Þjóðviljinn - 22.04.1979, Page 21

Þjóðviljinn - 22.04.1979, Page 21
Sunnudagur 22. aprn 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21 ... og þar ropar einn komma skúnkurinn... Adolf J. Petersen: VÍSNAMÁL ^§f» Kalda vatniö kemur mér upp Alþýöuskáld hafa mörg veriö á landi hér allt frá landnámstfö til vorra daga, en þaö hafa oröiö örlög margra þeirra aö gleymast i timans rás, þó nöfnum þeirra heföi átt aö halda skráöum á spjöldum sögunnar. Nú er t.d. fátt eöa ekkert vitað um höfunda tslendingasagna. Hver skrif- aöi Njálssögu? Þaö veit eng- inn. Alþýöuskáldin áttu og eiga sina köllun, sitt hugarflug og skáldsnilld. Mörg ljóö þeirra hafa veitt yl og unað innað hjartarótum hvers þess manns sem ljóðum ann. Alþýöan skildi skáldin sin, hún nam ljóö þeirra vegna þess aö efniö var úr hvers- dagslifinu, þau voru hnyttin, lipur og létt kveöin, oft meö káti'nu eöa gleöiblæ. Þau uröu héraösfleyg, lærö og kveöin kynslóö eftir kynslóö, löngu eftir aö höfundar þeirra voru látnir og kannski gleymdir. Oft eru lög kynnt i rflúsút- varpinu eftir eitthvert tiltekiö tónskáld, en textinn er þjóö- visa.En oröiöþjóövisa merkir þaö aö þjóöin hafi ort visuna, einfaldlega vegna þess aö þá er ekki vitaö um hinn rétta höfund. Fyrir skemmstu hlýddi ég á tónleika. A efnisskrá var is- lenskt þjóðlag og textinn sagöur þjóövisa, en visan er viöa til á prenti og höfundarins getiö, hann var Vilhjálmur Hulter: Veröld fláa sýnir sig, sú mér spáir höröu, flestöll stráin stinga mig stór og smá á jöröu. Vilhjálmur hefur sennilega ekki búist viö þvi aö þessi ágæta visa hans yröi gerö aö þjóövi'su tiltölulega fáum árum eftir fráfall hans. Margir kannast viö og kunna vfsuna: Kalda vatniö kemur mér upp kippir doöa úr taugum. Verkir sjatna um hrygg oghupp, hverfur roöi af augum. Tilefni visunnar var aö höf- undurinn var viö öl og kom aö bæ þar sem hann baöst gist- ingar, og sér væri gefiö vatn aö drekka, en húsbóndinn hélt aö hann mundi litið hressast á þvf. Höfundur visunnar er Guð- mundur Einarsson f. 1823 á Starrastööum i Skagafiröi. Faöir hans var Einar Bjarna- son á Mælifelli er ritaöi hiö merka fræðimannatal. Guö- mundur gekk f Bessastaöa- skóla. Þar var hann samtiða Benedikt Gröndal og Magnúsi Grimssyni. Guömundi gekk vel í skóla, en jafnframt þvi var hann talinn þar bestur glfmumaöur. Tvitugur aö aldri gerðist hann sýsluskrifari f Húnaþingi og var þaö til æviloka. Hann dó á Geitaskaröi i Langadal 1865. Hann giftist ekki, en átti einn son, Valtý, sem var rit- stjóri Eimreiöarinnar og þekktur stjórnmálamaöur um siöustu aldamót. Stefiia hans var kölluö Valtýskan. Guömundur var skáld alþýöunnar. Ljóö hans og lausavfeur eru öll þess eðlis, aö kannski undanteknum ljóöaflokknum „úr Friðþjófs- sögu Tegnérs”, sem heyrir undir aö vera fornyröis- kveöandi bæöi i máli og formi. Þær eru eflausl um tiskuna á þeim tima þessar vfsur Guö- mundar um háriö bjart og svart: Hættir bæði og hluta fjöld hagir manna og breytni jafnan breytist öld frá öld, ekki er þetta skreytni. Fyrrum vildu fiestir bjart fyröar háriö bera, nú þeir allir óska svart aö þaö mætti vera. Þó er ekki þar meö sagt, þetta aö öllum liki, á þaö misjafnt álit lagt er i stúlkna riki. Þær sem háriö hafa svart, heldur óska fýsast: Ó, aö það væri oröiö bjart, en þaö vill ei lýsast. Hinar, sem aö háriö bjart hafa, segja og klökkna: Ó, þaö væri oröiö svart, en þaö vili ei dökkna. Svo lýsir Guömundur stúlku þannig: Mittisnett er mærin svinn, myndar bros á vörum, vaxin rétt, meö rjóöa kinn, rösk og greind i svörum. Eitthvaö hefur Guömundur komist i kynni við sambúö elskandi hjóna og kveöið: Ekki er kyn þó veröi vel vinsemd gróin hjóna, til ástar eigi þýöist þel þeirra saman flóna. Hann er nokkuö hefnigjarn, af heiftum stendur á þambi, hégómleg er hún sem barn, heimsku fuil af drambi. Mansöng þennan til meyjar hefur Guömundur ort I gamni enöllu gamni fylgir nokkur al- vara: Astarguð i bragna brjóst bentum ý kann miöa, aldrei fyrir oddinn dróst eöa fló til hliða. Engin náir hlifa hlíf úr höröu smiöuö stáli, eins er þá og lifaö lif leiki f strlöu báli. En þó menn fái ör af ör inn aö hjartarótum, ef þá kemur vör viö vör veröur aö heilsubótum. Fagurleita lindagná, Ijós meö blómsturkinnum, kærleik þinum kýs ég ná, kysstu mig ótal sinnum. Húsfreyja ein neitaöi manni um skinn i skó. Guömundur kvaö: Sauöargæru ei missa má marar brennu lilja, þvi úlfinn nær hún ekki þá undir henni dylja. Veriö getur aö Guömundur hafi haft einhvern granna sinn I huga þegar hann kvaö: Ekki skortir refjar ref, er ræöst I stórt hans hugur, en köngulóin vefur vef og veiöir I honum flugur. Nú er sumariö komiö eftir haröan og óbilgjarnan vetur og vorþ'áin i sálir mannanna. Þaö er Soffia Eygló sem á þessa Vorþrá. Senn mun jöröin sauma ótal nálum grænan lit I grund og móa. Þá mun ég hugsa þaö var fyrir slikan lists au m sem ég liföi af veturinn Gleöilegt sumar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.