Þjóðviljinn - 04.11.1978, Síða 5
Laugardagur 4. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Þrlr listamannanna fjögurra, sem sýna i FtM-salnum. Fró vinstri:
Gunar örn Gunnarsson, Bjarni Ragnar og Elfas Hjörleifsson. Skúlp-
túrinn er eftir Sverri ólafsson, sem ekki var vi&staddur þegar myndin
var tekin. Hundurinn Bangsi á engin verk á sýningunni, en hann er I
eigu Gunnars Arnar. (Ljósm: Leifur).
Fjórir sýna í
FIM-salnum
t dag veröur opnuö samsýning
fjögurra myndiistarmanna i
FtM-salnum, Laugarnesvegi 112.
t>eir Bjarni Rangar, Elfas
Hjörleifsson og Gunnar örn
Gunnarsson sýna teikningar,
flguratff málverk og coilage-
myndir og Sverrir óiafsson sýnir
skúlptúr.
Bjarni Ragnar hefur tvisvar
tekiö þátt i haustsyningu Félags
islenskra myndlistarmanna.
Elias kemur frá Kaupmanna-
höfn, þar sem hann hefur veriö
búsettur undanfarin 14 ár. Þetta
er fyrsta sýning hans hér á landi,
en hann hélt einkasýningu i
Kaupmannahöfn fyrir fjórum
árum. Gunnar örn Gunnarsson
hefur haldiö 9 einkasýningar, þar
af tvær I Kaupmannahöfn, og
tekiö þátt i samsýningum FÍM og
samsýningum i Þýska alþýöulýö-
veldinu, Sviþjóö og Danmörku.
Sverrir ólafsson tók þátt i
sýningu Myndhöggvarafélagsins
i sumar.
Sýningin veröur opin daglega
kl. 16 til 22, en henni lýkur sunnu-
daginn 19. nóvember. —eös
Fimm tríó
á tónleikum
hjá ICE
ICE, Icelandic-Canadian
Ensemble, heldur tónleika i dag,
laugardaginn 4. nóv. kl. 2.30 i
Austurbæjarbiói á vegum
Tónlistarfélagsins.
Sveit þessi hefur haldiö tónleika
vföa siöan hún var stofnuö 1974 og
flutt mest islenska tónlist. A
tónleikunum i dag koma þeir
fram Hafliöi M. Halldórsson
(selló), Róbert Aitken, flauta) og
Þorkell Sigurbjörnsson (pianó).
Þeir leika trió eftir Haydn og
Marinu, Musica seria eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, verk eftir G.
Crumb sem nefnist Vox balanae
(Rödd hvalsins) og frumflutt er
verkiö Pólar eftir Hafliöa.
I efnisskrá segir m.a.:
Trió Haydns var liklega samiö
árið 1790 og var seinasta trlóiö (af
31), sem hann samdi. Trióin eru
öll fyrir fiölu, celló og planó, en i
hinum þremur seinustu má
flauta taka stööu fiölunnar.
Verk Hafliöa er alveg nýtt af
nálinni, samiö af tilefni þessarar
heimsóknar hans til Islands.
Pólar eru venjulega tveir, nema
þá, þegar um jarötengda tengla
er aö ræöa — þá eru þeir þrir.
Bandariska tónskáldiö, George
Crump, er I hópi svokallaöra
„nýrómantikera” i samtima-
tónlist. „Rödd hvalsins” var
samiö vegna áhrifa frá segul-
bandsupptökum af hvalaljóöum
— og kallar vissulega fram
sérkennilega sönglist.
„Musica seria” var samiö aö
beiöni breska útvarpsins og
frumflutt I Belfast. Þetta eru
nokkrar myndbreytingar um
stefiö, sem cellóiö leikur I
upphafi.
Bohusliv Martinu, sem lést
fyrir tæpum 20 árum, samdi
fjölda verka I nýklassiskum anda,
þar sem m.a. má greina áhrif
tékkneskra þjóöalga.
Náttúra og
umhverfi
Bjarni H. Þórarins-
son í Suöurgötu 7
Sýning Bjarna Þórarinssonar
stendur nú yfir i Galleri Suöur-
götu 7. Einnig heldur Bjarni
„sýningu i sýningunni”, eöa i
hinni sérsmföuöu tösku er nefnist
„Galiery”.
Verk Bjarna er fjölbreytt og
höföa til umhverfis
(environment) ogeru unnin beint
ináttúruna og ásamt henni. Þetta
er fyrsta einkasýning Bjarna, en
hann útskrifaöist úr Myndlista-
og Handlöaskóla tslands voriö
1977. Bjarni er einn af stofnend-
um Gallerls Suöurgötu 7.
Sýningin er opin virka daga 16
— 22, en um helgar 14 — 22. Sýn-
ingin stendur til 12. nóvember.
Kammermúsik-
klúbburinn:
Strengja-
kvartettar
Beethovens
í Bústaða-
kirkju
Kammermúslkklúbburinn hef-
ur veturinn á þvl aö ljúka áætlun
sinni um flutning á strengja-
kvartettum Beethovens, sem
hófst I hitteöfyrra.
