Þjóðviljinn - 17.11.1978, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. nóvember 1978
GILS GUÐMUNDSSON UM FLUGSLYSIÐ:
Þjóðin
I upphafi fundar sameinaðs þings í gær
minntistforseti þingsins Gils Guðmundsson
þess hörmungaratburðar er fslensk flugvél
fórst á Sri Lanka. Fer ræða hans hér á
eftir:
Sorgarfregn hefur borist. Islensk flugvél
fórst síðdegis í gær við Coiombo-f lugvöll á
Sri Lanka. I flugvélinni voru 250 manns,
áhöfn og farþegar. Um 200 þeirra fórust,
þar af 8 íslendingar, og margir eru slasaðir.
er
Islenska þjóðin er harmi slegin við þessi
tíðindi. Flugþjónusta er ung atvinnugrein
(slendinga, sem vaxið hefur og dafnað á
skömmum tíma. Sókndjörf og traust flug-
mannastétt hefur aflað þjóðinni vegs og
virðingar. Á tímum hraða og örra sam-
skipta á öllum sviðum hefur flugið orðið
ómetanleg lyftistöng til framfara. Okkur,
sem byggjum fámenna ey langt frá öðrum
þjóðum, er þjóðbraut loftsins brýn nauðsyn.
Nú hefur varpað sorgarskugga á glæstan
slegin
feril íslensks flugs. Þjóðin á mikils að
sakna, þegar slíka harma ber að höndum.
Fjöldi einstaklinga og f jölskyldna á um sárt
að binda, margir hér á landi, en miklu f leiri
meðal fjarlægra þjóða. Við alþingismenn
vottum þeim öllum samúð í nafni íslensku
þjóðarinnar.
Ég vil biðja háttvirta alþingismenn að
minnast hinna látnu, óska hinum slösuðu
velfarnaðar og votta ástvinum þeirra allra
samúð með því að rísa úr sætum.
harmi
Þingsályktunartillaga Garðars Sigurðssonar:
Brú yffr Ölfusá
Nýlega lagöi Garðar
Sigurðsson fram á Alþingi
þingsályktunartillögu um
smíði brúar yf ir ölfusá við
óseyrarnes. Tillagan
hljóðar svo: „Alþingi
ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að láta nú þegar
hefja allan nauðsynlegan
undirbúning að smíði
brúar yfir ölfusá við ós-
eyrarnes, þannig að hönn-
un brúarinnar liggi fyrir
og framkvæmdir við
brúargerðina geti hafist
strax og aðalframkvæmd-
um við Borgarfjarðar-
brúna er lokið".
Meö frumvarpinu fylgir
greinargerö flutningsmanns þar
sem segir:
Þrjú sjávarþorp eru á suöur-
ströndinni, Þorlákshöfn vestan
ölfusár, en Eyrarbakki og
þingsjé
Stokkseyri austan ár. Þorláks-
höfn var til skamms tima litil og
opin fyrir haföldunni, en er nú
komin i allgott horf og öryggi
skipa i höfninni allt annaö og
betra en var.
Útgerö hefur veriö stunduö um
mjög langan tlma frá Stokkseyri
og Eyararbakka, þrátt fyrir erfiö
hafnarskilyröi. Meö kröfum um
meiri sókn, lengri róöra, meiri og
f jólbreyttari veiöarfæri og bættan
aöbúnaö og vinnuskilyröi
stækkuöu bátarnir og þeir minni
uröu siöur samkeppnisfærir.
Þar meö dugöu ekki lengur hafn-
irnar á Eyrarbakka og Stokks-
eyri, svo fiskibátar þeirra landa
nú og hafa gert um langt skeiö
nær öllum afla sinum i Þorláks-
höfn og aflanum og afuröunum
ekiö á milli — vegalengdin fram
og til baka er á annaö hundraö
km.
