Þjóðviljinn - 17.11.1978, Page 5
Föstudagur 17. növember 1978 ÞJÓDVILJINN — StÐA 5
iiagfc / Kristján Jóh.
v" f / Jónsson skrifar um
bókm&nntir
Pælt en
ekki
Hægara pælt en kýit
höf. Magnéa J.
Matthiasdóttir
útg. Almenna Bóka-
félagið
Hægarapælt en kýlt gerist á
tveimur frásagnarsviöum. Ann-
ars vegar er ævintýri um Prins-
essuna sem Prinsinn frelsaöi tir
tröllahöndum og hins vegar frá-
sögn af eiturlyfjafólki 1 Kaup-
mannahöfn. Þessum sögum slær
saman meö þvi móti, aö persónur
ár ævintýrinu fara niöur til Kaup-
mannahafnar og svo skreppa vin-
ir þeirra þar aftur meö þeim I
heimsókn I ævintýriö.
Sú spurning hlýtur að vakna
hvort höfundurinn nái einhverj-
um árangri meö þvl aö blanda
svona saman ævintýri og raun
veruleika og ég er ekki fjarri
þvl aö svo sé. Þaö hefur
löngum veriö álit manna aö
I ævintýrum speglist dram-
ur fólksins um eitthvaö feg-
urra og betra en hinn gráa
hversdagsleika. Jón Helgason
oröar þetta laglega eins og viö má
búastí ágætri grein um þjóösögur
I bókinni Ritgerðakorn og ræöu-
stúfar: . því aö I draumheim-
um slnum bæta menn sér það upp
sem þá vantar mest og þeir vildu
helzt vera birgir aö I heimi veru-
leikans.”
Þannig er því einmitt variö meö
þetta fólk sem sagan segir okkur
aö hafi sest aö I kommúnu I Kaup-
mannahöfn og reynt meö þvl móti
aö búa sér til einkaveröld. Þar
ætlar þaö aö elskast og láta sig
dreyma. en þaö er einmitt þaö
sem marga nútimamenn vantar
mest og þeir vildu helst vera birg-
ir af. t bók Magneu gerist það
hins vegar þegar hversdags-
grámi ævintýrisins er aö buga
Prinsessuna, þá stingur hún af
frá gamla hversdagslega ævin-
týrinu slnu og gefur sig á vit nýj-
um og ekta ævintýrum I Kaup-
mannahöfn.
Ævintýrið
Ævintýraheimurinn I Hægara
o.s.frv. er aö nokkru leyti hefö-
’bundinn. Annar hver maöur I á-
lögum, tröll og drekar leika laus-
um hala og þaö er stööugt verið
aö ræna prinsessum. Þaö sem
kemur á óvart er aö inn I ævintýr-
iö slæöast skemmtilegar tilvlsan-
ir til þess sem venjulega er kallaö
veruleiki:
,,I kastalanum handan skógar-
ins lyftir prinsessan sem prins-
inn bjargaöi úr tröllahöndum
snöggvast höföi og leggur viö
hlustir. umkringd óhreinum
pottum pönnum diskum fötum
glösum gólftuskum bleijum
gluggum gólfum veggjum situr
hún sem prinsinn göfugi bjarg-
aöi frá óvættum. hún sem átti
hjartað sem hann vann. hún
sem fæöir honum börn.” (6)
Prinsessan flýgur burt á baki
ævintýrapersónu sem tilheyrir
einungis ævintýrinu og er I senn
refur, indláni og rauöur örn. Hún
gerir þetta eins og I draumi en
heima I ævintýrinu situr prinsinn
eftir meö sárt enniö. Hann fer
auövitaö aö leita aö prinsessunni
sinni eins og honum ber og höf-
undur sögunnar gamnar sér á
bókmenntalegan máta viö þaö aö
láta hann ganga I gegnum hefö-
bundin ævintýraatriöi meö ó-
væntum málalokum. Hann fellir
til dæmis þríhöföaðan risa sem
hefur rænt þremur fögrum prins-
essum og þegar hann hefur drýgt
þessa dáö skilar hann þeim ekki
heim I föðurgarö eins og venja er
til þegar svona stendur á, heldur
fara þau öll saman I bóliö. Hann
myröir lika indælan dreka sem á
þaö sameiginlegt með risanum að
hafa ekkert gert honum og er þar
að auki grænmetisæta. Niöur-
staðan af sögu prinsins er tvi-
mælalaust sú, aö hann sé heldur
skitslegur prins og mun ómerki-
legri en prinsessan. Hún vex aö
viti og þroska viö þaö að drifa sig
úr ævintýrinu og lýsingin á henni
er þannig aö manpi dettur helst I
hug húsmóöir sem hefur hlaupiö
frá „prinsinum” sinum I
blokkinni I Breiöholtinu og hallaö
sér aö þvl ljúfa llfi.
