Þjóðviljinn - 13.02.1979, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 13. febrúar 1979
Svart á hvítu
tímaritió sívinsæla lifir og dafnar
Síðasta tölublað stefnir í metútbreiðs'u
Þar má meðal annars lesa um:
• Hrakfarir Höxa sem Þórarinn Eldjárn hefur fært
í letur.
• Nánari fréttir af ævintýrum Walters Benjamín.
• Dario Fo og Alþýðuleikhúsið sem trylla lands-
menn um þessar mundir af sviði Lindarbæjar.
• Hálfbilaðir nýlistarmenn bregðá á leik.
• Ljóðskáld hérlend og erlend slíta úr sér
hjörtun.
• Megas fílósóferar um ástina, og áfram mætti
lengi telja.
Fyrsta tölublað ’79 er í undirbúningi, en þar mun
kenna margra óþverragrasa á rúmbotninum.
Gefum ritskoðunar- og afturhaldssinnum landsins
langt nef með því að stórefla tímaritið.
Það fæst í bókaverslunum og hjá götusölum.
Áskriftarsími 15442. Einnig geta menn gerst
áskrifendur í höfuðstöðvum blaðsins, Gallerí Suð-
urgötu 7, er sýningar standa yfir.
Rannsóknarmaður
í efnafræði
Rannsóknarmaður óskast til starfa við
efnafræðistofu Raunvisindastofnunar
Háskólans.
Æskileg menntun: BS próf i efnafræði eða
hliðstæð menntun. Laun samkv. launa-
kerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir.ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist fram-
kvæmdastjóra Raunvisindastofnunar
Háskólans Dunhaga 3, fyrir 15. febrúar
n.k.
Sjálfsbjörg
landssamband fatlaðra,auglýsir
eftir umsókn um dagvistun
Ákveðið er að hefja starfrækslu dagvist-
unar i Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12, fyrir
mikið fatlað fólk á aldrinum 16-66 ára, um
næstu mánaðamót.
Dagvistunin verður starfrækt virka daga
mánudaga til föstudaga kl. 9-17.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu
Sjálfsbjargar, Landssambands fatlaðra
Hátúni 12, á venjulegum skrifstofutima.
Nánari upplýsingar i sima 29133 milli kl.
13 og 15.
Umsóknir þurfa að berast sem fyrst.
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra
Skrifstofumaður
Orkustofnun óskar að ráða skrifstofu-
mann, aðallega til vélritunarstarfa.
Umsóknir sendist til Orkustofnunar
Laugavegi 116 Rvk. fyrir 20. febr. n.k. og
skal fylgja þeim upplýsingar um aldur
menntun og fyrri störf.
IRAN:
Bazargan orðinn
forsætísráðheira
Baktiar lifandi en fer huldu höfði
TEHERAN, 12/2 (Reuter) — A
föstudag rébust hermenn á
bækistöövar flughersins til aö
handtaka þar stuöningsmenn
Khomeinis. Þá blossuöu upp
blóöugir bardagar sem stóöu i
tvo sólarhringa þar til and-
stæöingar keisarans náöu völd-
um i landinu. Baktiar forsætis-
ráöherra yfirgaf skrifstofu sina
á sunnudag en Bazargan er nú
sestur i hans stól.
Útvarpiö i Iran, en þaö kallast
nú Rödd byltingarinnar til-
kynnti f gær aö Baktiar heföi
sagt af sér, en stuöningsmenn
hans hafa ekki enn staöfest þaö.
Sögusagnir voru um aö Baktiar
heföi framiö sjálfsmorö en einn
samstarfsmanna hans bar þær
sögur á bak aftur i dag. Sagöist
hann hafa talaö viö hann i síma.
Væri hann heill á húfi og frjáls
feröa sinna. Ekki var þess þó
getiö hvar hann héldi sig.
Þegar bardagar voru I al-
gleymingi á sunnudag lýsti her-
inn yfir hlutleysi sinu i pólitísk-
um átökum. Margir hermenn
úthlutuöu vopnum til óbreyttra
borgara. Herbúöir voru her-
teknar, siöan lögreglustöövar,
útvarp og sjónvarp. Menn her-
tóku einnig höll keisarans.
Á þremur dögum tókst aö
sigra jafnvel best þjálfuöu her-
sveitir keisarans. Læknar áætla
Mehdi Bazargan hinn nýi for-
sætisráöherra i tran.
aö 500 manns hafi látiö lifiö og
2000 særst um helgina. I dag var
rólegt i Teheran. Götutálmanir
voru hvarvetna og var þeirra
gætt af vopnuöum borgurum
sem kannski komust fyrst i
snertingu viö vopn á aöfaranótt
laugardagsins. Landamæri ír-
ans eru lokuö svo og flugvellir.
