Þjóðviljinn - 26.11.1978, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 26.11.1978, Blaðsíða 11
Sunnudagur 26. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 las þau sam viskusamlega, rumdi, maulaöi haröfisk uppúr plastpoka, spuröi loks: Hvernig liöur heima hjá þér Gunni minn? Bubba er heilsugóö og Sigga stækkar? öllum liöur vel. Já, þaö er afbragö. Æ, nú man ég þaö sem ég var aö reyna aö muna, viö þurfum aö gera kynningarþátt um blak! Gætir þú ekki tekiö þaö aö þér Gunni minn? Þú hefur áhuga á iþróttum þykist' ég muna, þú lékst i körfuboltaliöi há- skólans, var þaö ekki? Ekki þaö nei? Badminton lékstu þó? Ekki þaö heldur? Skelfing getur mig misminnt. Svo fór hann aö kveöa Núma- rlmur, uppáhaldsrimurnar sinar, tiu minútur á öllu útopnuöu, sem dugir tilaö lama mannýgt naut. Hann ætlaöi aldrei aö þagna. Loks þegar hann geröi smáhlé spuröi ég: Björn, aö öllu gamni slepptu, viltu láta gera þessar myndir sem ég er aö stinga uppá eöa viltu þaö ekki? Karlinn góndi á mig einsog naut á nývirki. Hvort ég héldi I raun og veru aö þetta væri spurning um hans vilja eöa áhuga? En ekki hvaö? sþuröi ég. Peninga Gunni minn, hinn þétta leir Gunni minn. Svo fór hann aftur aö kveöa rim- ur. Kannastu viö þessa rimu? Ekki þaö! Jarpsrlma viljuga er þaö Gunni minn. Ég læröi hana sex. vetra, hef ekki gleymt henni siöan, finar bókmenntir og yndis- leg tónlist. Fólk kann þvl miöur alltof litiö svonalagaö i dag. Margir fleiri heföu oröiö úti á fjallvegum hér áöur ef ekki heföu veriö blessaöar rimurnar aö orna sér viö. Geröu nú fyrir mig þátt um blak Gunni minn, ha? Ég get þá eins gert þátt unr harakiri, sagöi ég. Kallinn hætti þá aö japla á haröfiskinum, skaut upp sinum gráu refsaugum, sagöi: Hara- kiri? Þaö væri kannski ekki svo vitlaust, gera þætti um þessar austurlensku iþróttagreinar, harakiri, júdó, jóga og hvaö þaö nú heitir alltsaman. Mætti ekki taka þaö upp inni stúdiói? Mundi þaö ekki falla ágætlega innl . páskadagskrána? Góö hugmynd * Gunni minn. En fyrst kemur röö- in þó aö blakinu. Þú sýnir einfald- lega blakliö aö leik, skýtur inni' viötali viö formann blaksam- bandsins. Þeir eru allir fyrir viö- töl þessir fuglar. Ég er hér ein- hversstaöar meö simanúmeriö þótt ég muni ekki nafniö á for- mannsbleölinum. Afleitir meö þaö Iþróttaleiötogarnir aö hrlngja, jafnvel um miöjar nætur, gera glamm, nauöa, nöldra. Þeir kunna lika aö hóta greyin. En mest að nöldra. Blakiþróttin sé i uppgángi meöal allra siöaöra þjóöa, segja þeir, hvaö þaö eigi aö þýöa aö hér sé einasta sjónvarps- stööin I heimi þarsem blakiþrótt- in njóti ekki jafnréttis áviö aörar iþróttagreinar, sé hreinlega hundsuö. Þessi fagrei og göfuga Iþrótt. Sjónvarpsstööinni beri siö- feröileg skylda, bla, bla, blak! Þú veist ekki hvaö yfir mig gengur Gunni minn. Viltu nú ekki gera fyrir mig þótt ekki væri nema einn þátt um herjans blakiö? Kannski kemur þá annar á móti um harakiri, ef hægt er aö koma þvi viö inni stúdlói. Þú kannt bet- ur skil á þvi en ég. Svo eitthvað þjóölegt innámilli. Gllmuþættirn- ir njóta mikilla vinsælda, einkum hjá framsóknarmönnum til sveita. Þeir kunna auövitaö ekk- ert aö gllma þessir peyjar, en