Þjóðviljinn - 21.10.1978, Síða 20
DtöÐVIlllNN
Laugardagur 21. október 1978
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9—21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9—12 og 5—7 á laugardögum. Utan þessa tima er
hægt að ná i blaöamenn og aðra starfsmenn blaðsins i
þessum simúm: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285,
útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348.
Skipholti 19, R. I BUOlfM
simi 29800, (5 linurN«^ ,
Verslið í sérverslun
með litasjónvörp
og hljómtæki
Verkamenn kröföust svara um framtið Togaraafgreiðslunnar |l
Verdur ekki
lögd niður
segir Björgvin Guðmundsson stjórnarformaður BÚR
Verkamenn i Togaraaf-
greiðslunni lögðu niður vinnu i
gærmorgun og kröfðust svara
um hvort til stæði að leggja
fyrirtækið niður, en um það hafa
verið uppi raddir i nokkurn
tima.
Hofst vinna aftur fyrir hádeg-
ið, eftir að kosin haföi veriö 3ja
manna nefnd sem ásamt Guð-
mundi J. Guömundssyni fer á
fund forráðamanna fyrirtækis-
ins eftir helgina til að leita
svara við spurningum verka-
mannanna.
Forsaga málsins er sú að Haf-
skip hefur hætt viðskiptum við
Togaraafgreiösluna, en þau við-
skipti námu nærri þriöjungi af
öllum umsvifum Togaraaf-
greiðslunnar. Af þessum sökum
var 15-20 mönnum sagt upp um
siðustu mánaðamót og siðan
hefur verið á kreiki orösveimur
um að Bæjarútgerðin og Sam-
bandiö, sem eru stærstu viö-
skiptavinir fyrirtækisins, hygð-
ust draga sig út úr viöskiptum
við þaö. Bæjarútgerðin er
stærsti hluthafinn 1 Togaraaf-
greiöslunni og á um 40% hlut i
henni. Þjóöviljinn leitaði i gær
til Björgvins Guömundssonar
formanns stjórnar BOR og
spurði hann hvort Bæjarútgerð-
in hygðist hætta að landa hjá
Togaraafgreiðslunni.
Nei sagöi Björgvin. Það hefur
ekki komið til tals hvað þá
meira, og það er alrangt að upp-
sagnirnar um siðustu mánaöa-
mót stafi af þvi aö BÚR ætli að
draga sig út úr Togaraafgreiösl-
unni.
Erfiðleikar Togaraafgreiösl-
unnar nú eiga rót aö rekja til
þess að Hafskip hætti viðskipt-
um við hana. Missir um þriöj-
ungs viöskiptanna veikti fyrir-
tækið verulega og þvi er ekki ó-
eölilegt aö reksturinn verði tek-
inn til endurskoðunar, eins og
reyndar oft hefur komið til tals
áður.
Stjórn BÚR hefur þvi fariö
fram á að fá skriflega skýrslu
frá formanni stjórnar Togara-
afgreiðslunnar, sem jafnframt
er framkvæmdastjóri BÚR um
stöðu fyrirtækisins og mat hans
Björgvin Guðmundsson: Al-
rangt að Bæjarútgeröin sé aö
draga sig út úr Togaraafgreiösl-
unni.
á framtið þess. Þessi skýrsla er
ekki komin en ég býst við að
þetta veröi rætt á fundi útgerð-
arráðs sem er i næstu viku. Það
er ekki óeðlilegt aö BÚR skoði-
stöðu Togaraafgreiðslunnar
náið þegar umsvifin minnka
skyndilega en ekkert hefur ver-
iö um þaö rætt að BÚR dragi sig
út úr fyrirtækinu né þaö verði
lagt niður.
Yona að málið skýr-
ist fljótt
segir Guðmundur J. Guðmundsson
varaformaður Dagsbrúnar
Guðmundur J. Guðmundsson:
Fyrirtækið hefur smám saman
verið að drabbast niður.
1 Togaraafgreiðslunni vinna
þetta 60-80 manns, sagði Guð-
mundur J. Guömundsson I sam-
tali við Þjóðviljann I gær, og
þegar 15-20 manns er sagt upp á
einu bretti væri eðliiegt að
verkamenn spyrðu hvort fyrir-
tækið sé að leggja upp laupana
og hvort þeir megi eiga von á
fleiri uppsögnum um næstu
mánaðamót.
Togaraafgreiðslan var öflugt
fyrirtæki sem t.d. átti 11-12
byggingakrana um tima, en
fyrirtækið hefur smám
saman verið að drabb-
ast niður og átt i fjárhags-
erfiðleikum undanfarið. Þar
hefur ekki verið endurnýj-
aður tækjakostur og að þvi
kom að Hafskip taidi sig ekki
hafa nægilega trygga þjónustu
og sagöi upp viöskiptum við
þaö. Þeir kvarta ekki undan
verkamönnunum, — ég held að
einhverjir árekstrar hafi oröið
milli togaralöndunar og löndun-
ar hjá þeim.
