Þjóðviljinn - 07.10.1978, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 07.10.1978, Blaðsíða 6
6 SJÐA — ÞJÓÐVILJINN ' Laugardagur 7. oktdber 1978 Samskiptamál ríkisins og dagbladanna Boðiö til viðræðna í næstu viku segir yidskiptaráðherra — Á fund ríkisstjórnar- innar í fyrradag barst bréf frá útgefendum fjögurra dagblaöa, Morgunblaðsins# Tímans/ Þjóðviljans og Alþýðublaðsins/ þar sem lýst var áhuga á því að hefja viðræður við stjórn- ina um málefni blaðanna. Þetta mál verður afgreitt á stjórnarfundi á þriðju- daginn kemur og ég vænti þess að hægt verði að setja starfshóp í samskiptamál rikisins og dagblaðanna strax í næstu viku, sagði Svavar Gestsson viðskiptaráðherra í sam- tali við Þjóðviljann i gær. Svavar sagði að hann myndi að sjálfsögðu bjóða fulltrúum allra blaðanna til viðræðna um sam- skiptamál þeirra og rikisins. Ætlunin væri að ræða ekki ein- ungis um verðlagsmál heldur um ýmis önnur atriði t.d. viðskipti blaðanna við Póst og sima sem þau greiddu fyrir á hæsta verði þrátt fyrir að þau væru griðar- mikil að vöxtum. Minnti ráð- herrann einnig á að Blaðaprents- blöðin, þar á meðal Visir, hefðu i vetur komið sér saman um ákveðnar tillögur i þessum efnum og væntanlega gætu þær orðið út- gangspuntkur i viðræðum stjórn- valda við útgefendur blaðanna allra. —ekh A þessu svæði vill TBR gera útitennisvelli og borgin vill hagnýta þá fyrir skautasvell á vetrum.4 SkautasveU hjá TBR? A fundi sinum fyrir nokkru féllst borgarráð á erindi Tennis- og Badmintonfélags Reykjavikur þess efnis, að félagið fengi að stækka lóð sina við Gnoðavog og utbúa þar tvo útitennisvelli. Borgarráð beindi þvi einnig til TBR að athuga, hvort unnt væri að gera skautasvell á völlunum yfir vetrartimann. Blaðamaöurhafði samband við Garðar Alfonsson umsjónarmann iþróttahúss TBR. Sagði Garðar, að kostnaðaráætlun frá þvf i vor hljóðaði upp á 12 miljónir, en ekki sagðist hann vita hvenær i byggingu vallanna yröi ráðist. Garðar sagði ennfremur, að hug- myndin um skautasvell á völl- unum hefði ekki verið rædd meðal forráðamanna TBR, en sér fynd- ist ekki ósennilegt að þennan háttinn mætti hafa á. A teikning- unum væri ekki gert ráð fyrir, að vellirnir yröu yfirbyggöir og þvi yrði tennis vart leikinn á þeim nema yfir sumarmánuðina. „Það verður að vera algjört samráð milli okkar og borgar- innarum það, hvernig að skauta- svelli á völlunum verður staðið”, sagði Garðar að lokum. Þegar þessir vellir komast i gagnið verða þeir einu löglegu útitennisvellirnir hér á landi. Félagar i TBR eru nú um 900 og er iþróttahús félagsins fullnýtt. Garðar Alfonsson Háskólinii 1. des. kosningar Kosningar til hátiðarnefndar 1. desember meðal stúdenta i Háskóla tslands fara fram á stúdentafundi i veitingahúsinu Sigtúni við Suðurlandsbraut laugardaginn 21. október 1978. Nefndin skal skipuð 7 mönnum, er kosnir skulu leynilegri lista- kosningu. Framboðum ásamt meðmælum 10 stuðningsmanna og tillögum um markmið og tilhögun hátiðar- haldanna skal skilað kjörstjórn fyrir kl. 12.00 mánudaginn 16. október á skrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Islands. Fundurinn hefst kl. 14.30 stund- vislega með framsöguræðum. Fær hver listi 30 min. til ráð- stöfunar. Að þvi loknu hefjast almennar umræður og kosningar, er standa munu til kl. 17.30. — Kjörstjórn 1. des. kosninga 1978. Skipulags- stofnun höfuð- borgarsvæðis helsta máliö á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á höfuöborgarsvædinu i dag kl. 2 hefst á Seltjarnarnesi aðalfundur Samtaka sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu. Samtökin voru stofnuð i april 1976 og eiga 9 sveitarfélög aðild að þeim: