Þjóðviljinn - 07.10.1978, Blaðsíða 9
Laugardagur 7. október 1978 ÞJÓÐVILJINN —S1ÐA9
1 samstarfssamningi meirihlutans I borgarstjórn var kveðiö á um aö
nánara samstarf yröihaft viö starfsmennborgarinnar um stjórn stofn-
ana og fyrirtækja og einnig var þar aö finna ákvæöi um stofnun fram-
kvæmdaráös. Hvort tveggja var staöfest á fundi borgarstjórnar s.l.
fimmtudag.
Sigurjón Pétursson forseti borgarstjórnar:
Kjörnir full-
trúar eiga aö
hafa eftirlit
meöverklegum
framkvæmdum
Borgarstjórn samþykkti að stofna
7 manna framkvæmdaráð
Frá umrœöum í borgarstjórn um aðild starjs-
manna að stjórn stofnana borgarinnar:
Sjálfstæöis-
flokkur sneri
við blaðinu
Vill skyndilega aö fúlltrúar starfsmanna fái at-
kvæðisrétt í stjórnum fyrirtækja borgarinnar
Á fundi borgarstjórnar s.l.
fimmtudag var samþykkt aö
kjósa 7 manna framkvæmdaráö
sem hafa skal yfirumsjón meö
verklegum framkvæmdum
borgarinnar.
Sigurjón Pétursson mælti fyr-
ir tillögunni sem borgarfulltrú-
ar meirihlutans fluttu sam-
eiginlega, en stofnun fram-
kvæmdaráös var eitt af þeim
atriðum sem boöaö var i sam-
st arf ssa m ni ngi flokkanna
þriggja.
Tillagan var svohljóðandi:
Borgarstjórn Reykjavikur
samþykkir að kjósa sjö manna
framkvæmdaráð.
Undir framkvæmdaráð heyri
eftirtaldar deildir og stofnanir:
Gatna- og holræsadeild, bygg-
ingardeild, hreinsunardeild,
garðyrkjudeild, vélamiðstöð,
áhaldahtis, grjótnám, mal-
biksstöð og pipugerð, svo og
önnur framkvæmdaverkefni,
sem nú heyra undir embætti
borgarverkfræðings og ekki eru
sérstaklega falin öðrum
stjórnarnefndum.
Borgarverkfræðingur eða
fulltrúihansskaleiga sætii ráð-
inu með málfrelsi og tillögurétti
og með sama hætti skal borgar-
gtjóri eiga þar seturétt.
Kjörtimabil framkvæmda-
ráðs skal vera það sama og
borgarráðs. Borgarstjórn kýs
formann úr hópi kjörinna
nefndarmanna og skal hann
vera borgarfulltrúi eða vara-
borgarfulltrúi. Framkvæmda-
ráð skal semja nánari reglugerð
um starfssvið sitt og skal hún
staðfestast af borgarstjórn.
Sigurjón rakti forsögu þessar-
ar tillögu, en allt frá þvf 1970
hafa núverandi meirihluta-
flokkar einir sér eða sameigin-
lega flutt tillögur svipaðs efnis
og felldi þáverandi meirihluti
Sjálfstæðisflokksins, þær tillög-
ur jafnharðan.
Sigurjón sagði að nefndir
borgarinnar væru margar og
misjafnar að umfangi og taldi
að til margra þeirra hefði verið
stofnað af handahófi en ekki af
nauðsyn. Þaðerfurðulegt, sagði
Sigurjón, að einn viðamesti
hlutinn af starfsemi borgarinn-
ar, nær allar verklegar fram-
kvæmdir, eru ekki háðar stjórn
og eftirliti kjörinna fulltrúa, ef
frá er talið að borgarráð fer yfir
framkvæmda- og fjárhagsáætl-
anir hvers árs. Þær deildir sem
taldar eru i tillögunni heyra i
dag undir embætti borgarverk-
fræðings en samtals er varið til
þessara framkvæmda rúmlega
8 miljörðum króna á þessu ári.