þaö er ahnaö mál. Hnefaleikar eru bannaöir meö lögum, ekki þýöir aö nefna þá. Fjölbragöaglíman er lika haröbönnuö. Þó er hún meö vinsælasta efni vestan hafs og minnilikamsmeiölngar I henni en fótboltanum er mér tjáö. Ekki er þaö nú samt drengileg Iþrótt Gunni minn. Islenska gllman er hinsvegar bæöi þjóöleg og drengileg, sé hún rétt glimd. Galli aö þeir skuli ekki kunna aö glima þessir peyjar. Sá feitasti bolar hina alla niöur, ha! Sér er nú hver gllman! Er þetta kannski þróunin á öllum sviöum? Kemur blakiö eftilvill I staöinn fyrir glimuna og hestaatiö? Væri það æskileg þró- un? Hvaö heldur þú Gunni minn? Þú hefur enga skoðun á þvi. Þaö er nefnilega þaö. Kannski fer þaö svo aö þessar austurlensku iþróttir ryöja sér til rúms, þaö er aldrei aö Vita. Heimurinn tekur örum breytingum. Fjarlægöirnar skreppa saman. Allt veröur þetta aö sjást á skerminum hvaö meö ööru. Annars veröa formenn sér- sambandanna vitstola. Liggja I mér nótt sem nýtan dag. Hvort ekki sé timi til kominn aö Sjón- varpsstööin beini myndavélum sinum aö þeirra göfugu Iþrótta- greinum! Ég segi þetta ekki til þess aö láta vorkenna mér Gunni minn, heldur afþvi þiö úngu mennirnir eigiö aö gera ykkur grein fyrir þvi aö min staöa er siöur en svo'' eftirsóknarverö. úmm HAUKU8 SiMONARSON VATNÁ Stundum neyöist maöur tilaö vera heyrnarsljór. Þá er sagt aö maöur sé hálfviti. Stundum nenn- ir maöur ekki aö hlusta á þetta nöldur og biöur menn aö koma seinna, allt hafi sinn tima. Þá er maöur kallaöur skepna. Þaö er úr vöndu aö ráöa Gunni minn. Betra aö kunna aö humma framaf sér. Vera kurteislega heyrnarsljór. Viö skulum svo sjá til meö þess- ar hugmyndir þfnar. Ég er sam- mála þvi aö aldrei er of mikiö fjallaö um alþýöuna. Gleymum þvi ekki eitt augnablik aö af henni erum viö komnir. Of af henni eig- um viö aö læra. Ef ekki væri al- þýöan væri heldur ekkert sjón- varp. Þessvegna er þaö skylda okkar aö veröa jákvæöir og upp- byggilegir. Ég sé margt jákvætt og drengilegt á þessum blöðum sem þú færöir mér Gunni minn. En þar stendur lika sitthvaö sem varla mundi gleöja alþýöuna, launamartninn á götunni sem skilvislega borgar sitt áskriftar- gjald. Þaö vil ég segja þér einsog er. Ég spuröi þá karlinn aö þvi hreinskilnislega hvort hann vildi ekki losna viö mig af deildinni. Ég væri greinilega handónýtur starfsmaöur, hugmyndir mlnar einskisveröar, aöeins kostnaöur af þvl aö hafa mig ránglandi um gángana, vinna min endaði hvort- eö væri öll i ruslafötunni. Hann fékk tár i augun, sagöist Birtur kafli úr nýrri skáldsögu eftir Ólaf Hauk Símonarson ekkert skilja i þvi hvernig mér dytti önnur eins fjarstæöa I hug, hjá sér væri alit geymt. Engu gleymt! Ef ekki i ár þá á næsta ári. Ef ekki á næsta ári þá á þar- næsta ári. Þú ert úngur enn Gunni minn, þú átt eftir að starfa hér lengi, marga áratugi ef Guö lofar, eins lengi og þú kærir þig um. A hinn bóginn Gunni minn, fram- kvæmdaféö er þrotið i ár, engir peningar til þess aö leggja I nýjar framkvæmdir, tómt mál aö tala um. Hinsvegar eru góöar hug- myndir alltaf vel þegnar. Þaö er aldrei of mikið af frjórri umræöu. En slik umræöa veröur aö byggj- ast á gagnkvæmu trausti. Ykkur