Þjóðviljinn - 21.10.1978, Side 15
Laugardagur 21. október 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15.
3 0[þi?®GGð[p (2
Að upphafi
íslandsmóts
Menningin um helgina
Sigurdur Eyþórsson
sýnir í Gallerí SIJM
„Ahorfandi” góöur.
A laugardag veröurflautaö til
leiks i fertugasta Islandsmóti i
handknattleik. Miklar vonir eru
bundnar viö þaö tslandsmót
sem nú fer 1 hönd um aö mótiö
veröi tvisýnna og jafnara en
oftast áöur. Kemur þar margt
til, en þyngst á metunum er aö
félögin eru yfirleitt betur undir-
búin en áöur. Þrir þjálfarar i
fremstu röö hafa nú bæst i hóp
þeirrasem þjálfa 1. deildar liö,
þ.e.a.s. Pólverjarnir tveir og
siöast en ekki sist hinn
gamalreyndi Hilmar
Björnsson, sem þjálfar
meistaraliö Vals. Aörir
þjálfarar i 1. deild eru allt
saman þrautreyndir „jálkar”,
sem hafa alhr sannaö ágæti sitt
i gegnum ár:n. Fróölegt veröur
aö fylgjast neö hinum unga
þjálfara Hauka, Þorgeiri
Haraldssyni. Svo segir mér
hugur aö hann skipi sér I
fremstu röð þjálfara hér á landi
straxeftir þetta keppnistimabil.
lannarri og þriöjudeild er langt
siöanaö svo gott úrval þjálfara
hefur tekiö aö sér þjálfun,og ber
aö fagna þeirri þróun mála. Má
nefna þar kappa eirs og Geir
Hallsteinsson, Arnar Guölaugs-
son, Birgi Björnsson sem allir
þjálfa i annarrideild, Gunnlaug
Hjálmarsson, Stefán Sandholt,
Pétur Jóhannsson og fleiri Ur
þeirri þriöju.
Ekki má gleyma kvenfólkinu
og yngri flokkunum.
Ahorfendum gefst nú kostur i
fyrsta skipti aö s já leiki þessara
hópa með 1. deildar leikjum og
er það vel. FH-ingar og
Vikingar hafa búiö svo um
hnútana aö hinir erlendu
þjálfarar þeirra þjálfa einnig
kvenfólkið og yngri flokkana
eða skipuleggja þjálfun þeirra.
Veröur fróðlegt aö fylgjast meö
árangri þeirra i vetur á þessu
sviði.
Handknattleikureins og aörar
iþróttagreinar er sifelldum
breytingum undirorpinn.
Æ meiri kröfur eru gerðar til
leikmanna og forráöamanna
um aö standast hinum sterkari
þjóðum snúning á alþjóöavett-
vangi.
Islenskur handknattleikur
hefur orðið fyrir mikilh blóö-
töku undanfarin ár, sifellt fleiri
leikmenn leika nú meö er-
lendumfélagsliöum. Viö þessari
þróun verður aö finna einhver
ráö og stemma stigu viö.
Arið 1967, meö Steinar
Lúðviksson i broddi fylkingar,
tóku Ibróttafréttaritarar sig
saman og ákváðu aö leitast við
að vera sem jákvæöastir I skrif-
um sinum um handknattleik.
Þessi viöleitni þeirra bar riku-
legan ávöxt þvi aö I kjölfariö
fylgdi eitt mesta „blómatima-
bil” I sögu handknattleiks á ís-
landi. Uppselt var á alla leiki i
Höllinni kvöld eftir kvöld. A
þennan hátt áttu iþróttafrétta-
ritarar stóran þátt I aö islenska
landsliöinu gekk jafn vel og
raun bar vitni i forkeppni
Olympiuleikanna á Spáni 1971.
Ahugi og jákvætt viöhorf var
alls ráöandi.
Mikiö vatn hefur runniö til
sjávar siöan. Stööugur
straumur leikmanna til útlanda
sem óhjákvæmilega leiddi til
þess aö islenskur
handknattleikur setti nokkuö
niöur. Allir söknuöu leikmanna
sem héldu utan. Þaö vantaöi
tilfinnanlega oröiö allar
„týpur” iislenskan handknatt-
leik.
