Þjóðviljinn - 22.04.1979, Síða 7

Þjóðviljinn - 22.04.1979, Síða 7
Sunnudagur 22. aprfl 1979. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 7 Guðlaugur Arason skrifar Bréf til Fríðu Komdu nú margblessuð i bak og fyrir Friða min! Ég vona að þessar linur hitti þig sæla og ánægða og lifið á prestsetrinu hjá þér blómgist ekki siður en vant er. Satt að segja hef ég alltaf ætlað mér að skrifa honum séra þinum og gera frekari grein fyrir þessari ræðu sem ég flutti i kirkjunni hjá ykkur nóttina frægu, en ég hef aldrei komið mér að þvi. Enda hugsa ég að það þýði litið fyrir mig að rökræða frekar um draugagáng við þinn ágæta mann; hann trúir bara þvi sem hann sér ekki, eins og góðir guösmenn eiga að gera. Séra, séra vertu velkominn, vissulega er ég húsdraugurinn þinn... Grasagarður Strandamanna Ekki alls fyrir laungu fór ég norður á Strandir. Aður en ég lagði upp i ferðina, fjárfesti ég i skiðum, rauðum kommaskið- um, þvi að i sakleysi minu hélt ég að allt væri á kafi i snjó þar norður, og að menn kæmust ekki á milli bæja öðruvisi en á þrúgum eða skiðum. En þegar flugvélin lenti á Gjögri, var eingu likara en við værum kom- in i vissan garð sem hann séra þinn er svo hrifinn af. Þar var blóðrauö jörð og leikur einn að hlaupa á sokkaleistunum um héraðið þvert og endilángt og koma þurrfóta i mark. Þetta var i byrjun febrúar um svipað leyti og drossiurnar sátu fastar i Ártúnsbrekkunni og Keflavfk- urflugvöllur var ófær sökum snjóa. Það er ekki stæða... Trékyllisvfk er einhver af- skekktasta sveit á Islandi i dag, og ibúarnir þar þeir hamingju- sömustu sem ég hef fyrirhitt. Þángað er aðeins fært landleið- ina yfir blá sumarið, en aðdrátt- ur allur fer fram i lofti og á sjó. Og þar er nú ekki verið ab fjasa út af smámunum eins og götu- ljósum, snjódekkjum, súrmjólk, lélegum kvikmyndum eða strætisvögnum sem aldrei koma. Ég reyndi allt hvað ég gat að komast að þvi, hvort það væri ekki eitthvað sem þjakaði þetta fólk; hvort það væri ekki eitt- hvað sem vantaði eða mætti fara betur. Nei, ónei, Allt var eins og það átti að vera. Meira að segja kaupfélagið var til fyrirmynd- ar. Mér var ekki farið að veröa sama hvað allir voru ánægðir, þegar ég loksins hitti Axel á Gjögri. Hann var sáróánægður. — Og hvaö er það nú helst sem þér finnst vanta? spurði ég heldur en ekki upp með mér yfir þvi að hafa nu fundið eina óánægða sál. — Hafis, svaraði Axel um hæl. Nógan hafis. Fulla firði af hafís, þá er þetta allt i lagi. Astæöan fyrir þessari frómu ósk var sú, að þá geingi grá- sleppuveiðin betur hjá Gjögr- urum. — Heldurðu að það sé nokkur stæða að 40 til 50 tonna bátar geti bara girt fyrir gaunguna og gripið hvert einasta hrognkelsi sem kemur hér upp að landinu, sagði Axel og fékk sér i nefið. Þegar þessir skrattakollar eru komnir með fleiriþúsund net i sjó, er flóinn eins og skógur. Það sést ekki i saltan sjó fyrir dufl- um. Heldurðu að það sé nokkur stæða! Minni skóli - meira nám A landnámsjörð Finnboga ramma stendur veglegt skóla- hús, steinsnar frá f jörunni. Þar er skólastjóri Torfi Guðbrands- son og sér hann einn um alla kennslu. Kona hans Aðalbjörg Albertsdóttir sér um matseld fyrir nemendur, og hjá þessu ágæta fólki fékk ég ab liggja inni á meðan ég gisti vikina. Skól- anum er skipt niður i tvær deild- ir og er hver deild hálfan mánuð I skólanum og siðan hálfan mánuð heima. Þessir krakkar fá þvi helmingi skemmri skóla- gaungu en jafnaldrar þeirra í þéttbýlinu. Maður skyldi nú ætla að það þýddi hálfu minni menntun, en svo er ekki. Þessir krakkar standa sig eingu lakar en jafnaldrar þeirra sem feingið hafa helmingi leingri skóia- gaungu. Og svo er verið aö tala um að leingja skólaskylduna ennþá meira! Jesús minn á himnum, hefði