Þjóðviljinn - 02.11.1978, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 02.11.1978, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 2. nóvember 1978 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 11 íslenski dansflokkurinn: í kvöld veröur frum- sýning i Þjóðleikhiísinu á nýrri danssýningu tsienska dans- flokksins og veröa sýndir þrir ballettar. Tveir þeirra voru reyndar sýndir á Listahátiö i vor viö mikla hrifningu: PAS DE QUATRE eftir hinn heimskunna bailettdansara og stjórnanda ANTON DOLIN, sem sjólfur sviö- setti baUettinn , og SÆMUNDUR KLEMENSSON, nýr fslenskur baUett eftir Ingibjörgu Björns- dóttur viö tónlist ÞURSA- FLOKKSINS, en hann kemur fram I sýningunni. Vakti þessi nýi, islenski ballett gifurlega hrifningu á Listahátfö og höföu margir á oröi, aö hér heföi tekist á óvenju skemmtilegan hátt aö flétta saman islenska danslist og þjóölega tónlist I niitimaútterslu. Á dagskránni nú eru sem sé þessir tveir ballettar ásamt einum nýsömdum. Er þaö Rokk- balIettinn-1955, sem saminn er af Islenska dansflokknum I dans- smiöju undir leiösögn ,og stjórn bandarisku ballerinunar Karen- ar Morell. Rokkballettinn 1955 er um timabil, þegar rokk- tónlistin og dansinn stóöu sem hæst og er öll tónlistin i ballett- inum flutt af EIvis Presley. Karen Morell hefur dvalist hér siöan i haust og kennt íslenska Atriöi úr „Sæmundi Klemenssyni”, nýjum ballett eftir Ingibjörgu Björnsdóttur viö tónlist Þursaflokksins. (Mynd Leifur) Frá rómantík til rokkballets dansflokknum. Hún var til skamms tima mjög rómuö ball- erína vestanhafs, starfaöi um 9 ára skeiö meö New York City Ballet sem sólódansari undir stjórn Balanchine en varö fyrir slysi fyrir þremur árum, sem batt enda á dansferil hennar og hefur hún nú snúiö sér aö kennslu. Leikmynd viö ballettana er eftir Björn G. Björnsson en alls koma fram 12 dansarar. Úr Islenska dansflokknum: Asdis Magnúsdóttir, Birgitta Heide, Guörún Pálsdóttir, Helga Bernhard, Ingibjörg Pálsdóttir, Kristin Björnsdóttir, Nanna Ól- afsdóttir og örn Guömundsson. Einnig koma fram tveir aörir karldansarar: ólafur ólafsson og Björn Sveinsson svo og tvær stúlkur úr ballettskóla Þjóöleik- hússins: Helena Jóhannesdóttir og Lára Stefánsdóttir. Segja má aö þessi danssýning tslenska dansflokksins bjóöi upp á mikla fjölbreytni. I „Pas de Quatre” gefur aö lita sýnishorn af rómantiska, klasslska ballett- inum, þar sem fjórar ballerinur dansa hlutverk fjögurra frægra ballettdansmeyja, þeirra Taglioni, Grahn, Griziog Cerrito. Þaö eru þær Ingibjörg Pálsdóttir, Nanna ólafsdóttir, Asdis Magnúsdóttirog til skiptis Helga Bernhard og Guörún Pálsdóttir, sem dansa þessi hlutverk. 1 Sæmundi Klemenssyni er bæöi i dansi og tónlist byggt á gömlum heföum, sem færöar eru i átt til nútimans, og i þriöja ballettinum sýnir dansflokkur- inn hæfni sina i rokkinu. Frumsýningin er sem fyrr segir I kvöld fimmtudagskvöld, þá eru sýningar á laugardag kl. 15 og þriöjudagskvöldiö 7. nóvenber. Óvist er aö unnt veröi aö hafa nema þessar sýningar, en þaö fer þó eftir aösókn. Kunnír sænskír vísna- söngvarar í heimsókn Þeir, sem unna góöum visna- söng, eiga nú von á góöri heim- sókn. Tveir, sænskir visnasögnv- arar eru væntanlegir hingaö til lands á vegum félagsins Visna- vina og Islensk-sænska félagsins. Þessir listamenn — Eva Barth- oldsson og Torbjörn Johansson — njóta mikilla og vaxandi vinsælda I Sviþjóö og viöar á Noröurlönd- um. Þau h afa haldið f jölda hljóm- leika I Sviþjóð og viöar á Noröur- löndum og I Bandarikjunum og komiö fram í útvarpi og sjón- varpi i Sviþjóö og Bandartkjun- um. Auk þess aö syngja leika þau Eva og Torbjörn á sitt hvort hljóöfæriö — hann áfiðlu, en hún á gftar. Visnasöngur á sér langa sögu I Sviþjóö og þau