Þjóðviljinn - 14.12.1978, Page 17
Fimmtudagur 14. desember 1978 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 17
ÁFANGAR í KVÖLD:
Andrúmsloft
hljómleika-
ferðalaga
Afangamenn, þeir Guðni RUnar Agnarsson (t.v.) og Asmundur
Jónsson.
„Við ætlum að taka fyrir allar
hliðar hljómleikahalds,” sagði
Asmundur Jönsson, sem ásamt
Guðna Rúnari Agnarssyni sér um
tónlistarþáttinn „Afanga”, kl.
23.05 I kvöld.
„Kveikjan að þættinum er sið-
asta plata Jacksons Browne ,
Running on Edges, en þar tekur
hann þetta efni fyrir,” sagði As-
mundur. „A plötunni eru m.a.
upptökur frá tónleikum, úr bún-
ingsherbergjum og úr bflnum,
sem þeir feröast f. Og f textunum
er mikið komið inn á þetta lif og
það fólk sem fylgir tónlistar-
mönnunum á hljómleikaferðalög-
um.”
Lögin sem leikin verða i þættin-
um tengjast öll hljómleikahaldi á
einneða annan hátt. Meðal þeirra
má nefna Stage Fright, með The
Band, Cutting með Grateful Dead
og mörg lög af fyrrnefndri plötu
Jacksons Browne. Þar má nefna
t.d. Load Out, sem f jallar um rót-
arana og þeirra starf. Lag
Dannys O’Keef, Road, veröur etv.
leikið og þá af honum sjálfum.
Traveling með Modern Jazz
Quartet veröur einnig brugöið á
fóninn ef að likum lætur.
Asmundur sagöi aö þessi plata
Jacksons Brownehefði náð geysi-
legum vinsæidum og ylli það
notócurri furðu, þar sem hún er
frekar þung og nokkuö hrá á köfl-
um. Meöal laganna á plötunni er
„Stay”, sem Brimkló söng inn á
plötu hér uppá tslandi undir nafn-
inu „Eitt lag enn”. Breska hljóm-
sveitin Hollies hafði reyndar flutt
það á plötu I fornöld poppsins
anno 1964.
Helgur maður
og ræningi
Leikrit eftir Heinrich Böll
verður endurflutt í kvöld
útvarp
Ikvöidkl. 21.20 verður flutt leik-
ritið „Helgur maður og ræningi”
eftir Heinrich Böll. Þýðinguna
gerði Björn Franzson, en Þor-
steinn ö. Stephensen var leik-
stjóri. Hann fer einnig með eitt
aðalhlutverkið. Af öðrum leik-
endum má nefna Lárus Pálsson,
Val Gislason, Arndisi Björnsdótt-
ur, Ingu Þórðardóttur og Haraid
Björnsson. Leikritinu var áður
útvarpaö 1955. Það er rúm
klukkustund i flutningi.
A unglingsárunum kynnistEvg-
enius ræningjasyninum Múlts,
en svo skilja leiðir. Evgenius lær-
ir til prests og veröur mikils met-
inn og vinsæl vegna framkomu
sinnar. Að lokum er litiö á hann
semhelganmann.enhonum liður
ekki vel. Hann biöur ’daglega til
Guðs aö hann megi sjá þann
mann á jarðriki, sem honum sé
likastur. Og hann tekst á hendur
ianga ferð...
Heinrich Böll er fæddur I Köln
áriö 1917. Hann tók þátt I siöari
heimsstyrjöldinni, en stundaði
siðan nám i germönskum fræð-
um. Frá 1951 hefur hann unnið
fyrir sérsemrithöfundur. Ifyrstu
verkum sínum tekur Böll til með-
ferðar hörmungar striðsins og af-
leiðingar þess, m.a. líf einstæöra
kvennaog munaöarlausra barna,
vandamál flóttamanna og erfið-
leika I hjónabandi, svo nokkuð sé
nefnt. Siðar beinir hann spjótum
sínum að velferðarþjóðfélaginu.
Þýðandinn, Björn Franzson.
