Þjóðviljinn - 07.10.1978, Page 11
Laugardagur 7. október 1978lÞJÓÐVILJINN — StlDA 11
A fimmtiu ára afmæli rúss-
nesku byltingarinnar hélt ég til
Leningrad að sitja æskulýðs-
fyikingarþing undir forustu Júri
heitins Gagarins er fyrstur
manna vitnaði i Lenín úti i
geimnum. A útleið gerði ég
stuttan stans i Kaupmannahöfn.
Ég hafði aidrei fyrr heimsótt
Jazzhus Montmartre sem þá
var til húsa i Store Regnegade
og þvilik upplifun. Gagarfn og
allt hans lið féll f skugga
kvartettsins góða. Long tall Dex
og kappar hans, þeir er oftast
léku með honum frá þvi hann
settist að i Höfn árið 1962. Kenny
Drew á pianóið,Niels-Henning á
bassa og Tootie Heath á tromm-
ur. Ég heyrði þá aftur á leiðinni
frá gerska ævintýrinu. Læri-
sveinn Dexters, Johnny Griffin
hafði bæst i hópinn til að gera
sveifluna enn magnaðri, tónana
enn trylltari; litii og stóri i vín-
garði djassins.
Þetta voru fyrstu kynni min af
Dexter. Fáir mátu hann að verð
leikum. Hann var 44 ára gamall
og hafði á liðnum árum leikið
með Lionel Hampton, Louis
Armstrong, Billy Eckstine,
Charlie Parker, Tadd Dameron
svo þeir helstu séu nefndir . Að
visu hafði hljómplata hans, er
Blue Note gaf út, vakið athygli:
Doin’Allright (BST-84077) i hópi
trúaðra, en þar léku með honum
m.a. Freddie Hubbard og Hor-
ace Parlan góðvinur islendinga.
Það er ekki fyrr en á siðasta
ári að Dexter verður stór-
stjarna. Loks hlaut hann þá
viðurkenningu og þann sess er
honum bar i djasssögunni. Þvi
miður er Dexter ekkert eins-
dæmi. Margur snillingurinn
hlýtur ekki sanngjarna viður-
kenningu fyrren i gröfinni.
Dexteræði fór sem eldur i sinu
um þá hjörð er áður leit ekki við
öðru en rafdjass og þá helst
rokkuðum. Hvað hafði gerst?
Hvi hafði rafæskan tekið Dexter
jafn opnum örmum og Miles
Davis forðum? Ekki hafði hann
breytt stil sinum hið minnsta.
Ekki einusinni bætt gitar viö
hljómsveit sina. Vonandi er
þetta eðlilegur ávöxtur hlustun-
ar tónþenkjandi ungmenna á
meistara Davis og aðra raf-
djassleikara. Sú hlustun hlaut
fyrr eða siðar á koma þeim á
spor hins ómengaða bops og
þess nýtur Dexter nú.
Rætur Dexters liggja hjá
Lester Young, hinum svala fá-
Dexters er mótaður af bopinu og
kraftmeiri en Youngs, og á
stundum bregöur hann fyrir sig
brögðum fóstbróður sins frá
Höfn, Ben Websters, meistar-
ans mikla af skóla Hawkins.
Einkennandi fyrir leik Dexters
er tilfinning hans fyrir að segja
sögu i sólóum sinum eins og
Lester Young fyrrum. Hann
þekkir ætið ljóð ballaðan er
hann leikur og vitnar gjarnan i
þær áður en leikur hefst. Til-
vitnanir i ýmis lög ganga eins og
rauður þráður gegnum leik
hans; þar er enginn jafnoki
Dexters. Þær falla alltaf eðli-
lega inni sólóana og mættu
margir djassmenn læra þar af
honum.
Armstrong heimsótti okkur er
kraftar hans voru teknir að
bverra. Dexter hefur aftur á
móti aldrei leikið eins vel og sl.
fjögur ár. Það sanna þær hljóm-
plötur er hann hefur leikið inn á
fyrir SteepleChase i Danmörku;
ég nefni aöeins The Apartment
frá 1974 (SCS-1025) þar sem
Kenny, Niels-Henning og Tootie
leika með og er Dexter nýkom-
inn úr afvötnun, nýgiftur, nýbú-
inn að eignast soninn Benji,heit-
inn eftir Webster, og leikandi á
Selmerinn er meistarinn arf-
leiddi hann að. Þvi furðar eng-
an er Dexter vitnar i brúðar-
mars Mendelsohns i lagi sinu
Antabus. A djassfestivalinu i
Zúrich . 1975 leysti Aleks Rieí
i village Vanguard 1976. Sú
hljómplata, Homecoming
(PG34650) var kjörin ein af 5
bestu hljómplötum útgefnum á
siðasta ári.