Eva og Tor- björn þykja flestum öörum ung- um listamönnum á þessu sviöi fremri i þvi aö sameina forna vfsnahefð nútimalegri túlkun. Þau halda hljómleika I Norræna húsinu klukkan 20.30 aö kvöldi fimmtudagsins annars nóvembers, skemmta slöan á Akureyri klukkan 20.30 á föstu- dagskvöld — á Mööruvöllum i húsi Menntaskólans á Akureyri — ogloks koma þauframisam- komuhúsinu i Borgarnesi klukkan 16 sunnudaginn fimmta nóvem- ber. Þaukoma frá Fagersta, sem er vinabær Borgarness í Sviþjóö. A hljómleikunum i Borgarnesi koma auk Svianna fram danska visnasöngkonan Hanne Juul og Islendingarnir GIsli Helgason og Guömundur Amason. A hljómleikunum munu Eva Bartholdsson og Torbjörn Jo- hansson syngja gamlar og nýjar visur og þá meöal annars lög af breiöskifu, sem þau hafa nýlega gefiö út og vakiö hefur mikla athygli. Breytingar á umferð 1 gær, 1. nóvcmber, tóku gildi eftirfarandi breytingar á umferö: 1) Njaröargata og Frakkastigur veröa aöalbrautir milli Sóleyjargötu og Njálsgötu. Stöövunarskylda, sem nú er á Njaröargötu viö Laufásveg, fellur niöur en I staöinn kemur stöövunarskylda á Laufásveg viö Njaröargötu. 2) Stöövunarskylda á hægri beygju úr Litluhliö inn á Hafnarfjaröarveg fellur niöur en I staöinn kemur biöskylda. Stöövunarskylda veröur áfram á vinstri beygju af Litlu hllö inn á Hafnarfjaröarveg. 3) Akstur annarra ökutækja en strætisvagna veröur bannaöur um stig milli Hjallasels og Flúöasels. Breytingar þessar hafa veriö samþykktar af umferöarnefnd Reykjavikur og borgarráöi. Auglýsing frá Launasjóði ríthöfunda Hér meö er auglýst tii umsóknar starfslaun fyrir áriö 1979 úr Launasjóöi rithöfunda samkvæmt lögum nr. 29/1975 og reglugerö gefinni út af menntamálaráðuneytinu 9. júnl 1976. Rétt til greiöslu úr sjóönum hafa islenskir rithöfundar og höfundar fræöirita. Heimilt er og aö greiöa laun úr sjóönum fyrir þýöingar á islensku. Starfslaun eru veitt I samræmi viö byrjunarlaun menntaskólakennara skemmst til tveggja og lengst tilniu mánaöa I senn. Höfundur, sem sækir um og hlýtur starfslaun I þrjá mánuöi eöa lengur, skuldbindur sig til aö gegna ekki fast- launuðu starfi meöan hann nýtur starfslauna. Slik kvöö fylgir ekkitveggja mánaöa starfslaunum, enda skulu þau einvöröungu veitt vegna verka sem birst hafa næsta almanaksár á undan. Skrá um birt ritverk höfundar og verk, sem hann vinnur nú aö, skal fylgja umsókninni. Umsóknum ber aö skila á sérstökum eyöublööum, sem fást I menntamálaráöuneytinu. Mikilvægt er aö spurningum á eyöublaöinu sé svaraö og veröur fariö meö svörin sem trúnaðarmál. Umsóknir skulu sendar fyrir 20. desember 1978 til menntamálaráöuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavlk. Reykjavik, 1. nóvember 1978 STJÓRN LAUNASJÓÐS RITHÖFUNDA FREEPORTKLÚBBURINN auglýsir NÁMSSTYRKI I janúar 1979 verður veittur styrkur úr styrkt- ar- og fræðslusjóði Freeportklúbbsins. Til ráð- stöfunar verða að þessu sinni kr. 500.000.00. Styrkurinn verður veittur í einu lagi, miðað við að minnsta kosti 6 mánaða námsdvöl við viðurkennda áfengismálastofnun erlenda# eða tveir styrkir á kr. 250.000.00, miðað við 3ja mánaða lágmarksnámsdvöl við tilsvarandi stofnanir. Umsóknir með sem nákvæmustu upplýsingum um viðkomandi, áætlaða námsdvöl og fram- tíðaráætlanir, sendist formanni Freeport- klúbbsins, Tómasi Agnari Tómassyni, Markarf löt 30, 210 Garðabæ sem einnig veitir nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 1. desember næstkom- andi. Garðabæ 31. október 1978 STJÓRN FREEPORTKLÚBBSINS Þurrkaður harðviður Einnig fyrirliggjandi hnota, japönsk eik og oregon pine. Harðviðargólflistar fyrir parket. Sendum i póstkröfu um allt land. HÖFÐATÚNI 2 - REYKJAVÍK Sími: 22184 (3 l(nur)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.