Meö tilkomu Janusar
Czerwinskis varð áhugi aö
nokkru viö reistur, þar sem
Island komst aftur á blað meðal
16 bestu þjóða heimsins.
1 dag stendur Islenskur hand-
knattleikur á tlmamótum. Allir
eru þeirrar skoðunar aö
breytinga sé þörf. 1 ár ætla félög
aðreyna aö leika 1 leik á hverju
keppniskvöldi eins og tiökast
alls staöar annars staöar I
heiminum. Reynslan mun skera
úr um það hvort fækka eigi i
fyrstu deild og leika meö
svipuöu fyrirkomulagi og nú er
gert i körfuknattleiknum.
Stuðningsmenn félaganna veröa
aö fylgja félagi sinu hvert
fótmál að geta meö hvatningu
sinni hreinlega ráöið úrslitum i
tvisýnum leikjum.
Valur og Vikingur eru
fulltrúar islenskra liða að
þessu sinni I Evrópu-
keppninni. Vikingar kom-
ust I aöra umferö án þess
aö leika, en Valsmanna biö-
ur þyngri róöur i viðureign
sinn^ viö norska meistaraliöiö
Refstad á sunnudag i Höllinni.
Valsmenn töpuöu fyrri leiknum
með aðeins 2ja marka mun og
veröa þvi aö sigra með þriggja
marka mun á sunnudags-
kvöldiö. Góður árangur bestu
félagsliöa okkar i Evrópu-
keppnum og landsliðsins ætti aö
haldast i hendur. 011 ættum viö
þvi að mæta I Höllina á
sunnudagskvöldiö og hvetja
Valsmenn til sigurs gegn
Refstad.
Enginn vafi leikur á þvi, aö
handboltinn veröur skemmti-
legur i vetur. „Áhorfandi” góö-
ur, láttu sjá þig sem oftast i
„Höllunum” i vetur, og stuön-
ingur þinn mun skila sér I bætt-
um árangri.
Siguröur Eyþórsson listmálari
sýnir um þessar mundir 28 mál-
verk i Galleri SÚM viö Vatnsstig.
Þar eru oliu- og acrylmálverk,
egg-tempera myndir og teikning-
ar. Flestar eru myndirnar unnar
á s.l. tveimur árum.
Siguröur Eyþósson hefur h ildið
pína einkasyningu áöur, og veriö
1 dag veröur opnuö á Kjarvals-
stööum sýning á 98 graflkmynd-
Silfurstytta eftir Dali
Aö gefnu tilefni veröur yfirlits-
sýning á verkum Snorra Arin-
bjarnar i Listasafni tsiands fram-
lengd um eina viku og veröur opin
sem hér segir:
Laugardag 21. og sunnudag 22.
okt. frá kl. 13.30 - 22.00, eftir þaö
daglega frá kl. 13.30 - 16.00 til
sunnudagsins 29. október.
meö i samsýningum. Hann út-
skrifaöist úr Myndlista- og hand-
iöaskólanum 1971, og hefur einn-
ig stundaö myndlistarnám I Svi-
þjóö og Austurríki.
Sýningin er opin frá kl. 16-22
virka daga, og frá 14-22 um helg-
ar. Henni lýkur 25.okt.
um og nokkrum fleiri listaverk-
um eftir spánska snillinginn
Salvador Dali.
Dali fæddist i Figueras á Spáni
áriö 1904. Arið 1929 hélt hann
fyrstu einkasýningu sina i Paris,
og hefur siöan veriö einn frægasti
súrrealisti aldarinnar. Hátindur-
inn I list hans mun vera árin
1936—1940, þegar hann flúði
Frakkland undan innrás Þjóö-
verja og fluttist til Banda-
rikjanna. I sýningar-
skrá Kjarvalsstaöa segir
Björn Th. Björnsson m.a.: „Dali
er teiknari, málari, eöalsmiöur,
og bestu verk hans meöal þess
fegursta I listsmiö þessarar ald-
ar, á hvaöa mælikvarða sem er...
Þvi er ekki aö neita aö list
þessara ára sem hér er sýnd, frá
1960 til 1974, er ekki lengur, nema
meö glömpum, þaö sem best ger-
ist i list Dalis. En glampar eru
þar, óviöjafnanlegir.. Þvi er þaö
mikill fengur okkur, sem nú eig-
um þess kost, að dveljast um
stund I nálægö þessa aldna
meistara og guödómlega trúö-
leikara frá Figueras”.
