Þjóðviljinn - 08.04.1979, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 08.04.1979, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Sunnudagur 8. aprll 1979. DIOOVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis rtgefandi: Utgáfufélag Þjóöviljans Frainkvæmdastjóri: EiÖur Bergmann Ritstjorar: Arni Bergmann. Einar Kar'. Haraldsson. Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson AfgreiÖslustjóri: Filip W. Franksson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar örn Stefánsson, GuÖjón Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Margeirsson, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Halldór GuÖ- mundsson. tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaö- ur: Siguröur G. Tómasson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson. Ilandrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar. Safnvöröur: Eyjólfur Arnason Auglýsingar: Sigrföur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Ólafsson. Skrifstofa: GuÖrún Guövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson. Afgreiösla: Guömundur Steinsson, Hermann P. Jónasson, Kristfn Pét- ursdóttir. Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir. Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuÖmundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6, Reykjavlk, slmi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf. Vantraust á kapítalistum • Fátt er algengara en að talsmenn einkarekstrar barmi sér yfir afskiptum ríkisvaldsins af atvinnulífi. Iðnrek- endur, verslunarráð og fleiri aðilar senda frá sér samþykktir og álitsgerðir, sem allar stefna í svipaða átt: Opinber fyrirtæki á að af henda einkaauðmagni, allt á að vera frjálst — verðlagning, vextir, gjaldeyrisvið- skipti; Verslunarráðið segir í sinni stefnuskrá í efna- hagsmálum, að færa beri opinbera þjónustu eins og menntun og heilbrigðisþjónustu á almennan markað. Mörg dæmi fleiri mætti nefna. Allt er þetta svo saman ‘dregið í óskalista þeim sem Sjálfstæðisf lokkurinn setti saman ekki alls fyrir löngu og kallar efnahagsmála- stef nu. • í reynd er það svo, að ekki er öllum opinberum afskipt- um sveiað. Það er beðið um ýmislega fyrirgreiðslu til f járfestinga, það er beðið um að tollum og sköttum sé hagrætt svo að íslensk f yrirtæki megi hagnast af, það er beðið um að hið opinbera kaupi af innlendum fyrirtækj- um. Það er m.ö.o. beðið um að f jármunir samfélagsins séu notaðir til að hjálpa fyrirtækjum að komast á legg og græða, en helst má samf élagið ekkert vita af þeim ágóða sem til verður eða rekstri fyrirtækjanna yfirleitt. Ekki fyrr en tiltekin atvinnugrein eða jafnvel einstaka fyrir- tæki lendir i vandræðum og biður ásjár í nafni þess að um þjóðhagslega nauðsynlegan rekstur sé að ræða. • Allt er þetta gamalkunnur söngur. En fyrir utan þá reynslu sem við þegar höfum af pilsfaldakapítalisma svokölluðum, þá er ýmislegt það sem hefur að undan- förnu verið að gerast í atvinnulífi og þó einkum iðnaði þess eðlis, að það gerir menn enn tregari en ella til að trúa á að íslenskir kapítalistar geti leyst meiriháttar verkef ni samkvæmt þeim kokkabókum sem þeir nú játa trú á. Eins og f ram kom í ræðu iðnaðarráðherra á dög- unum, þá er íslendingum mikil nauðsyn á marksækinni iðnaðarstefnu til að tryggja þúsundum manna ný at- vinnutækifæri á næstu árum. Til þess þarf eflingu þess iðnaðar sem fyrir er, og einnig nýsköpun. En nú er það almenn hneigð í okkar heimshluta, að arðsemi af nýrri iðnvæðingu fer lækkandi, og sá gróði, sem menn vilja láta stjórna, nægir ekki til að fyrirtæki leggi út í nýj- ungar, síst smá