Þjóðviljinn - 08.04.1979, Blaðsíða 15
Sunnudagur 8. apríl 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 ,
að búa hérna i Elverum uppá
eigin spýtur eins og aö slita mér
út fyrir aðra, sagði Tryggvi,
þegar ég sótti hann heim fyrir
skömmu.
— Julusseter er reyndar ekki
fyrsta jörðin sem við kaupum.
Fyrir jól keyptum viö jörðina
Lövhaugen, sem er þrjá
kilómetra frá Julusseter. Sú
jörð er illa hýst, þar vantar öll
útihús. Eftir að við höfðum
gengið frá kaupunum, uppgötv-
uðum við að viö getum ekki sótt
um byggingarleyfi fyrr en eftir
eitt til tvö ár.
— Og ef við komum ekki fénu i
hús fyrir haustiö veröur að lóga
að minnstakosti helmingnum.
Hér á Grindalen get ég nefni-
lega ekki haft nema helminginn,
og hinn helmingurinn er þegar á
húsi á Julusseter. Ef við fáum
ekki að kaupa verður féö að
sjálfsögðu að vikja, segir
Tryggvi.
— Þaö er heldur umhendis aö
hirða féð á tveimur stöðum, til
viðbótar allri annarri vinnu?
— Það er óhætt að segja það.
Ég fer þessa 30 km fram og aft-
ur á hverjum degi, og á sumrin
hef ég heyjað á þriðju jörðinni
auk þess sem ég hef fengið að
slá túnbletti hingaö og þangaö
héri grenndinni. Það verður þvi
mikill þeytingur i heyskapnum.
Og útkoman er raunar sú, að
allt sem égfæ inn fyrir féð fer i
keyrsluna i kringum þaö.
— Þeir botna heldur ekkert i
mér hjá skattinum. Skilja ekki
hversvegna ég er að standa i
þessu fyrir ekki neitt. Auk þess
•segja þeir að ég sé algjör und-
antekning hér i Noregi, að eiga
fé en enga jörö.
— Hvað verður þetta stórt i
sniðum hjá ykkur þarna á
Julusseter, ef þið fáið jöröina?
— Ég reikna með svona 70
kindum i haust. En ef þetta á að
bera sig verðum við að hafa 170
fjár, segir Tryggvi, rétt nýkom-
inn frá kvöldmjöltunum i kaffiö
og vöfflurnar, sem við Ingeborg
erum búin að gæöa okkur á um
stund.
— Munurinn að vera bóndi i
Noregi og á tslandi?
— Kýrnar eru stærri' ’og mjólka
meira. Og við fáum meira hey
af túnunum en á tslandi.
Það er Ingeborg sem svarar.
Og hún talar lýtalausa islensku,
næstum lausa við norðlenska
hljómfallið, sem hún leggur sig
greinilega eftir að viðhalda
þarna mitt á meðal heiðmerk-
inganna með sina breiðu mál-
lýsku. Ég fæ að vita að Islensk-
una læröi hún á tslandi þegar
þau bjuggu i Eyjafiröinum i
fjögur ár áöur en þau fluttu til
Elverum. Leiðir þeirra Tryggva
lágu annars saman á Vefsn
landbúnaðarskólanum i Helgu-
landi. Hún vann i eldhúsinu; en
hann var að ná sér i framhalds-
menntun eftir venjulegt
búfræðinám á Hvanneyri.
— En hvernig virðist ykkur
afkoma bænda hér miöaö viö
heima?
— Það eru miklu lægri skattar
á tslandi — eða var að minnsta
kosti þegar viö vorum þar,
svarar Ingeborg að bragöi.
— Ég hef á tilfinningunni að
bændur séu almennt betur stæð-
ir heima, bætir bóndi hennar
við. Búskapurinn á tslandi er að
minnstakosti vélvæddari en hér,
og það er ekki eins algengt hér
að bændur geti leyft sér aö eiga
tvo bíla á bænum.
Betri eða verri efnahagur —
eða svipaður. Þau Ingeborg og
Tryggvi eru ánægö hér og biöa
með óþreyju þess tima aö kom-
ast á eigin jörð. Það stendur
bara á samþykki frá æöri stöð-
um.
— Það er helst á haustin að ég
sakna gangna og rétta, verður
Tryggvi þó aö viðurkenna. Hér
er engin smalamennska í lik-
ingu viö það sem ég er vanur
heima. Meðal annars er ekki að
tala um að nota hesta viö
smalamennsku, né heldur
hunda, vegna skógarins.
Ingeborg er hinsvegar i sinu
rétta umhverfi þar sem skóg-
arnir eru. Og allan tlmann sem
þau voru i Eyjafirðinum
saknaði hún einmitt skóganna
mest. Af þeim fær hún nóg
þarna i Heiömörk, einu mesta
timburframleiðsluhéraöi i
Noregi.
