Þjóðviljinn - 22.02.1979, Síða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. febrúar 1979
Verkamenn í íran taka
ekkí upp vinnu
TEHERAN/ 21/2 (Reuter)
— Hreyfing marxista,
Fedayeen-a-Khalq/ hefur
nú ákveðið að fresta mót-
mælagöngu um einn dag,
en hana átti að fara í dag,
og þá að bækistöðvum
Khomeinis. Föstudagurinn
er m.a. betur fallinn til
slíkra fjöldafunda, því
hann er almennur frídagur
i iran rétt eins og sunnu-
dagur hjá okkur. Byrjað
verður á útifundi við
háskólann i Teheran til að
mótmæla stefnu hinna
nýju valdhafa, en
Fedayeen-e-Khalq átti
stóran þátt í að keisara-
veldinu var velt. En svo
gerðist það í gær að
Ný umferð
hafin í
Camp David
Washington 21/2 Reuter. í
dag hófst í Camp David ný
umferö i samningaviöleitni
milii israels og Egyptalands
og sóru aöilar aö gera sitt
besta til aö ná sem fyrst friö-
arsamningum.
Aður en fundurinn hófst
áttu þeir Vance utanrikis-
ráöherra Bandarikjanna,
Khail hinn égypski og Dajan
frá Israel óformlegan fund
saman. Gáfu þeir að honum
loknum út yfirlýsingu i þá
veru aö þeir myndu gera sitt
besta til að ná samkomu-
lagi.
Allir lita þeir svo á að hér
sé um að ræða framhald á
þeim samningum sem upp úr
slitnaði i desember og fari
þeir fram innan hins um-
deilda Camp David sam-
komulags frá þvi i haust.
Prentarar í
verkfall í
Frakklandi
Parfs, 21/2 (Reuter) —
Frönsku dagblööin Le
Figaro og L’Aurore komu
ekki út á miövikudag vegna
verkfalis prentara. Feila
þeir niöur vinnu i einn sólar-
hring tii aö mótmla áætlun
útgefandans Robert Hersant
um aö reka hundruö starfs-
fólks.
Siðdegisblaðiö France Soir
kom heldur ekki út af sömu
ástæöu.
Prentarar ásaka Hersant
blaðaeiganda um að ætla aö
sameina rkestur L’Auröre og
France Soir, með þeim af-
leiðingum að fjöldi manns
missi. vinnu sina.
Eldgos
á Jöfu
JAKARTA, 21/2 (Reuter) —
Óttast er að amk. 90 manns
hafi látið lifiö i dag þegar.
eldgos varö á Jövu. Erfitt
var aö anna björgunarstarfi
vegna lofteitrunar. Fólkið
fórst vegna hraunstreymis
og eitraöra loftskýja.
Khomeini klerkur for-
dæmdi vinstri menn opin-
berlega.
Amir Entezam varaforsætis-
ráðherra sagði i dag að rikis-
stjórnin myndi veita öllum
skoðanahópum svigrúm nema
þeir ógnuðu öryggi landsins.
Hann sagði við það tækifæri að
verkamenn væru ekki enn komnir
til vinnu á hinum stærri vinnu-
stöðum. Vinstri menn neituðu að
vinna nema þeir fengju fulltrúa i
stjórn fyrirtækja, en ef ekki yrði
horfið til vinnu biði landsins efna-
hagslegt hrun. Skattar hafa ekki
veriö borgaðir i marga mánuöi,
en nú sagði Entezam að þá yrði aö
borga.
„Hvi ætti fólk að borga, spurði
einn vinstri sinnaður maður, það
hefur borgað með baráttu sinni og
lifi.”
Yfirvöld létu i dag lausan úr
haldi bandariskan landgönguliða
sem særöist i árásinni á sendiráð
USA fyrir viku. Hann hefur verið
beðinn um að tala ekki við blaða-
menn.
Entezam varaforsætisráðherra
sagði I dag að iandgönguliðinn
yrði leiddur fyrir dómstól, en
hann sagði ekki hverjar
ákærurnar voru.
Hann var handtekinn að
skipan Khomeinis, þar sem hann
lá á sjúkrahúsi vegna meiöslanna
sem hann hlaut i árásinni.
Andreotti gefst upp
við myndun stjórnar
RÓM, 21/2 (Reuter) — Giulio
Andreotti forsætisráöherra á
ítalfu gafst upp i dag viö aö
mynda nýja rikisstjórn i landinu.
Talsmaöur Sandro Pertini forseta
sagöi i dag, aö forsetinn myndi
biöja Ugo la Maifa formann
Repúblikanaflokksins um aö
mynda stjórn. Minnihlatastjórn
kristilegra demókrata féll fyrir
þremur vikum.
Efast er um að La Malta muni
má meiri árangri en Andreotti, og
þykir liklegra að haldnar verði
kosningar i Iandinu. Kjörtimabil-
ið rennur þó ekki út fyrr en árið
1981.
Mannfall er allmikiö I Teheran á degi hverjum. Myndin er frá fjölda-
útför i grafreit einum þar I borg.
