Þjóðviljinn - 21.10.1978, Page 1
UOWIUINN
Laugardagur 21. október 1978—231. tbl. 43. árg.
Tóppskatt-
urinn lægst-
ur hér
Forsetakjör FIDE
Veröur Bobby Fischer
kosningabomba Gligoric?
ferö hans til Júgóslaviu vekur athygli
Eftir 6 ára einangrun, rauf
Bobby Fischer fyrrum heims-
meistari i skák, hana allt i einu sl.
þriöjudag, meö þvi aö taka sér
ferö á hendur frá Bandarikjunum
Heildarskattþunginn
sömuleiöis
Meöaltalshámark gjalda eöa
jaöarskattur af tekjum á Noröur-
löndum er 76% á möti 42% á ts-
landi miöaö viö 40% veröbólgu.
Þetta ásamt ýmsum samanburö-
artölum um skattþunga kom
fram i ræöu Tómasar Arnasonar
fjármálaráöherra viö dtvarps-
umræöuna um stefnuræöu for-
sætisráöherra á fimmtudags-
kvöldiö.
* Hámark gjalda af tekjum , þ.e.
tekjuskattur, útsvar og sjúkra-
gjald, er nú 53% af topptekjum
hér á landi. Ef bætt er viö 6 pró-
sentum br áöabirgöalaganna
veröa þaö 59%. Þessi gjöld eru
greidd áriö eftir og ef verðbólgan
er 40% milli ára verður hámarks-
skattprósenta 42% af tekjum
greiíteluársins. I Danmörku er
hliöstæö prósenta 69.8% en þar er
staðgreiösla skatta. 1 Noregi er
sambærilegprósenta 79.2%, iSvi-
þjóð 80% og i Finnlandi 74.75%.
Þeir sem komast i hæstu skatt-
stiga á Norðurlöndunum greiöa
miklu hærri skatta en hér tiökast
þótt skattar skv. bráöabirgöalög-
unum séu taldir meö. Annars-
staöar á Noröurlöndum byrjar
hæsti jaöarskattur við hærra
tekjumark en hér á landi.
Um heildarskattþunga, þ.e.a.s.
gjöld til rikis og sveitarfélaga aö
meðtöldum óbeinum sköttum er
það aö segja aö áriö 1977 voru
skatttekjur hins opinbera 33% af
þjóðartekjum hérlendis. Seinustu
fáanlegar tölur pm heildarskatt-
þunga i nágrannalöndunum eru
frá 1974. Þá var heildarskatt-
þunginn I hlutfalli af þjóöarfram-
leiöslu 46% i Noregi, Danmörku,
og Hollandi, 43% i Sviþjóö, 38% i
Þýskalandi, 37% i Austurriki, og
36% i Frakklandi Finnlandi og
Bretlandi. Til samanburöar var
Framhald á 18. siöu
Ríkisstjórnin afgreiddi
fvrri hækkunarbeiðni
Framleiðendur smjörlikis og
gosdrykkja létu Morgunblaöiö
tilkynna þaöi gær, aö þeir heföu
lokaö afgreiöslum sinum, vegna
þe ss aö þeir eru ekki biinir aö fá
I gegn hjá rikisstjórninni 25%
hækkunarbeiðni, sem búiö var
að afgreiða I verölagsnefnd.
í fyrradag afgreiddi rikis-
stjórnin hinsvegar eldri hækk-
unarbeiöni þessara aðila og
heimilaöi þeim hækkun á
smjörliki um 8,9%, gosdrykkj-
um um 18%, og flugfargjöldum
um 15%.
