Þjóðviljinn - 13.02.1979, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 13.02.1979, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 13. febrúar 1979 j Stefnuleysi og stöðnun | er orsökin fyrir lítilli tónlistarhlustun í útvarpinu i ■ I ■ i ■ I ■ I m I ■ I ■ I ■ I ■ i ■ I ■ I ■ I j i ■ I ■ i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I Eins og áður hefur verið skýrt frá i Þjóðviijanum, hefur hlust- unarkönnun sii, er gerð var fyrir útvarpið, vakið athygli og eink- um fyrir tvennt.t fyrsta lagi hve litið er hlustað á útvarp á út- sendingartima sjónvarpsins og I öðru lagi hve sáralitil hiustun er á hina svokölluðu klassísku tón- list eða þunga tónlist, eins og hún er nefnd i könnuninni. Nokkrir aðilar hafa þegar látið skoðun sina i ijós á þessu máli en okkur langaðitil aðheyra álit isiensks tónskálds og leituðum þvitil Atla Heimis Sveinssonar. Óunnið efni Mig langar þá til að byrja á þvf að spyrja: Hvað er þessi skýrsla marktæk? Allir eru sammála um að hún nái ekki yfir stórt úrtak og gefi þvi ekki visindalega niðurstöðu, en samt gefur hún ákveðnar visbending- ar. Og ég verð að segja eins og er, að niðurstaðan kemur mér ekki mjög á óvart. Og ástæðan fyrir þvi er sú, að þetta efni er ekki réttframreitt, það er ósköp einfalt mál. Prógramstefna iút- varpinu er ekki til. Menn gera sér ekki grein fyrir hvernig þessi miðill virkar. Ég er i sjálfu sér undrandi á þvi að Beethoven skuli hafa lifað þetta af hér á landi. Tökum dæmi. Miðdegistón- leikar útvarpsins: Þú sest niður til að hlusta og hvað færðu? Næst verður fluttur konsert fyr- ir hljómsveit eftir Wilhelm Cristobald Gluck, 1. þáttur alegro moderato, 2. þáttur adagio, 3. þáttur finale presto. Og svo drynur einhver músik i eyrum, ekkertmeira. Þarna eru bæði timasetningin, miður dagur, og framreiðslan röng. — Nú virðist nokkuð sama hvenær klassisk tónlist er flutt, alltaf er jafn litið hlustað, sam- kvæmt þessari umræddu könn- un. Hvað er klassík og hvað ekki? Þaöer rétt, en einsog ég sagði áðan þá er ffamreiðslan röng hjá útvarpinu. Það er alveg sama hvaö þú hefur gott hráefni til matargerðar, ef rangt er far- ið verður maturinn vondur. En mig langar aðeins til að ræða hvað er klassik og hvað ekki. I svona könnun kemur slikt ákaf- lega kjánalega út. Mér hafa alltaf þóttþauhugtök vond, sem notuðeruhérá landi yfir tónlist. Menn tala um æöri tónlist, sem er hryllilega vont orð, þvi að i þvi liggur að til sé önnur tónlist sem er óæðri. Slikt er fásinna. Eins er talað um létta tónlist og iþvf liggur aö til sé þung tónlist. Þetta er einnig fjarstæða. Svo tala menn um klassiska tónlist ogsigilda tónlist. Þetta eru vill- andihugtök, þar sem mannanna verk eru ekki sigild, þau eru for- gengileg. Að visu eru verk mannanna misjafnlega fór- gengileg. Auðvitað er krafta- verk, að verk eftir mann, sem fæddist I Bonn en bjó alla sina ævi i Vinarborg, skuli höfða til manna i dag. Ég er á móti þessum hugtök- um, af þvi að gengið er út frá röngum forsendum. Ég tala ailtaf um tónlist eitt og tónlist tvö. — Við hvað áttu þá? Tónlist eitt er tónlist sem höfðar til tiltölulega margra, svona um 80%, en tónlist tvö tel ég þá tónlist sem höfðar til færra fólks, svonaum 20%. Með þessu móti er maður ekki með dóma um hvað sé betra og hvað verra, heldur bara: