Þjóðviljinn - 28.04.1979, Síða 6
í AÖÍ3 — (ÍíátlíWðW éflfl Wwjb $í
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 28. april 1979
Lög um rétt til
launa i veikinda-
og slysatilfellum
Ihaldið
sat hjá
I gær voru samþykkt lög
frá Alþingi um rétt verka-
fólks tÚ launa i veikinda- og
slysatilfeiium. Lög þessi
veita almennu verkafólki
rétt til uppsagnarfrests 1—3
mánaóa eftir starfstima, og
rétt til launa i veikinda- og
slysatilfellum í 3 mánuöi.
Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins á Alþingi lögðust
gegn samþykkt þess frum-
varps nú og lögðu þeir fram I
efri deild tillögu um frávisun
þess með rökstuddri dag-
skrá. Við lokaafgreiðslu
málsins sátu þeir hjá og var
frumvarpið samþykkt sem
lög með 11 atkvæðum þing-
manna stjórnarflokkanna.
Frumvarp þetta er eitt af þvi
sem verkalýðshreyfingunni
var heitið við efnahags-
aðgeröirnar 1. desember sl.
Númunuvera óafgreidd tvö
frumvörp sem tengd voru
þessum fyrirheitum og eru
þau bæði til afgreiöslu i
neöri deild, en efri deild
hefur lokið afgreiðslu þeirra.
Er þá átt við þau frumvörp
sem lögðvorufram fyrir jól.
sgt
Opið hús í
Arnarholti
Kynnt starf og
aðbúnaður geðdeildar
I fyrsta sinn á Islandi verður nú
almenningi gefinn kostur að
skoðaogkynnast starfsemi og að-
búnaði geðdeildar.
Opið hús verður i Arnarholti á
Kjalamesi sunnudag 6. mal kl.
13—17. Nýja húsið og hluti gamla
hússins verður opiö og getur þar
að lita þær breytingar sem orðið
hafa á aöbúnaði sjúklinga, en
með tilkomu nýrra bygginga
hefur gefist tækifæri til bættra.
meðferðar og endurhæfingar.
Kaffi- og veitingasala verður
ásamt sölu hannyrða vistmanna á
staðnum.
Kópavogskór
syngur í
Borgamesi og
Laugagerði
Samkór Kópavogs heldur tón-
ieika I Jélagsheimilinu I Borgar-
nesi laugardaginn 28. aprii kl. 15
og I Laugargerðisskóla á
Snæfellsnesi sama dag kl. 21.30.
A efnisskránni eruerlend lög og
innlend, þar á meöal syrpa af
lögum eftir Sigfús Halldórsson.
Stjórnandi kórsins er Kristln
Jóhannesdóttir og undirleik
annast Sveinbjörg Vilhjálms-
dóttir.
Deilan um skattheimtu af Listahátíð:
Listahátíð hefur aldrei
greitt opinber gjöld
Eins og fram hefur
komið í fréttum hefur
það verið ákveðið i fjár-
málaráðuney tinu að
hagnaður af siðustu
Listahátið skuli ganga
upp í opinber gjöld.
Aðstandendur Lista-
hátiðar telja að hún
eigi að vera með öllu
undanþegin opinberum
gjöldum og visa tii
samnings þ.a.I.
Ekki er fullljóst hver
hagnaður varð af
siðustu listahátið; telja
sumir að hann sé u.þ.b.
7. milj. oi aðrir að hann
sé minni.
Þjóöviljinn hafði samband við
Njörð P. Njarðvik formann
framkvæmdastjórnar lista-
hátíðar og spurði hann hvernig á
ágreiningnum um opinberu gjöld-
in stæði og fer svar hans hér á
eftir:
Samningur
Fyrir siðustu listahátlð, árið
1978 var gerður samningur i
tveimur greinum og hann undir-
ritaður af þáverandi mennta-
málaráðherra, fjármálaráðherra
og þáverandi borgarstjóra. Fjall-
ar hann annars vegar um þaö
hvernig eigi að greiöa hugsan-
legan halla á listahátið, en hins
vegar hvernig fara skuli með
opinber gjöld. 1 siöari greininni
segir að fella skuli niður opinber
gjöld. Borgin beri það sem undir
hana heyrir af gjöldum, en rlkiö
það sem undir það heyirir.