Þaö er Arco-strengjakvartett-
inn sem lýkur þessum flutningi.
Hann var stofnaöur 1973 af fjór-
um ungum hljóöfæraleikurum frá
Köln og Dusseldorf, sem allir
höföu stundaö nám I skóla
Wilhelms Stross i Munchen.
Kvartettinn hefur siöan haldiö
fjölda tónleika i heimalandi sínu
og hlotiö þar góöan oröstlr.
Kvartettinn kemur tvisvar
fram um helgina I Bústaöakirkju.
A sunnudag kl. 20.30 flytur hann
strengjakvartetta nr. 4 og 6 opus
18, og á mánudagskvöld veröa
flutt Strengjakvartettop. 18 nr. 1,
Grosse Fuge op. 133, B-dúr og
kvartett op.132 i A-moll.
I Arco-strengjakvartettinum
eru þeir Manfred Leverkus fiöla,
Gabor Sinay fiöla, Stanislaus
Matters lágfiöla, Hermann
Backes hnéfiöla.
MEGAS
Á sunnudag verða
haldnir merkilegir hljóm-
leikar í hátíðasal AAennta-
skólans við Hamrahlíð.
Þar mun AAegas spila í
félagi með Björgvini
Gíslasyni (gítar), Guð-
mundi Ingólfssyni
(hljómborð), Lárusi
Grímssyni (hljómborð),
Pálma Gunnarssyni
(bassi) og Sigurði Karls-
syni (trommur).
Af nafnalista þessum má sjá
aö um merka menn er aö ræöa,
en þeir hafa staöiö framarlega I
tónlistarmálum svo lengi sem
elstu ungmenni muna.
A hljómleikum þessum sem
Tónlistarfélag MH stendur fyr-
ir, veröur flutt verk Megasar
sem hann nefnir „Drög aö
sjálfsmoröi”. Höfundur vonast
Drög
að
Megas
SJÁLFSMORÐI
til aö áheyrendur leggi ekki
eiginlega merkingu I textann,
m.a. vegna þess aö sjálfsmorös-
tilraun söguhetjunnar leiöir
ekki til dauöa hennar. Mann-
eskjan sem fjallaö er um er
Reykjavikurbarn, sem runniö
hefur á svelli llfsins.
Þykir vlst aö hér sé um höfuö-
tónlistarverk Megasar aö ræöa.
Hefur hann unniö aö þvi á
undanförnum tiu árum. Hluti
þess hafur birst I bókum hans,
annaö hefur hann flutt á tónleik-
um, en meiri hluti sjáifsmorös-
draganna heyrist nú I fyrsta
sinn á opinberum vettvangi.
Upphaflega var verkiö samiö
fyrir stærri rokkhljómsveit en
þá sem spila mun á sunnudag.
Var þá gert ráö fyrir blásturs-
hljóöfærum, fiölum og flóknari
áslætti. Nú hefur hann hins veg-
ar breytt þvi smávægilega meö
tilliti til aöstæöna.
Ætlunin er aö hljóörita hljóm-
leikana og gefa þá út á „live”
plötu I byrjun næsta árs. Yröi
reyndar um plötur aö ræöa,
þ.e.a.s. tvöfalt albúm vegna
lengdar verksins.
Ekki er þetta I fyrsta skipti
sem plata er tekin upp á hljóm-
Verkið flutt
og
hljóðritað
á hljóm-
leikum á
sunnu-
daginn
leikum hérlendis, en hins vegar
er þetta I fyrsta sinn sem tekiö
er upp meö tuttugu og fjögurræ
rása kerfi.
Taliö er nauösynlegt aö hljóö-
rita verkiö á þennan hátt, vegna
þess hve viöamikiö þaö er.
Stúdlóupptaka yröi of
kostnaöarsöm fyrir hinn Is-
lenska markaö, vegna smæöar
hans.
Veröur þetta I sjötta sinn sem
gefin er út hljómplata meö Meg-
asi.
Sexmenningarnir hafa nú æft
sleitulaust i fimm vikur. Verk
þetta er mikiö nákvæmnisverk,
en Megas skrifar ætlö I nótum.
Af þvi sem hér aö framan
stendur, ætti flestum aö vera
ljóst aö hijómleikar þessir eru
einn merkasti menningarviö-
buröur I höfuöborginni sem fólki
gefst nú kostur á.
Eins og fyrr segir veröa þeir
haldnir nú á sunnudaginn,
S.október I hátiöasal Mennta-
skólarts viö Hamrahllö.
‘Fyrri hljómleikarnir hefjast
kl.16.00 en þeir slöari kl.21.30.
Flutningur verksins tekur rúma
tvo klukkutima, en þvi veröur
skipt I ,tvo hluta meö hiéi.
Búis t ,er viö sex hundruöum
jgesta á hvora hljómleika. Aö-
gangseyri er reynt aö stilla I
hóf, og veröur hann kr.3.500.-
Miöar eru nú seldir i Mennta-
skólanum viö Hamrahliö. Ef
ekki veröur uppselt, veröa miö-
ar seldir viö innganginn, en fólki
er ráölagt aö tryggja sér miöa
sem fyrst.
(E.S.)