að tónlist er ekki öll eins, oghún hefur mis- munandi hlutverki að gegna. Erfitt að flokka tónlist Það er ákaflega erfitt að flokka tónlist niður. Þaö sem ég tel falla undir tónlist eitt er sú tónlist sem hefur þaö hlutverk að koma þér i góða stemmingu láta þér iiöa vel. Hún krefst ekki of mikils af fólki. Hún kannski vekur einhverjar endurminn- ingar, hún er einföld að gerð, yfirleitt er um að ræða endur- teknar hendingar. Þú getur trallað hana, blistrað hana og sönglað hana. Eitt lag situr i mönnum, þar til annað nýtt tek- ur við. Tónlist tvö aftur á móti gerir aðrar kröfur. Hún krefst ein- beitingar, ákveðinnar sögulegr- ar þekkingar, um samanburð á tima, samanburðá öðrum verk- um höfundar og samanburð á flutningi. Hún er samt ekkert betri fyrir það, hún er bara öðruvisi. Lausnin á vandamál- unum erekki að tosa alla yfir i Rætt við Atla Heimi Sveins- son tónskáld tónlist tvö, heldur að gera öllum til hæfis. — Hvaöa tónlist flokkar þú i tónlist tvö? Það er erfitt aö gera grein fyrir þvi. Djass getur ver- ið i flokki eitt oghann getur lika verið i flokki tvö. Sama gildir um popptónlist. Það er til þróað popp og tilraunapopp. Sú tónlist krefet hlustunar og einbeiting- ar. En eins og ég sagði áðan er ákaflega erfitt aö flokka tónlist og segja þetta er i flokki eitt og þetta i tvö. Margt eftir hina svo nefndu gömlu meistara fiokkast hiklaustundir tónlist eitt, svo að mörkin eru ákaflega fljótandi. titvarpið tæknilega á eftir heimilunum — Þú bentir áöan á nauðsyn þess að vinna tónlistarþættina betur. Samt er þáttur inni þess- ari könnun, sem er unninn og ekki á tfma sjónvarpsins, en fær þó ekki nema 0.9% hlustun. Hver er skýringin? Ég get auðvitaö ekki skýrt hversvegna íólk hlustar frekar á þetta en hitt. En ég vil þó taka undir með Ólafi Einarssyni for- manni útvarpsráös þegar hann bendir á að útvarpið er tækni- lega séð orðið á eftir venjulegu heimili. Sendingarkerfið er lé- legt, það hefur verið vanrækt. Hér er ekki stereó útvarp, en stereótæki eru nú orðiö til á hverju heimili svo að segja. Þeir sem hlusta á tónlist tvö vilja yfirleitt meiri tæknileg gæöi ogég er ekki i vafa um aö hin lélega útsendingartækni út- varpsins kemur meira niður á hlustun á þessatónlist en á hina sem ég nefni tónlist eitt. Blönduð tónlist á heimilunum Ég er óþolandi gestur á heim- ilum vina og kunningja vegna þess aö ég hef þá áráttu að skoða i bóka- og plötuskápa fólks þar sem ég kem. Ég hef tekiðeftir þvi að plötueign fólks er orðin almennt mikil. Það á hljómplötur uppi einn til tvo metra i plötuskápum. Ég hef einnig tekið eftir þvi, að þar er nánast alltaf um að ræða mjög svo breytilegt efni: barnaplöt- ur, dægurlagaplötur, popp, djass, Mozart, óperur og fleira. Ég hygg að enginn hlusti bara á tónlist eitt eða bara á tónlist tvö. Þettá blandast ailt. ÞaO er með tónlist eins og bók- menntir. Stundum vill maður lesa reyfara, á öðrum stundum bækur eftirHalldór Laxness eða ísiendingasögur. Enginn les bara eina tegund bókmennta. Það sem ég á við er þetta: Ef fólk á bara von á tónlist eitt i ákveðnum tóniistarþáttum, þá er þátturinn ekki lengur spenn- andiogfólkhlustar ekki. Ef aft- ur á móti fólk getur átt von á blandaðri tónlist, alls konar tón- list i einum þætti, þá hlustar það. Þaðer m.a. þetta sem ég á viöum ranga