Þjóðviljinn - 17.03.1979, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 17.03.1979, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. marg 1979 Þjóðviljinn við Isafjarðardjúp Austurendi Heimavistar Ml. Nú á aft fara aö reisa skólahúsið sjálft til vinstri. Heimavist Menntaskólans á lsafirbi er f glæsilegri nýbyggingu á Torfnesinu. Þar á sjáift skólahúsið lika aö risa en aöeins hefur veriö tekinn grunn- urinn aö þvi. Kennt er I hinu viröuiega gamla barnaskólahúsi viö Aöalstræti sem reist var áriö 1901. Tveir blaöasnápar frá Þjóö- viljanum fóru t heimsókn i heimavistina nú fyrir skemmstu, kynntu sér aöbúnaö og spjöjluðu viö þá sem þar búa. Völdundarhús Reyndar gekk ekki sem best aö komast inn þvi aö allar útidyr voru harölæstar hvar sem boriö var aö. Gripum viö aö lokum til þess ráös aö berja á glugga þar sem einhver hrejding sást og von bráöar hleypti okkur inn snagg- aralegur náungi, sem sagöist vera úr Iönskólanum. Nemendur þess skóla hafa fengiö hér inni. Viö héldum áfram vegferð okkarogreyndist húsiö hiö mesta völundarhús. Fyrst fórum viö niöur í kjallara og gengum I noröurátt lengi vel, svo upp og sáum þá i anddyri aö tilhlýöilegt væri aö fara úr skóm sem viö og geröum þar. Svo förum viö um dyr i gegnum gang og innilokaö tómt hornherbergi, þá um dyr til austurs, þá eftir löngum gangi með setustofukrókum á hægri hönd, svo upp stiga. Ekki urðum viö mannaferöa varir nema ein stúlka sat einhvers staöar og las dagblaö. Þoröum viö ekki aö trufla hana — enda leit hún ekki upp. Uppi heyrðum viö manna- mál lengst til austurs og runnum áhljóöiö. Þar komum viö aö hópi menntskælinga sem ekki reynd- ust veraaölesaskólabækur sinar (hm!) — heldur spila á spfl. Opið eða öllu heldur lokað hús Þarna hlömmuðum viö okkur niöur og reyndum aö trufla spila- mennskuna sem tókst aö mestu leyti. Þarna voru þau Logi Clf- ljótssonfrá Olafsvik, Steinn Emil Kristmundsson frá Reykjanesi i lsafjaröardjúpi, Guömundur Flosasonfrá Reykjavik, Siguröur Sigurösson frá Akranesi, Vala Clf ljótsdóttir frá Ólafsvik, Kristján Daviösson frá Þingeyri og Hálfdán Einarsson frá Bolungarvik. Logi er f 4. bekk, Steinn og Kristján i 3. bekk, Guömundur, Siguröur og Vala i 2. bekk og Hálfdán i 1. bekk. Þau gefa okkur skýringu á þvf hvers vegna útidyrahuröir eru læstar. Nemendur hafa lyklavöld og geta gengiö inn og út hvenær sólarhrings sem þeir vilja. Fyrstu bekkingar voru þó læstir inni kl. 11.30 fram aö áramótum. Krakk- arnir eru sammála um aö þetta reynist vel og hafi ekki haft nein vandræöi i för meðsér. Þau segja aö mun færra sé á vistinni núna heldur en i fyrra og t.d. aöéins þrlr fjóröu bekkingar. Mjög margir aökomunemendur kjósa frekar aö leigja Uti í bæ. Fæðið kostar nær hálfri miljón króna A heimavistinni eru bæöi ein- staklingsherbergi, einkum ætluö eldri nemendum, og tveggja manna herbergi. Margir búa samt einir á tveggja manna her- bergjum vegna mannfæöar. Þá gefst þeim lika kostur á aö vera i sambúö sem þaö vilja en þó aö þvi tilskyldu aö foreldrar samþykki. Enginn er I slikri sambúö á vist- inni núna. Krakkarnir segja aö þaö sé ágætur andi f skólanum en þó sé félagslffiö frekar dauft. Þó eru fundir, spilakvöld o.fl. og iþróttir eru shindaöar af kappi. Þá er fariö á böll eins og gengur og gerist og talsvert um fylleri. Staöurinn býöur upp á lélegt skemmtanalif, segja þeir. Skólann segjaþau vera ágætan og kennarana flesta góöa eöa a.m.k. ekki verri en hvar annars staöar. Þau segja aö fæöiö kosti 450 þúsund krónur yfir veturinn, hvorki meira né minna, og sé kostnaöurinn þau lifandi aö drepa. Þaö fer öll sumarhýran i — þetta. Heimavistinni er allri skipt i einingar og hefur hver eining sameiginlega setustofu og eldun- araöstööu. Ýmist eru 8 nemendur á einingu eöa 16. Allir kennararnir með skyndiprdf á sama tima Viö fáum nú aö lita inn I her- bergiö hjá Kristjáni Daviössyni frá Þingeyri, en hann býr á eins manns hornherbergi. Hann segir aö einn af kennurum Menntaskól- ans og kona hans séu vistarverðir og séu þau kölluö húsbóndi og húsfreyja. Þau sjá m.a. um aö þrif séu i lagi en krakkarnir á hverri