Þjóðviljinn - 27.05.1979, Page 7

Þjóðviljinn - 27.05.1979, Page 7
Sunnudagur 27. mal 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 7 Mér datt það í hug Hvenær komst þil eiginlega heim i' nótt? — spuröi dóttir min ströng á svip, þar sem ég sat heldur framlág i stofustólnum og þambaöi Floridana einn is- kaldan vormorgun eftir nætur- svall. — Svona milli fjögur og fimm — svaraöi ég og fannst taka þvi aö ljúga til um klukkutlma. — Helduröu aö pabba finnist þaö eitthvaö skemmtilegt, þegar þú kemur svona seint heim? — Nei. — Af hverju geriröu þaö þá? — Ég var aö skemmta mér. —■ Helduröu aö mér finnist þaö eitthvaö skemmtilegt aö eiga grúttimbraöa mömmu? — Nei, ætli þaö. — Af hverju drekkuröu þá? — Ég geri þaö nú ekki oft. En stundum þarf maöur aö skemmta sér meö félögum sinum. Þaö getur veriö nauösynlegt ööru hvoru. — Þaö er ekkert nauösynlegt — hnussaöi l henni. — Og börnum finnst ekkert gaman aö eiga foreldra, sem skrönglast heim blindfullir á nóttunni. — Ég var ekkert blindfull — segi ég. — Þaöeralvegsama, —segir hún bálvond. — Maöur skammast sin fyrir svona for- eldra! Geta aldrei veriö eins og almennilegir foreldrar i — Æ, ekki rifast i mér núna, ég er meö hausverk, — biö ég. — Mér er alveg sama, — endurtekur hún, og reiöitár spretta fram úr yndislegum bláum augunum. — ÞAÐ ER BARNAAR! Þar sló hún út trompi! Viö Steinunn Jóhannesdóttir skrifar MÓRALL þessu er ekkert aö segja annaö en: — Hvaö viltu oná brauöiö þitt? — Ekkert! — Af hverju rlfstu aldrei svona I pabba þinum? — Þaö þýöir ekkert! Hann veröur bara vondur! ÞAÐ EH BARNAAR ÞAÐ ER BARNAAR ÞAÐ ER BARNA- AR ÞAÐ ER BARNAAR Þessi setning hefur glumiö eins og svipa á okkur samvisku- bitnum, útivinnandi, timbruöum vandræöa- mömmum velferöarinnar. Og þaö eru ekki bara börnin, sem hafa gripiö til hennar I vonlltilli baráttu sinni viö vonda for- eldra. Alls kyns fræöingar hafa birt niöurstööur úr könnunum, sem geröar hafa veriö á börnum og umhverfi þeirra og reynt aö draga af þeim einhverjar álykt- anir I tilefni ársins. Flest ber aö sama brunni. — Þaö er ekki hugsaö nógu vel um börnin. — Þetta veit auövitaö hver móöir af brjóstviti sinu. Þaö hefur aldrei veriö og veröur sjálfsagt aldrei hugsaö nógu vel um börnin. Þessa gimsteina, þessi ljós, þessar litlu frekjur, þessi viökvæmu blóm. Sumir sérfræðingar hafa bent á, i hverju þaö liggi, aö þaö sé jafnvel verr hugsaö um börnin nú en oft áöur. Þaö eru sam- félagshættirnir, sem hafa gert börnin foreldralaus. Gifurlegt vinnuálag i veröbógnu sam- keppnisþjóðfélagi sýgur merg og blóö úr veslings foreldra- efiiunum, orkan og timinn fara i flest annaö en litlu englapúk- ana. Aö visu hafa þeir eignast eða timburmanm- útlegging í tilefni barnaárs mikinn fjölda stjúpforeldra 1 staðinn. Börn hafa hvert annaö, barnaheimilin, skólana, bióin, sjónvarpiö, Andrés önd og Is- skápinn svo eitthvaö sé nefnt, kasettutækin og Tinna. En þaö er eins og þetta allt bæti þeim ekki aö fullu langvarandi