Þjóðviljinn - 21.04.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.04.1979, Blaðsíða 1
Olíufélögin biðja um hækkun: Fer bensínið í 258 kr.? Laugardagur 21. april 1979—89. tbl. — 44. árg. Olíufélögin hafa farið fram á hækkun á bensfni úr 205 kr. i 258 ur á ofsahraða Stór- slasaðist og missti fót við ökla Ungur maður um tvltugt stórslasaðist aðfaranótt sumardagsins fyrsta, þegar hann ók á ofsahraða á ljósa- staur skammt sunnan við Nesti i Fossvogi. Varð að taka af fæti hans við öklann siðar um nóttina en i gær var liðan hans góðeftir atvikum. Lögreglumenn veittu hraðakstri mannsins eftir- tekt inni við Klúbb og eltu hann suður i Fossvog. Svo mikill var hraðinn að lög- reglan á 130 km hraða hafði ekkert við manninum og þegar ökuferðinni lauk á ljósastaurnum, sem klipptist sundur við höggiö, var um kllómeter milli lögreglu- bilanna og slysstaðarins. Klemmdist ökumaðurinn i bilflakinu og var kviknað I vélinni, þegar lögregluna bar að. Tókst fljótt að slökkva eldinn með hand- slökkvitækjum og ná öku- manninum úr flakinu og flytja hann á slysavarðstofu. Að sögn lögreglunnar, var maðurinn undir áhrifum áfengis i þessari ökuferð. Annar sátta- jundur í dag Sáttafundur i kjaradeilu farmanna stóð i gærdag frá kl. 10 til kl. 17.30 og hefur annar fundur verið boðaður i dag kl. 14. Undirnefndir sem fjalla um röðun i launaflokka hófu störf i gær og munu þær hittast fyrir samninga- fundinn i dag. | Sumri heilsað... j Sumri var heilsað á f immtudaginn með ýmislegri skemmtan, sem skátar stóðu j j fyrir. Þessir ungu menn reyna að hafa úr sér árstíðaskiptahrollinn með þeirri i I þjóðlegu íþróttað reka nagla ídrumb—Ijósm. Leifur, Slysið i Sæ- dýrasafninu Rétti hand- legginn í gin Ijónsins Mesta mildi var að kona, sem ætlaði sér að gæla viö ljón f Sædýrasafninu,missti ekki handlegginn við öxlina, þvi eins og við mátti búast tók ljónið hraustlega á móti framréttum handleggnum með kjafti og klóm. Konan, sem er 32ja ára gömul, hafði farið inn fyrir varnargirðingu sem er i meters fjarlægð frá búrinu og rétt handlegginn inn um rimla þess til að klappa ljón- inu. Greip ljónið á móti og þegar varðmanni tókst loks að slita konuna lausa var handleggurinn særður upp aö öxl. Var gert að sárum konunnar á Borgarspftalan- um en talsverð hætta mun vera á Igerð I bitsárum sem þessum. Drukkinn ökumað- Lyfja- og lœkniskostnaður: Gífurleg hækkun á hlut sjúklinga Gifurleg hækkun verður á hlut sjúklinga i lyfja- og læknis- kostnaði samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðuneytisins, sem tók gildi I gær. Nemur hækkunin frá 40 uppi 233% eftir liðum. Um leið iækkar hlutur sjúkratrygging- anna samsvarandi. Rétt er að taka fram, að hér er um að ræða tilfærslu kostnaðar , milli fólks og sjúkrasamlaganna, en ekki hækkaðar greiðslur tií lækna né lyfjabúða. Að sögn Páls Sigurðssonar ráðuneytisstjóra er hækkunin svonamikilnúna vegna þess að gjöldin hafa staðið I stað I mörg ár eða siðan 1975 og hefur verið dregiö að láta þau fylgja öðrum verðhækkunum af þvl að þau hafa áhrif á visitöluna. Samkvæmt breytingunum hækkar nú greiösla sjúklinga fyrir innlend lyf úr 325 krónum