Þjóðviljinn - 06.01.1979, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 06.01.1979, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. janúar 1979. íþróttir (3 íþróttir 3 íþróttir Umsjón: Ingóifur Hannesson VÍKINGUR ÚR LEIK? • IHF dæmir Víking frá keppni í Evrópubikarkeppninni í hand- knattleik vegna óláta í Ystad 1 gærdag geröust þau tiöindi, aö Alþjóðasamband handknatt- leiksmanna sendi handknatt- leiksdeild Víkings skeyti, hvar i stóö aö aganefnd sambandsins heföi dæmt Vlking frá þátttöku I Evrópukeppnum til 1. aprfl n.k. Þetta væri vegna kæru frá sænska félaginu Ystad um ólæti liösmanna Vikings aö afloknum leik féiaganna þann 17. des. sl. Vikingarnir efndu til blaöa- mannafundar vegna þessa máls i gærkvöldi og skýröu sin mál. Þar kom fram aö hin svokölluöu „ólæti” heföu átt sér staö eftir hóf, sem þeim Vikingum var haldiö eftir leikinn i Ystad. Þá heföu þeir gengiö frá veitinga- húsinu aö hótelinu og menn ver- iöglaöreifir. Þó voru menn ekki glaöari en þaö, aö tveir þeirra lentu i rysldngum og uröu fyrir þvi aö falla á búöarglugga og brjóta rúöuna. Stuttu seinna skeöi þaö, aö einn leikmanna hrasaöi I hálkunni sem var um þessar mundir og önnur rúöa brotnaöi. Siöan tilkynntu þeir Vikingar lögreglunni um þessi óhqjpog tekin var skýrsla, sem forráöamenn félagsins skrifuöu undir og ábyrgöust þeir greiösl- ur vegna þess tjóns, sem varö af þessum sökum. Héldumenn siö- an upp á hótel og höföu ekki meiri áhyggjur af máli þessu. Þá gerist þaö stuttu siöar aö fariö er aö blása máliö upp I staðarblööunum og Gróa á Leiti kemst i spiliö. Hinar hrikaleg- ustulýsingar af „drykkjulátum og berserksgangi” Islending- anna komasti hámæli. Formaö- ur aganefndar IHF, Kurt Wand- mark segist þá hafa tekiö upp á þvi á eigin spýtur aö kæra Is- lendingana til aganefndar þeirrar, sem hann á sjálfur sæti i, en þessi maöur haföi einmitt komiö inn i klefann til Viking- anna eftir leikinn og óskaö þeim til hamingju meö sigurinn og prúömannlegan leik. Nú fór heldur betur aö færast fjör I leikinn, Kurt þessi farinn aö dæma I þvi máli sem hann kæröi. Auk Svians eru i aga- nefndinni Norömaöur og Rúmeni og starfa þeir hver i sinu lagioggeta þ.a.l. ekki boriö saman bækur slnar. Orskurö sinn felldu þeir siöan fyrir stuttu og Vikingar fengu hann i hend- urnar i gær, en auk þess, sem lýst var hér aö framan eru Vik- ingarnir dæmdir I sekt, 500 svissneska franka. Þetta er einhver sá fáránleg- asti dómur, sem undirritaður hefurheyrtum ogá sér aösjálf- sögöu öngva hliöstæöu I iþ-ótta- málum. Þarna er fariö inn á þá hálu braut, aö ákvaröa aö keppnisleikir séu ekkert endi- lega útkljáöir á leikvellinum, heldur allt eins utan hans. Og ekki er annað sjáanlegt en veriö sé aö gefa óprúttnum náungum undir fótinn ogfæri á alls kyns beHibrögöum. Þaöer e.t.v. annar handlegg- ur, en benda má á aö leikmenn sænska liösins Ystad voru meö alls kyns óspektir er þeir léku hér á landi og m.a. barst kvört- un frá Hótel Esju vegna ribbaldaháttar þessara peyja. Einnig skeöi þaö i Póllandi, aö leikmenn norska iiösins Oppsal lögöu hótel hreinlega i rúst eftir kappleik, og