessu, þvi miður. Við höfum fyrir okkur afskaplega dapur- legt dæmi um ungan mann islenskan, sem hefur undarlega brenglaðar hugmyndir um það hvað er lofsvert i mannlegri framgöngu og gengur i lið með málaliðum þeim, sem hafa komið við sögu viða i Afriku undanfarin ár, og eru almennt taldir eitthvert lakasta hyski i manna tölu. Málaliðar þessir hafa eins og kunnugt er lýst þvi við mörg tækifæri hve skemmti- leg iþrótt það sé að drepa fólk. og margt bendir til þess að þeir hafi einmitt sérstaka ánægju af þvi að drepa Afriku- menn — þeir eru svartir og heimskir og eiga ekki 'betra skiliö en að fá kúlu i bakið ef þeir reyna i verki að efast um forsjá þeirra sem vilja eiga þeirra land. Haraldur er bersýnilega alveg á sömu nótum — og við vitum vel að þessi hugsunarháttur er engin sérviska einstaklinga, hann hefur ráðið atferli hvitra manna um sunnanverða Afriku og viðar. Það er eins með sjálf- umgleði hins skotglaða islenska málaliða i Ródesiu og t.a.m. skrif Viggós Oddssonar i Visi: báðir sýnast mennirnir „fárán- legir” eins og krakkarnir segja, en viðhorf þeirra og framganga er römm alvara i afrisku sam- hengi. Hlutur Dagblaðsins Halldór Laxness segir á þá leið i Yfirskyggðir staöir.að svo virðist sem menn hafi jafnan haft mestu skemmtun af stríði — nema þá sá maður sem skatinn er og ef til vill móðir hans. Og hér er rétt að vikja nokkrum orðum að þætti Dag- blaðsins. Það er rétt, að strið er frétt, og þátttaka Islendings i styrjöld er lika^ frétt, þvi ekki það? En mannvíg þrælvopnaðra málaliða i skógum Afriku eru þess eðlis, að það virðist hæpið siðgæði að taka þátttöku Haralds Sigurðssonar i þeim sem sjálfsögðum hlut. Það gerir blaðið — það gerir i frásögn og uppsetningu ekkert það sem skapi minnstu fjarlægð milli blaðs og sögumanns, lesandi fær ekki betur séð en sami rass sé undir báöum. Hafi fréttamenn Dagblaðsins viljað ná fram ein- hverjum öðrum áhrifum, þá hefur þeim láðst aö reyna við þann möguleika. Pólitískir þjófnaðir | Fátt er jafn skemmtilegt og ! deilur um höfundarrétt i stjórn- I málum. Sjálfsstæðismenn hafa I nú um hrið haldið uppi skothrið ■ á Alþýðuflokkinn fyrir að reyna ! að stela stefnu þeirra — þetta kemur mörgum að þvi leyti spánskt fyrir sjónir, að kannski ' var ekki öðru að stela en stefnu- | leysinu. Um þetta efni eiga Timinn og Benedikt Gröndal svofelld orðaskipti i gær: ,, — Sjálfstæðismenn segja, að ! þið Alþýðuflokksmenn hafið I stolið stefnu þeirra og siðan svikið hana.“ „Það má segja, að siðan ! Ólafur Thors sneri Sjálfstæðis- I flokknum við, þannig að hann I fór að ganga inn á hugmyndir I velferðarrikisins, þá hafi Sjálf- ] stæðisflokkurinn verið að hamast við að stela málefnum I jafnaðarmanna, en siðan oft I verið fljótur að bregðast þeim, ] þegar vindurinn blés á annan hátt. Þetta er stjórnmáladeilu- efni sem hefur fleiri en eina * hlið” Skyldleikinn Það er nokkuð til i þessu hjá Benedikt, islenskir sósialdemó- kratar urðu veikur flokkur m.a. vegna þess, að ólafur Thors sá það fyrr en margir erlendir ihaldsforingjar, að hagkvæmt var að fallast á ýmislegt af þeim umbótum sem höfðu eflt verka- lýðsflokka allt um kring — enda þótt sú málamiðlun væri af hálfu hans flokks jafnan i anda formúlunnar of litið of seint. Hitt er svo lika rétt, að oft hefur verið erfitt að greina á milli efnahagsmálahugmynda Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- flokks, sem hafa þá mótast fyrst og fremst af viðhorfum hins siðarnefnda. Það er af þessum sökum, að mikill fjöldi kjósenda gengur fyrirhafnar- litið á milli þessara tveggja flokka i kosningum — og ræður þá mestu hvor þeirra hefur verið í stjórn rétt áður. Það er lika af þessum sökum, að vinni þessir tveir flokkar saman, þá hverfa öll sérkenni Alþýöu- flokksins úr vitund almennings, með þeim afleiðingum fyrir fylgi flokksins sem allir þekkja. áb Fonnaöur Alþýðuflokksins: Sjálfstæðisflokkurinn hefur hamast við að stela málefnum jafnaðarmanna — slöan Olafur Thors snéri honum viö. L_.,

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.