Þjóðviljinn - 16.12.1978, Síða 4

Þjóðviljinn - 16.12.1978, Síða 4
.4 SIÐA — ÞJÓÐVILJJNN Laugardagur 16. desember 1978 UOOVIUINN Málgagn sósialisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag ÞjóBviljans Framkvæmdastjóri: EiBur Bergmann Ritstjdrar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Rekstrarstjóri: Úlfar ÞormóBsson Augiýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson. AfgreiBslustjóri: Filip W. Franksson BlaBamenn: AlfheiBur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sig- urBardóttir, GuBjón FriBriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Margeirsson. Magnós H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. lþrótta- fréttamaBur: Ingólfur Hannesson ÞingfréttamaBur: SigurBur G. Tómasson Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. útlit og hönnun: GuBjón Sveinbjörnsson. Sævar GuBbjörnsson. Handrita-og prófarkalestur, BlaBaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar, Oskar Albertsson. Safnvöröur: Eyjólfur Arnason. Auglýsingar: Rúnar SkarphéBinsson, SigriBur Hanna Sigurbjörnsdóttir Skrifstofa: GuBrún GuBvarBardóttir, Jón Asgeir SigurBsson. AfgreiBsla: GuBmundur Steinsson. Kristin Pétursdóttir. Simavarsla: ölöf Halldórsdóttir, SigriBur Kristjánsdóttir. Bilstjóri: Sigrún BárBardóttir. HúsmóBir: Jóna SigurBardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuBmundsson. Ritstjórn, afgreiBsla og auglýsingar: SiBumúla 6. Reykjavik, slmi 81333 Prentun: BlaBaprent h.f. Klofningsiðja margklofms flokks -• Alþýðuflokkurinn gekk klofinn til stjórnarsam- starfs. Sem heild hefur flokkurinn aldrei samþykkt það grundvallaratriði í samstarfssamningi ríkisstjórnar- flokkanna að vinna beri bug á verðbólgunni án þess að kæmi til þess að skerða þyrfti kaupmátt láglauna eða að það kostaði atvinnuleysi. • Hluti þingflokks og f lokksstjórnar Alþýðuf lokksins er nú á góðum vegi með að eyðileggja eitt besta tækifæri sem nokkur ríkisstjórn hefur fengið til þess að stjórna landinu í samráði við verkalýðshreyf inguna. I heild hafa samtök launafólks sýnt núverandi ríkisstjórn skilning eða beinan stuðning og lýst sig reiðubúin til þess að vinna áfram að mótun efnahagsstefnu með ríkisstjórninni að því tilskyldu að henni sé ekki stefnt gegn kaupmætti og ^ífskjörum launafólks. Ásíðustu dögum f járlagaafgreiðslunnar klofnar Al- þýðuf lokkurinn enn og nú eru þeir sem undir urðu í haust ofaná. Þeir skjóta upp flugeldi sem á að lýsa í hugum landsmanna framá næsta ár. I frumvarpi sem meiri- hluti f lokksstjórnar/ 27 manns, heimtar að verði afgreiti áður en tekjuöf lunarlög og f járlög verða samþykkt er lagt til að kaup verði lögbundið allt næsta ár, vísitölu kerfiðtekið úr sambandi, og hörmungum atvinnuleysi' boðið heim. • Þetta telja hinir ungu þingmenn Alþýðuflokksins sig geta boðið verkalýðsarmi flokksins, enda þótt verka- lýðsmálanefnd hans hafi nýverið bent á „að skerðing kaupmáttar felur ekki i sér neina lausn veröbólguvand- ans" og varað eindregið við öllum tilraunum til frekari kjaraskerðingar. Að þessari samþykkt stóð meðal ann- ars einn þingmanna flokksins Karl Steinar Guðnason, varaformaður Verkamannasambands Islands. • Eins og fram hef ur komið í fréttum standa ráðherr- ar Alþýðuflokksins að því að tekjuöflunarfrumvörpin eru lögð fram eins og ekkert hafi í skorist, og haldið áfram með aðra umræðu f járlaga eins og „tveggja ára áætlun" og „úrslitakostir" meirihlufa flokkssfjórnar Al- þýðuflokksins hafi aldrei komið fram. Ráðherrar Al. þýðuf lokksins lentu í minnihluta í f lokksstjórninni ásamt 18 öðrum, nema hvað Kjartan Jóhannsson var fjarri