Þjóðviljinn - 19.04.1979, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 19.04.1979, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJ6PVILJINN Fimmtudagur 19. aprll 1979 Allt þaö sem sett er á hina sérstöku páskadiska er hlaöiO táknrænni merkingu: hér eru beisk grös útlegöarinnar, græn grös vors (og forvitni), bein fórnarlambsins, lifsins egg og blandan kharoset. A miöjum diski stendur pesakh, en af þvi hebreska oröi er heiti páskanna dregiö (ijósm. Snorri). Viöstaddir voru úr ýmsum heimshlutum ættaöir. Samkvæmt lögmáli er hver sá Gyöingur sem á Gyöing aö móöur — og skiptir ekki máli hvaö hann sjálfur hugsar i þeim efnum. Páskíimaltið Gyðinga haldin í Reykjavík Viö háborö sat rabbf Rosenblatt (fyrir miöju) ásamt lútherskum kennimönnum og konum þeirra. Lengst til vinstri er prófessor Þórir Kr. Þóröarson en Ólafur Skúlason lengst til hægri — i hans kirkju fór máltiöin fram. A miðvikudagskvöldið fyrir páska gerðust þau sjaldgæfu tíðindi að efnt var til páskamáltíðar Gyð- inga í Reykjavík. Páskamáltíðin, seder, er reyndar f jölskylduhátíð fyrst og fremst og mun hafa verið haldin hjá ein- staka f jölskyldu hérlendis. En í þetta sinn var reynt að safna saman Gyðingum og venslafólki þeirra. Á einum stað Séra Ólafur Skúlason dóm- prófastur lánaöi sal i Bústaöa- kirkju til máltiöar þessarar. Fæöa á boröum var öll kasher, eöa „hrein”. 1 forsæti var rabbli. Sá er bandariskur, Rosenblatt aö nafni og er nokkuö á ferö á flugi, m.a. I sambandi við þjónustu viö bandariska hermenn og starfs- fólk I öörum löndum. Hann hefur komiö hér áöur og m.a. haldiö fyrirlestra fyrir guöfræöinga og stúdenta viö Háskóla tslands. Meöal viöstaddra voru reyndar Þórir Kr. Þóröarson prófessor, lúterskir prestar og guöfræö- inemar. Aörir voru Gyöingar héö- an og þaöan úr heiminum sem at- vik hafa hingað boriö — úr Bret- landi, Rússlandi, Danmörku, Þýskalandi og Bandarlkjunum. Nokkrir hinna eldri höföu komiö hingaö fyrir strlö á flótta undan ofsóknum nasista og auöséö var aö ýmsir viöstaddra höföu um langt skeiö haft lítil sem engin tengsl viö gyðinglega guösþjón- ustu eöa helgisiöi. Sagan og bömin Seder er sem fyrr segir fjöl- skylduhátlö fyrst og fremst. í annarri Mósebók er svo um mælt, aö „þennan dag skalt þú segja syni þlnum” — og er þá átt viö þau Bibllutföindi aö Móses leiddi lsraelslýö út af Egyptalandi. Þegar skoöuö er nánar saga há tlöanna þá kemur fljótt I ljós aö páskar eru upphaflega vorhátíö til aö fagna gróöri og frjósemi. En um árþúsundir hafa páskar hjá Gyöingum veriö tengdir sögn- um Mósebóka um sérstök afskipti Jahves af Hebreum þegar þeir komust úr ánauö I Egyptalandi. Þau tlöindi eru rifjuö upp I sér- stakri bók, Haggadah, eru þar sumir textar haföir á hebresku en I reynd fleiri á daglegu máli viö- staddra, ekki slst vegna þess, aö sem fyrr segir, á þetta kvöld að rifja fornar sagnir upp fyrir þeim sem yngstir eru viö málsveröinn. Meö ýmsum hætti er einmitt reynt aö viöhalda áhuga barn- anna á þvl sem fram fer. Þau hafa ákveönu hlutverki aö gegna. Þaö er eitt þeirra sem spyr hina heföbundnu fjögurra spurninga: Af hverju er þessi nótt ólik öörum nóttum? — og hafa lagstúfar verið samdir viö þann texta. 