Þjóðviljinn - 28.04.1979, Blaðsíða 15
Laugardagur 28. april 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
íþróttir
iþróttir
Úrslitaleikur-
inn á morgun
Urslitaleikur bikarkeppni HSI
verður I Höllinni annaö kvöld kl.
20.30 og eigast þar við Vikingur og
IR, sem tryggði sér þátttökurétt I
gærkvöldi með sigri yfir FH.
Þetta er I 6. sinn, sem keppt er I
bikarkeppninni, og er gamli
bikarinn kominn i eigu FH, en
þeir sigruðu oftast á þvi 5 ára
timabili sem keppt var um bikar
þann sem Breiðholt gaf. Nú hefur
Frjálst framtak gefið nýjan og
sérlega glæsilegan bikar til
keppninnar.
Hannes Guðmundsson,
stjórnarmaður i Vikingi, sagði i
gærkvöldi að sinir menn væru
nokkuð smeykir við ÍR, þvi þeir
væru ódrepandi barattujaxlar og
gerðu oft ótrúlegustu hluti. Þó
væru Vikingarnir staðráðnir i að
sigra; ekkert annað kæmi til
greina.
Ingólfur Oskarsson, þjálfari IR
sagði að staða sinna manna væri
vægast sagt slæm, þvi þeir hefðu
tapað öllum leikjunum gegn Vik-
ingi i vetur. Þó færu þeir ekki með
þvi hugarfari inn á völlinn að
leikurinn væri tapaður, heldur
myndu allir gera sitt besta.
Eins og áður sagði hefst leikur-
inn kl. 20.30 i Laugardalshöll
annað kvöld, og á undan verður
leikið til úrslita i bikarkeppni
kvenna.
Ing H.
V íkingsstelpurnar
héldu sæti sínu
ÍBK mœtti ekki til leiks til að
mótmœla ákvörðun mótanefndar
Það var heldur betur auðvelt
fyrir Vikingsstelpurnar að halda
sætisinu i 1. deildinni vegna þess
að andstæðingar þeirra, IBK,
mættu ekki til leiks og höfðu
margir Vikingarnir það á orði að
slika afstöðu væri vel hægt að
skilja.
Keflavikurstelpurnar afhentu
blaðamönnum bréf i gærkvöldi og
segir það allt það sem segja þarf.
Fer bréfið hér á eftir og voru
menn á einu máli um sanngirni
þess sem þar er krafist:
Keflavik, 27. aprll 1979.
Við undirrituö, leikmenn og
þjáifari M.fl. I.B.K. i handknatt-
leik kvenna, mótmælum harðlega
þeirri svivirðilegu framkomu
mótanefndar H.S.I. að ætlast til
þess, að við Ieikum 4 úrslitaleiki á
5 dögum, þ.e. 24., 26., 27. og 28.
april. Þessi mótmæli sýnum við i
verki með þvl að mæta ekki til
leiks 27. og 28. aprll. Jafnframt
skorum viðá mótanefnd H.S.I. að
endurskoða afstöðu sina og
ákveða leikdaga úrslitaleikjanna
við Viking á sanngjarnan hátt svo
að viðfáum tima til þess að jafna
okkur eftir hina erfiðu leiki sem
fram fóru 24. og 26. aprll s.l. Ef
það verður ekki gert og Vlkingi
dæmdur sigurinn þá litum við svo
á, að mótanefnd H.S.I. hafi fært
Vikingi sigurinn á silfurfati og
mismunað þannig liðunum gróf-
lega. Við krefjumst þess enn-
fremur að mál þetta verði tekið
fyrir hjá mótanefnd H.S.I. þegar I
kvöld og að við verðum upplýst
um niðurstöður fundarins þegar
að honum loknum.
Virðingarfyllst,
leikmenn og þjálfari IBK
(sign)
wf jyi sm
■w mmm’ l®y/
M 4Í • \ mLm
IHB \ Wm Wr'm 1 Hssr * :
Janus Guðlaugsson og félagar IFH misstu af sigri gegn IR á endasprettinum.
Naumur sigur ÍR
Klaufaskapur FH-inga á loka-
minútum leiks þeirra gegn IR I
gærkvöldi kostaði þá sigur I
leiknum og sæti i úrslitunum.
Þeir misstu taktinn og
IR-ingarnir gengu á lagiö, sigu
framúr og sigruðu 19—18.
Leikurinn var mjög jafn allan
timann, 2—2, 5—5,10—1Ö og f hálf-
leik var staðan 12—10 fyrir IR.