átökum þessum innan flokks og í ríkisstjórn. • Asamt fulltrúum annarra flokka hafa kratarnir staðið að þeim hækkunartillögum sem fjárveitingar- nefnd hefur samþykkt að taka skuli til greina við aðra umræðu f járlaga. Þeir hafa samþykkt að leggja fram tekjuöflunarfrumvörpin og yfirleitt staðið formlega að undirbúningi lokalotunnar í f járlagaafgreiðslunni, enda þótt þeir haf i gertágreining og verið með lunta á ýmsum stigum. En nú koma þeir sem sé með áróðursf lugeld sem á að firra þá ábyrgð af gerðum stjórnarinnar hingað til og í framtiðinni eða að binda enda á stjórnarsamstarf ið. Nema að hvorutveggja sé. • Til þess bendir eindregið sú ákvörðun þeirra í gær að standa ekki með samstarfsf lokkunum um sameiginlegt álit fjárveitingarnefndar. Þar hlýtur að vera vendi- punktur í stjórnarsamvinnunni. í rauninni eru ekki aðrir kostir en að taka upp að nýju frá grunni samninga um stjórnarsamvinnu við Alþýðuflokkinn eða fara frá og skilja landið eftir í öngþveiti. • Um ekkertaf þessu er samstaða innan Alþýðuf lokks- ins, en f lest bendir til þess að sá liðsauki sem þingf lokki hans hef ur bæst á síðustu vikum, tætingslið úr Samtök- unum sálugu, sem meðal annars stóð að því að sprengja vinstri stjórnina 1974, haf i gert útslagið á að nú ráða þeir sem vilja stjórnina feiga og spila trompunum yfir til Ihaldsins. • Abyrgðarleysið sem nýkratarnir á þingi hafa nú sýnt er fullkomið. Takist þeim að glutra niður möguleikum rikisstjórnarinnar til þess að leysa kjara- og atvinnu- málahnút fyrri ríkisstjórnar til frambúðar mun skömm þeirra lengi uppi. Takist þeim að spilla á ný vinnuf riði og möguleikum til samstarfs við verkalýðshreyfinguna mun það ekki gleymast. Takist þeim að ónýta það þjóð- félagslega valdsem verkalýðshreyf ingin færði meintum málsvörum sínum í síðustu kosningum verða þeir sakað- ir um mestu pólitísku mistök síðustu áratuga. • Það er von að ráðherrar f lokksins, að minnsfa kosti tveir, átján flokksstjórnarfulltrúar, og verkalýðsfor- ingjar Alþýðuflokksins skuli ekki vilja fylgja nýkrötun- um í nýja herleiðingu yfir til íhaldsins. Meðan Alþýðu- flokkurinn engist í innanflokksátökum og nýkratarnir senda frá sér ótal áróðursflugelda og hvert pappírs- lausnaplaggið á fætur öðru spyr fólkið í landinu eftir raunhæf um lausnum sem standast veruleikann og kref st efnda á loforðum rikisstjórnarinnar um varðveislu kaupmáttar launa og fulla atvinnu. — ekh I Vandamál Tímans IFramsóknarmenn viröast einhverra hluta vegna vera fastheldnariflestum öörum á þá I hugmynd, aö pólitiskur Isannleiki sé þekktur I eitt skipti fyrir öll og ekkert múöur meö þaö. >vi viröist Timinn sæta i ýmsum kárinum frá tryggum |fl(*ksmönnum þegar svo vill til aö hann birtir greinar sem ekki eru kórréttar, eöa svo segir um • þessi viökvæmu mál i leiöara blaösins i gær: I,,Þaölýsirhins vegarfordóm- um og þröngsýni þegar menn i bregöast svo viö sumu efni I blaösins aö þeir halda aö eins mörg hjónabönd út um þúfur. Og hvergi er aö finna annan eins fjSda af hinum undarlegustu söfnuöum, sem freista þeirra sem finnast þeir hvergi eiga höföi aö halla meö fyrirheitum um ást, samheldni, heimkynni> 20-30 söfnuðir í viðbót Siöan hefur þaö gerst oft, aö söfnuöir.sem virtustfara sæmi- lega af staö og vinna aö sumu leyti þarft verk meöal utan- garösmanna, úrkynjuöust fljót- lega. Mestu ræöur þar um þaö lögu um aö prentarafélagiö segi sigúr Alþýöusambandinu. Hann færöi þá ástæöu fram fyrir til- lögunni, aö stjórnmálaflokkarn- ir heföu alltof mikil og bein áhrif á stjórn ASÍ, þar væru menn aö tefla flokkatafl en ekki sinna málum umbjóöenda sinna. Undir