Dexter átti aðra i þeim hópi:
Soph i sticated Giant
(Col.JC34989). Dexter var að
sjálfsögðu kosinn tenórsaxafón-
leikari ársins i þessum kosning-
um, alþjóðlegu gagnrýnenda-
kosningum Down Beats. I fyrra
varð hann i öðru sæti sem djass-
leikari ársins i lesendakosning-
um sama blaðs. Það kæmi eng-
um á óvart þótt hann yrði kosinn
djassleikari ársins 1978L og eitt
er vist, stórbrotin tónlist hljóm-
ar af sviði Háskólabiós 18. októ-
„ber n.k. V.L.
Það fer ekki á milli mála að
Dexter er sá djassleikari er Is-
land heimsækir er dýpst spor
hefur markað i djasssöguna að
einum þó undanskildum, Meist-
ara Armstrong er blé's á
sama stað og Dexter mun
gera, fyrir nærri 14 árum. En
Tootie af hólmi og þrjár hljóm-
plötur voru hljóðritaöar: Swiss
Nights 1 og 2 (SCS-1050 og 1090),
sú þriðja kemur út á næstaári og
þar syngur Dexter biúsinn
góða: Jelly, Jelly. Columbia
hljóðritaði Dexter með Woody
Shaw/Louis Hayes kvintettnum
mælta snillingi tenórsaxafóns-
ins. Dexter er hlekkurinn er
tengir Young og John Coltrane
og Sonny Rollins einsog Dizzy
Gillespie tengdi Roy Eldridge
og Miles Davis. Coltrane og
Rollins lærðu mikið af Dexter,
þó sér i lagi Coltrane. Still
Garðbú-
ar kynna
skáta-
starfið
Vetrarstarf Skátafélaganna er
að hefjast um þessar mundir.
Skátafélagið Garöbúar sem starf-
ar i Smáíbúða-, Bústaða- og Foss-
vogshverfi hefur ákveðið að gefa
ibúum hverfisins kost á að kynn-
ast starfi félagsins um helgina.
Kynningin fer fram i skáta-
heimilinu við Háagerði, i kjallara
barnaheimilisins Staðarborgar,
og að Hólmgarði 34 i risi milli kl.
14 og 18 i dag og á morgun.
1 heimilinu verða skátar með
ýmsa kynningarfundi, sýna fönd-
ur, syngja,og börnum gefst kostur
á að innrita sig i félagið. Gestum
verður veitt kakó og kex.
Skátafélagið Garðbúar verður
10 ára i febrúar næstkomandi og
þá eru einnig 20 ár liðin frá þvi að
skátastarf hófst i hverfinu.
___________________ekh
Nýjung hjá
Stjórnunarfélaginu
Nám-
stefna um
fjármála-
stjórn
Stjórnunarfélag íslands
mun gangast fyrir
námstefnu um „Fjármála-
stjórn fyrirtækja'' 12. októ-
ber n.k.
Námstef nuha Id er
nýjung í starfsemi
Stjórnunarfélagsins, en til
þessa fundarforms er
stofnað í því skyni að gefa
sérfræðingum og áhuga-
mönnum á ákveðnu sviði
tækifæri til að hittast,
kynnast nýjungum i sínum
fræðum, fræðast um
vandamal starfsbræðra í
öðrum fyrirtækjum og
ræða sameiginleg vanda-
mál.
Á þessari fyrstu nám-
stefnu Stjórnunarfélagsins
verður fjallað um fjár-
málastjórn í fyrirtækjum
og hefur sérstaklega verið
boðið til hennar forstjór-
um, íramkvæmdastjórum,
f jármálastjórn i fyrirtækj-
um. Efni þetta á einnig í
ríkum mæli erindi til
bankastjóra, starfsmanna
hagdeilda, löggiltra endur-
skoðenda og annarra
þeirra sem veita fjár-
magni til eða hafa eftirlit
með fjármunum fyrir-
tækja.
Þó að efni það sem tekið
er til umfjöllunar á
námstefnunni sé sérhæft
og höfði éinkum til ákveð-
inna starfsmanna innan
fyrirtækja, þá er
námstefnan eins og önnur
fundahöld Stjórnunar-
félagsins opin öllum sem
áhuga hafa.
Námstefnan verður
haldin að Hótel Sögu
fimmtudaginn 12 október
n.k. og hefst kl. 10.00. Þátt-
tökugjald er 14.500 krónur,
og hafa 50 einstaklingar
þegar bókað sig á nám-
skeiðið.