nú maðurinn þinn sagt. Stað- reyndin er sú, að skólar i þétt- býli eru orðnir eins mikil barna- heimili og skólar. Þetta eru geymslur þar sem krakkar verða að dúsa og láta sér leið- ast; læra fátt annað en að fiflast og hata ekkert meira en skól- ann. 1 Trékyllisvik hlakka krakk- arnir til þess að koma I skólann. Travolta og Trékyllisvík Já Friða min. Meira að segja krakkarnir voru ánægðir. Það eina sem kannski hefði mátt fara betur hjá þeim var það að fá að sjá goðann Jón Travolta á léreftinu. Þaö voru sem sagt uppi sterkar óskir um að sjá fyrirbærið Gris. Ég spurði hvort þau ætluðu sér ekki að flytja úr sveitinni Nóttin er köld... þegar þau yrðu fulioröin. Nei, þau héldu nú ekki. Þau gætu hvergi annarsstaðar hugs- að sér aö vera. — En nú eigið þið kannski eft- ir að ná ykkur i maka frá Reykjavik sem ekki kærir sig um að setjast hér að, sagði ég. Hvað gerist þá? — Hann um það. Hafi hann ekki smekk fyrir Ströndunum, þá er eingin hætta á þvi að við höfum smekk fyrir honum! Forvitni sela Til marks um það hve allt kvikt er óvant nýjum andlitum þarna norður frá, am. yfir vetr- armánuðina, eru selirnir. Dag- inn eftir að ég kom norður gekk ég niður i fjöru. Þar kom ég auga á tvo seli liggjandi á skeri skammt frá landi. Þegar þeir sáu mig, steyptu þeir sér i sjó- inn og syntu i áttina til min. Þeir ráku upp stór augu þegar þeim var ljóst hver þetta var og fylgdu mér eftir i marga tima þar sem ég gekk meðfram ströndinni. Svipaða sögu er að segja af svartbaknum. Nóttina góðu Ikirkjunni saung ég fyrir þig og þú spilaðir undir á orgelið. (Ég vissi ekki að þú kynnir að spila á orgel). Þú baðst mig að senda þér textann sem ég saung og hér kemur hann. En ég tek það fram að þetta er stoliö og stælt frá dönsku skáldi Billy Andersen að nafni, eða öllu heldur frá vini hans, Svante. Þetta heitir: Friðu-Óður. Nóttin er köld lífið er stutt mér liður illa þvi Frlða er flutt. Skrælnuð er túngan og sái min er flak. I lifinu klaungrast ég aftur á bak. Þvi að Friöa hún var svo flott ég er fullur og hef það gott. Flaskan er tóm brauðið er hart rikið er lokað og nú er þaö svart. Frfða þvf viltu ekki verða mln þú færð hángikjöt, hákarl ogbrennivin. Ó hún Frfða var svo flott ég er fullur og hef þaö gott. Angistaróp vonleysislif grátur og gnistan ó hvar er mitt vff. Lifrin er ónýt — en lukkan er min. bara ef ég næ mér I brennivin. Ó hún Frlða hún var svo flott ég er fullur og hef það gott. Ég ætla samt að biðja þig fyr- ir að láta sérann þinn ekki sjá þetta. Að svo búnu kveð ég þig og óska þess eins að guðirnir meigi verða ykkur hjónum innan handa og fóta i framtlðinni. Segðu honum séra þinum að hann þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur út af kaleiknum; hann er i minum höndum og ég gæti hans vel. Messuvinið borga ég honum að sjálfsögðu aftur. Þinn auðmjúkur aðdáandi og eilifur þræll, skriðandi I duftinu fyrir fótum þinum, Guðlaugur Arason P.S. Þið getið sent altaristöfl- una til min.ég skal koma henni i viðgerð. Mér datt það í hug Siglaugur Brynleifsson: Væringjar The Varangians of Byz- antium. Sigfús Blöndal. An aspect of Byzantine military history translated, revisedand rewritten by Benedikt S. Benedikz. Cam- bridge University Press 1978. Væringja-saga eftir Sigfús Blöndal kom út að honum látnum 1954 i Reykjavik. Jakob Bene- diktsson hafði eftirlit meö útgáf- unni. Þessi útgáfa á ensku er ný bók, sem er byggð á Væringja- sögu, en endurskoöuð og endur- rituð eins og höfundurinn gerir grein fyrir í formála. Þetta hefur verið honum langsamt og tafsamt og mjög vandasamt verk; að skrifa bók er vandasamt, en að endurskrifa bókannarshöfundar, fella úr og bæta inn i og athuga allar tilvitnanair er starf sem fáir myndu kjósa