einingu eiga aö þrffa hiö sameiginlega á hverjum degi. Kristján segir aö kennsla fari framfrá kl. 8 ogfram yfir 1. Eftir hádegi eru svo iþróttir og val- greinar. M.a. er hægt aö velja valgreinar I öörum skólum á Isa- firöi svo sem Iönskólanum, Vél- skólanum, Tónlistarskólanum og Stýrimanna skólanum. I Menntaskólanum eru aöeins 140 nemendur svo aö þar þekkjast allir innbyröis meira eöa minna og aökomunemendur eiga allir sinakunningja úti i bæ. Ekki væri erfitt aö blanda geöi viö lsfirö- inga. Þá sagöi Kristján aö gefiö væri útskólablaö einusinni eöa tvisvar á vetri en erfitt væri aö fá krakk- ana til aö skrifa I þaö. Þaö þarf gjarnan aö ganga á eftir þeim. Kennararnir eru flestir ágætir, sagöi Kristján, en eru býsna gjamir á aö koma meö skyndi- Laugardagur 17. mars 197» ÞJ6DVILJINN — SIÐA 11 Vala tJlfljótsdóttir frá ölafsvik á herbergi sinu: Var alveg aö deyja til aö byrja meö, Kristján haföi plakatiö öfugt á veggnum hjá sér til tilbreytingar próf allir á sama tima. Skólinn strangur? Ekki svo mjög ef maö- ur nennir aö læra. Þaö er alltaf eitthvaö um aö fólk falli og þá mest i fyrsta bekk. Var alveg að deyja fyrst Viö heimsækjum nú Völu úlf- ljótsdóttur frá Ólafsvik en hún býrein Itveggja manna herbergi. Hún sagöist kunna bara ágætlega viö sig þó aö hún heföi veriö alveg aö deyja fyrst er hún kom á staö- inn vegna hinna háu fjalla. Logi bróöir hennar er 14. bekk og sagöi hún aö talsvert algengt væri aö systkini sæktu í sama mennta- skóla. Hún sagöist i fljótu bragöi halda aö svona 5 nemendur væru af Snæfellsnesi i skólanum. Hún sagöist hafa veriö furðu- lega fljót aö kynnast lsfiröingum þó aö stundum virtust þeir hafa andúö á menntskælingum sem heild. Uppskipun og rækja Vinna meö náminu? Já, strák- arnir fara oft I Utskipun þegar hún gefst og stelpurnar jafnvel lika og stundum er fariö i rækju eöa eitthvaö annaö. t skólanum er ákveöinn skrópkvóti. Ef mæting nemenda fer niöur fyrir 80% — hvort sem þaö er af veikindum eöa ööru — er þeim hinum sama vikiö úr skóla og veröur hann þá aö taka próf utanskóla. Hún sagöi aö margir væru komnir á mörkin núna. Þaö væri svo leiðinlegt aö vakna á morgnana. Uppi á veggjum hjá Völu eru myndir af Iþróttafólki og kemur i ljós aö hún er áhugasöm um iþróttir. Kvenfólkiö hér er I fót- bolta og körfubolta og oft er keppni milli skóla i þessum grein- um. Annars hefur Vala mestan áhuga á frjálsum iþróttum og keppti f þeim f ólafsvlk en á tsa- firöi eru þær litt iðkaöar. Námiö erfitt? Ekki ef maöur leggur eitthvaö á sig. Mötuneytið Nú er kominn matartimi og viö röltum niöur i mötuneyti og tök- um tali Aðalheiði Arnadóttur frá Hnfisdal en hún er nú aöalmat- ráöskona meöan Valmundur Arnason kokkur skrapp suöur. Tvær vaktir eru i mötuneytinu og starfa tvær stúlkur á hvorri auk kokksins. Aöalheiöur lét vel yfir þvi aö gefa krökkunum aö eta og taldiþauyfirleittánægö þótt ein- staka sinnum heyrðust óánægju- raddir. Eldhúsiö er búiö hinum fullkomnustu tækjum og gengur næst hótelunum f Reykjavfk aö þvi leyti, sagöi Aöalheiöur. Aö svo búnu spuröum viö krakkana f salnum hvernig mat- urinn smakkaöist og bar ekki á ööru en hann smakkaöist allvel. Okkur tókst aö rata á skófatnaö okkar á ný og gengum siöan út á foruga malarvegi Torfnessins. — GFr Ekki bar á öðru en maturinn smakkaöist allvel: F.v. Ester Hafsteinsdóttir frá Patreksfiröi, Berg- lind Arnadóttir frá Patreksfiröi, Hugrún Magnús- dóttir frá Tálknafiröi, Guöriöur Hallmarsdóttir frá ólafsvik, Katrin Magnúsdóttir frá Tálknafiröi og Gunnar Ragnarsson úr Mosfellssveit. BBanm Aöalheiöur Arnadóttir matráöskona: Eidhúsiö svo fullkomiö aö þaö gengur næst hóteiunum i Reykjavik. Biöröö var I matinn sem Kristln Lúthersdóttir starfsmaöur mötuneytisins t.h. afhenti. A einni einingunni voru krakkarnir aö spila (i staö þess aö lesa skólabækurnar!). F.v. Logi Clfljótsson frá Ólafsvik, Steinn Emil Kristmundsson frá Reykjanesi i Djúpi, Guömundur Flosason frá Reykjavfk, Siguröur Sigurösson af Skaga, Vaia Cifljótsdóttir frá ólafsvik og Kristján Daviösson frá Þingeyri.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.