Iranskir diplómatar vföa um
heim hafa afneitaö keisaranum
og viöurkennt hin nýju stiórn-
völd. Viöa fóru iranskir náms-
menn i sendiráö sin og fjar-
lægöu myndir af keisararafjöl-
skyldunni og settu aörar af
Khomeini i staöinn. Annars
staöar sá starfsfólk sendiráöa
sjálft um þetta verk. I Róm,
Ankara, Nýju Delhi og Manila
hertóku iranskir námsmenn
sendiráö lands sins. Starfsmenn
sendiráöa i eftirtöldum borgum
hafa lýst yfir stuöningi sinum
viö Bazargan forsætisráöherra
hins nýja rikis: Washington,
London, Vfn, Bonn, Stokkhólmi,
Varsjá, Bern og Khartoum.
Rikisstjórnir I Pakistan og
Libýu hafa viöurkennt hin nýju
stjórnvöld. Sýrlendingar og
PLO hafa sent heillaóskir.
Múhameöstrúarmenn I Beirút
gengu fagnandi um götur
borgarinnar eftir að fréttirnar
frá Iran bárust. Tveir iranskir
diplómatar I Peking hengdu upp
veggspjöld gegn keisaranum og
mynd af honum þar sem CIA
stóö skrifaö á enni hans.
Carter Bandarikjaforseti
sagöist vonast til aö góö sambúö
myndi rlkja milli írans og
Bandarikjanna framvegis sem
hingaö til. Hann heföi ekki i
hyggju aö blanda sér I innan-
rikismál Irans og vonaöist hann
til aö önnur riki myndu heldur
ekki gera þaö.
Uppreisn
í Tsjad
NDJAMENA, Tsjad,
12/2 (Reuter) — Her-
menn Felix Malloum
forseta börðust I dag
við skæruliða sem
styðja Hissene Habre
forsætisráöherra. —
Stjórnarhermenn hafa
varpað sprengjum á
skæruliða í dag.
Valdabaráttan sem átt
hefur sér staö milli forseta
og forsætisráöherra á siö-
asta ári, þegar honum var
vikiö úr forystu skæruliöa-
hreyfingarinnar. Upp-
reisnarmenn höföu náö valdi
á útvarpshúsinu en talið er
aö þeir séu nú á undanhaldi.
Nýnasist-
ar hand-
teknir í
V-Þýska-
landi
HANNOVER, 12/2 (Retuer)
— 24 nýnasistar voru hand-
teknir I Hannover um helg-
ina. Helmingur þeirra var
handtekinn á krá einni, þar
sem lögregluþjónn hand-
leggsbrotnaöi I átökum.
Fólkiö var klætt aö siö nas-
ista. Húsieit var gerö á
heimilum þeirra, og fundust
þá myndir af „Foringjan-
um” og ýmiss konar bók-
menntir i anda hans.
Kleine lögregluforingi I
Hannover sagöi nýnasista
hafa veriö mjög athafna-
sama aö undanförnu, en
þeim var bannaö aö fara i
tvær mótmælagöngur fyrir
tiu dögum.
Flugvél ferst
í Ródesíu
SALISBURY, 12/2 (Reut-
er) — Viscount-f lugvél frá
Air Rhodesia fórst í dag,
með 54 farþegum og áhöf n.
Vélin var á sömu leið og sú
sem skæruliðar skutu niður
3. september í haust.
Ekki hafa enn fengist
nánari fregnir um orsök
flugslyssins. Flugstjórnar-
menn segja að f lugstjórinn
hafi tilkynnt smávand-
ræði, en síðan hefði sam-
bandið rofnað. Ekkert
bendir til þess að nokkur
hafi komist lífs af.
Mikil flóð
í Portúgal
LISSABON, 12/2 (Reuter) — Um
2000 manns hafa þurft aö flýja
heimili sin I Portúgal vegna flóöa.
Eru þetta verstu flóö sem þar
hafa oröiö I 40 ár.
Samgöngur hafa rofnað og er
óttast aö þrjár manneskjur hafi
drukknaö.
Simastarfsmenn I Lissabon og
Oporto eru nú I verkfalli og neita
aö hverfa aftur til vinnu. Segja
þeir aö yfirvöld vilji notfæra sér
veöurfariö til aö æsa fólk upp á
móti verkfallsmönnum.
Námsmenn í V-Þýskalandi:
AK Bhutto verði
látinn laus
BONN, 12/2 (Reuter) — Uþb.
fimmtlu pakistanskir námsmenn
hvaöanæva úr V-Þýskalandi
komu saman fyrir framan sendi-
ráö lands sins f Bonn i dag, til aö
krefjast þess aö Ali Bhutto veröi
látinn laus úr fangelsi, þar sem
hann biöur nú dauöarefsingar.
Þeir kröföust þess aö einræöi
hersins tæki enda, ritfrelsi yröi
komiö á og allir pólitiskir fangar
yröu látnir lausir. Fundurinn fór
friösamlega fram.