Þjóðviljinn - 27.05.1979, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 27.05.1979, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. mai 1979 DIOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis t’tgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: EiÖur Bergmann Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir Umsjónarmaöur Sunnudagsblaös: Ingólfur Margeirsson. Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar örn Stefánsson, Guöjón Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Halldór Guömundsson. tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaöur: Siguröur G. Tómasson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. Útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Safnvöröur: Eyjólfur Arnason Auglýsingar: Sigríöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Ólafsson. Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson. Afgreiösla: Guömundur Steinsson, Hermann P. Jónasson, Kristín Pét- ursdóttir. Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir. Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuÖmundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Slöumúla 6, Reykjavlk, sfmi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf. Vísir, þjóðarkakan °g atvinnurekendur #Undarlegur geðkolfningur á sér stað um þessar mundir í hægriblöðunum. Bæði Morgunblaðið og Vísir hafa skrifað margt um það, að launamálavandkvæði nú um stundir megi ekki síst rekja til afskipta ríkisstjórna af launamálum. I framhaldi af því tekur til dæmis Morgunblaðið nokkuð mikið upp í sig og segir sem svo, að best sé að hætta öllum slíkum afskiptum og ef það •kostar verkföll og verkbönn þá verði svo að vera. En i annan stað er síðan kjarakröf um einstakra hópa haf nað á þeim forsendum, að staða fyrirtækjanna þoli ekki kauohækkanir. #Þessi blanda verður oft hin undarlegasta en þó sjald- an eins og í ieiðara Vísis þann 19. mai. Þar er sagt að „hin raunverulegu vandamál við ákvarðanir í launa- málum" séu einkum tvennskonar. I fyrsta lagi er talað um afskipti ríkisstjórna og þau fordæmd eins og fyrr segir, einnig er það í leiðinni fordæmt, að stjórnmála- flokkar skuli skipta sér af kjaramálum. Síðari for- dæmingin er reyndar enn undarlegri en sú fyrri: til hvers heldur Vísir að stofnaðir séu pólitískir f lokkar, ef að þeir eiga að hafna því fyrirfram að reyna að hafa áhrif á launamál? Eiga þeir kannski að láta sér nægja minkinn, rjúpuna og sterka bjórinn? # Hinn hluta vandans rekur Vísir til þess sem hann kallar „innbyrðis baráttu launþegahópanna um skiptingu sins hluta af þjóðarkökunni". Þetta telur blaðið vera höfuðvanda í kjaramálum í dag. #Hinn pólitíski tilgangur sem að baki túlkunar Vísis liggur er alveg augljós. Hann er sá, að koma því inn hjá fólki að átök um kjaramál séu annaðhvort hvimleiðum stjórnmálamönnum að kenna eða þá verkalýðs- félögunum sjálfum. Leiðarinn segir reyndar fullum fetum að vinnudeilurnar séu „í eðli sínu fyrst og f remst átök milli launþegahópanna innbyrðis en ekki stríð milli vinnuveitenda og launþega, þó að deilurnar líti þannig út að ytra formi". Þetta er blátt áfram stórsnjallt: kjara- deilurnar koma atvinnurekendum ekkert við nema „að ytra formi".! Næsta skrefið mætti gjarna vera aðætlást til þess af lesendum blaðsins að þeir sárvorkenni hinum vammlausu atvinnurekendum fyrir að þurfa að draslast með ruglaða stjórnmálamenn og freka alþýðu. #Stéttarleg viðhorf Vísis birtast ekki aðeins í því, að reynt er að draga atvinnurekendur út úr kjaradæminu. Menn taki eftir orðalaginu um að launþegahóparnir séu að deila innbyrðis „um sinn hluta af kökunni". Þessi framsetning byggir á þeirri forsendu að þessi frægi kökubiti sé einhver ákveðin og óbreytanleg stærð, sem atvinnurekendum kemur þá væntanlega ekkert við — nema þá að forminu til. # Hvort sem fleiri eða færri dæmi eru rakin úr mál-* flutningi Vísis og Morgunblaðsins þá er eitt Ijóst: þver- stæður þessa málflutnings eru ekki tilviljanakenndar heldur yfirvegaðar— höfuðatriðið er að etja einstökum hópum launamanna saman. Það verður ekki nógsam- lega brýnt fyrir mönnum að hér er í raun réttri um alvörumál að ræða: ef launamunur vex í þjóðfélaginu þá magnast eftir því erfiðleikar á því, að launamenn geti staðið saman um heildarstefnu sem vinni í raun i þágu þeirra allra. Ef alþýðusamtökin í þessu landi vilja ná einhverjum raunhæfum árangri þá er ekkert brýnna en að vinna að mótun slíkrar stefnu, sem samstöðu tryggi. Annars verður Vísi og hans nótum að þeirri ósk sem blaðiðorðar á svofelldan meinfýsinn hátt í fyrrnefndum leiðara: „Oftast er reynt að láta lita svo út sem