Þjóðviljinn - 21.10.1978, Page 5
Laugardagur 21. október 1978 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA S
MINNING
Séra Páll Þórðarson
Fæddur 30 júní 1943
Dáinn 16. október 1978
Þú hefur fengiö þig fluttan yfir
fljótiö, Páll, en viB félagar þinir
og vinir horfum á eftir þér og
söknum þin.
Þegar hliöstæöir atburBir þess-
um gerast, veröur maBur orölaus
og setur hljóöan. Einhvernveginn
finnst manni aö mistök hafi oröiö,
gangverkiö bilaö eöa stjórnend-
unum hafi fatast. Þegar glæst-
asta tréö i skóginum fellur,kosta-
hesturinn ungi, sem af öörum bar,
liggur allt i einu nár i haganum
eöa þegarungur friskuroggáfaö-
ur maöur, sem svo sannarlega
virtist eiga framtiöina fyrir sér er
allt I einu kvaddur til hinnar
hinstu feröar, þá veröur maöur
tómur innan i sér og varnarlaus
fyrir sköpum lif s og dauöa.
Hingaö i Njarövikurprestakall
kom Páll áriö 1975 eftir tveggja
ára þjónustu á Neskaupstaö.
Þrátt fyrir þaö aö hann væri ekki
lengri tima þar eystra eignaöist
hann þar marga vini og honum
var mjög tamt aö vitna til manna
og atburöa þar.
Aö visu tengdist hann mönnum
og staönum fastar fyrir þá
atburöi sem uröu á Neskaupstaö
á hans tima þar eystra þar sem
var snjóflóöiö og mannskaöarnir i
desember 1974. SU saga greyptist
i minni hands og fylgdi honum æ
siöan.
Viö komuna hingaö i Njarövik
haslaöi hann sér þegar völl i
starfi si'nu sem sóknarprestur i þá
nýmynduöu prestakalli. Einnig
lét hann til sin taka á öðrum sviö-
um félagsmála. Má þar nefna
málefni barna, æskulýösmál og
bindindismál. Hann var f ormaöur
skólanefndar nýstofnaös tónlistar-
skóla og var mjög áhugasamur
um framgang hans, og fleira
mætti telja. Páll gekk aö hverju
starfi meö einurö, festu og dreng-
skap og það sópaði aö honum.
Prestakalliö hér, bæjarfélagiö,
skólarnir og aörir þeir vettvangar
þar sem Páll kom viö sögu sjá á
bak góöum starfsmanni og
leiötoga.
Vinir þinir þakka þér sam-
fylgdina og harma þaö mest aö
hún skyldi ekki lengri verða.
Ég kveö þig fóstri og þakka þér
góöar stundir. Viö áttum margt
órætt og óséö en geymum það til
betri tima.
Ég trúi þvi aö þér hafiveriö vel
tekiö á ströndinni fyrir handan af
leiötoga lifs þins.
Eiginkonu, sonum og öörum
ættingjum votta ég innilegustu
samúö mina.
Oddbergu r E iriksson
Njarövik.
Ný stjórn
Lánasjóðs
íslenskra
náms-
manna
t nýútkomnu Stúdentablaöi er
sagt frá nýrri stjórn Lánasjóös
Islenskra námsmanna, sem hefur
nú veriö skipuö. Fráfarand
sagöi af sér þegar ný rikisstjórn
tók viö völdum.
I nýju stjórninni eiga sæti:
Þorsteinn Vilhjálmsson formaöur
og Helga Sigurjónsdóttir, bæöi
skipuö af menntamálaráöherra,
Bragi Guðbrandsson, tilnefndur
af SINE, Hjördis Bergsdóttir,
tilnefnd af námsmönnum utan
SHI og SÍNE, össur Skarphéöins-
son, tilnefndur af SHÍ og Stefán
Pálsson, tilnefndur af fjármála-
ráöuney tinu. —eös
Enn eykur Olíufélagið þjónustu sína.
t'n " * m «*•
|k|| | n|J|
BENSINSTÖÐ OG BUÐ.
Otíufélagið h.f. hefur nú reist nýja bensínstöð
vestur við Ægisíðu. Þar er gasotía og benstn afgreitt
úr hraðvirkum rafeindadœlum.
Verslunin er rúmgóð og býður fjölbreytt vöruúrval.
Þ VOTTAAÐSTAÐA.
Góð þvottaaðstaða verður fyrir hendi (einnig
afnot af ryksugu).
HJÓLBARÐA VERKSTÆÐI.
Eftir 2-3 mánuði verður opnað hjólbarða-
verkstœði á sama stað, vel búið tcekjum af nýjustugerð.
Öll þjónusta innan dyra. ,
VELKOMIN TIL VIÐSKIPTA VESTUR VIÐ
ÆGISÍÐU.
£sso ,
cn
s
Olíufélagið hf