Þjóðviljinn - 13.02.1979, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 13. febrúar 1979
Umsjón: Magnús H. GíjMason
Rjúpan í hættu
tbúar vesturkjálka Bárðardals,
sunnan Eyjadalsár, náðu sam-
stöðu um að leyfa ekki rjúpna-
veiðar hér á og i fjallinu i haust og
var það einu ári of seint, að þvi er
Jón Aðalsteinn i Hliðskógum
hermir Norðuriandi.
Rjúpunni hér hefur algerlega
verið útrýmt, segir Jón Aöal-
steinn, — svo óliklegt er að veiði-
bann i eitt ár dugi til. Akvörðun
um það hvað beri að gera næsta
haust verður að biða þar til séð
verður. Ljóst er, að það ástand,
sem komið var haustið 1977, má
aldrei koma aftur.
Agangur rjúpnaveiöimanna
var slikur, að þeir hlutu að kalla
yfir sig aðgerðir af okkar hálfu.
Þrátt fyrir að Arnþór Garðars-
son, fuglafræðingur, telji sveita-
fólk ekki meðal þeirra, er vit hafi
á stærð rjúpnastofns, þá viljum
við ekki fallast á þaö. Við teljum
okkur fullvel v'ita, aö rjúpar. er
horfin héðan nú. Að takmarka-
laus veiði undanfarinná ára eigi
engan þátt þar i eru visindi, sem
við getum einfaldlega ekki fallist
á.
Hvort og hvenær við leyfum
veiðifólki aftur að stunda veiöar
vil ég ekki segja um. Framkoma
veiðimanna skiptir þar miklu
máli. Liklegt þykir mér, að ein-
hverjar takmarkanir verði fyrir
valinu, t.d. um skotafjölda hvers
veiðimanns.
Sjáum viö ekki annaö fært en
taka á þessu máli af fullri ábyrgð,
þar sem aðrir koma ekki til. Ef
illa fer fyrir rjúpnastofninum
verður okkur bændumm kennt
um. Hins vegar er ekkert eftir-
sóknarvert að rjúpnastofninn
veröi of stór. Veiðimenn mega
skilja, að hér eru þeirra hags-
munir i veði. Jón Aöalsteinn.
Ab. ú Akureyri
Fjörugur fundur
Alþýðubandalagið á Akureyri
hélt fjörugan fund þann 18. fyrra
mánaðar. Efni fundarins átti að
vera: Hvað stendur fyrir dyruin i
efnahagsmálum? Stefán Jónsson,
alþingismaður, hafði framsögu.*
Rakti Stefán tillögur krata i
efnahagsmálum og fór háöuleg-
um orðum um þá þingkrata. Þá
gerði Stefán grein fyrir tillögum
Alþýðubandalagsins. Var geröur
góður rómur að máli Stefáns og
umræður voru liflegar lengi
kvölds.
Þá tók nú steininn úr er félagi
Böðvar Guðmundsson lagði firam
ályktunartillögu um Alþýðu-
bandalagið og stjórnarþátttökuna
i ljósi hersetunnar. Tillagan
hljóðar svo:
„Fundur I Alþýðubandalaginu
á Akureyri 18. jan. 1979 ályktar
eftirfarandi:
Að aðgerðaleysi núverandi rik-
isstjórnar varðandi setu banda-
risks hers á Islandi og þátttöku
þess i NATO hafi gefið hermöng-
urum og braskaralýö ráörúm til
frekari umsvifa. Fundurinn telur
það með öllu óhæft að sóaialiskur
flokkur taki þáttirikisstjórn, sem
hyggst leysa efnahagsvanda und-
ir handarjaðri NATO. Það eru þvi
eindregin tilmæli fundarins til
þingmanna og framkvæmda-
stjórnar Alþýðubandalagsins að
stjórnarsamstarfi við Alþýðu-
flokk og Framsóknarflokk verði
hætt án tafar ef ekki kemur til
veruleg stefnubreyting þessara
flokka varðandi setu bandarisks
hers á Islandi og þátttöku þess i
NATO.”
Upphófustnú heitar umræður ,
sem fóru fram i flokkslegu bróð-
erni. Eftir nokkurt þóf ákvaö
fundurinn aö skora á stjórn fé-
lagsins að efna til sérstaks fundar
um þessa tillögu og verður hann
haldinn innan mánaöar. Er þess
aö vænta að félagar láti þetta
stórmál sósialiskrar hreyfingar
sig varða og komi á fundinn.
Heim.: Noröurland .