framreiðslu á tón- list I útvarpinu. (Jtvarpið og plötuskápurinn Ég minntist áðan á plötu- skápa almennings. Hvernig á útvarp að bregðast við þeim? Útvarp verður að leika þá tón- list sem fólk vill hlusta á, en þar sem útvarp á margfalt stærra plötusafn en nokkurtheimili, þá hefur það að auki möguleika á að útvikka plötuskáp almenn- ings. Getur vakið forvitni. Þar á ég við að leika alla tegund af tónlist i vel unnum tónlistar- þáttum, blönduðum. Af þessu er mjög litið gert ef nokkuð i is- lenska útvarpinu. Sá möguleiki sem einnig er litið nýttur af útvarpinu er að fá það nýjasta i tónlist frá sínum systurstöðvum um allan heim. Þar á £g við það nýjasta i allri tegund af tónlist. Hér höfum við breskt og bandariskt popp. Það er samin frábær popptónlist I flestum öðrum löndum. Heyrum við þá tónlist i útvarpinu? Nei. Ég held þvi fram, að það sé til- tölulega litill vandi, ef tóniist- arþættir eru vel unnir I útvarp- inu að ná til miklu fleiri hlust- enda en nú er, samkvæmt þess- ari könnun. En það þarf að leggjavinnú i þættina, það ligg- ur alveg ljóst fyrir. Og við eig- um fullt af hæfu fólki til að búa til slika þætti. Allir eiga sinn rétt Nú tala margir um að auka eigi flutning á þeirri tónlist sem mest er hlustað á. Þetta tel ég vera rangt að vissu marki. Ég tel það fullkomið lýðræði aö allir fáieitthvað við sitt hæfi. Ef ekki væri útvarpað annarri tónlist en þeirri, sem hefur yfir 20% hlust- un, þá gætum við alveg eins breytt öllum tói!:starflutningi útvarpsins I einn allsherjar óskalagaþátt. Ég tel þvi að þessi hlustunar- könnun, sem nú liggur fyrir, geti orðið þeim er þessum mál- um ráöa hjá útvarpinu góð lexia. Þeir geta séö á henni hvaða villur þeir hafa gert og leiðrétt þær og bætt um. Nú er opinn sá möguleiki að láta af þeirrifirru aö flokka tónlist eins og gert hefur verið i Utvarpinu. Þar hafa tónlistarþættir alla tið verið þannig: Þetta er synfónisk tónlist, þetta er djasstónlist, þetta er popptónlist, þetta er óperutónlist og ekkert annað. Þannig er þetta, plötur teknar af handahófi og látnar rúlla á fóni. Meiri sambiöndun, meiri vinnsla á þáttunum: möguleik- amir eru ótæmandi. Vilhjálmur Þ. fyrrum útvarpsstjóri oröaði það held ég allra manna best hvernig útvarp á að vera: það skal vera fræðandi og skemmt- andi. En þaö sem hefur gerst hjá útvarpinu er: stefnuleysi, hugmyndaleysi og menn hafa staðnað. _S.dór Starfsfóik og eigandi tfmaritsins Frjálsrar verslunar. Tímaritíð Fijáls verslun 40 ára Frjáls verslun er fjörutiu ára á þessu ári. Blaðiö kom út i fyrsta sinn i janúar 1939 og var þá mál- gagn Verslunarmannafélags Reykjavikur, en i þvi voru þá bæði launþegar og atvinnuveit- endur. Einar Asmundsson var fyrsti ritstjóri Frjálsrar verslun- ar. Ariö 1967 tók Jóhann Briem og fyrirtæki hans, Frjálst framtak h.f., við útgáfu Frjálsrar verslun- ar og hefur fyrirtækið gefið biaðiö út fram til þessa dags. Frá þess- um timamótum hefur Frjáls verslun tekið miklum stakka- skiptum. Blaðið fjallar um við- skipti og athafnalíf á Islandi og erlendis, birtir greinar um stjórn- un og f jallar um viðskiptalönd Is- lendinga. Þá segir Fr jáls verslun frá starfi fyrirtækja og stjórn- enda og greinir frá efnahag, stjórnmálum og fleiri þáttum þjóðlifsins. Núverandi ritstjóri Frjálsrar verslunar er Markús Orn