fjar- veru foreldranna. Og þó er kannski mest furöan, hve mörg þeirra lifa þetta af. Kannski eru börn ódrepandi, þegar á h’ild- ina er litiö. En þaö lesa ekki allir eini úr rannsóknum og skýrslum. Þaö eru langt I frá allir, sem draga þá ályktun að eitthvað sé athugavert viö samfélag, sem ekki gefur foreldrum kost á aö vera nálægt börnum stnum eöa börnunum nálægt foreldrunum. Sumum finnst samfélagiö alveg ágætt eins og þaö er, nema kaupiö er auövitaö of lágt og bensíniö og dýrt. Þaö er aö minnsta kosti alltof mikiövesen aö reyna aö breyta þessu þjóö- félagi eitthvaö aö ráöi út af krökkunum. Ef krakkar eru vandamál, þá veröur aö finna einfalda lausn og helst ódýra, einsog... eins ogt.d.... aö senda mömmurnar aftur heim! En hvaöa mömmur á aö senda aftur heim? Mömmurnar i fiskinum? Mömmurnar i fluginu? Mömmurnar I bönkunum? Mömmurnar I búðunum? Mömmurnar 1 skólunum, heilbrigöisþjón- ustunni, smjörlikinu, kassa- geröinni og kexinu? Ef á aö senda mömmurnar aftur heim, veröur þá ekki aö senda þjóö- félagiö aftur heim? Svona eins og Ajatolla K. ætlar aö gera? Þaö er hætt viö, aö einhver i samkór afturhaldsins fari út af laginu, þegar benda þarf á mömmurnar, sem atvinnullfið má missa. Kannski einhver áhugaprédikarinn neyöist til aö afpanta tlmann sinn i Deginum og veginum. Þaö var kannski ekki ætlunin hjá SÞ, en þaö er eins og áróöur barnaársins sé aö breytast I heimskulegan áróöur gegn samfélagsþátttöku mæöra. Barnaáriö er fariö aö verka eins og vondir timburmenn eftir frelsisfylleri kvennaársins. Sekt samfélagsins og beggja foreldr- anna er gerö aö sekt móöurinnar. Abyrgöin á velferö barnanna skal vera hennar enn sem fýrr. Eigum viö þá aö gefast upp viö aö rifast i pöbbunum, af þvi þeir veröa bara vondir? Nei, auövitaö ekki! Viö eigum ekkert afturkvæmt heim frekar en þjóöfélagiö, sem er búiö aö breyta heimilisfanginu okkar. Við veröum aö halda áfram okkar torfæru leiö i átt til jafn- réttis. Viö látum ekki reka okkur til baka, þótt viö liggjum stundum vel viö höggi. Viö höldum áfram aö vinna mis- munandi þjóönýt störf og gera hluti, sem passa illa inn i fá- breytta, væmna og logna móöurmynd. Ef þaö er liöur I jafnréttisbaráttu aö drekka ljóst, en ekki I laumi, þá gerum viö þaö núoröiö. Ef þaö er nauösynlegt fyrir valdajafn- vægiö aö koma stundum heim, þegar okkur hentar, þá komum viö stundum heim, þegar okkur hentar. Og ef þaö er eina leiöin til aöfeöurnir veröi betri feður, aö mæöurnar veröi „verri” mæöur, þá reynum viö þaö. Auövitaö fáum viö móral og langar til aö biöja börnin aö fyrirgefa, en llka aö skilja marga heimskulega nauöysn. Einmitt af þvi, aö ÞAÐ ER BARNAAR! - Krakkar! Ekki spyrja mömmur ykkar meir, hvenær kemur pabbi heim, eöa, hvenær kom pabbi heim. Spyrjiö hann sjálfan! Geriö kröfur til hans aörar en peningakröfur, látiö hann finna aö einnig hans sé óskaö heima til aö taia viö, vera meö og kela viö. Þá fyrst hafiö þiö eitthvaö upp úr þessu barnaári! — 0 — Mér