Ég hef trú á að þetta mál
skýrist eftir helgi og eftir viðtöl-
um mlnum við forráöamenn
Sambandsins og Bæjarút-
gerðarinnar er ekkert hæft I þvi
að þessir aðilar hyggist draga
sig út úr viöskiptum við Togara-
afgreiðsluna, sagði Guðmundur
J. Guömundsson aö lokum.
—AI
Tveir Saudkrœklingar
i hrakningum
SköT
hyellirnir
leiðbeindu
leitar-
mönnum
Tveir feðgar frá Sauðárkróki,
Sævar Einarsson og Einar sonur
hans, lentu i verulegum hrakn-
ingum norður i Laxárdal I Skaga-
firði I fyrri nótt. Höfðu þeir farið
tii rjúpnaveiða um morguninn,
fengu á sig hörku hrið en gripu þá
til þess þjóðráðs að grafa sig i
fönn. Björgunarsveitarmenn frá
Sauðárkróki fundu þá feðga
seinnipartdagsins, heila á húfi en
Einar, sem aðeins er 15 ára gam-
ail, var orðinn nokkuð þrekaður.
Það mun hafa verið um 7-leytið
á fimmtudagsmorguninn, sem
þeir feðgar lögðu af stað upp i
Gönguskörö og noröur á Laxár-
dalsheiöi. Veður var gott til að
byrja með en gekk svo I; stórhrið.
Bragi Skúlason, formaður
Björgunarsveitarinnar á Sauðár-
króki sagði okkur aö um 3-leyti
hefði Guömundur Helgason, bif-
reiðastjóri á Sauðárkróki komið
utan af Skaga og sagt sér aö hann
hefði séð bil þeirra Sævars mann-
latísan norður á heiðinni. Veður
var þá orðið mjög slæmt og búið
að vera það siðan fyrir hádegi. Er
ekkert bólaöi á þeim feðgum um
miðaftansleytiö, fór Bragi Skúla-
son út á Laxársdalsheiði, við ann-
an mann. Var þá bfllinn enn
mannlaus og engan heldur að
finna á Skiðastöðum, sem er
næsti bær utan við heiöina en i
eyði. Var þá veður skánandi og
raunar ekki leitarveður fyrr.
Björgunarsveitin varnú kölluð út
hófu um 20 mennleitkl. 7. Nokkru
seinna heyrðu leitarmenn skot-
hvell og gengu á hljóðið. Um
klukkutima seinna kom svo ann-
að skot og nú skammt frá leitar-
mönnum, sem fundu þá feðga þar
sem þeir höfðu grafið sig i fönn er
óveðrið reið yfir, og höfðu nú legið
þar i 7 klst. Var Einar þá orðinn
ærið þrekaður en þó ókalinn.
—mhg
Landsráðstefna her
stö ðv aandst æðinga
hefst í Sigtúni kl. 13.30 í dag
Frá samráösfundi riklsstjórnarinnar með fulltrúum aöila vinnumarkaöarins f gær.
Rætt um tilhögun samráðs
í gær var haldinn
fundur fulltrúa launa-
fólks, atvinnurekenda
og rikisvalds til samráðs
i kjara- og efnahagsmál-
um. Að hálfu rikis-
stjórnarinnar sátu fund-
inn fjármálaráðherra,
sjávarútvegsráðherra
og viðskiptaráðherra.
Fundinn sátu fulltrúar
frá Alþýðusambandi ís-
lands og Bandalagi
starfsmanna ríkis og
bæja og frá Vinnuveit-
endasambandi íslands
og Vinnumálasambandi
samvinnufélaganna.
Gert er ráð fyrir, að full-
trúar fleiri hagsmuna-
samtaka taki þátt i
starfi þessu á næstunni.
Til þessa fundar var boðað i
samræmi við samstarfsyfirlýs-
ingu rikisstjórnarinnar, en þar
segir meöal annars:
„Rikisstjórnin leggur áherslu á
að komið veröi á traustu sam-
starfi fulltrúa launþega, atvinnu-
rekenda og rikisvalds, sem miði
m.a. að þvi að treysta kaupmátt
launatekna, jafna lifskjör og
trýggja vinnufrið.
Unnið veröi aö gerö þjóðhags-
og framkvæmdaáætlunar, sem
marki m.a. stefnu i atvinnuþróun,
fjárfestingu, tekjuskiptingu og
kjaramálum. Jafnframt verði
mörkuö stefna um hjöðnun verð-
bólgu i áföngum og ráðstafanir á-
kveðnar, sem nauðsynlegar eru 1
þvi skyni, m.a. endurskoöun á
visitölukerfinu, aðgerðir I skatta-
málum og ný stefna i fjárfesting-
ar- og lánamálum.”
Verkefni þessa fyrsta fundar
var fyrst og fremst að ákveða
nánari tilhögun samráðs á sviði
kjara- og efnahagsmála á næst-
unni.
Landsráðstefna Sam-
taka herstöðvaandstæð-
inga hefst i Sigtúni kl.
13.30 i dag. Á dagskrá
ráðstefnunnar i dag eru
m.a. skýrsla miðnefnd-
ar,starf og stefna á
komandi ári, starfsáætl-
un SHA, útgáfumál,
baráttuleiðir og laga-
breytingar.
A ráðstefnunni verða rædd mál,
sem hafa mikla þýöingu fyrir
starf samtakanna á næstunni. Má
þar t.d. nefna Þjóðaratkvæða-
greiðsiu um herinn og Nató, og
mun Arni Hjartarson reifa það
mál i framsöguerindi. Þá flytur
Gils Guðmundsson framsöguer-
indi um Einangrun herstöðvar-
innar og friðlýsingu N-Atiants-
hafs. Þriöja framsöguerindiö
mun fjalla um Verkalýðshreyf-
inguna gegn hernum og Nató.og
mun örn Erlendsson flytja það.
Ráðstefnan stendur yfir i dag
og á morgun, og er ráðstefnugjald
kr. 3000-.
Arni Hjartarson
Gils Guðmundsson
örn Erlendsson