i 750 og fyrir erlend lyf úr 650 krónum i 2000. Það sem umfram er greiðir sjúkra- samlagið. Greiðsla sjúklings sem vitjar sérfræðings hækkar úr 600 krónum I 2000 kr. og fyrir hverja einstaka rannsókn sérfræðings eða röntgenrannsókn greiðir sjúklingur nú 2000 krónur i stað 600 áður. Gjald til heimilislækna hækkar úr 250kr. i 350 ogfyrirvitjun heim úr 500 kr. I 700. —vh Ásmundi boðið starf framkvæmdastjóra ASÍ Miðstjórn Alþýðusam- bands íslands samþykkti einróma á fundi sfnum i gær aö bjóða Ásmundi Stefáns- syni, hagfræðingi, fram- kvæmdastjórastarf sam- bandsins. Asmundur hefur um nokk- urra ára skeið verið hag- fræðingur Alþýðu- sambandsins og getið sér mjög gott orð i þvl starfi. Síðast liðiö haust var hann ráöinn lektor I hagfræöi við Háskóla tslands. Mun hann væntanlega taka afstöðu til þess innan skamms hvort hann telur sér fært að taka þessu boöi miðstjórnarinnar. —ekh kr. litrinn og gasoiiu úr 65,50 i 105 kr. litrinn. Búist er við þvi aö ákvörðun um nýtt verð á oliuvörum veröi tekin i næstu viku, en hún hefur um skeið vofað yfir vegna veröhækk- anna san orðið hafa erlendis. Þrlr ráðherrar hafa myndað starfsneftid um málið auk em- bættismanna. Þær hugmyndir sem einkum hafa verið reifaöar I þessu máli eru annarsvegar þær, að auknar tekjur rlkissjóðs af öllum og bensini verði notaðar til verð- jöfnunar eða þá að erlendar hækkanir verði ekki látnar virka til tekjuhækkanir fyir rikissjóð — m.ö.o. að skattlagning minnki nokkuö hlutfallslega. Stjórn FÍB: Skorar á stjórnina að leyfa ekki bensín- hœkkun Stjórn Félags islenkra bif- reiðaeigenda sendi Ólafi Jó- hannessyni forsætisráðherra bréf i gær með ályktun stjórnar FtB frá 18. apríl sl. Er þar skorað á rikisstjórnina að heimila ekki umbeðna hækkun á eldsneyti bif- rciða, en mæta heldur hinum er- lendu verðhækkunum með þvl að lækka skattlagninguna. 1 ályktun FÍB er bent á, að nálega helmingur hinnar umbeðnu hækkunar muni renna i rikissjóð sem auknar tollatekjur og söluskattstekjur og hafi slikt hið sama gerst við fyrri bensin- hækkanir. Stjórn FÍB segir ennfremur, að þótt ljóst sé.að erlendar verð- hækkanir verði ekki umflúnar, hafði FIB oft bent á fullnægjandi leiðir til að mæta erlendum verðhækkunum án þess að þær komi fram i hækkuðu útsöluverði. —eös Verkakonur í Eyjum: Engin eftirvinna á föstudögum Verkakonur I fiskvinnslunni I Vestmannaeyjum hættu allar vinnu I gær kl. 17 I framhaldi af fundarsamþykkt sinni frá 3. april s.l. um aö eftirvinna verði fram- vegis ekki unnin á föstudögum. Frystihúsaeigendur i Vest- mannaeyjum hafa bréflega farið fram á, að þessi samþykkt verði aftur tekin, og 1 gær barst skeyti frá Vinnuveitendasambandi tslands sama efnis. Stjórn og trúnaðarráð Verkakvennafélags- ins Snótar samþykkti hins vegar á fundi sinum i gær I framhaldi af þessum áskorunum að halda ákvörðun fundarins til streitu. Jóhanna Friðriksdóttir, formaður Snótar, sagði i samtali við Þjóðviljann I gærkvöld að þessi ákvörðun væri tekin vegna . Framhald á blaðsiðu 14. BANASLYSID VIÐ HÖFNINA Öryggisat- riðum áfátt Frásögn af sjóprófi á baksíðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.