mýmörg fleiri dæmi mætti benda á. Þetta er ekki til neinnar fyrirmyndar, en aldrei áöur hefur þaö gerst, aö liö sé dæmt frá þátttöku vegna svona atburöa. Vikingur hefur þegar áfrýjaö þessum dómi til framkvæmda- nefhdar IHF, en sú nefnd er æösta dómstigið I sllkum mál- um. IngH Skúli Oskarsson kjörinn íþróttamaður ársins ’78 Skúli óskarsson lyftingamaöur var í gærdag kosinn íþróttamaður ársins í árlegri kosningu/ sem fram fer á vegum samtaka íþróttafréttamanna. Skúli hlaut 67 stig af 70 mögulegum og fékk 18 stigum meira en næsti maöur, óskar Jakobsson, frjálsíþróttamaður. Aö ööru leyti var röö efstu manna þessi: 1. Skúli Óskarsson, lyftingamaöur 67 stig 2. öskar Jakobsson, frjálsiþróttamaöur 49 stig 3. Hreinn Halldórsson, frjálsiþróttamaöur 47 stig 4. Jón Diöriksson, frjálsiþróttamaöur 37 stig 5. Siguröur Jónsson, skiöamaöur 35 stig 6. Pétur Pétursson, knattspyrnumaöur 25stig 7—8. Jón Sigurösson, körfuknattieiksmaöur 22stig 7—8. Karl Þóröarson, knattspyrnumaöur 22stig 9. Vilmundur Vilhjálmsson, frjálsfþróttam. 21 stig 10—11. Gústaf Agnarsson, lyftingamaöur ' lOstig 10—11. Þórunn Alfreösdóttir, sundmaöur 10 stig Aðrir iþróttamenn sem hlutu stig voru: Ragnar Ólafsson (golf) og Þorsteinn Bjarnason (knatt- sp.) 7 stig, Bjarni Friöriksson (júdð) 6 stig, Þorbjörn Guömundsson (handknattl.) 4 stig, Arni Indriöason (handknatt- 1.) 3 stig, Siguröur T. Sigurösson (fimleikar) og Axel Axelsson (handknattl.) 2 stig. Þeir, sem hlutu 1 stig voru: Asgeir Sigur- vinsson (knattsp.), Gunnar Einarsson (markv. i handknatt- 1.), Hugi Haröarson (sund) og Siguröur Haraldsson (knattsp. og badminton). I hófinu þegar verölaunin voru veitt sagöi Bjarni Felixson, formaöur Samtaka iþróttafrétta- manna m.a.: „A slöustu árum hefur oröiö sama þróun hérlendis og viöast hvar annars staöar i heiminum. Iþróttahreyfingin lætur meira og meira aö sér kveöa i þjóöHfinu og virkum þátttakendum hefur fjölgaö aö sama skapi.og þaö er óhætt aö fullyrða, aö þeim hefur fariö mjög fækkandi, sem láta sig Iþróttir engu skipta. Þvi er þaö, aö þeir Iþróttamenn, sem skara fram úr öörum, veröa þekktir i heimalandi sinu og sumir einnig viöa um heim. Æskan tekur sér þetta afreksfólk til fyrirmyndar og hefur þaö aö leiöarljósi 1 likamsrækt og heilbrigöum leik. Og alþýöa manna fylgist vel meö og gerir miklar kröfur. Viö Islendingar höfum allt frá þvi, aö land byggöist haft dálæti á afreksmönnum, sem ekki hafa látiö sinn hlut fyrir öörum hvorki innaniands né utan, og svo mun enn vera á meöan viö hiröum um aö vernda sjálfstæöi okkar og þjóöarstolt. Viö Islendingar höfum hins vegar ekki boriö gæfu til aö sýna þaö I verki, aö viö metum gildi iþróttanna og þaö mikla og fórnfúsa starf, sem unniö er innan Iþróttahreyfingarinnar. I þessum efnum eru flestar þjóöir i Noröurálfu okkur fremri. A sumum sviöum höfum viö gert sæmilega, en á öörum miöur. Islensk iþróttahreyfing hefur ekki veriö kröfuhörö til þessa, en hún berst nú i bökkum viö aö halda áfram blómlegu starfi. Mestur hluti starfs íþrótta- hreyfingarinnar er unninn i sjálf- boöavinnu og þeir eru margir, sem lagt hafa