Kjörnir fulltrúar borgarstjórn-
ar hafa díki reglulegt eftirlit
með þessum viðamikla hluta af
fjárveitingum borgarinnar,
sagði Sigurjón, eins og t.d.
hafnarstjórn hefur umsjón með
öllum verklegum framkvæmd-
um hafnarinnar!
Til samanburðar gat hann
þess að á þessu ári er varið
rúmlega 6 og hálfum miljarði
króna til fræðslumála, menn-
ingarmála, en allir þessir mála-
flokkar lúta stjórn sérstaklegra
kjörinna fulltrúa borgarstjórn-
ar.
Birgir tsl. Gunnarsson lagði
fram eförfarandi bókun borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
„Samkvæmt samþykkt um
stjórn Reykjavikurborgar fer
borgarráð ásamt borgarstjóra
með framkvæmdastjórn mál-
efna Reykjavikurborgar.
Samkvæmt þvi hefur borgarráð
haft með höndum fram-
kvæmdastjórn þeirra stofnana,
sem upp eru taldar i tillögunni
um framkvæmdaráð. Þannig
gerir borgarráð áætlanir um
verklegar framkvæmdir
borgarinnar i tengslum við gerð
fjárhagsáætlunar hverju sinni
auk þess, sem borgarráð fylgist
með framkvæmd þeirra áætl-
ana. Starfsemi þeirra stofnana,
sem i tillögunni greinir tengist
meiraeðaminna öllum verkleg-
um framkvæmdum borgarinnar
óg daglegri fjármálastjórn
hennar. Borgarverkfræðingur
og skrifstofustjóri hans sitja
alla fundi borgarráðs og náin
samráð eru milli hans og
borgarráðs um allar ákvarðan-
ir.
Við teljum stofnun fram-
kvæmdaráðs þvi með öllu
óþarfa. Framkvæmdaráðið
eykur kostnað við yfirstjórn
borgarinnar> gerir stjórnkerfið
flóknara og ákvarðanatöku
seinvirkari. Það dregur og úr
möguleikum til árangursrlkrar
fjármálastjórnar. Við greiðum
þvi atkvæði gegn framkominni
tillögu.”
Björgvin Guðmundsson sagði
að borgarverkfræðingur væri
einn valdamesti embættismað-
ur borgarinnar og hann teldi
óeðlilegt hversu frjálsar hendur
hann hefði varðandi ákvarðana-
tekt. ,,A meðan borgarstjóri
var pólitiskur leiðtogi, tóku
hann og borgarverkfræðingur
margar afdrifarikar ákvarðanir
á bak við borgarráð,” sagði
Björgvin. Við teljum rétt að
kjörnir menn en ekki einhver
embættismaður ákveði röðun
verklegra framkvæmda. Björg-
vin taldi að nauðsynlegt væri að
greina þessi verkefni frá verk-
efnum borgarráðs þar sem þar
gæfist ekki timi til þess að sinna
þessum miklu verkefnum eins
og skyldi.
Sigurjón Pétursson benti
borgarfulltrúum á að leita i
fundargerðum borgarráðs sið-
ustu mánuðina og þá myndu
þeir komast að raun um að i
sárafá skipti hefði verið fjallað
um verklegar framkvæmdir,
sem helminguraf ráðstöfunarfé
borgarinnar færi þó til.
Birgir tsl. Gunnarsson sagði
aðborgarráðsmenn gætu sjálfir
sérumkennt ef borgarráð f jall-
aði ekki nægilega um verkiega
þættí borgarinnar. Hann sagði
að lokum að framkvæmdaráð
væri silkihúfa ofan á annars gott
stjórnkerfi sem skilað hefði
miklum árangri.
Að umræðum loknum var til-
lagan samþykkt með 8 atkvæð-
um gegn 6. Búast má við að kos-
ið verði i ráðið á næsta fundi
borgarstjórnar. __ai
Eins og skýrt hefur verið frá i
Þjóðviljanum fór starfsmanna-
félag SVR fram á það bréflega I
sumar að fá að tilnefna áheyrnar-
fulltrúa á stjórnarfundi SVR.