Kaupmannahöfn
Ævintýriö sem talað var um hér
á undan er býsna vel skrifaö og sá
hluti sögunnar sem gerist I
kommúnu I Kaupmannahöfn er
ekki siöri.
Fólkiö lokar sig inni I sfnum
þrönga heimi eins og I ævintýrinu
og þaö má segja aö þaö komi vel
fram hve vond sú hugmynd er.
Þaö er nefnilega þannig aö þó
maöur gefi skit I eignarréttinn þá
heldur kaupmaðurinn áfram aö
heimta peninga fyrir brauöiö og
bjórinn og þaö kostar sitt aö fá sér
I plpu og sýran er llka dýr og allt-
af endar þetta þannig aö annaö
hvort verður maöur aö fá sér eitt-
hvaö aö gera eöa þá aö ástunda
fagurt og friösælt llferni meö þvl
aö lifa á öörum. Meö tilliti til
þessa er endir sögunnar mjög
rökréttur. Þetta fóik hefur hlaup-
ið út og skellt huröum I fýlu útl
samfélagið og hyggst skyndílega
fara aö lifa I nokkurs konar
einkasamfélagi eöa ævintýri. Þaö
kemur aftur meö rófuna milli fót-
anna þegar skóinn kreppir og þaö
1hefur sannreynt aö fjandans
„samfélagiö” er I Kaupmanna-
höfn lika. Elsa og Sjö halla sér aö
„lögmætum” viöskiptum en
prinsessan aö ólögmætum.
1 bókinni er mjög lltiö um gagn-
rýna úrvinnslu á þessum lifshátt
um og þvi jafnvel gefiö undir fót-
inn aö svona sé nú llfiö og það sé
nú þaö. Engu aö siöur er þetta
mjög greinargóö lýsing og höf-
undurinn virbist státa af stað-
góðri reynsluþekkingu á söguefn-
inu. Ég held aö þaö sé einsdæmi I
Islenskum bókmenntum ab fá
svona glögga og vel geröa sögu úr
þessum geira mannllfsins. Fólk
meö reynslu af þessu tagi hefur
satt aö segja ekki látiö mikiö til
sin heyra á opinberum vettvangi.
Þess er jafnframt aö geta að bók-
in er m jög sérstæö aö þvl leyti aö I
henni er ekta „slang”. Aftast er
svo oröalisti fyrir þá sem eru fá-
fróðir og hann kom mér satt aö
segja að mjög góðum notum viö
lestur bókarinnar. Raunar er öll
bókin mjög vel skrifuð og ein-
staklega mikil myndvlsi I lýsing-
um. Þaö vottar kannski á köflum
fyrir tilgerð i stll en þaö er hverf-
andi. Þvl veröur ekki á móti mælt
að þeim tima er vel variö sem fer
I aö lesa Hægara pælt en kýlt
spjaldanna á milli.
Kristján Jóh. Jónssoi
Móöir
mín hús-
freyjan
Hjá Skuggsjá er komin út bókin
Móöir min — húsfreyjan, annaö
bindi, sem GIsli Kristjánsson hef-
ur ritstýrt og séö um útgáfu á, svo
sem einnig var um bók meö sama
heiti, er út kom I fyrra.
Fimmtán höfundar eiga efni I
þessari bók, börn þeirra mæöra,
sem um er ritaö. Eftirtaldir þætt-
ir eru i bókinni:
Sólveig Þóröardóttir frá Sjö-
undá eftir Ingimar Jóhannesson,
Jóhanna Kristin Jónsdóttir frá
Alfadal eftir Jóhannes Dav-
íösson, Steinunn Frimannsdóttir
frá Helgavatni eftir Huldu A.