datt þetta I hug, þar sem ég var aö reyna aö synda úr mér timburmennina i Laugar- dalnum til aö geta mætt hress I vinnuna á eftir. A milli 200 metranna las ég i Stúdenta- blaöinu, aö kvenhetjan og byltingarforinginn Birna Þóröardóttir heföi hellt upp á könnuna þrisvar og bakaö pönnukökur meö sultu og r jóma oni framsæknustu, stjórníaus- ustu og róttækustu blaöamenn bæjarins á meðan þeir ræddu um tónlist og aörar unaös- semdir lifsins viö eiginmann hennar inni stofu. Ég gáöi aftur á blaöhausinn til aö sjá, hvort þetta væri örugglega Stúdenta- blaöiö en ekki dönsku blöðin eöa Helgarpósturinn. STODENTA- BLAÐIÐ! Ó, konur allra landa, hvert liggur leiöin? Steinunn Jóhannesdóttir Bíó um helgina Hér hefur göngu sina nýr þáttur, sem tekur til umfjöllunar þær kvikmyndir, sem verið er að sýna i kvikmyndahúsum borgarinnar hverju sinni. Hér er engan veginn um ýtarlega gagnrýni að ræða, heldur aðeins stuttar umsagnir og er þátturinn hugsaður sem þjónusta við lesendur blaðsins. Til hægðarauka er hverri kvikmynd gefinn einkunn (stjörnur) og litur einkunnargjöfin þannig út: XXXX = snilldarverk XXX = ágæt XX = góö X = sæmileg 0 = afleit Háskólabió: Superman xx Ofurmenniö flýgur um loftin blá. Þaö lyftir bilum, veltir stór- grýti, bjargar hrapandi flugvél, aöstoöar fólk I lifsháska, einkum þó fagrar yngismeyjar, hleypur uppi hraðlestir, kemur upp um stórglæpamenn og flýgur meö þá til lögreglunnar. Ofurmenniö getur jafnvel breytt rás sögunn- ar, ef svober undir. Bjargvættur alls. Þrátt fyrir ærandi hávaöa af völdum skelfilegra náttúruham- fara og dramatiskrar tónlistar, bregöur fyrir ágætri kimni. Auk þess er myndin mjög vel gerö tæknilega séð. Superman og vinkona Jacquos Tati Regnboginn: Umferð (Trafic) xxx Jacques Tati er meðal bestu höfunda gamanmynda síöari ára. Hann hefur lært margt af þeim snillingum, sem skópu gullöld þöglu kvikmyndanna, sérstak- lega Buster Keaton. Persónu- legur stfil Tatis er einkennandi fyrir myndir hans, en hann er bæöi höfundur myndarinnar og aðalleikari. 1 Umferð tekur hann til meöferðar mannlegan breisk- leika i tæknivæddum heimi nútlmans, án þess þó aö vera böl- sýnn eöa haldinn fyrirlitningu á manneskjunni. Regnboginn: Flökkustelpan (Boxcar Bertha) xx Martin Scorsese heitir höfundur þessarar myndar, en þetta er þriöja myndin eftir hann, sem sýnd er I kvikmyndahúsum borgarinnar meö stuttu millibili. Hinar tvær voru Alice býr hér ekki lengur (Austurbæjarbió) og Miskunnarleysi götunnar (mánu- dagsmynd Háskólablós fyrir stuttu). Þessi er meðal hans fyrstu og gerist á kreppuárunum i Bandarikjunum. Segir hún frá fólki, sem er upp á kant viö lög og rétt samfélagsins og rænir fjár- munum og skartgripum af þeim riku. Myndin er þokkalega gerö, einkum þó hinn blóöugi endir hennar. Stjörnubió: 1 skugga hauksins (Shadow of the Hawk) xx Seiðkona, sem uppi var fyrir tveim öldum, leitar nú hefnda á Framhald á bls. 22

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.