—Þ.G.
L.M.A. sýnir í Kópa-
vogi um helgina
Grísir
gjalda —
gömul
svín
valda
eftir Böðvar
Guðmundsson
Leikfélag Menntaskólans á
Akureyri heldur þrjár sýningar á
leikriti Böðvars GuðmundsSonar,
,,Grisir gjalda — gömul svin
valda” I Félagsheimili Kópavogs
nú um helgina. Fyrsta sýning er
laugardag, en sýningar á verkinu
verða einnig sunnudag og
mánudag og hefjast kl. 30.30.
Leikstjóri er Kristin
Olafsdóttir, tónlistin er eftir
Sverri Pál Erlendsson, leikmynd,
búningar og leikmunir gertiir af
þeim Þorbergi Hjalta Jónssyni og
Helga Má Halldórssyni en örn
Magnússon hefur annast út-
setningar og hljómsveitarstjórn.
Mikill fjöldi nemenda M.A.
kemur fram I sýningunni og er
full ástæöa til að hvetja almenn-
ing til að flykkjast i Kópavoginn
og horfa á þetta frumsamda verk
að norðan.
Grisir gjalda er fjórða verk
Böðvars Guðmundsáonar. Hið
fyrsta var Loki sem hann samdi
fyrir L.R. og var sýnt í Iðnó.
Næstu tvö verk, Krummagull og
Skollaleikur voru flutt af Alþýðu-
leikhúsinu ogsýndum allt land og
einnig i sjónvarpi auk þess sem
hið siðarnefnda fór sigurför um
Norðurlönd.
I leikskrá L.M.A. segir
höfundur megin boðskap verksins
vera þann að menn eigi að vera
góðir við dýrin og stunda hófsamt
liferni.
—im
Tölvubók frá
Almenna
bókafélaginu
Út er komin hjá Bókaklúbbi
Almenna bókafélagsins bókin
Tölvur að starfi eftir breska
vísindarithöfundinn John Clark,
Páll Theódórsson, eðlisfræðingur
þýddi og endursagði. Þessi bók
fjallar umfram allt um notagildi
tölvunnar á ýmsum sviöum, svo
sem I viöskiptum, flugstjórn og
flugþjónustu, i sjúkrahúsum,
tölvuskráningu bifreiöa, svo að
eitthvaö sé nefnt. En hún fjallar
ekki nema lauslega um tæknilega
gerð tölvunnar, að því er segir i
bókarkynningu.
Páll Theódórsson segir i for-
mála fyrir bókinni:
„Tölvur að starfi lýsir öflugu
hjálpartæki nútimaþjóöfélags,
tæki sem hefur tekið svo örum
framförum að margir eru vafa-
litiö varla enn farnir aö átta sig á
möguleikum tölvunnar og eru enn
haldnir nokkrum beyg gagnvart
þessum þarfatólum, svo sem titt
er um margvislegar nýjungar.”
Bókin er 160 bls. að stærð meö
fjölda skýringamynda Hún er 10.
bókin i bókaflokknum Fjölfræði-
bækur sem Bókaklúbbur AB
gefúr út undir ritstjórn örnólfs
Thorlaciusar.
Atriöi úr sýningu Leikfélags Menntaskólans á Akureyri.
Nei, þú ert ekki á flæðiskeri staddur ef þú hefur ÍSLENSK
FYRIRTÆKI á borðinu hjá þér.
í tilefni af 10 ára afmæli ,,ÍS-
LENSKRA FYRIRTÆKJA” hefur
útgáfa bókarinnar enn verið bætt
og efnisval fullkomnað.
Þar koma meðal annars fram mun
fleiri vöruflokkar en nokkru sinni
fyrr og þar er sama viðskipta- og
þjónustuskrá fyrir allt landið.
ÍSLENSK FYRIRTÆKI
Ármúla 18 Símar 82300 og 82302
í JSLENSKUM FYRIRTÆKJUM '
er lögð áhersla á aó hafa merki og
firmaskriftir viðkomandi fyrirtækja,
ennfremur eru í bókinni að finna öll
starfandi fyrirtæki landsins með til-
heyrandi breytingum frá ári til árs.
„ÍSLENSK FYRIRTÆKI" innihalda
vióskiptalegar upplýsingar á ensku
með skrá yfir útflutningsvörur, út-
flytjendur, innflutningsvörur, inn-
flytjendur, framleiðendur og þjón-
ustuaðila.
Skoðiö rúmin í rúmgóðri verslun
) INGVAR OG GYLFI £ GRENSÁSVEGI3 108 REYKJAVÍK, SÍMI: 81144 OG 33530.
Sérverslun með rúm