Meö tilkomu skuttogaranna var
unnt aö reka fiskiönaöinn eins og
verksmiöjuiönaö — hráefniö
berst jafnt til vinnslustöövanna
allt áriö um kring, skapar betri og
öruggari rekstarmöguleika og
jafnari og tryggari vinnu fisk-
vinnslufólks. Þessi þróun hefur
oröiö i nær öllum verstöövum
landsins, en hefur ekki náö til
þorpanna austan Olfusár, þau eru
nú oröin hafnlaus I nútimaskiln-
ingi.
Brú yfir ölfusá viö Óseyrarnes
mundi tengja saman þorpin báö-
um megin ár og skapa auk þess
mikla möguleika fyrir alla
byggöina I vesturhluta Arnes-
sýslu neöanveröri.
Brú yfir Olfusá viö óseyrarnes
losaöi aö mestu leyti þorpin
austan ár undan niöurdrepandi
oki hafnleysisins — kæmi i staö
tveggja hafna, aö svo miklu leyti
sem þaö er unnnt án hafnargeröa.
Timabundiö atvinnuleysi hefur
rikt I þessum þorpum báöum,
einkum á Eyrarbakka — og
miklir erfiöleikar steöja þar aö
fiskvinnslunni af fyrrgreindum
ástæöum.
Brýna nauösyn ber til aö
tryggja aukiö og jafnara hráefni
til þessara sjávarþorpa.
Aö lokum má geta þess, I
tengslum viö þá umræöu, sem
fariö hefur fram vegna mikillar
hættu á stórum jaröskjálftum á
Suöurlandi, aö núverandi brú yfir
ölfusá er á einu mesta hættu-
svæöinu, en ekki eru heimildir um
skjálfta þar sem gert er ráö fyrir
aö hin nýja og mikilvæga brú risi.
Ekki er aö efa aö ibúar á
Eyrarbakka og Stokkseyri munu
fylgjast vel meö framgangi máls-
ins, en þaö veröur væntanlega
tekiö á dagskrá f Sameinuöu þingi
á næstunni. sgt
Fyrstu um- •
ræðu um
fjárlög lokið
t gær lauk formlega fýrstu um-
ræöu fjárlaga. Var málinu visaö
til fjárveitinganefndar sem mun
hafa þaö til drvinnslu og meö-
feröar á næstunni.
Hennar blöur þvi langt og
strangt starf á næstunni, en rétt
er aö geta þess aö hún hefur
þegar starfaö mikiö aö verki sinu.
Fjárveitinganefnd skipa niu
menn, formaöur nefndarinnar er
Geir Gunnarsson. sgt
HELGI ÓLAFSSON skákmeistari:
F orseta Skáksambands
lslands svarað
og misskilningur leiðréttur
Ætlunin með þeirri
grein, sem hér birtist er sú,
að leiðrétta og skýra frá
atburðum, sem gerðust á
ólympíumótinu í Buenos
Aires.
Misskilningur leiðréttur.
Þaö hefur aldrei veriö ætlun
min, aö úthrópa Einar S. Einars-
son, forseta Sí, sem einn allsherj-
ar þrjót, meö öllu óferjandi og
óalandi. Ég sé enga ástæöu til aö
halda fram rangindum, sem
spruttu af misskilningi milli min
og Sigurdórs Sigurdórssonar
blaöamanns Þjóöviljans. Aö
draga aöra keppendur inni þetta
mál kom aldrei til greina, þess
vegna er þetta leiörétt. Einar S.
Einarsson hefur lagt fram mikiö
starf I þágu skákhreyfingarinnar,
þaö veit alþjóö. Hinsvegar reynd-
ist hann slikur kafbátur I sam-
skiptum sinum viö undirritaöan
aö seint mun fyrirgefiö.
óheilindi.
Fyrir ólympiumótiö geröi
Skáksamband íslands samning
viö Morgunblaöiö. Þessi samn-
ingur var meö mjög liku sniöi og
þessir sömu aöilar geröu meö sér
fyrir ólymplumótiö I Haifa 1976.