Stefánsdóttur, Hanslna Bene-
diktsdóttir frá Grenjaöarstaö eft-
ir Guöbjörgu Jónasdóttur Birkis,
Björg Þ. Guömundsdóttir frá Höll
eftir Sigurö S. Haukdal, Hllf
Bogadóttir Smith frá Arnarbæli
eftir Sigrlöi Pétursdóttur, Svan-
hildur Jörundsdóttirfrá Syðstabæ
eftir Guörúnu Pálsdóttur, Aöal-
björg Jakobsdóttir frá Húsavlk
eftir Guörúnu Gisladóttur, Jakob-
Ina Davlösdóttir frá Hrisum eft-
ir Daviö ölafsson, Sigrlöur Jóns-
dóttir Bjarnason eftir Hákon
Bjarnason, Ásdis Margrét Þor-
grlmsdóttir frá Hvftarbakka eftir
Þorgrlm V. Sigurösson, Kristin
Siguröardóttir frá Skútustööum
eftir Hall Hermannsson, Þórdis
Asgeirsdóttir frá Knarrarnesi
eftir Vernharö Bjarnason, Dóra
Þórhalldóttir frá Laufási eftir
Þórhall Asgeirsson, Grethe
Harne Asgeirsson eftir Evu
Ragnarsdóttur.
1 Móöir min — húsfreyjan.sem
út kom I fyrra, var eingöngu sagt
frá konum i sveitum landsins,
bændakonum, en I þessari bók er
sagt frá konum úr ýmsum starfs-
stéttum. Þær eru bændakonur,
prestakonur, kennara- og kenni-
mannakonur, læknakonur og inn-
an fleiri stétta, sem allar hafa
gegnt skyldum sinum og hlut-
verkum meö heiöri og sóma allt
upp I fremstu raðir og embætti
þjóöfélagsins. En hvar I stétt
eöa stööu, sem þessar mæöur
stóöu, er þeim þó öllum sameigin-
legt, aö þær voru meginstoöir
heimilanna og máttarfaömur
þjóöarinnar.
Bókin er 255 blaösiður + 16
myndaslöur.
: ; ■
Auglýsingasíminn er
81333
Skálateigsstrákur
heldur sínu striki
Jóla- og kökubasar
Kvenfélag Karlakórs Reykjavlkur heldur sinn árlega jóla og
kökubasar aö Hallveigarstööum laugardaginn 18 nóv. n.k. kl. 2 e.h.
Margt góöra muna til jólagjafa.
Skálateigsstrákurinn heldur
sinu striki er framhald endur-
minninga Þorieifs Jónssonar
fyrrum bæjarfulltrúa I Hafnar-
firbi, útgeröar- og sveitarstjóra á
Eskifirði og framkvæmdastjóra I
Stykkishólmi, sem Jóhannes
Helgi hefur skráö. Þorleifur held-
ur sinu striki I frásögninni og
dregur hvergi af sér. Sviö minn-
inga hans spannar allt tsland, —
sunnan, vestan, noröan og aust-
an, — 70 kaflar um menn og mál-
efni, þar á meðal þjóökunna
stjórnmálamenn og aöra framá-
menn, en einkum þó þaö, sem
mestu varöar, alþýöu manna, Is-
lenskan aöal til sjós og lands.
Þorleifur kemur hér vel tii skila
stjórnmáiaafskiptum slnum og
viöskiptum viö höfuöfjendurna,
krata og templara. Hann segir frá
mjög svo sérstæöum mál-
flutningsstörfum sinum I Hafnar-
firöi, útgeröar- og sveitar-
stjórnarstússi á Eskifiröi og I
Stykkishólmi, aö ógleymdum
margþættum störfum i þágu
Geirs Zoega á striðsárunum.
Skálateigsstrákurinn heldur
sinu striki er tæpitungulaus og
hreinskilin minningabók, annálað
vestfirskt hispursleysi Jóhannes-
ar Helga og austfirskt oröfæri
sögumanns falla I einn og sama
farveg, — Skálateigsstrákurinn
Þorleifur Jónsson er margfróöur
og afspyrnu skemmtilegur. Hver
sem les frásögn hans veröur
margs vlsari um mannllf á Is-
landi á öldinni, sem nú er aö llöa.
Skálateigsstrákurinn heldur
sinu striki er 220 blaösíöur aö
stærö meö nafnaskrá og mynd-
um. útgefandi er Skuggsjá.
Káputeikningu geröi Auglýsinga-
stoifa Lárusar Blöndal.
Þorleifur Jónsson.