1 upphafi máltlöar brýtur húsbóndi ósýrt brauð I þrennt og felur einn hlutann, sem afikoman er kall- aöur. Börnin leita siöan aö afi- koman og sá sem finnur á rétt til verölauna. Auk þess eru sungnir, þegar á llöur kvöldiö, söngvar ýmsir, sumir I einskonar þulu- formi, sem eiga meöal annars aö hrista svefndrunga af ungviði. Þaö sem ókunnugum mun að líkindum koma einkennilegast fyrir sjónir er þaö, hvernig seder sameinar raunverulega máltlð, sem meira aö segja gerir ráö fyrir þvi aö hver viöstaddur drekki fjóra bikara vins, og svo flókiö táknakerfi, sem á i senn aö minna á Mósebækur og ótima- bundin viöhorf gyöingdóms til ýmissa fyrirbæra. Hér um skal rekja nokkur dæmi. Á borðum eru aöeins hinar ó- sýröu brauöflögur, matzoth ( sem eru reyndar seldar hér I verslun- um sem megrunarbrauö). Matzoth á aö minna á þaö, aö þegar Hebreum hinum fornu var boriö boöiö aö halda af stað frá Egyptalandi þá hafi þeir ekki haft tlma til aö baka venjulegt brauð. Hinir fjórir bikar vins eiga m.a. aö tákna fjögur fyrirheit úr ann- arri Mósebók um lausn úr ánauö. A vissum staö I máltlöinni eru taldar upp hinar tlu plágur sem Egyptar uröu fyrir (blóö, fróskar, mýbit osfrv.) og viö hverja plágu eiga viöstaddir aö hella nokkrum dropum vlns af fylltum bikar sin- um: þetta á aö tákna, aö jafnvel á hátlö eins og seder er bikar gleö- innar ekki fullur þegar aörir menn rata I raunir. Svo mætti lengi telja. A sérstaka páskadiska er til dæmis raöaö beiskum jurt- um, eggi og beini sem hvoru- tveggja bera þess merki aö hafa I eldfarið, einnig kharoset, sem er blanda af eplum, hnetum, súkkati og vini. Beisk grös tákna þá beiskleika útlegöar og þrældóms, kharoset minnir á múrverk þaö sem þrælar unnu I Egyptó til forna, beiniö táknar lamb þaö sem fórnaö var á páskum og egg- iö á einnig aö minna á tiltekna musterisfórn, auk þess sem þaö er eðlilegt löstákn. Sérstæður atburður Sem fyrr segir er aö jafnaöi fariö meö ýmsa forna texta og söngva á seder. Þaö mun þó I reynd mjög á valdi stjórnandans hve nákvæmlega fornum siöum er fylgt. 1 nýrri útgáfum af Haggadah er skotið ýmsum text- um nýlegum og getur stjórnand- inn valiö úr þeim og beöiö ein- hvern viöstaddra aö lesa — til dæmis einhver spakmæli eftir Al- bert Einstein eöa kafla úr dagbók önnu Frank. Einnig er llklegt að menn taki til máls um þaö sem liggur á hjarta eöa til að mæla fyrir einhverjum óskum og var svo gert á hinni sérstæöu páska- máltiö Gyöinga sem haldin var hér I borg fyrir rúmri viku. Sér- stæö er hún þá kölluð einkum vegna þess aö hún fer fram I einu af þeim fáu löndum sem ekki á sér gyöinglega hefö. —áb. Um fjörutiu manns munu hafa veriö viöstaddir. Aöur hefur seder aöeins veriö hald- Hver og einn fékk I hendur stytta f jölritaöa útgáfu af Haggadah, Féasögninni. Auö- inn á einkaheimilum hér i borg, aö þvl er best veröur vitaö. s^ð var, aö margir höföu lengi ekki séö silka bók.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.