— mhg
Kópasker. Nokkuö er um þaö aö hingaö flytji ungt fólk og setji hér saman bú.
hefur fólk
Hér
það gott
og virðist una sér vel
— Ef viö byrjum á þvl aö
vikja að tíöarfarinu þá má segja
að sumarveörátta hér hafi veriö
bændum hagstæö. Aö vlsu byrj-
aöi sláttur aðeins meö seinna
móti eöa um 20. júll en ég held,
aö þaö sé aö veröa nokkuð gegn-
um gangandi hér aö bændur
ijúki slætti svona á einum
mánuði þegar heyskapartiö er
skapleg.
Óhætt mun að segja, að
bændur eigi nú allgóðan forða af
vel verkuðu heyi. Það má
kannski koma fram, að almennt
er reiknað hér með 1,7 — 1,8 kg
af heyi I fóðureiningu.
Þannig sagðist Arna Sigurös-
syni i Hjarðarási við Kópasker
frá, er Landpóstur átti tal við
hann laust fyrir siðustu helgi.
— Er lokið er heyskap, ja
kannski svona um 20. ágúst, þá
kemur þarna góður timi fram
að göngum og sláturtið, sem
bændur nota gjarnan til þess að
lagfæra ýmislegt, mála hús sln
og laga til og snyrta á annan
hátt. Sýnist mér mun meira af
þvi gert nú en áður var.
Vetrarveðrátta
og samgöngur
Veturinn hefur verið dálítið
misviðrasamur, góðviðri á
köflum en nokkuð harðir kaflar
komið á milli. Annars hefur
snjór verið frekar lltill og sam-
göngur meö nokkuð eðlilegum
hætti. Vegir eru orðnir það
mikið uppbyggöir að þetta eru
ekki nema smápartar, sem
verða ófærir, en þá finnst
manni bara að það beri mikiö
meira á þessum köflum, sem
verða ófærir, þegar megin hluti
veganna er fær. Okkur finnst nú
að við ættum að fá þessa ófæru-
kafla mokaða einu sinni I viku.
Hér er alveg sérstaklega um að
ræða veginn frá Blikalóni og
austur að Raufarhöfn. Þaö er sá
kafli hér innan sýslunnar, sem
teppist núna,og það er tilfinnan-
legt fyrir þá hér austurundan,
Þórshöfn og á Vopnafirði, t.d.
Við höfum flugvöll hér á
Kópaskeri og Norðurflug flýgur
hingað þrisvar I viku. Flugbraut
er bara ein en áætlanir eru um
að gera þverbraut og svo vantar
lýsingu á völlinn og flugskýli.
Framkvæmdir
í héraöi
Framkvæmdir i héraðinu
hafa verið þó nokkrar. A Kópa-
skeri eru i byggingu 9 Ibúðarhús
og i sumar var byrjað á nýju
barnaskólahúsi. Til sveita hefur
ekki mikið verið um ibúðar-
húsabyggingar en I sumar var
þó byrjað á fjórum húsum I,
sveitunum hér I kring.
Útihúsabyggingar eru alltaf
þó nokkrar hjá bændum en þó er
þar fyrst og fremst um að ræða
nauðsynlegt viðhald á eldri
húsum. Uppbygging I sveit-
unum er mjög eðlileg og jöfn.
Þetta er nú fyrst og tremst
landbúnaöarhéraö og atvinna
fólks og afkoma byggist á fram-
leiðslu sveitanna. 1 haust var
slátrað á Kópaskeri 32 þús. fjár
og í dag er Bæjarfoss hér stadd-
ur við bryggju að taka 100 tonn
af kjöti á Sviþjóðarmarkað.
Frá útgerðinni
Héðan frá Kópaskeri eru 6
bátar gerðir út á rækju i öxar-
Rætt viö
Árna
Sigurðsson,
Hjarðarási
N-Þing.
firöinum. Þvl miður hafa þær
veiðar ekki gengið eins vel og
undanfarið. Rækjan virðist vera
bæði blandaðri og smærri og
aflinn heldur minni, miðað við
togtima. Gæftir hafa einnig
verið I stopulla íagi. Bátarnir
hér hafa sloppið áfallalaust að
kalla við þessi áhlaupaveður,
sem gert hefur, en þó misstu
þeir eitthvað út af
rækjubölum. Það gerir gæfu-
muninn að þeir sigla hér aðeins
innfjarða og komast auðveld-
lega inn i höfnina en þurfa ekki
fyrir nein annes, eins og Húsa-
vikurbátarnir.