Sýningin er opin kl. 14—22 um
helgar, en 16—22 virka daga.
Henni lýkur 5. nóvember.
Athygli skal vakin á aö hér
gefst einstakt tækifæri til aö
kynnast verkum eins ágætasta
listamanns þjóöarinnar. Skólum
skal sérstaklega bent á aö nem-
endum stendur til boöa aö skoöa
sýninguna i fylgd kennara utan
áöurnefnds sýningartima, eftir
nánara samkomulagi.
Leik-
list
Leikfélagið sýnir Glerhúsiö I
Iönó I kvöld kl. 20.30. Aukasýning
er á' Blessuöu barnalánii Austur-
bæjarbiói kl. 23.30 i kvöld. Annað
kvöld veröur svo sýning i Iönó á
Valmúinn springur út á nóttunni,
kl. 20.30.
1 Þjóöleikhúsinu er uppselt á
sýninguna á stóra sviöinu I kvöld.
Þaö er hinn vinsæli gamanleikur
Á sama tima aö árL Annaö kvöld
kl. 20 er sýning á leikriti Jökuls
Jakobssonar, Sonur skóarans og
dóttir bakarans á stóra sviöinu,
og önnur sýning á Sandur og kona
eftir Agnar Þóröarson á litla sviö-
inu kl. 20.30.
Fyrirlestur
um
heimspeki
Fyrsti fyririestur vetrarins,
sem Félag áhugamanna um
heimspeki gengst fyrir, veröur
haldinn 22. okt. kl. 14.30 i Lög-
bergi, húsi lagadeildar Háskól-
ans. Erlendur Jónsson veröur
frummælandi, og nefnir hann er-
indi sitt „Um heimspeki Wittgen-
steins”.
Nýir félagsmenn eru velkomnir
og eru þeir ásamt eldri félögum
minntir á ársgjald félagsins kr.
2000.-, sem greiðast skal á fyrsta
fundi vetrarins.
Gerard
Souzay og
Dalton
Baldwin
i Háskólabiói í dag
kl. 14.30
1 dag, laugardag, kl. 14.30 munu
hinir heimsfrægu tónlistarmenn
Gerard Souzay og Dalton Baldwin
fiytja ljóöabálk Schuberts, „Dic
Winterreise” fyrir styrktarfé-
laga Tónlistarfélagsins I Há
skólabiói.
Gerard Souzay er einn viökunn-
asti ljóöasöngvari sem nú er uppi.
Hann fæddist i Frakklandi áriö
1918 og stundaöi upphaflega nám i
heimspeki, en snéri sér siöar aö
sönglistinni. I þrjá áratugi hefur
hann feröast um heiminn sem
ljóöasöngvari og áunniö sér frægö
og frama.
Dalton Baldwin er Bandarikja-
maöur. Hann ætlaði upphaflega
aö veröa söngvari, en hætti viö
þaö og geröist söngljóöatúlkandi
á flygilinn og samstarfsmaöur
Souzays, sem hann hefur veitt
fulltingi sem frábær undirleikari
á tónleikaferöum um allar álfur
siöustu tvo áratugi.
Souzay og Baldwin hafa áöur
heimsótt Island, siöast i mai 1975.
Jóhann Ingi Gunnarsson
blaöafulltrúi HSÍ.
TILKYNNING
Með tilvisun til 10. gr. laga nr. 49 frá 16.
mai 1974, sbr. lög nr. 49 frá 16. mars 1951,
er hér með skorað á þá, sem eiga ógreidd
iðgjöld til Lifeyrissjóðs sjómanna, að gera
nú þegar skil á þeim til sjóðsins.
Hafi ekki verið gerð skil á öllum van-
göldnum iðgjöldum, innan 30 daga frá
birtingu þessarar tilkynningar, mun
verða óskað uppboðssölu á viðkomandi
skipi (lögveði) til fullnustu skuldarinnar.
Reykjavik, 18. október 1978
F, H, Lifeyrissjóðs sjómanna
Tryggingastofnun rikisins
Salvador Dali
á Kjaryalsstödum
Sýning Snorra Jramlengd