þetta tal hafa þær tekiö Aöalheiöur Bjarnfreösdóttir formaöur Sóknar og Margrét Auöunsdóttir sem um langt skeiö var atkvæöamikil I verka- lýöshreyfingunni. Hér er ekki staöur eöa stund til aö fara út i þær neikvæöar hliöar sem fylgja áhrifum islensks flokkakerfis á stjórn ASt. En þaö er a.m.k. ástæöa til I* TIMINN sé aö veröa hatursblaö bændasamtaka eöa samvinnu- samtaka fyrir þá sök eina aö blaöiö treystir forystumönnum J og liösmönnum þessara hreyf- I inga best i þessum málum og I telur aö málstaöur þeirra sé svo ■ góöur aö ekki skaöi þótt um sé J rætt frá ýmsum hliöum, nema I síöur sé.” I Fjöldasjálfs- j morðin I erlendum blööum hefur [ firnamikiö veriö skrifaö um Ifjöldasjálfsmoröin I Gyuana, þegar um eitt þúsund fylgismenn stofnanda „Musteris fólksins” fylgdu I' leiötoga sinum I dauöann. Ýmislegt hefur veriö dregiö fram í dagsljósiö um Jones þennan og hafa þá sumir gert ! mikiö úr óráöstali hans um aö I hann væriaö byggja upp sannan I sósíalisma meö slnu fólki, en ■ aörir minnst þess aö ekki alls J fyrir löngu þótti Jones allverö- I mætur stuöningsmaöur Demó- I krataflokksins i San Fransisco: I þaö var hann sem skipulagöi I' fagnaöarlæti fyrir Rosalynn Carter forsetafrú, Mondale varaforseta og Moscone borg- arstjóra 1 r I Ur hvaða ! jarðvegi? IEn fleirihafa þó velt fyrir sér þeim jarövegi sem sértrúar- flokkur á borö viö Musteri fólks- • ins er sprottinn úr i Bandaríkj- Iunum og þá nánar tiltekiö i stærsta rikinu, Kalifornlu. Margret Singer sálfræöingur • viö Berkeley-háskóla, segir á Iþessa leiö: „Hvergi annarsstaöar i Banda- rikjunum er jafn mikiö um rót- » laust og einmana fólk. Hin Iótrygga staöa einstaklingsins i samfélaginu kemur meöal ann- ars fram i skelfilega mikilli « tiöni sjálfsmoröa. Hvergi fara sterka vald sem leiötogi sliks safnaöar einatt nær á fylgjendum sinum, vald sem hann fer smám saman aö fylgja eftir meö ofbeldi, refsingum og jafnvel glæpum. Hin mikla um- ræöa sem fjöldasjálfsmoröin i Guyana hefur upp vakiö er einmitt tengd þvl, aö „Musteri fólksins” er alls ekki einhvers konar undantekning. Banda- riski hegöunarfræöingurinn Tobias Brocher segir t.d. I nýlegu viötali viö Spiegel, aö hliöstæö þróun ogátti sér staö I „Musteri fólksins” sé i gerjun I 20—30 sértrúarflokkum til viöbótar. Hann telur einmitt mikla hættu á aö eitthvaö i ætt viö harmleikinn I Guyana endurtaki sig. Pólitíkin og ASÍ A dögunum bar Sæmundur Arnason, ritari H.I.P. fram til- aö minna á þaö sem neikvætter I þeim áróöri, aö forystumenn verklýössamtaka skuli foröast pólitiska flokka. I þeim efnum nætir aö vísa til Bandarfkjanna. Þar hefur verklýöshreyfingin — og áreiöanlega meöal annars meö ýmislegri ýtni atvinnu- rekenda, — veriö gerö áhrifalitil um stjórnmál, aö mestu svipt pólitfsku frumkvæöi. Afleiöingarnar eru m.a. þær aö miöflóttaöfl hafa veriö geysi- sterk i verklýöshreyfingunni, ekki hefur veriö tilalmennilegur vettvangur til aö ná samstööu milli einstakra starfestétta og I endanlega hefur mikill fjöldi • stéttarfélaga komist undir vald J einskonar mafiósa, sem reka I þau eins og einkafyrirtæki sitt I og sinna vildarvina. Þeir sem I formæla mest hinum pólitiska J þættiistarfi verklýöshreyfingar I mættu vel hafa hugann viö þá I dapurlegu þróun — áb. I Sæmundur Arnason rlUrl HÍP: Pólítíkin ræður alger lega í miðstjórn ASÍ þaö hefur sýnt sig alveg frá þvi I febrúar bar fr.m þeaia lU- vegaa haan beföi 4 luaál félagahi. „ ekkl | .tjðrnmalaflokki bá «u þeai. aö ég llt .to á aB borlö Iram tillbgu þeaa elnla afi h • - JSHiVliir I •Hlokaóur (rá

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.