Urðu deildar meiningar um
hvernig ætti að svara erindi
þeirra f stjórninni, og lögðust þau
Sigriður Asgeirsdóttir og Sveinn
Björnsson, fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins eindregið gegn þvi að
erindi starKmannafélagsins yrði
svarað játandi. Lögðu þau til að
borgarráð fjailaði um máiið þar
sem það væri ,,prinsip”-mál og
stjórn SVR ekki bær um að taka
afstöðu i þvf. Tillaga Sjálfstæðis-
fiokksins var felld og samþykkti
meirihlutinn I stjórn SVR að
verða við tilmælum starfsmanna-
félagsins og hefur fulltrúi frá
starfsmönnum setið stjórnar-
fundi siðan með málfreisi og til-
lögurétt.
Ekki þótti fulltrúum Sjálf-
stæðisfiokksins i stjórn SVR þetta
góð málaiok og hafa eftir þvi sem
fram kom i umræðum i borgar-
stjórn á fimmtudag klifað á þvi
siðan að slikur fulltrúi starfs-
manna eigi sér enga stoð I sam-
þykktum um stjórn SVR. Af þvi
tilefni þótti rétt að taka slikt
heimildarákvæði inn I reglur um
stjórnSVR og lá tiliaga þess efnis
fyrir borgarstjórn i fyrradag.
Adda Bára Sigfúsdóttir mælti
fyrir tillögunni og tiilögu sama
efnis um fulltrúa starfsmanna i
stjórn Borgarbókasafnsins, en á
borgarstjórnarfundinum lágu
fyrir nýjar reglur um safnstjórn.
í samræmi við
yfirlýsta stefnu
Adda Bára sagöi eölilegt aö
fulltrúar meirihlutans vildu taka
jákvætt I beiöni starfsmanna SVR
og vitnaöi i samstarfssamning
Alþýöubandalags, Alþýöuflokks
ogFramsóknarflokks frá i sumar
þar sem segir aö flokkarnir muni
beita sér fyrir þvi að borgarstjórn
hafi samvinnu og samráö við
borgarbúa og starfsmenn borgar-
innar um stjórn Reykjavikur.
Taldi hún eölilegt að staöfesta
þessa ákvöröun stjórnar SVR
með þvi að setja svohljóðandi
ákvæði i samþykktir stjórnar-
innar: ,,9 deild Starfsmanna-
félags Reykjavikurborgar (þ.e.
starfsmannafélag SVR. Innsk.
Þjv.) hefur rétt til að kjósa einn
áheyrnarfulltrúa með málfrelsi
og tUIögurétt I stjórnina.”
Þá mælti Adda fyrir sam-
svarandi breytingartillögu við
samþykktir um stjórn Borgar-
bókasafnsins svohljóðandi: „Enn
fremur hafa starfsmenn Borgar-
bókasafnsins rétt til að kjósa 1
fulltrúa sem situr fundi stjórnar
með málfreisi og tillögurétti.**
Sa mst ar f sne f ndir
æskilegri
Birgir tsl. Gunnarsson tók
næstur til máls og fjallaði um þau
ýmsu form samstarfs milli
stjórnenda fyrirtækja og starfs-
manna sem tiökast hérlendis og
erlendis. Hann taldi meginástæöu
þess aö samstarf af þessu tagi
ekki hefur þróast hér til jafns viö
nágrannalöndin vera þá, aö sam-
tök launþega og atvinnurekenda
virtustekkihafa áhuga á þessum
málum. Birgir taldi samstarfs-
samningstarfsmanna ogstjórnar
Sementsverksmiöju rikisins til
fyrirmyndar i þessum efnum og
sagöi aö i honum væri kveöið á um
ÖU hugsanleg atriði samstarfs
þessara aöila. Hann sagöi aö
samstarf borgarstjórnar og
starfsmanna borgarinnar hefði
ekki veriö i föstu formi fram til
þessa en minnti á sameiginlega
fundi borgarráðs með starfs-
mönnum, en slikir fundir hafa
veriö haldnir aö fumkvæði Starfs-
mannafélags Reykjavikur-
borgar. Hann sagöi að eölilegt
væri aö finna samstarfinu
ákveöinn farveg og taldi
samstarfsnefndir heppilegra
form til árangurs en aðild aö
stjórn fyrirtækja og stofnana
borgarinnar.