Ráðuneytisstjóri Fjármála-
ráðuneytisins virðist líta svo á aö
siðari greinin gildi aðeins ef um
halla er aö ræöa á hátiðinni.
Við teljum hins vegar að sú
grein sé i fullu gildi hvort heldur
ágóöi eða halli er á hátiðinni. Við
vitnum til þess að 1976 var
fjárhagslegur hagnaöur af lista-
hátíð. Engu að síöur voru ekki
greidd nein opinber g jöld af henni
það ár. Listahátið hefur aldrei
greitt neins konar opinber gjöld!
Enda hefur aldrei verið gert
ráð fyrir þeim i neinni f járhags-
áætlun. Af þvi hlýtur að mega
draga þá ályktun að tilgangur
áðurnefnds samnings sé augljós,
þó að orðalag hans sé þannig að
hugsanlega megi hártoga þar
einstök atriði.
Ráðuneytisstjóri fjármála-
ráðuneytisins vill fá tekjuafgang
slðustu hátiðar upp I opinber
gjöld en þau nema um 23 miljón-
um króna til rikis og borgar fyrir
s.l. ár.
Pólitiskt mál
Þetta er aö minni hyggju mál
sem I raun og veru er stjórnmála-
legs eölis og ekki spurning um
túlkun samnings. Þ.e.a.s. hvort
hver hátið sé sérstakt íyrirtæki
sem ævinlega eigi að byrja á
núlli.
Listahátíö getur aldrei staöið
undir opinberum gjöldum, hversu
vel sem húngengur.Ef gertheföi
veriö ráö fýrir þessum opinberu
gjöldum á slðustu áætlun heföi
hún skilað stórkostlegum halla.
Reikningar Listaháíiðar 1978,
sem eru undirritaðir I nóvember
s.l. sýna að vlsu hagnað eins og
málin stóðu á þeirri stundu. En
Listahátið er þess eðlis aö reikn-
ingar eru að berast löngu eftir að
hún er haldin við erum þess
vegna enn þá að greiða reikninga
sem eru tengdir siöustu Lista-
hátið. Skýringin er m.a. sú að átt
er I skiptum viö aöila út um allan
heim og i svo margslungnu fyrir-
tæki koma alltaf upp ófyrirsjáan-
legir hlutir.
Nú, þá má benda á að Lista-
hátíð verður aö gera samninga
viðlistamennlangt fram i timann
og eins er töluvert um skuldbind-
ingar og f járfestingar sem erfitt
er aö sjá hvernig hægt sé að
skella á hverja einstaka hátið. 1
þvisambandi mábenda á kostnað
af innréttingum og endurbótum á
húsnæði og fúndahalds.
Þess vegna segir reiknings-
uppgjör aldrei alla sögu; hver
hátiö dregur á eftir sér langan
slóða. Jafnframt þvi sem næsta
hátið krefst mikilla fjárútláta við
undirbúning. Þess vegna ber aö
minu viti að lita á Listahátiö i
Reykjavlk sem eitt samfellt
fyrirtæki, en ekki margar sjálf-
stæðar hátíðir,
Ef það er skoðun f jármálaráöu-
neytisins að listahátiömegi aldrei
halda neinum tekjuafgangi
heldur eigi hann að hverfa I rflris-
sjóð, þá er náttúrlega ekki veriö
að ýta undir aðhaldssemi I rekstri
þessarar starfsemi.
Ekki fyrir
fjármálaráðuneytið
Aö minni hyggju er það ekki til-
gangur Listahátiðar aö vera
ábatafyrirtæki fyrir ríkissjóð.
Tilgangur hátiðarinnar er, og það
er tekið fram i lögum hennar, að
gefa Islendingum kost á að njóta
þess besta i islenskri norrænni og
alþjóðlegri list. Takist aðstand-
endum Listahátiðar þetta án þess
að halli verði og Reykjavikurborg
eða rikið beri fjárhagslegan
skaða af, þá finnst mér það
sanngirnismál að Listahátið njóti
þess en ekki fjármálaráðuneytið.