Varnirnar þéttust i seinni hálf-
leik, 13—13, 15—15 og 17—17. Þá
var komið að IR að sýna yfir-
Nýi gallinn
réd úrslitum
Það vakti mikla athygli á
leiknum I gærkvöldi, að Jens
Einarsson, IR - markvörður var I
skærkommarauöum æfingagalla
með stuðpúðum á brjósti og
mjöðmum.
Þegar Jens var spurður um
gallann sagði hann, að
vestur-þýski landsliðsþjálfarinn
Vlado Stenzel heföi sent íslensku
landsliðsmarkvöröunum eitt
stykki hverjum og hefði
„múnderingin” áreiðanlega gert
sitt til að leggja FH að velli...
vegunina sem til þurfti og sigur-
inn varð þeirra.
Janus átti mjög góðan leik I liði
FH, en missti boltann heldur
kiaufalega þegar mest á reið
undir lokin. Þá var Geir sprækur
til að byrja með og einnig varði
Birgir vel á köflum.
Hjá IR var Jens yfirburöa-
maður eins og svo oft áður og eins
var Brynjólfur góður.
Ing H.
Cunningham tll
Barceiona?
Mörg fræg knattspyrnulið
eru nú að bera viurnar I hinn
frábæra leikmann WBA
Laurie Cunningham. Þeirra á
meðal eru Barcelona, Milan
og Valencia, sem öll eru
reiðubúin að snara út 750 þús.
pundum fyrir kappann.
Samningur Cunningham við
WBA gldir ekki nema til loka
yfirstandandi keppnistimabils
og því hafa hin stóru félög gert
þessi freistandi tilboð. Ron
Atkinson, stjóri WBA, hefur
látið hafa það eftir sér, að
hann muni reyna aö fá Laurie
til að endurnýja samninginn.
West Bromwich Albion
keypti Cunningham frá Orient
i mars 1977 og siðan hefur
frami hans veriö ótrúlega
skjótur. Hann hefur leikið
meö enska landsliöinu undir 21
árs og var i vetur I enska
landsliðshópnum. Þá er
samvinna hans við Cyrille
Regis fræg og þeir eru einn
besti sóknardúett I enska
boltanum.
Lyftingamenn á NM-mót
Landsliö tslands I lyftingum
keppir nú um helgina á Norður-
landamóti, sem fram fer I Ring-
sted I Danmörku. i dag verður
keppt I léttari þyngdarflokkun-
um, en á morgun keppa þeir
þyngri.
Landsliðið er þannig skipað:
Þorvaldur B. Rögnvaldsson, KR
Kári Elisson, IBA
Freyr Aðalsteinsson, IBA
Guðgeir Jónsson, KR
Birgir Þór Borgþórsson, KR
Kristján Falsson, IBA
Guðnfundur Sigurðsson, A
Arni Þór Helgason, KR
Gústaf Agnarsson, KR
Agúst Kárason, KR
Þetta er geysilega harðsnúið liö
og ef að líkum lætur munu nokkr-
ir þeirra vinna til verðlauna. Þjv.
mun skýra frá helstu úrslitum á
mótinu á þriðjudaginn.
IngH
ét
Iþróttir um
helgina
Hápunktur iþróttalifs
helgarinnar verður úrslita-
leikurinn I bikarkeppni
handboltam anna, bæði I
karla- og kvennaflokki.
Kvennaleikurinn hefst kl. 19 I
Höllinni á morgun og karla-
leikurinn verður strax á eftir
eða kl. 20.15.
íslandsgllman fer fram i
iþróttasal Kennaraháskól-
ans á morgun, sunnudaginn
29. aprH oghefstkl. 14. Glim-
an fer nú fram i fyrsta sinn
með úrsláttarfyrirkomulagi.
Glimt er um verölaunagrip
Gli'musambands tslands,
Grettisbeltið, sem er farand-
gripur. Sá, sem sigrar, fær
handhafarétt á beltinu i eitt
ár og hlýtur hann sæmdar-
heitið Glimukappi Islands.
Einhverjir leikir verða i
iitlu og stóru bikarkeppnun-
um og meistarakeppninni i
knattspyrnu, en öngvar upp-
lýsingar hafa fengist um þá
leiki. A Reykjavikurmótinu
verða tveir leikir. Fram og
Þróttur keppa i dag kl. 14 og
á morgun kl. 14 leika KR og
Fylkir.
A myndinni hér aö ofan eru nokkrir landsliðskappanna áður en lagt var I slaginn. Lengst til vinstri er Ólafur Sigurgeirsson formaður LSI, þá Þor-
valdur B. Rögnvaldsson, Guðgeir Jónsson, Gústaf Agnarsson, Agúst Kárason og Birgir Þór Borgþórsson.