Þjóðviljinn - 27.05.1979, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 27.05.1979, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. mai 1979 íslensk kvikmyndagerð [ dag og næstu sunnudaga mun birtast greina- flokkur um íslenska kvikmyndagerð. I fyrsta þætti verður gerð grein fyrir lögum um kvik- myndasjóð og kvikmyndasafn, aðdraganda þessara laga og framkvæmd þeirra. Því næst verður fjallað um efni þeirra kvikmynda, er styrki hlutu úr kvikmyndasjóðnum og höfundar þeirra teknir tali. Að lokum verður gerð grein fyrir starfsemi þeirra kvikmyndagerðarmanna, er starfa sjálfstætt að þessari atvinnugrein, starfsaðstöðu þeirra, svo og f ramtíðarhorf um á því sviði. I því sambandi verður væntanlega spjallað við einhvern úr stjórn Félags kvik- myndagerðarmanna. Þættir þessir verða fimm talsins og munu, ef unnt reynist,birtast á hverjum sunnudegi héðan í frá. Löggjöf um kvikmynda- sjöð og kvikmyndasafn Kvikmyndagerð á vax- andi vinsældum að fagna hér á landi. Þeim fer f jölg- andi, sem hafa þetta að aðalatvinnu og kvik- myndaklúbbar áhuga- manna spretta upp hér og þar. Kannski á sjónvarpið sinn þátt i þessu, en þá er það einungis staðfesting á þeirri öfugþróun, sem átt hef ur sér stað hjá okkur — nefnilega, að sjónvarp komi til sögunnar, áður en hægt er að fara að tala um raunverulega kvikmynda- gerð. Hjá flestum, ef ekki öllum menningarþjóðum, hefur sjónvarp orðið til sem afleiðing af þróaðri kvikmyndagerð í viðkomandi landi. Þaö var því tími til kominn — og þó fyrr heföi veriö — aö stjórn- völd geröu eitthvaö áþreifanlegt til þess aö sinna þessu málefni. A siöastliönu starfsári alþingis, eöa nánar tiltekiö um voriö 1978, voru samþykkt lög um kvikmyndasafn íslands og Kvikmyndasjóö. Lög þessi skiptast I þrjá kafla: f jallar sá fyrsti um kvikmyndasafn, annar um kvikmyndasjóö og sá þriöji er um almenn ákvæöi. 1 kaflanum um kvikmynda- safniö segir svo um hlutverk þess: „Kvikmyndasafn skal safna is- lenskum kvikmyndum og kvik- myndum um islensk efni, göml- um og nýjum, hverju nafni sem nefnast, og varöveita þær. Jafn- framt aflar safniö sér eintaka (eftirgeröa) af erlendum kvik- myndum sem hafa listrænt og kvikmyndasögulegt gildi aö mati safnstjórnar.” 1 lögunum er gert ráö fyrir þvl, aö Fræöslumyndasafn rlkisins annist rekstur kvikmynda- safnsins og jafnframt, aö aösetur þess veröi, þar sem Fræöslu- myndasafniö er til húsa. 1 lögunum er einnig kveöiö á um, aö ríkissjóður greiði 5 milj. kr. til kvikmyndasafnsins fyrir áriö 1979 og slöan árlegt framlag eftir þvi sem ákveöiö er I fjárlögum hverju sinni. Einnig er gert ráö fyrir þvl, aö rlkissjóöur greiöi sérhæföum starfsmanni og skal hann ráöinn i a.m.k. hálfa stööu hjá kvikmyndasafninu. Ennfremur segir I lögunum, aö kvikmyndasafniö skuli hafa „sýningar á myndum safnsins fyrir áhugahópa um kvikmyndir og kvikmyndageröarlist ef óskaö er og safnstjórn telur tiltækilegt.” 1 kaflanum um kvikmynda- sjóöinn segir m.a.: „Stofna skal kvikmyndasjóö meö 30 m. kr. framlagi úr rlkis- sjóöi, sem greiöist áriö 1979. Rlkissjóöur greiöir árlegt fram- lag til Kvikmyndasjóös eftir þvi sem ákveöiö veröur I fjárlögum. Tilgangur Kvikmyndasjóös er aö styrkja islenska kvikmynda- gerö meö beinum fjárframlögum eða lánum til kvikmyndageröar- manna.” 1 10. gr. laga þessara, er heyra undirkaflann um almenn ákvæði, er tekiö fram, aö kvikmyndasafn og kvikmyndasjóöur skuli I „sameiningu stuöla aö eflingu islenskrar kvikmyndageröar og auknum skilningi á kvikmynda- gerðarlist almennt. Skulu safn og sjóöur leitast viö i traustri sam- vinnu aö sinna þessu verkefni meö öllum tiltækum ráöum eftir þvi sem fjárhagur og aöstæöur frekast leyfa.” í mars s.l. var I fyrsta skipti veittur styrkur úr kvikmynda- sjóönum. Umsóknir bárust frá 19 aöilum vegna 23 verkefna. Sótt var um styrki aö upphæö 130 milj. kr. en áætlaður heildarkostnaöur