fyrirtæki eins og hin ísiensku. Nýsköpun krefst einatt mikilla undirbúningsrannsókna og land- vinninga á sviði tækni — þetta þýðir einnig að langur tími líður áður en hún fer að skila ábata. Hin frjálsu mark- aðslögmál sem svo oft eru prísuð, duga skammt til að stuðla að þeim nýjungum og umbreytingumsem hafa fé- lagsleg markmið — eins og þær sem lúta að umhverf is- vernd, umbótum á vinnustöðum, stuðningi við dreif býlið og þar fram eftir götum. Auk þess ber að geta, að óarð- bær iðnaður er einatt undirstaða f yrir ýmsum mjög arð- bærum rekstri öðrum. •Allt þetta hef ur í raun leitt til aukinna „afskipta" hins opinbera, til margbreytilegs og flókins kerfis sértækra aðgerða til að bæta starfsskilyrði einstakra atvinnu- greina. Einatt er farið í margskonar f eluleik með slíkar ráðstafanir vegna þess, að þeir sem yf ir f jármagn hafa komist vilja helst ekki að menn geri sér alltof vel grein fyrir því, að markaðslögmálin frjálsu eru ekki í gildi í raun nema í takmörkuðum mæli. Hinar víðtæku opin- beru stuðningsaðgerðir, sem sjálfar aðstæður fram- leiðsluþróunar á okkar dögum gera nauðsynlegar, hvað sem einkakapítalið segir, bera síðan fram með vaxandi þrýstingi sígilda pólitíska spurningu: Af hverju eigum við að þjóðnýta grundvallarrannsóknir, tækniþjónustu, taka á okkur ábyrgðir (ríkisábyrgðir) á gróðahugmynd- um einstaklinga, þjóðnýta töpin þegar allt kemur til alls — en banna svo samfélaginu og þá vinnandi fólki af- skipti af þeim arði sem skapast? Þessi spurning hljómar alveg sérstaklega eðlilega hér á íslandi þar sem eins víst er, að láni sem útvegað er til iðnaðaruppbyggingar eða aðlögunar íslenskrar f ramleiðslu að nýjum aðstæðum sé dembt beint í það, að stofna eitt innflutningsfyrirtækið enn — áb Úr almanakinu Atvinnumenn í barlómi Svo langt aftur sem ég man, hafa alltaf veriö einhverjir menn i hópi atvinnurekenda, sem tekiö hafa aö sér ab halda upp barlómi, fyrir þennan hóp manna. Einskonar atvinnu- menn i barlómi. Þar sem þetta hlýtur aö vera hiö leiöinlegasta starf, eins og allt þaö sem geng- ur þvert á sannleikann, hafa at- vinnurekendur látiö menn skiptast á um þetta. Þó hefur alltaf einn verið frá útvegs- mönnum og er enn. Ég vildi gjarnan hitta þann mann, sem man eftir ööru en barlómi hjá útvegsmönnum sl. 30 ár eða jafnvel lengur. Þegar ég var litill strákur braut ég oft heilann um þaö hvernig út- geröarmenn gætu haldið áfram starfi sinu miöaö viö þann óskapar barlóm sem alltaf dundi yfir landslýö eftir ársþing LIÚ, og raunar skipulega þess á milli. Þá var maöur svo saklaus að trúa öllu þvi sem stób á prenti og ég vorkenndi þessum fátæku mönnum afar mikið. En þaö er með þetta eins og söguna „Úlfur, úlfur”, maöur hættir aö taka mark á svona löguðu, svo maður tali nú ekki um þegar maöur fær tækifæri til aö fylgj- ast með þessum mönnum breyta flota sinum úr 20 til 30 tonna trébátum uppi allt að 1600 lesta nýtisku stálskip. Þegar maður bendir á þetta segja þeir: „Viö fáum lán, þetta eru allt skuldir”. Ég hef hins- vegar aldrei tekiö lán án þess eö þurfa aö borga þaö til baka og ég hef aldrei getaö borgað lán án þess að afla til þess tekna. Ég trúi þvi að svipaö sé meö út- gerðarmenn, en samt tapa þeir aumingja mennirnir og allt er á hausnum. Kristján Ragnarsson, foringi þeirra, er um þessar mundir einn haröasti atvinnu- barlómsmaöurinn i hópi at- vinnurekenda. Kristján hefur tjáö mér i gegnum fjölmiðla, að grundvöllur útgeröar i landinu hafi verið brostinn sl. 10 ár eöa svo. Samt sem áöur halda út- gerðarmenn áfram aö fá sér stærriog betri skip, fullkomnari útbúnaö ab öllu leyti, ég