Hann deilir áskinhelgi og ástleysi
manna á meðal og teflir fram á
móti ábyrgðartilfinningu og
miskunnsemi. Böll hefur gefið út
frásagnabækur, skáldsögur og
leikrit. Hann er einnig mikilvirk-
ur þýðandi, hefur þýtt m.a. leikrit
eftir Brendan Behan og George
Bernard Shaw. Nóbelsverðlaunin
fékk hann 1972.
Útvarpiö hefur flutt tvö önnur
leikrit Bölls, „Hina óþekktu” 1960
og „Reikningsjöfnuð” 1963.
Höfundurinn, Heinrich BöU.
Leikstjórinn, Þorsteinn ö. Steph
ensen.
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
-7.10. Leikfimi. 7.20 Bæn
7.25. Morgunpósturinn.
Um sjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar
B. Hauksson. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis
iög að eigin vali. 9.00
Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Þórir S. Guðbergsson held-
ur áfram sögu sinni „Lárus,
Lilja, ég og þú” (9).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.50 Þing-.
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10
Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir
ýmis lögj frh.
11.00 Iðnaöarmál: Pétur J.
Eiriksson sér um þáttinn,
sem fjaUar um iðnfræðslu.
11.15 Lestur úr nýþýddum
bókum. Kynnir: Dóra
Ir.gvadóttir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar.Við vinnuna:
Tónleikar.
14.40 Kynllf I islenskum bók-
menntum Báröur
Jakobsson lögfræöingur
flytur erindi I framhaldi af
grein eftir Stefán Einarsson
prófessor: — sjötti hluti.
15.00 Miðdegistónleikar:
15.45 Brauð handa hungruðum
heimi Guðmundur Einars-
son framkvæmdastj. Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar tal-
ar við Helga Hróbjartsson
kristniboða um hjálparstarf
i Eþlópiu.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.20 Tónleikar
16.40 Lagið mitt: Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna.
17.20 Lestur úr nýjum barna-
bókum. Umsjón: Gunnvör
Braga. Kynnir: Sigrún
Siguröardóttir. ——.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.40 Daglegt mál Eyvindur
Eiriksson flytur þáttinn.
19.45 tslenskir einsöngvarar
og kórar syngja
20.15 Úr þjóðlifinu.Geir Viðar
Vilhjálmsson ræöir við
Tómas Arnason fjármála-
ráðherra um efnahagsmál,
skattamál og sparnaöar--
áætlanir rlkisstjórnarinnar.
21.00 Fiölukonsertnr. 2 i E-dúr
eftir Johann Sebastian Bach
21.20 Leikrit: „Helgur maður
og ræningi” eftir Heinrich
Böll Aöur útv. 1955. Þýð-
andi: Björn Franzson. Leik-
stjóri: Þorsteinn O
Stephensen. Persónur og
leikendur: Evgenius,
Þorsteinn ö.
Stejrfiensen/Múlts, Lárus
Pálsson/Bunts, Valur
Glslason/Agnes, Inga
Þórðardóttir/Biskupinn,
Haraldur
Björnsson/Presturinn, Jón
Aöils/Hrómundur, Helgi
Skúlason/Bókavörður,
Róbert
Arnfinnsson/Ekkjan,
Arndfe Björnsdóttir/ Aðrir
leikendur: Nlna Sveins-
dóttir, Karl Guömundsson,
Guörún Þ. Stephensen, Þor-
grimur Einarsson, Arni
Tryggvason, Steindór
H jörleifsson, Valdemar
Helgason og Einar Ingi Sig-
urösson. Orö kvöldsins á
jólaföstu.
22.30 Veðurfregnir, Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Vlðsjá: Friörik Páll
Jónsson sér um þáttinn.
23.05 Afangar Umsjónar-
menn: Asmundur Jónsson
og Guöni Rúnar Agnarsson.
23.50 Fréttir, Dagskrárlok.
PETUR OG VELMENNIÐ — II. HLUTI
EFTIR KJARTAN ARNORSSON