Mér er ekki kunnugt um greiösl-
ur, sem Morgunblaöiö lét af hendi
fyrir þetta tiltekna mót, en I Haifa
greiddi Mbl. 200 þúsund krónur,
fyrir einkarétt á fréttum frá mót-
inu. Sú grein þessa samnings,
sem aö mér og Þjóöviljanum
snéri var þaö ákvæöi, aö engir
keppenda Islands, sendu dag-
lega fréttir af mótinu. Þeir máttu
þó senda vikulega pistla til þeirra
blaöa, sem þeir önnuöust slik
skrif fyrir. Mér er kunnugt um aö
Dagblaöiö haföi beöiö Jón L.
Arnason fyrir fréttarritarastörf,
en Einar S. Einarsson gripiö i
taumana og afstýrt sliku.
Einar S. Einarsson haföi hins-
vegar ekki tal af mér vegna þessa
áöur en lagt var af staö. Út i Arg-
entinu gaf hann mér hinsvegar
upp þá ástæöu, aö hann heföi
staöiö I þeirri trú aö ég væri ekk-
ert viö Þjóöviljann riöinn. Hvern-
ig hann fékk þá niöurstööu er mér
hulin ráögáta. (Helgi hefur veriö
skák- og iþróttafréttamaöur
Þjóöviljans um 2ja ára skeiö.
Innskot Þjóöviljinn) Fyrir mótiö i
Buenos Aires geröi ég samning
viö Þjóöviljann um fréttaflutning,
sem ég hygg aö hafi gengiö
snuröulaust fyrir sig.
Þegar út var komiö, sendi ég
þegar i staö fyrstu fréttir af mót-
inu. Af ástæöum, sem ég tel ekki
rétt aö tilgreina hér, kom ekki
bofs frá þeim „Morgunblaös-
mönnum” i Buenos Aires, eftir
fyrsta dag keppninnar. A öörum
degi keppninnar hringdi Einar S.
Einarsson I mig og fór aö ræöa
um fréttaflutning frá mótinu.
Margt af þvi sem hann lét sér þá
um munn fara var heldur
óskemmtilegt, en þetta var aö-
eins byrjunin. Þessi eltingarleik-
ur hans hélt svo linnulaust áfram
uns þar kom aö ég gat ekki oröa
bundist, eins og fram hefur komiö
á siöum Þjóöviljans.
Eins og gefur aö skilja haföi
þetta mjögslæm áhrif á mig. Ég
fór á ólympiumótiö, staöráöinn i
aö ná góöum árangri. Bæöi haföi
ég undirbúiö mig vel fyrir mótiö
og þvi ekkert til fyrirstööu aö ná
settu takmarki. Meö hinu eillfa
kvabbi Einars, sem sýndi furöu-
legt skilningsleysi á hlutverki
sinu, var skákin oröin aö aukaat-
riöi hjá mér, en baráttan viö Ein-
ar aö aöalatriöi, og þaö sem öllu
máli skipti. Enda fór svo aö siö-
ustu umferöirnar tefldi ég án
nokkurs áhuga.
Starf mitt sem fréttaritari
Þjóöviljans var langt frá þvi aö
vera erfiöisvinna. Hún lá einungis
I þvi aö safna upplýsingum um
úrslit og aö hafa eyrun opin fyrir
þvi sem var aö gerast á mótinu.
Siöan var þetta sent slmleiöis
heim og þar vann Sigurdór úr efn-
inu af mikilli prýöi.
Nú hefur þaö sjónarmiö komiö
fram aö Skáksambandiö (Morg-
imblaöiö?) væri ekki aö senda
mig á mótiö til aö stunda frétta-
störf, ekki frekar en Ingvar As-
mundsson færi aö kenna 1 fjöl-
brautarskóla !! Þessu vil ég
svara til aö þaö stóö ekki á þeim
Skáksambandsmönnum, aö leita
til Margeirs Péturssonar varö-
andi upplýsingar um einstakar
skákir og fleira.
Þá vil ég upplýsa þaö, aö Þjóö-
viljinn tók þátt I feröakostnaöi
minum hvaö viökom vasapening-
um, en Skáksamband tslands sá
ekki ástæöu til aö útdeila neinum
slikum peningum til keppenda ef
undan eru skyldir tveir dagar I
New York. Hinsvegar var þvi svo
fyrir komiö, aö bæöi Högni Torfa-
son og Einar S. Einarsson fengu
fulla dagpeninga meöan á mótinu
stóö.