laun- þegahóparnir standi hver með öðrum. En í raun og veru eru þeir hin stríðandi öfl". Ein fróm ósk á barnaárinu Þversagnir sósíalism- ans eru margar og merki- legar sumar hverjar. Ein er til að mynda sú, að kommúnistar hneigjast mjög til vinnu á aug- lýsingastofum, þar sem hannaðar eru auglýsing- ar handa kapltalistum svo þeir geti selt meira drasl og grætt meira. Margir kommúnistar hreinlega elska þetta starf og helga líf sitt trú- mennsku og þjónustu við f jandvini sína, kapltalist- ana. Nú bar svo viö daginn fyrir 1. maú nánar tiltekiö 30. aprll, aö sá alræmdi kommúnisti og teiknari Gisli B. Björnsson bauö i bió aö horfa á hundraö bestu myndir i bransanum á siöasta ári og höföu menningarvitar i Cannes vélt um val þeirra á ár- legri ræmuhátiö þar i borg. Kommúnistar létu ekki segja sér þetta tvisvar og fjölmenntu drengilega i Laugarásbió téöan dag klukkan fjögur, enda voru gefin fögur fyrirheit um aö i hlé- inu yröi borinn fram teill sá sem kenndur er viö kok og rennur oft ljúflega niöur um þaö liffæri. Þaö var vissulega menningarviöburöur aö horfa hugfanginn á hundraö bestu sjónvarpsauglýsingar hins frjálsa heims, frá Alþjóölegu auglýsingakvikmyndahátiöinni i Cannes 1978. Dubonnet, Irish Coffee, Guinnessbjór, enn bjór og meiri bjór, gosdrykkir, kaffi, kex og súperman. Hundamatur, búöingar, uppþvottavélar, bréf- snýtuklútar og bleijur, vindlar, Carmenrúllur, Fiat 127, Levis gallabuxur, svefnpillur og , tryggingar. Gleraugu, kúlu- pennar, bjór, viski, smjör, egg, sólarolia og Peter Ustinov á Ir- landi. Vitamin, kartöflumús, eyrnapinnar, sápa, myndsegul- bönd, dagblöö, konfekt, ostur og einstæöar mæöur... Já, biddu hægur. Einsog Gisli B. Björnsson sagöi i upphafi sýningarinnar, þá fer vaxandi þáttur þeirra mynda sem fjalla um „samfélagiö og vandamál þess”. bvi gaf aö lita á stangli innan um bjórinn, brenniviniö og bilana áróöur fyrir tilveru- rétti einstæöra mæöra og barna þeirra, bráösmellna „and-aug- lýsingu” um fáránleik hinnar heföbundnu kvenimyndar aug- lýsinganna, áróöur gegn reykingum og gegn drykkju ökumanna („Think before you drink”), meinhæöinn heilsu- gæslu- og hófsemisáróöur („One way to a man’s heartattack is through his stomach”), áróöur fyrir aukinni notkun neöanjaröarlesta, náttúruverndaráminningar. — Oliukreppan kom einnig viö sögu og oliumengun, vangefin börn lika. Auglýsingar eru auövitaö aö- eins tæki til aö koma áróöri á framfæri. Hér helgar tilgangur- inn meöaliö einsog viöar og liggur i augum uppi, aö I þjóö- félagi einkagróöa og einka- neyslu þjónar þaö hagsmunum langflestra auglýsenda aö viöhalda kapltalisku hagkerfi. Megintilgangur þeirra meö auglýsingum sinum hlýtur þvi aö vera aö auka neyslukapp- hlaup almennings og þar meö gróöa sinn. Sjónvarpsauglýsingar eru sannast sagna hábölvaöar, einkum þó og sér i lagi vegna hins mikla áhrifamáttar þeirra á börn. Þessar glansmyndir, sem börnin gleypa gagnrýnis- laust, brengla margar hverjar gersamlega mynd þeirra af framtiöinni, heimi fulloröna fólksins. Getur ekki menntamála- ráöherra sá sem nú situr og sagöur er sósialisti, beitt sér fyrir þvi á blessuöu barnaárinu, aö sjónvarpiö afli sér tekna meö geöslegri hætti en auglýsing- um? Aö visu mundi þetta kosta þaö aö nokkrir kommúnistar i auglýsingabransanum misstu spón úr aski sinum. En það veröur þá bara aö hafa þaö. Vel- ferö barnanna hlýtur aö sitja i fyrirrúmi á barnaári. Jafnframt væri óskandi aö þeir ágætu kvikmyndageröar- menn sem þurfa aö sóa kröftum sinum og listrænum gáfum I auglýsingagerö, fái annaö aö sýsla og meira viö hæfi. Mætti jafnvel um leið og sjónvarps- auglýsingabanniö skellur á koma i veg fyrir ótimabært at- vinnuleysi þessara kvikmynd- ara og kommúnista meö þvi aö gera þeim einhvern grundvöll aö starfa á, þannig aö hæfileikar þeirra fái notiö sin i staö þess aö þeim sé sólundaö i söluæöiö og látnir koöna niöur undir járnhæl kapltalista. Til dæmis mætti byrja á þvi aö bjóöa þeim aö búa til barnamyndir. Slikar eru ekki á hverju strái, hvaö þá Islensk- ar. Eru menn beönir um aö lesa bíóauglýsingarnar i blaöinu i dag, ef þeir vilja fullvissa sig um þá lágkúru og þaö smánar- lega ástand, sem islenskum börnum er boðið uppá. Þar hefur engin breyting oröiö á þrátt fyrir barnaáriö. En liklega er til of mikils mælst aö gerö verði bragarbót á þessum erfiöu timum, þegar dýrmætum tima hins háa Al- þingis er variö i fjálglegar lýsingar ráöherra á þvi, hvernig þeim hafi tekist aö plata sveita- manninn og pranga ryöbrunn- um og beygluðum bilum sinum inná grandalaust fólk. Einar örn Stefánsson skrifar —áb

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.