Bátarnir stunda handfæra-
veiðar á sumrin og svo hrogn-
kelsaveiöi. Afli á handfæri var
frekar rýr I sumar en virðist þó
vera að glæðast miðað við það
sem verið hefur undanfarin ár
og þakka menn það friðuninni.
Ennþá vantar
hafnargarðinn
1 gumar var byrjað hér að
undirbúa hafnarframkvæmdir
og höfum við fengið i hendur
áætlun um þær umbætur.
Hafnarmálaskrifstofan telur
hagkvæmt og frekar ódýrt að
gera hér góða höfn. Gildasti
þátturinn I þeirri framkvæmd
er æði mikill grjótgarður en þar
sem hægt er að leggja hann
eftir skerjagarði þá yrði hann
frekar ódýr og hagkvæmur
miöað við það gagn, sem hann
kæmi til með að gera.
Ætlunin var reyndar að þessi
garður yröi gerður i sumar en
hann hefur liklega orðið fyrir
barðinu á siðustu sparnaðar-
framkvæmdum rikisvaldsins aö
þessu sinni. En hann yröi mjög
mikilvægur sem hafnarbót fyrir
okkur og nauðsynlegt að fá hann
sem allra fyrst ekki sist ef
framhald á aö verða á út-
gerðinni hjá okkur.
Raf magnsmálin
Við erum ekki rétt vel settir
meö rafmagnsmálin. Það hefur
verið mjög sótt á um það að fá
rafmagn til upphitunar,
sérstakiega I nýbyggingar. En
svo er nú komið, að raflinan frá
Laxárvirkjun flytur ekki það
rafmagn, sem við þurfum á að
halda hér I sýslunni. Flutnings-
geta hennar er fullnýtt. Og leyfi
til rafhitunar i húsum var gefið
á þeirri forsendu, að gerðar
yröu endurbætur á linunni, hún
gerð þrifasa og spennan hækkuð
verulega. En nú virðist þeim
framkvæmdum hafa verið
frestað og þvi eru þeir hjá Rarik
komnir I háif slæma stöðu og við
hér einnig.
Heilbrigðisþjónusta
Hvað heilbrigðismálin
áhrærir þá situr þar við það
sama. Við sækjum læknis-
þjónustu til Húsavíkur að öðru
leyti en þvi, að hingað kemur
læknir einu sinni i viku.
Skipti urðu nú hér á hjúkr-
unarkonum. Við höfðum hér
ágæta hjúkrunarkonu, sem búin
var að vera hjá okkur I nokkur
ár,en svo fór hún burtu til frek-
ara náms en sem betur fór
vorum við svo heppin að fá aðra
prýðilega i staðinn.
Vantar félagsheimili
Hér er nokkurt félagslif.
Kiwanisklúbbur starfar hér
með miklum blóma, menn
koma saman til að spila bridds,
nokkuö er um Iþróttalif o.s.frv.
Hinsvegar erum við mjög illa
settir með alla aðstöðu til fé-
lagsmálastarfsemi þar sem
okkur vantar félagshei'mili.
Kaupfélagið hefur bjargað
þessu með þvi að lána mötu-
neytissal sláturhússins til
þorrablótshalda og annars
mannfagnaðar. Það er þvi eitt
af okkarbrýnustuverkefnum að
koma upp félagsheimili.
Fólki fjölgar
Fólki fjölgar hér nokkuð,
einkum á Kópaskeri, og reyndar
einnig I sveitunum, a.m.k. mun
þar ekki um fækkun að ræða.
Atvinnuástand verður aö teljast
sæmilegt. Hér á Kópaskeri er
töluveröur hópur fólks, sem
fengið hefur atvinnu við út-
gerðina og þá starfsemi, sem er
tengd henni. Sæblik h.f., sem
hefur með útgerðina að gera, er
nokkuð farið að nálgast kaup-
félagið sem atvinnurekandi. Og
sú gróska, sem hér á sér stað, er
ekki hvað sist því aö þakka, þvl
þetta er atvinna, sem
ekki var til áður. Nokkuð er um
það að hingað flytji ungt fólk og
setjihér saman bú og byggingar
risa I samræmi við það. Hins-
vegar er atvinnulifið of einhæft
og þyrfti að skjóta undir það
fleiri stoðum.
Við getum svo látið þessu
lokið nú með þvl að segja að fólk
hefur það hér gott og virðist una
sér vel.
Ég held við hættum okkur
ekki út I stjórnmálin núna en
mér finnst menn hafi áhuga á
þvi að vel takist til um þetta
stjórnarsamstarf, það er mikiö
undir þvi komið. ás/mhg