Antons- son og framkvæmdastjóri er Pét- ur J. Eirlksson. Norræn sálfræöingarádstefna Dagana 7—12. mal n.k. gengst Sálfræðingafélag Islands fyrir samnorrænni ráðstefnu sálfræðinga í Reykjavík, og verður hún haldin á Hótel Loftleiðum. Titill ráðstefnunnar er „BARNIÐ 1979". Ráðstefna þessi er hin tólfta sem norrænir sálfræðingar halda, en sú fyrsta sem haldin er á Is- landi. Sigurður Ragnarsson, for- maður Sálfræðingafélags Islands og Guöfinna Eydal sálfræðingur eiga sæti i undirbúningsnefnd ráðstefnunnar, og boðuðu þau til blaöamannafundar nú I vikunni. Hver ráðstefnudagur er tileink- aöur ákveðnu efni, og hafa sál- fræðingarnir skipt undirbúning- inum þannig með sér, að hvert land sér um að skipuleggja dag- skrá I einn dag. Þannig sjá is- lensku sálfræöingarnir um skipu- lag fyrsta dagsins, en þá verður fjallað um Barnið I samfélaginu. Finnar hafa undirbúiö næsta dag, sem helgaöur verður efninu Barnið I fjölskyldunni, og siðan koma Danir með Barnið i skóla og stofnunum samfélagsins, Sviar sjá um Barn með sérþarfir, ög Norömenn annast dagskrána Ungabarnið, siðasta daginn. A blaöamannafundinum kom fram að ekkert sálfræðingafélag er í tilefni barnaársins starfandi i Færeyjum og þvi verður enginn færeyskur dagur. Búist er við að 2—300 sál- fræðingar sæki ráöstefnuna, og varður alltað helmingur þeirra Sviar, enda er sænska sál- fræðingafélagið jafnstórt öllum hinum samanlögöum. Færustu sálfræðingar Noröurlanda munu taka þátt i ráðstefnunni, og auk áðurnefndrar dagskrár verður sérstakt námskeiö alla vikuna I meðferð á börnum og fjölskyld- um. Námskeiðið er ætlað þátttak- endum ráðstefnunnar, en ýmsum skyldum fagfélögum hérlendis hefur verið boðin þátttaka, og einnig verður f jölmiðlum boðið að fylgjast með. Eitt meginmarkmið ráð- stefnunnar verður að koma þvi á framfæri sem sálfræðingar hafa að segja um þessi mál, og veröa niöurstööur ráðstefnunnar sendar rikisstjórnum Norðurlandanna og Sameinuðu þjóðunum. Þá verður fulltrúum barnaársnefnda á Norðurlöndum boðin þátttaka, einum frá hverju landi. Islenskir fyrirlesarar á ráð- stefnunni verða Sigurjón Björns- son, sem mun kynna þá umfangs- miklu rannsókn sem hann hefur ásamt fleirum unniö að nú um langt skeið og f jallar um aðstöðu barna i islensku þjóöfélagi á grundvelli stéttamismunar, Helga Hannesdóttir geðlæknir, sem segir frá rannsókn sem hún vinnur nú aö á kjörum sjómanna- barna, og loks munu þeir Sigur jón Björnsson, Haraldur Ólafsson og Þórólfur Þórlindsson segja frá rannsóknum á afbrotum unglinga. A blaðamannafundinum kom einnig fram, að norrænir sál- fræðingar gera sér að sjálfsögðu grein fyrir þvi að kjör barna I ýmsum löndum heims eru miklu verri en kjör barna á Norðurlönd- um. En þeir verða líka vitni að þvi, að fjölskyldan og börn I há- þróuðu tæknisamféiagi lifa undir miklu álagi og hafa oröið að borga velferðina háu verði. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að bæöi hér á landi og á hinum Noröúrlöndunum á alltað fjórðungur barna viö sálræn vandamál að striða. Ráðstefnaan hefur þvi I hyggju að varpa ljósi á, hvaða aðstæður það eru i sam- félaginu sem skapa vandamál hjá börnum. Einnig mun veröa lögð áhersla á hvaða breytingar eru nauðsynlegar til að bæta lifskjör barna. ih

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.