Hafnarfjörður, Garðabær, Bessastaðahreppur, Kópavogur, Seltjarnarnes, Reykjavik, Mos- fellshreppur, Kjósarhreppur og Kjalarneshreppur. Allir kjörnir sveitarstjórnarmenn á þessu svæði, rúmlega 70 talsins, eiga sæti á aðalfundinum. filgangur samtakanna er að beita sér fyrir samstarfi um skipulag og þróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu og vinna að öðrum hagsmunamálum sveitar- félaganna. Helsta málið á aðalfundinum er umræða um stofnun skipulags- stofnunar fyrir höfuðborgarsvæð- ið og er búist við aö tekin verði ákvörðun i málinu á fundinum, en nánara samstarf sveitarfélag- anna i skipulagsmálum hefur verið á döfinni undanfarin tvö ár. Auk þess „fara fram venjuieg aðalfundarstörf. Rætt verður um starf samtakanna og fjárhags- áætlun fyrir næsta ár og kosning stjórnar fer fram. Stjórn samtak- anna skipa nú eftirtaldir menn: Stefán Jónsson Hafnarfirði, formaður, Markús Orn Antonsson Reykjavik, Olafur Jónsson Kópa- vogi, Kristján Benediktsson Reykjavik, Rikharð Björgvinsson Kópavogi, Þorbjörn Broddason Reykjavik, Jón Guðmundsson Mosfellssveit, Kjartan Jóhanns- son Hafnarfirði og Sigurgeir Sigurðsson Seltjarnarnesi. —eös Leiðrétting við leikdóm 1 leikdómi um sýningu Þjóð- leikhússins ,,A sama tima að ári”, sem birtist i Þjóðviljanum sl. þriðjudag slæddist sú mein- lega villa inn i fyrirsagnir og texta að Björn Björnsson væri höfundur leikmyndar. Leik- myndina gerði Birgir Engilberts og er hann beðinn velvirðingar á mistökunum. Svavar Gestsson: Skipaður verður starfshópur i samskipta- mál biaða og rikis I næstu viku. Fá eftirágreiddir starfsmenn borgarinnar launauppbót Óréttlátt að bæta ekki vísi- töluna 1.-10. sept. segir formadur borgarráðs Reykjavíkur Ekkert þak hjá borginni 1. jan. Meirihluti borgarstjórnar Reykjavikur telur óréttlátt að borgarstarfsm enn sem fá greidd laun sin eftirá skuli ekki fá veröbætur fyrir fyrstu 10 daga septem ber m ána ðar meðan hærri visitalan var i gildi. Þetta kom fram i svari Björgvins Guðmundssonar borgarráðsmanns við fyrir- spurn frá Birgi Isl. Gunnarssyni um launagreiðslur borgarinnar i septembermánuði. Björgvin sagði að borgin heföi fylgt fordæmi rikisins eins og raunar Kópavogur hefur einnig gert, þannig að ekki var dregið af launum fyrirframgreiddra starfsmanna 1. október, þó þeir befðu skv. bráðabirgðalögunum og nýrri visitölu fengið ofgreidd laun. Þá hefur þeirri reglu rikisins einnig verið fylgt að greiða eftirágreiddum starfsmönnum borgarinnar ekki visitölubætur fyrir fyrstu 10 daga september- mánaðar áður en ný og lægri visitala tók gildi. „Meirihluti borgarstórnar telur þó að hér sé um rangláta reglu að ræða”, sagði Björgvin Guðmundsson, ,,og telur rétt að hugað veröi að þvi hvort greiða eigi umræddum starfsmönnum uppbótá laun sin fyrstu 10 daga mánaðarins, en Garðar Alfonsson það myndi kosta borgina 2,3 miljónir króna”. Ef eftirágreidd laun fyrir september yrðu greidd á sama hátt og fyrirframgreidd laun myndi það kosta borgina um 7 miljónir króna. 1 svari Björgvins við fyrir- spurn Birgis um visitöluþakið sem bráðabirgðalögin gera ráð fyrir, kom einnig fram, að engin áform eru uppi um að breyta frá fyrri samþykkt borgarstjórnar um greiðslu fullra visitölubóta eftir áramót. Meirihluti borgar- stjórnar ákvað i sumar að taka samningana i gildi i áföngum, þannig að eftir næstu áramót yrðu greiddar visitölubætur á laun borgarstarfsmanna. Þessi ákvörðun stendur óhögguð þrátt fyrir bráðabirgðalögin. Starfsmenn borgarinnar sem skv. lögunum myndu bera skertar visitölubætur eru um 37« talsins og mismunur áskertum og óskertum visitölu- bótum er talinn munu nema 73 miljónum króna á árinu 1979. —AI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.