"Það er yfirleitt ekki venja að
ætlasttil þessaðalvarleg listskili
hagnaði. Hafi það tekist þá
verður það að minnsta kostí ekki
skriíaö á afrekaskrá fjármála-
ráðuneytisins.
Þess vegna lit ég svo á, að
þvermóöska ráðuneytisstjóra i
þessu máli, þar sem hann neitar
Listahátlð um sömu fyrirgreiðslu
og hún fékk I tið fyrirrennara
hans 1976 sé bein ógnun við Lista-
hátiö I Reykjavik. ÞB.
Viðtal við Njörð P. Njarðvík
Stefnir heldur tónleika
Arlegir vortónleikar Karla-
kórsins STEFNIS verða I
Félagsgarði i Kjós mánudaginn
30. aprD n.k., i Hlégarði I Mos-
felissveit 1. mai og 4. mai, og I
Fólkvangi á Kjalarnesi 5. mai.
Aliir tónleikarnir hefjast kl. 21.
Söngskráin er fjölbreytt og
eru þar bæði innlend og erlend
sönglög, m.a. verður lag eftir
dr. Gunnar Thoroddsen I útsetn-
ingu Páls Pampichler Páls-
sonar. Einsöngvari kórsins að
þessu sinni er sá ágæti söngvari
Friðbjörn G. Jónsson. Stjórn-
andi kórsins er nú sem fyrr
Lárus Sveinsson trompetleik-
ari.
r
Utvarpsráð hótar
Stórfelldur nídur-
skurður dagskrár
Útvarpsráð gerði á fundi sinum
f gær einróma samþykkt um að
skera þyrfti niður stórlega
dagskrá útvarps og sjónvarps ef
ekki fæst launs á ftárhagsvanda
stofnunarinnar.
Útvarpsráö telur tvær ástæður
valda þviaöútvarpiðernúímeiri
kröggum en nokkru sinni fyrr.
Annarsvegar hafi rikið tekið til
sin 836 miljónir I toilatekjum af
innfluttum sjónvarpstækjum,
sem ella hefðu fariötil endurbóta
á dreifingarkerfi þess og fleiri
hluta. Hinsvegar heföi ekki
fengist fram nema 15—17% hækk-
un á afnotagjöldum á meöan önn-
ur þjónusta hefur hækkað meir.
Einkum fer útvarpið illa út úr
samanburði við áskriftarverð á
dagblöðum sem hafa hækkað um
50% síöan i september.
Otvarpsráð bendir á þann
vansa sem þvi fylgir að stofnunin
getur ekki sinnt fjölþættu menn-
ingarhlutverki sinu á tímum mik-
illa breytinga og harðnandi
samkeppni I fjölmiðlun.
Matsveinar hafa lagt
fram kröfur sínar
I gærmorgun var haldinn
fundur atvinnurekenda og
undirmanna á f arskipum. A fund-
inn mættu fulltrúar Vinnu-
vei tendasam bandsins , Vinnu-
málasambands samvinnu-
félaganna, Skipaútgerðar rikisins
og hinsvegar fulltrúar frá Sjó-
mannafélagi Reykjavikur, Mat-
sveinafélaginu og Þernufélaginu.
Rætt var um samningamálin.
Matsveinafélagið hefur lagt
fram kröfur sinar og kröfur Sjó-
mannafélags Reykjavikur verða
væntanlega lagðar fram á mánu-
daginn, en öll félögin eru meö
lausa samninga.
A fundinum i gær settu atvinnu-
rekendur fram hugmyndir um
framlengingu ásamningum til 30.
desember. Jafnframt lögðu þeir
fram hugmyndir að breyttum
samningagrundvelli, sem þeir
telja leiða til betri launa meö
„ákveðnum hagræöingar-
atriðum”, eins og Barði Friðriks-
son f r amkvæm æmdas tjór i
Vinnuveitendasambands tslands
orðaði það í samtali við Þjóðvilj-
ann.
„Fyrir okkur vakir að reyna
með öllu móti að semja við alla á
skipunum á sama tima, þvi ann-
ars erum viö ofurseldir keðju-
verkföllum,” sagði Barði.
—eös