„Þessi hækkun hafði veriö
samþykkt I verölagsnefnd f tið
fyrrverandi rikisstjórnar og hún
lá fyrir núverandi rikisstjórn til
afgreiðslu og það var samþykkt
i ríkisstjórninni á fundi sl.
fimmtudag, aö heimila hana”,
sagöi Svavar Gestsson, viö-
skiptaráöherra, I gær.
segir Svavar
Gestsson,
viðskipta-
ráðherra
Svavar sagöi aö máliö hetði
verið tekiö fyrir á rikisstjórnar-
fundi sl. þriöjudag, en þá heföi
verið ákveöiö aö fresta af-
greiðslu málsins til fimmtudags
en þá var svo þessi eldri hækk-
unarbeiðni, sem afgreidd haföi
veriö I verðlagsnefnd ákveöin.
En s.l. miðvikudag gerðist
það svo, aö verðlagsnefnd sam-
þykki nýja hækkun, 25% á
smjörliki og gosdrykkjum og
20,8% á flugfargjöldum. Svavar
sagðist hafa skýrt frá þessu á
rikisstjórnarfundinum sl.
fimmtudag og heföi stjórnin á-
kveðiö aö heimila eldri hækkun-
ina.
Þá sagöi Svavar aö þessi lok-
un á afgreiöslum gosdrykkja-
framleiöenda og smjörlikis-
gerðanna kæmi sér mjög á ó-
vart, þar eð hann hefði rætt viö
annan þessara aðila á fimmtu-
dagsmorguninn og heföi sá tekiö
vel i afgreiöslu rikisstjórnarinn-
ar á málinu, en svo snúiö viö
blaöinu greinilega, eftir þessari
lokun aö dæma. Aö lokum sagöi
viöskiptaráöherra:
„Rlkisstjórnin afgreiddi aö-
eins það sem fyrir lá i málinu og
öll okkar tregða I sambandi við
veröhækkanir er vegna þess aö
við erum að berjast viö aö ná
óðaverðbólgunni niður”.
— S.dór.
Mikil fjárhagsvandræði Kópavogskaupstaðar
til Júgóslaviu. Aö þvl er fréttir
hermdu sagöi Fischer aö hann
færi til Júgóslaviu til aö ræöa viö-
skiptamál.
Þessi ferö Fischers til Júgó-
slaviu, eftir 6 ára einangrun hefur
vakiö bæöi undrun og athygli.
Enginn veit hvaða „viöskiptaer-
indi” Fischer getur átt viö júgó-
slavneska skáksambandiö. Hins-
vegar gæti komiö til greina aö
júgóslavneska skáksambandiö
ætlaöi að hjálpa honum af staö
aftur út I skákheiminn.
Aftur á móti hefur yaknaö
grunur um aö Júgóslavarnir ætli
aö nota Fischer sem kosninga-
bombu fyrir júgóslavneska stór-
emistarann Gligoric, sem er aöal
keppinautur Friöriks Olafssonar
til forsetakjörs FIDE. Þaö er nú
almennt hald manna, aö Júgó-
slavarnir ætli aö fá Fischer til að
lýsa þvi yfir aö ef Gligoric veröi
kjörinn forseti FIDE, muni hann
taka viö aö tefla á ný, annars
ekki.
Vitaö er aö margir myndu falla
fyrir slikri yfirlýsingu, þar sem
mikil eftirsjá var af þessum
mikla skákmanni, er hann ein-
angraöi sig algerlega og hætti aö
tefla eftir aö hann var oröinn
heimsmeistari 1972. Margir
mektarmenn hafa reynt aö fá
Fischer til að taka aftur til viö
taflmennsku á liönum árum, en
án árangurs.
Ef þetta reynist rétt, sem mjög
margir ætla, gæti yfirlýsing þessa
efnis frá Fischer, haft alvarlegar
afleiöingar fyrir Friörik Ólafsson
viö forsetakjöriö. Og ekki veröur
annað sagt, en aö Júgóslavar vegi
úr launsátri, ef þeir gera þetta.
-S.dór.
Fischer.
Gligoric.