ætti aö vera-þaö jafn vel ljóst og mér aö viö veröum aö velta fyrir okkur hverjum eyri. Viö erpm lamaöir af fjármagnsskorti. /Deildin er höfö i svelti Gunni minn! óvinirnir leynast viöa, ekki bara I nefndum og ráðuneyt- um, heldurlika hér fhúsinu. Hér i stofnuninni Gunni minn! Ég veit þú skilur mig og veist um hvað ég er aö tala. Þaö eru ákveðnar per- sónur hér i húsinu sem ekki hika viö aö bregöa fæti fyrir verðug verkefni, ef þaö er ég sem vil ráö- ast i þau. Sömu menn ausa fjár- mununum I dellukökur um geö- bilaöa fógeta, eöa eitthvaö þaöan- af vitlausara. Þessir menn eru ekki aö vinna alþýöunni Gunni minn, þeir eru aö fullnægja valdafikn sinni og glórulausri hé- gómagirni. Þessvegna veröur þeim ekki annaö fyrir aö aö draga upp vesælan fógeta, sem liklega hefur aldrei veriö til, og gera úr tetrinu makalausan delerant full- an meö blóöþorsta og kynóra. Heiiaspuni frá upphafi til enda, ekki korn af sögulegum stað- reyndum, eintómt hismi! Ekki eru þessir menn aö vinna alþýö- unni? Svei mér ef þaö er ekki stórhneyksli Gunni minn! Okkur er haldiö niöri þér og mér, þaö er útvarpsráö, fjárveitinganefnd ogblööin! Viö megum ekki hreyfa okkur þá koma hagsmunaklúbbar af ölluih stæröum og geröum yfir okkur einsog gammár. Okkur er gert aö gleypa hráa hringavit- leysuna úr allskónar pólitiskum pótentátum. Viö erum ofurseldir hinu pólitiska valdi. Þetta veistu Gunni minn, þetta vitum-viö báö- ir. Þú ert úngur og óþolinmóöur. Þannig eiga úngir menn iika aö vera. En raunveruleikinn er haröur skóli Gunni minn. Þaö út- heimtir seiglu aö mjaka veröld- inni úr staö. Heinjurinn viröist seint ætla aölæra. Viö reynum aö bægja frá okkar dyrum hér i þessu húsi mesta ófögnuðinum. Viö stuggum ofstækismönnum burt eftir þvi sem viö megnum. Viö vinnum okkar verk i hljóöi. Annaö getum viö ekki gert einsog málin standa. Þaö er ekki skiln- Ingur fyrir myndum einsog þú ert að lýsa hér á þessum blööuih, þvi miöur. Þær mundu aöeins vekja upp mestu öfga- og afturhalds- draugana. Okkur yröi þrýst aft- urábak um mörg skref. Viö verö- um aö gæta þéss aö gefa aldrei á okkur höggstaö. Þeö er enginn grundvöllur fyrir þvi hér á landi að sjónvarpsstöö sé sjálfstæöur, skapandi aöili. Fólk vill bara framhaldsmyndaþætti frá Bret- landi. Alþýöan gerir ekki meiri kröfur. Þvi miöur. Þó vitum viö báöir aö Islensk kvikmyndagerö veröur aö byrja á byrjuninni. Lif- inu hér i landinu einsog þaö er i raun og veru. Viö eigum alþýö- unni skuld aö gjaida. Þaö sem skiptir máli, einsog þú oröar þaö svo fallega hér á blööunum, eru hin raunverulegu lifsskilyröi vinnandi fólks. Þaö er auðvitaö þetta sem viö þurfum aö gera myndir um. En þvi miöur er þaö ekki vinnandi vegúr einsog málin standa. Ég hef hvaö eftir annaö látiö aö þvi liggja á útvarpsráös- Framhald á bls. 22 Er eitt mest selda sjónvarpstækið á islandi sökum gæða og verðs. 20 tommu tækin CTP-215 kosta nú kr. 448.000. Staðgreiðsluafsláttur lækkar tækið í kr. 433.000. Einnig má borga 200.000 við afhendingu, og síðan 38.000 á mánuði. Tækíd sem allirgeta eignast Vilberg & Þorsteinn Laugavegi 80. Símar 10259 —12622 ■

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.