Birgir taldi illa aö málum stað-
iö af hálfu meirihlutans og hér
væri um svo mikilvægt mál aö
ræða, að ýtarlegar umræöur i
borgarstjórn og borgarráöi væru
nauösynlegar áöur en fariö væri
aö ákveöa eitt I stjórn SVR, og
annaö i öörum stofnunum, svo
sem stjórn Veitustofnana. „Úr
þviaö meirihlutinn hefur kosiö aö
láta samstarfið fara fram meö
aöildstarfsmanna að stjórnfyrir-
tækja borgarinnar,” sagði Birgir
Isleifur, „þá teljum við Sjálf-
stæðisflokksmenn aö skrefiö eigi
að stiga til fulls meö þvi aö
fulltrúar starfsmanna eigi aö
hafa fullan atkvæðisrétt og taka
fulla ábyrgð á stjórn fyrir-
tækjanna”. Lagði hann siðan
fram breytingartillögur frá
borgarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins þar sem kveöiö var svo
á að fulltrúar starfsmanna i
stjórnum Borgarbókasafnsins og
SVR skyldu vera tveir i hvorri
stjórnog sitja þar meðsömu rétt-
indum og skyldum og aðrir
stjórnarmenn, þ.m.t. atkvæöis-
rétt.
Sinnaskipti
Sjálfstæðisflokksins
Björgvin Guðmundssonfagnaði
sinnaskiptum Sjálfstæöisflokks-
manna, sem á undanförnum ár-
um hafa kolfellt allar tillögur um
aöildstarfsmanna aö stjórn fyrir-
tækja borgarinnar. „Hlutverk
Sjálfstæðisflokksins hefur hingað
til veriö aö berja niður slikar til-
lögur”, sagöi Björgvin, „en nú
hefur blaöinu veriö snúiö við. Ég
vona aö þar séu heilindi á bak við
og ekki sýndarmennska ein.”
Siöan lýsti Björgvin þaö skoðun
sina aö rétt væri aö fara hægt I
sakirnar og veita starfsmönnum
aukinn rétteftir þvi hvernig sam-
starfiðþróaöist.Hann minnti á aö
ein höfuöröksemd Birgis ísl.
Gunnarssonar gegn aöild og
atkvæðisrétti starfsmanna hefði
hingað til verið sú aö þaö stæöist
ekki samkvæmt sveitarstjórnar-
lögunum.
Adda Bára Sigfúsdóttirsagði að
ekkert i samþykktum stjórnar
SVR hefði bannaö stjóminni að
heimila aöild starfsmanna aö
stjórnarfundum, og þó ýmsir
launþegar og atvinnurekendur
heföu hingaö tilekki haft áhuga á
auknu samstarfi eftir þvi sem
Birgir Isl. heföi sagt, þá heföi
starfsmannafélag SVR haft þann
áhuga og meirihluti borgar-
stjórnar væri einnig hlynntur
sliku samstarfi. Þess vegna væri
málið komið á dagskrá hér og nú.
Adda itrekaði aö ekki þyrftu
sömu reglur aö gilda um allar
stofnanir og fyrirtæki borgarinn-
ar og eðlilegast væri aö prófa*
ýmsar leiðir. Adda sagöist hafa
setið i Stjórn sjúkrastofnana frá
upphafi og þar sætu 2 fulltrúar
starfsmanna meö fullum réttínd-
um, þ.ám. atkvæöisrétti. Eg man
aldrei eftir þvi aö skorist hafi i
odda milli starfsmanna og
fulltrúa borgarinnar i atkvæöa-
greiöslu”, sagöi Adda, „enda er
samstarf þessara aðila ekki fólgiö
Framhald á 18. siöu
Reykjavikurborg ver á þessu ári rúmlega 8 miljörðum króna I ýmsar verklegar framkvæmdir sem ekki
heyra beint undir stjórn kjörinna fulltrúa borgarinnar, heldur undir borgarverkfræðingsembættið.