Ekki ólík
legt að
Júgóslav-
Ríkisstjórnin heimilar
200 milj. kr. lántöku
Hrikalegur viðskilnaður bœjarstjórnarmeirihluta
Sjálfstæðisjlokks og Framsóknar
Kópavogskaupstaður
hefur átt í miklum fjár-
hagsvandræðum að undan-
förnu. í sumar hefur legið
við lokun á rafmagni hjá
bænum og erf iðleikar hafa
verið með launagreiðslur.
Úttektsem gerð var á f jár-
hagsstöðu bæjarins eftir
bæjarstjórnarkosningarn-
ar í vor leiddi í Ijós, að 360
miljónir króna vantaði til
að endar næðu saman. Nið-
urstöður þessarar úttektar
á viðskilnaði bæjarstjórn-
armeirihluta íhalds og
Framsóknar hafa ekki
verið birtar. Bæjarstjórn
Kópavogs leitaði til ríkis-
stjórnarinnar um aðstoð og
hefur ríkisstjórnin nýlega
farið fram á það við Seðla-
bankann, að greitt yrði úr
mestu vandræðum kaup-
staðarins með 200 miljóna
króna láni.
„Fjárhagsstaöan er slæm hjá
okkur eins og flestum öörum
sveitarfélögum”, sagöi Jón Guö-
laugur Magnússon, bæjarritari I
Kópavogi, þegar Þjóöviljinn bar
þetta mál undir hann. „Staöa
okkar er þó öllu verri en margra
annarra, þvi hér hefur uppbygg-
ingin veriö einna hrööust. Verö-
bólgan bitnar lika á okkur eins og
öörum. Viö miöum okkar tekjur
viö laun manna i fyrra, og þegar
veröbólgan er 40%, þá þýöir litiö
11% útsvar I raun ekki nema 7-8%
útsvar. Kópavogur hefur byggst
upp svo hratt, aö þetta kemur verr
niöur hér en viöa annarsstaöar.
Framkvæmdaþörfin er lika meiri
hér,” sagöi bæjarritarinn.
Hann sagöist reikna meö þvi aö
dregiö yröi úr framkvæmdum á
vegum bæjarins og reynt aö brúa
biliö meö Iántökum.
Jón Guölaugur minntist einnig
á i þessu sambandi, aö Kópavogs-
kaupstaöur rekur strætisvagna,
sem greitt væri meö hátt á annaö
hundraö milj. á ári. Þessi þjón-
usta er bundin verölagsákvæöum.
Fé til reksturs strætisvagnanna
er tekiö beint af útsvörum bæjar-
búa og Kópavogur er eina bæjar-
félagiö fyrir utan Reykjavik, sem
þarf aö standa undir slikum
rekstri. -eös.
arnir noti
Fischer
sagdi Friðrik
r
Olafsson stórmeistari
„Égheld aðþaðsé mjög Uklegt,
aö Júgóslavarnir ætli sér að nota
Bobby Fischer,Gligoric til fram-
dráttar I forsetakjörinu, ég tel
alla vega aö ekki sé loku f yrir þaö
skotið. Ég veit líka að menn
leggja mikið uppúrþvl að Fischer
byrji aö tefla aftur, ég geri þaö
raunar sjálfur, og vona að hann
byrji sem fyrst og tefli sem
lengst, svo frábær skákmaöur
sem hann er”, sagði Friðrik
Ólafsson stórm eistari er við
bárum undir hann þann grun
manna að ferð Fischers til Júgó-
slaviu standi i sambandi við
framboösmál Gligoric.
„Hitt finnst spaugilegt ef
Fischer verður til þess aö sá
frambjóöandi, sem Sovétmenn
styðja nái kjöri, svo hatramlega,
sem hann hefur barist gegn veldi
Sovétmanna á skáksviöinu. En
þaö er alveg ljóst aö stuöningur
Fischers við Gligoric heföi mjög
mikiö aö segja fyrir hann, ef þaö
yröi til þess að Fischer færi aö
tefla aftur”, sagöi Friörik.
—S.dór
Sigurjón Ólafsson
myndhöggvari
er sjötugur í dag
— sjá opnu