Nguyen Co Thach varautanrikisráðherra Víetnam:
Kínverjar undirbúa
aðra stórárás
BANGKOK, PEKING, 21/2
(Reuter) — Kínverjar
segjast ekki kalla heri sína
heim í bráö. Ekkert bendir
til þess að dregið hafi úr
átökum Kínverja og Viet-
nama. útvarpið í Hanoi
hefur eftir varautanríkis-
ráðherra Vietnam, Nguyen
Co Thach að Kínverjar búi
sig undir enn stærri árásir
en þær sem hófust á laug-
ardag.
Sagöi hann að þrjú herfylki
Kinverja hefði þá ráðist inn i
landið til að hernema héruðin
Lang Son, Cau Bang og Lao Kay.
Sagði hann að enn væru herbirgö-
irfluttar til innrásarhersins. Ætl-
un Kinverja væri aö leggja undir
sig alla SA-Asiu og væru orö
þeirra um timabundna innrás
hjóm eitt.
I útvarpinu sagöi aö 2000 Kin-
verjar hefðu verið felldir i gær og
12 skriðdrekar þeirra veriö eyði-
lagöir. Eiga þá 7000 Kinverjar aö
hafa fallið siðan á laugardag.
— 0 —
Sovétmenn endurtóku i dag þá
skoðun sina að Bandarikjamenn
legðu blessun sina yfir geröir
Kinverja með þögninni. 1 mál-
gagni rithöfundasambandsins
Literatúrnaja gaséta sagöi að
nokkrir blaðamenn heföu veriö
boðaðir i stjórnarráðið i Washing-
ton og þeim tilkynnt um árásina
daginn áöur en hún var gerö.
Heföu bandariskir ráðamenn
beðið Deng um aö fresta innrás-
inni I nokkra daga, þegar hann
var i Washington.
Sovétmenn gagnrýndu einnig
Rúmena og Júgóslava fyrir að
lýsa yfir hlutleysi sinu, þegar um
innrás Kinverja væri aö ræða.
Kampútsea
Rauðu Khmerarnir eru sagðir
þjarma að Vietnömum i norðvest
urhluta Kampútseu. Herir fyrr-
verandi stjórnar Pol Pots nálgast
nú borgirnar Siem Reap, Sis-
ophan og Pursat auk þess sem
þeir leggja I átt að Battambang.
Þjóövegir nr. 5 og 6 sem liggja i
norðvestur frá Pnom Penh eru nú
rofnir, og fá Vietnamar endurnýj-
aöar vopnabirgðir með flugvél-
um. Rauðu Khmerarnír eru einn-
ig á þjóðvegum nr. 3 og 4 sem
liggja i suður frá höfuöborginni til
hafnarborganna Kampot og
Kompont Som.
Khmerarnir eru sagðir hafa
náö bænum Ban Nimit á sitt vald,
en hann er aðeins 16 km frá
landamærum Tælands. útvarp
Rauöu Khmeranna, sem sendir
frá kinverskri grund, segir að alls
hafi 300 Vietmanar verið felldir
um helgina.
Breska verkalýðsforystan:
Hvetur nú menn til
að hefja vinnu
LONDON, 21/2 (Reuter) —
Verkalýösfélög hafa hvatt félaga
sina sem vinna „skitverk” til að
hverfa aftur til vinnu sinnar.
Verkfall þeirra befur haft þau
áhrif að skólar eru lokaðir og
Lundúnlr likjast sorphaug. Verk-
fallsmenn eru 1.1 miljón og er
þeim nú boðið upp á 9% launa-
hækkun.
Karl krónprins lét i dag hörð
orö falla um stjórnir fyrirtækja
og sagöist hánn sjálfur hafa séð
verkamenn sem bjuggu við bág
vinnuskilyrði þar sem ekkert
samband var á milli stjórnarinn-
ar og verkamanna. Sagði hann
þar aö finna marga sök á vandan-
um.
Hermenn voru fengnir til aö
sinna störfum sjúkrabifreiða-
stjóra, sem felldu niöur vinnu i
dag.
Fulltrúar 250.000 rikisstarfs-
manna tilkynntu i dag aö þeir
myndu fella niöur vinnu á föstu-
dag.
Nokkrir dagar munu liöa þang-
að til sorphreinsunarmenn og
aörir munu greiöa atkvæði með
hvort hefja eigi vinnu á ný.
Sadat
Sadat vill
aðstoda
Vesturlönd
WASHINGTON, 21/2 (Reuter) —
Anwar Sadat forseti Egyptalands
hefur tilkynnt bandarlskum vald-
höfum aö hann sé reiðubúinn til aö
blanda herjum sinum I átök sem
ógnuðu olluöryggi Vesturlanda.
Sadat sagði þetta við Harold
Brown varnarmálaráðherra
Bandarikjanna þegar hinn siöar-
nefndi var á ferð um Miðaustur-
lönd i sl. viku.
Að loknum fundi með Brown
sagði Sadat að hann byggist við
að Bandarikjamenn myndu ekki
gera upp á milli Isaelsmanna og
Egypta hvað vopnasölu snerti.