sér. Snemma komust landstjórnar- menn að þvi, að aldrei væri öruggt aö byggja á hollustu lif- varðar, sem skipaður væri mönnum af þeirri þjóð, sem iand- stjórnarmaður rikti yfir. Það var um aðgera að skipa lifvörð þeim mönnum sem heföu helst engin tengsl við ibúa rikis landstjórnar- ans og væri þeim sem annar- legastur um siðu og háttu. Þvi tóku byzantískir keisarpr það ráð að koma sér upp varð- og varnar- sveitum skipaðar mönnum, af fjarlægu þjóðerni, mönnum sem engin tengsl höfðu við Ibúa Miklagarðs og kunnu ekki tungu þeirra. Snemma á öldum tóku Svíar að stunda verslun og ránsferðir til landannaaustan Eystrasalts, og I fyrsta kafla rits Blöndals/ Benedikz er leitast við aö skýra orðiðRússiogsiðanrakin stofnun norrænna smárikja í Rússlandi, en sum þeirra smárikja voru þegar stofnuð þegar Sviarnir eða Rússarnir komu þar. Slöan er lýst skipulagi landhers og flota Byzanskeisara á 9. og 10. öld og fyrstu heimildir raktar um snert- ingu norrænna manna og Grikkj- anna, en þær heimildir eru frá stjórnarárum Þeófilusar 829-842. Basil II stofnar sfðan herdeild Væringja, en saga hennar er rak- in allt til 1204, þegar krossfara- herirnir taka Miklagarö og steypa stjórn keisara og ræna völdum I rikinu. Eftir endurreisn rlkisins i sinni fornu mynd er áfram getiö um þjónustu Vær- ingja allt til þess að Tyrkir taka borgina að lokum 1453. Kunnastur allra Væringja mun vera Haraldur Sigurðarson hálf- bróðir Ólafs helga. Hann dvaldist IMiklagarðifrá 1034-43, og lengsti kafli ritsins fjallar um störf hans á vegum keisara og dvöl hans I borginni. Miklar sögur eru af Haraldi I Islenskum miöaldarit- um og styðjast höfundar viö þær og einnig rússneskar og byzanskar heimildir ásamt fleir- um. Siðan er rakin saga Væringja frá 1042 og til 1081 og i öörum kafla frá 1081-1204. Heimildir um sögu Væringja frá 1204-1453 eru litlar og vafa- samar að auki, svo þar er mjög takmarkaður efniviður i nokkra heildarfrásögn. I áttunda kafl- anum eru dregnar saman heim- ildir um væringja úr ýmsum átt- um, annálabrotum, svo og stuðst við fornminjar. Höfundar rekja siðan frásagnir um eða eftir nor- ræna og enska Væringja og loka- Siglaugur Brynleifsson. kaflinn fjallar um rúnaletur sem snertir Væringja. 1 lokin virðist sem enskir leiguhermenn hafi komið I stað norrænna þegar kemur fram á 13. öld. A ármiðöldum og fram undir miðjar miöáldir var stólkonungur byzanska rlkisinsauöugasti og oft voldugasti landstjórnarmaður Evrópu. Nafnið stólkonungur er dregiö af forn-rússnesku nafai sem þýðir rtkir höfðingjar, „stolnyi knyazi”, sem er tekið upp I norrænu bjagað I stólkon- ungur. Miklar sögur fóru af auð stólkonungsins I Byzanz, og lengi var þetta riki Noröurlandabúum fyrirheitna landiö. Og leið þeirra þangað lá um Rússland þar til Mongólar koma til sögunnar á 13. öld. Höfundar binda sig við sögu leiguhermannanna, Væringj- anna, og tina allar tiltækar heimildir um þá til, eins og áður segir, islenskar, rússneskar og svo arabískar, enskar, byzanskar, armenskar og þær sem finnast I miöaldaritum evrópskra þjóða. Heimildasafnið er mikiö að vöxtum og er neðan- máls. Valin bibliografia er i bókarlok. Þrir uppdrættir fylgja i texta, og gegnt titilblaði er mynd af Basil II, þeim sem stofnaði herdeild Væringja. Hann var keisari 976-1025. Bækur sem þessi krefjast mjög mikillar vinnu og nákvæmni, Benedikz segir i formála að dr. Sigfús Blöndal hafi unnið að Vær- ing ja-sögu meiraogminna i 25 ár, og Benedikz vann aö endurritun og samanburði við heimildir i 15 ár ásamt öðrum störfum. En með þessari vinnu er rit Sigfúsar Blöndals komið út I annað sinn meö fullum heimildaskrám og nauðsynlegum viöbótum og úr- fellingum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.