viö verkefnin var um 430 milj. kr. Eftirtaldir einstaklingar hlutu styrki aö þessu sinni: Agúst Guðmundsson o.fl.vegna kvikmyndunar á Landi og sonum eftir samnefndri skáldsögu Ind- riöa G. Þorsteinssonar, aö upp- hæö 9 milj. kr. Gisli Gestsson og Andrés Ind- riðasonfyrir kvikmyndina Veiöi- feröin, 5 milj. Hér er um barna- mynd að ræöa. Snorri Þórisson o.fl. vegna myndarinnar Óöal feöranna, 5 milj. Siguröur Sverrir Pálsson og Erlendur Sveinsson vegna kvik- myndarinnar Atthagar, 3 milj. Þorsteinn Jónsson fyrir Sjómanninn, 2 milj. Páll Steingrimsson og Ernst Kettlerfengu I sinn hlut 2 milj. til aö gera kvikmynd, er hefur Vest- mannaeyjar árið 1873 aö sögu- sviöi. Óli örn Andreassen og Guðmundur P. ólafsson vegna myndar, er nefnist I Vestur- eyjum, 1,5 milj. Siguröur örn Brynjóifssonfyrir teiknimynd, sem gerö er eftir Þrymskviöu, 1 milj. Loks fékk Jón Axei Egilsson styrk aö upphæö 1 milj. til aö gera handrit aö kvikmynd um fjöl- skyldulif. I stjórn Kvikmyndasjóðsins eru eftirtaldir einstaklingar: Knútur Hallsson, formaður, (skipaöur af menntamálaráöherra), Hinrik Bjarnason (tilnefndur af Félagi kvikmyndageröarmanna) og Stefán Júliusson (tilnefndur af Fræöslumyndasafni rikisins). Rætt viö KNÚT HALLSSON, formann stjórnar Kvikmyndasafns: Undirbúum skráningu kvikmynda um ísland I því skyni að fá nánari upplýsingar um stofnun ■ fyrirhugaðs Kvikmynda- safns og hvaða verkefni væru þar efst á baugi, leituðum við upplýsinga | hjá Knúti Hallssyni, for- manni safnsstjórnar, en I hann er jafnframt for- maður kvikmyndasjóðs- I ins. — Hverjir eru I stjórn kvik- | myndasafnsins auk þin? ■ — Þaö eru Arni Björnsson, til- nefndur af Þjóöminjasafni ls- lands, Jón Þórarinsson frá Sjónvarpinu, Magnús Jóhanns- son af hálfu Fræöslumynda- i____________________________ safnsins og Erlendur Sveinsson, sem tilnefndur er af Félagi kvikmyndageröarmanna, en hann hefur jáfnframt veriö lausráöinn starfsmaöur Kvik- myndasafnsins fyrst um sinn. — 1 tillögunum er þaö tekiö fram, aö Kvikmyndasafniö eigi aö hafa aösetur I Fræöslu- myndasafninu, uns annaö verð- ur ákveöið af stjórn þess og menntamálaráöuneyti. Sam- ræmist þaö þörfum Kvik- myndasafnsins? — Nei, engan veginn. Kvik- myndasafniö veröur aö eiga sérhúsnæöi, sem getur samein- aö nægjanlegt geymslurými, sýningaraöstööu, ásamt aöstööu til aö lagfæra og endurbæta gamlar kvikmyndir. Um þessar mundir érum viö aö kanna húsakynni, sem geti uppfyllt slikar kröfur. Þaö leiöir þvi af sjálfu sér, aö rekstur Kvik- myndasafnsins veröur aö vera óháöur rekstri Fræöslumynda- safnsins, a.m.k. fyrst um sinn, þó að um góöa samvinnu þurfi aö sjálfsögu aö vera aö ræöa milli safnanna. — Hefur veriö unnin einhver undirbúningsvinna aö þvi aö safna isl. kvikmyndum og myndum um Islenskt efni? — Meginverkefni okkar á þvl sviöi nú, er aö kanna, hvaö sé til af sllku efni. Viö erum aö undir- búa skráningu allra umtals- veröra kvikmynda, sem teknar hafa veriö á íslandi og höfum skrifað fjölmörgum aöilum þar aö lútandi, m.a. söfnum erlend- is, sem viö höfum ástæöu til aö ætla aö hefðu I fórum sinum efni um Island. Þaö þarf aö kanna ástand þessara kvikmynda, gera af þeim nýjar eftirgeröir og koma þeim I varanlegt horf. Slikar kvikmyndir þarf að varö- veita I sérstakri geymslu viö ákveöiö hitastig og með öörum sérhæföum búnaöi. Þá höfum viö hug á, aö safniö beiti sér fyrir þvl aö bæta alla skýrslugerð um sýndar kvik- myndirhérá landi, þ.á.m. aö Is- lenskir kvikmyndaframleiöend- Knútur Haiisson ur skili safninu árlega skýrslum um framleiöslu sina. Viö erum einnig aö athuga möguleika á þvi, aö safniö eignist eitt eintak af sérhverri kvikmynd, sem framleidd er á Islandi en til þess þarf auövitað nokkurt fjár- magn. Meöal verkefna safns af þessu tagi er llka aö koma á fót safni bóka og tímarita um kvik-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.