þar hönd á plóginn, iþróttamenn og forystumenn og leiöbeinendur Iþróttafélaga og iþróttasamtaka. Slikt starf veröur ekki metiö til f jár og verö- ur seint þakkaö. En þvi miöur hafa fjármálayfirvöld þessa lands ekki sýnt iþróttahreyfing- unni þann skilning, sem hún á skiliö, eins og berlega kom I ljós viö gerö fjárlaga þessa árs. Fjárhagsöröugleikar standa nú þegar starfi iþróttahreyfing- arinnar mjög fyrir þrifum og þaö er ljóst, aö þeir munu enn aukast á þessu ári, jafnvel svo, aö i óefni stefnir. Oft höfum viö heyrt þau orö forráöamanna þjóöarinnar aö efla beri iþróttastarfsemin^ i landinu til hagsbóta öllum almenningi, en litiö stoöa oröin góö, ef ekki er meira.” Aö lokum var komiö aö þvl, aö lýsa kjöri iþróttamanns ársins 1978 og viö gefum Bjarna oröiö á ný: „Og þá er þaö fyrsta sætiö i þessu kjöri. Iþróttamaöur ársins 1978 er Skúli Óskarsson, lyft- ingamaöur. Hann hlaut 67 stig af 70 mögulegum I þessu kjöri. Skúli er vel aö þessu sæmdarheiti kom- inn. Hann vann silfurverðlaun á heimsmeistaramótinu i kraftlyft- ingum I Finnlandi i haust og hann vann einnig silfurverölaun á Evrópumeistaramótinu á Englandi í vor.Skúlierþritugur aö aldri, fæddur og uppalinn á Fáskrúösfiröi, og hann hefur allt- af haldiö tryggö viö sinar æsku- stöövar og keppt undir merki Ungmenna- og Iþróttasambands Austurlands, þótt hann hafi um' langt skeið haft búsetu I Reykja- vik. Skúli hóf aö iöka lyftingar fyrir 10 árum og hann hefur tekiö stórstigum framförum á hverju ári siöan, enda hefur hann stundaö iþrótt sina af sérstakri alúö. Þaö veröur vart komiö tölu á öll þau Islandsmet, sem Skúli hefur sett á ferli sinum til þessa, og þau eiga áreiöanlega eftir aö veröa fleiri. Hins vegar er þaö vist aö hann hefur sett 15 Norðurlandamet. Sérgrein Skúla er kraftlyftingar, sem hann hefur framhald á bls. 14 „Svipuð tUfiimlng og þegar allt smellur saman í góðri lyftu” Eftir hófiö i gær á Hótel Loft- leiðum I gærdag náöu Iþrótta- fréttamenn aö króa af nýkrýnd- an tþróttamann ársins og leggja nokkrar spurningar fyrir kapp- ann: ----Þessi viöurkenning er mikill hvati fyrir mig og félaga mina, sem æfum lyftingar og verður Iþróttinni tvimælalaust til framdráttar. Ég haföi að visu gert mér vonir aö svona myndi fara, en tilfinningin er nánast ólýsanleg þegar maöur stendur -I þeim sporum aö vonin sé allt i einu oröin aö veruleika. — Næsta stórverkefni hjá mér er þátttaka I Evrópumeist- aramótinu I mars, og þar hef ég lofað aö setja heimsmet I hné- beygju (núv. met er 300 kg.). Takist þaö ekki þá veröur stefn- an sett á Norðúrlandamótiö. Keppinautarnir hafa eflaust bætt sig eitthvaö frá EM, en ef svo er skrúfar maöur bara frá varatankinum. Ég get veriö á toppnum i mörg ár í viöbót, t.a.m. þekki ég einn sem er um fimmtugt og lyftir af krafti ennþá. Þiö getiö „Keppinautarnir hafa eflaust bætt sig eitthvaö, en ef svo er skrúfar maöur bara frá varatankinum,” sagöi Skúii hinn reifasti. veriö vissir um þaö, iþrótta- fréttamennirnir, aö ég skal sjá til þess, aö þiö veröiö ekki at- vinnulausir á næstunni. IngH

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.