ætla nú ekki aö nefna einkaeigur. Og allt gera þeir þetta á brostnum grundvelli. Ef þessir menn eiga ekki skilið að fá oröu, allir sem einn, þá veit ég ekki hverjir eiga að fá hana. Atvinnubarlómsbróöir númer tvö i þjóðfélaginu (kannski er hann orðinn númer eitt) er Daviö S. Thorsteinsson. Ég fæ kökk i hálsinn og tár i augun i hvert skipti sem ég heyri i Daviö i útvarpi eöa sjónvarpi, og vart aö ég geti lesiö skrifin hans fyrir tárum. Ég vorkenni engum mönnum eins mikið og iðnrekendum. Daviö hefur sagt mér aö þeir séu svo fátækir og aö rikið sé svo vont viö þá aö engu tali taki. Daviö segir aö þeir verði að borga skatta, þeir veröa aö borga tolla, þeir veröa að borga aðflutningsgjöld og meira aö segja veröa þeir aö borga fólkinu sem vinnur hjá þeim svo litil laun. Annað eins helvitis óréttlæti þekkist hvergi. Þetta segir Davið. Og núna um daginn sagöi Daviö mér að hér á landi væri bullandi atvinnuleysi. Viö erum bara svomiklu snjallari en allar nágrannaþjóðir okkar, aö viö getum faliö þetta böl. Davið sagöi mér aö alltof margir bátar og þar af leiðandi alltof margir menn væru að veiða alltof litinn afla. Þetta er dulbúið atvinnu- leysi. Þetta sagöi Daviö. Hins- vegar var engin ástæöa fyrir Davið aö vera að minnast á það, aö viö veröum aö flytja inn hundruö útlendinga til aö vinna þennan afla i landi og hver maöur i verstöövunum á Islandi þarf aö vinna 18 til 20 tima i sólarhring til þess aö bjarga aflanum. Daviö er svo skemmtilegur maöur að hann er ekkert aö tala um svona leiöin- lega hluti. Og svo sagöi Davið lika um daginn, að fólk streymdi úr landi, eöa heföi gert þaö undir stjórn Geirs Hallgrimssonar, hann var ekkert aö nefna Geir bara árin sem hann stjórnaöi. Auövitað vorum viö Daviö báöir sárhneykslaöir á þessu, enda er andskotans skömm aö svona nokkru. En af þvi aö Davið er svo skemmtilegur þá minntist hann ekkert á ástæöuna fyrir þessum landflótta. Helvitis kommarnir eru að segja aö þessi landflótti stafi af þvl aö Daviö borgi fólkinu sem vinnur hjá honum og öörum Daviðum i iðnaöi helmingi lægra kaup en Daviöarnir á Norðurlöndum. Ég hugsa að þeir skrökvi þessu. Heldur þú þab ekki lika Daviö? Þú verður aö reyna að gefa mér linuna i þessu máli. Þú veist aö ég stend alltaf meö þér og vor- kenni ykkur i iönaöinum af- skaplega mikiö og þvi veröur þú aö svara kommunum. Og svo eru menn eins og Þor- geir Jósepsson, stórskipa- smiður af Skaganum, og þeir þarna hjá Hampiöjunni aö segja aö þeir græöi svo mikiö aö þeir viti ekkert hvaö þeir eigi aö gera viö alla aurana. Ætli þeir séu ekki ab ljúga þessu, Daviö? Viö veröum að raeöa viö þessa menn, þaö gengur ekki að þeir séu aö eyðileggja allt sem þú hefur sagt um meðferöina á ykkur iönrekendum. Ég hugsa lika að það sé ekkert aö marka Þorgeir á Skaganum, hann er áreiöanlega kominn út af Jóni Hreggviðssyni á Rein, og viö vitum þá hvaö er litið aö marka hann. Þess vegna skulum viö bara bera höfuöiö hátt og halda áfram aö tapa Daviö. Við tökum ekkert mark á þessum mönn- um, né heldur þeim sem standa nú i stórbyggingum i iðnaöar- hverfinu á Bæjarhálsi. Þeir eiga ekki bót fyrir rassinn á sér, fá þetta allt aö láni og borga þau aldrei, frekar en allir hinir sem alltaf tapa. Hvernig á lika að vera hægt að greiöa lán þegar maöur græðir ekki neitt? Það er Schelfing leiöinlegt að veröa aö segja mönnum þessi sannindi ár eftir ár og aö menn skuli ekki geta komiö þvi inni hausinn á sér aö atvinnurekend- ur tapa og tapa. En viö höldum áfram Davið og gefum hvergi eftir. -S.dór Sigurdór Sigurdórsson skrifar

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.