Þaö kostar aö sjálfsögöu pen-
inga aö taka þátt I ólympiumót-
inu I Argentinu, en þaö er hins-
vegar algert óyndisúrræöi aö
leita eftir einokunarsamningum
viö Morgunblaöiö. Þaö er hæpinn
hagnaöur fyrir skáklistina, aö
láta eitt dagblaö sjá um allan
fréttaflutning af mótinu.
Gjaldkeramálið
Menn rak I rogastans er þeir
sáu forsiöu Þjóöviljans þann 10.
nóv. sl. Ég hef áöur leiörétt mis-
skilning þess efnis aö aörir kepp-
endur hafi átt i útistööum viö Ein-
ar S. Einarsson. Ég tek þaö einnig
fram aö Friörik ólafsson er ekki I
þeim hópi, ef undan eru skyldar 4
umferöir. Hann fór til Buenos
Aires til aö keppa aö stööu forseta
FIDE og þegar þvi markmiöi
haföi veriö náö, var enginn timi
til aö huga aö taflmennskunni.
Enda fór svo aö Guömundur Sig-
urjónsson tók aö sér stööu fyrir-
liöa Isl. karlasveitarinnar.
Allt sem ég hef látiö eftir mér
hafa um stööu gjaldkera FIDE
stendur, enda allar upplýsingar
frá mjög áreiöanlegum aöilum.
Til eru þeir sem taliö hafa best aö
láta umræöur um þetta mál kyrr-
ar liggja. Þvi vil ég svara til, aö
þaö væri furöulegur blaöamaöur
sem þegir þegar slikir atburöir
eiga sér staö I kringum hann. Þá
er þaö oft viöleitni hjá mönnum 1
sviösljósinu aö vilja stýra penna
blaöamanns inná siöurnar, meö
öörum oröum, aö skrifa sjálfir
um sig I blööin.
Aö lokum þetta. Agreiningur á
sér alltaf staö, hvar sem er I
mannlifinu. Opinskáar umræöur
eru oft nauösynlegar til betri
samvinnu og hennar er greinilega
ekki vanþörf hér. —
Akureyri 15. nóvember.
Helgi ólafsson.
Vidbót yiö leiðréttan misskilning
l
L
Undirritaöur blaöamaður
Þjóöviljans, sem tók á móti
fréttum frá Helga Ólafssyni af
óL-mótinu á Argentlnu vill
gjarnan bæta fáeinum oröum
viö ieiöréttingu Helga ólafs-
sonar um misskilning þann,
sem á millum okkar varö.
Eftir aö Helgi haföi sagt mér
frá frarnkomu Einars S. I hans
garö vegna fréttaritarastarfans
og þess striös sem hann átti I viö
forseta Sl, kom fréttin um
gjaldkeramáliö, sem var 100%
rétt, eins og Helgi segir i grein-
inni hér aö ofan. Þá I leiöinni
spuröi undirritaöur hvort Einar
S. væri hættur aö jagast I honum
fyrir fréttaskrifin.
Helgi svaraöi orörétt (þaö er
til á segulbandi) Já, þaö er nú
fyrir þaö fyrsta vegna þess aö
hann er búinn aö fá alla uppá
móti sér....
Þarna kemur misskiln-
ingurinn. Helgi átti hér viö aö
menn væru orönir á móti Einari
i fréttaritaramálinu, en undir-
ritaöur tók þetta svar sem svo,
aö Einar væri búinn aö fá alla
uppá móti sér almennt. Astæöan
fyrir þvi aö ég dró þessa álykt-
un, eru kynni mln af forseta
Skáksambands Islands. Mistök
min af voru aö draga þessa eðli-
legu ályktun, I staö þess aö
spyrja Helga nánar úti þetta
svar.
S.dói J
“• ■ mmmmmmmmm m wmmmmmmmm m mmmmmmmmm m wj.