Þjóðviljinn - 27.05.1979, Blaðsíða 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. mai 1979
Árni Bergmann:
Lof um hjólhestinn
(Sett saman í vikunni að gefnu tilefni)
Leyfið mér bræður að ég slái hörpustrengi
og lofi hjólhestinn
Hjólhesturinn er lítilþægur
hann hreykir sér ekki hátt
hann öskrar ekki með f lautu, ýlfrar ekki með bremsum
henn hneggjar ekki af illkvittni.
Hann eyðir ekki viðkvæmum gróðri íslands
og brennir ekki sjaldgæfu bensíni
hann skítur ekki og lekur ekki smurolíu
hann hvorki bítur né slær
og kremur ekki sundur börn og gamalmenni
hann rekst ekki á aðra hjólhesta nema í gamni
Hjólhesturinn er vinur okkar
hann stælir fæturna, hann fyllir lungun
hann eflir viðbragðsf lýti, skerpir sjón
hann eflir börnum sjálfstraust
og bætir gjaldeyrisstöðuna.
Hann er hliðhollur gamalli sérvisku
og ungum ástum.
Hjólhesturinn er eini bróðir skáldfáksins...
Sex ný hefti um Barbapapa
Bókadtgáfan IÐUNN hefur
gefiO út sex hefti um hina vinsælu
fjölskyldu BARBAPAPA, sem
vfðkunner af teiknimyndasögum
og sjónvarpsmyndum. Höfundar
sagnanna eru Anette Tison og
Talus Taylor.
Bækur þessar eru ætlaöar
yngstu lesendunum. Heftin sem
nú eru komin út heita: Hveitiupp-
skera Barbapapa, Barbafin býr
til blúndukjól, Barbakær býr til
leirker, Barbavfs býr til bók,
Gróöurhúsiö hans Barbavæns og
Sama sagan
frá Beirút
24/5 — Haröir götubardagar
brutust út á uppstigningar-
dag i Beirút og áttust viö
hægri- og vinstrimenn.
Beittu báðir margvislegum
vopnum, stórum og smáum.
Eitthvaö mannfall mun hafa
oröið.
Barbaþór járnar hest.
— Þuriður Baxter þýddi texta
allra bókanna. Þæreru prentaöar
iHollandi og erhverthefti 20 bls.
Bíó
Framhald af bls. 7.
indiánahöfðingjanum Gamla
Hauk og ættingjum hans, vegna
þess að forfeöur Gamla Hauks
höföu tekiö hana af lifi fyrir að
myrða eiginmann sinn og börn.
Með aðstoö eftirlifandi ættingja
sinna beitir hún alls kyns
göldrum og illum vættum i þessu
skyni. Gamli Haukur leggur leið
sina til stórborgarinnar til að
hitta sonarson sinn og reyna aö fá
hann til liðs við sig i baráttunni
gegn þessum illu öflum.
Austurbæjarbió:
í Nautsmerkinu
(I tyrens tegn)
! x
j Dönsk klámmynd. Hvorki verri
; né betri en aðrar af þvi tagi.
Blaðberar
Siðustu forvöð að sækja blaðberahapp-
drættismiðana eru i dag laugardag og á
mánudag. Dregið mánudag 28. mai
DJÚÐVILIINN
Þjóðviljinn, Síðumúla 6,
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smið-
um eldhúsinnréttingar; einnig viðgerðir á
eldri innréttingum. Gerum við leka vegna
steypugalla.
Verslið við ábyrga aðila.
TRÉSMIÐ AVERKSTÆÐIÐ
j Bergstaðastræti 33, simar 41070 og 24613.
iSkák
Framhald af bls 8.'
Þessiumsvif á hinum vængnum
eiga að grafa undan miðborði
hvits.
16. g3
Reyni hvitur að seilast eftir
peði með 16. Rxe7+ Dxe7 17. exf5,
nær svartur yfirburðum eftir 17. -
Bxf3 18. gxf3 Dg5+
16. — fxe4
17. dxe4 bxc4
18. Hxc4 Re6
Ekki þarf svartur að óttast
opnun d-linunnar eftir 19. Rxe7 +
Dxe7, þvi að henni má loka með
Rd4. Svartur hefur undirtökin,
þvi tak hans á d4-reitnum er
áhrifarikara en tak hvits á
d5-reitnum.
19. Rh4
Tilraun til mótaðgerða.
Samkvæmt venju stendur riddar-
inn ekki vel úti i jaðrinum.
19. - g6
Heldur hvita riddaranum frá f5.
Staðan virðist næsta eðlileg — og
engan gæti rennt grun i að hún
hefði orðið til eftir næsta övenju-
lega byrjanauppstillingu
20. f4 Rxd5
21. exd5 Rd4
22. Bxd4 cxd4
23. Hxc8 Hxc8
24. fxe5 dxe5
Svartur hefur stöðulega séö
unnið tafl. D-peð hvits er veikt og
svartur hefúr tvö samstæö fri'peð
og hrók á opinni linu. Auk þess er
hviti riddarinn úr leik. Hvitur
gerir sér ljósa erfiðleika sina og
reynir að brjótast úr viðjunum
með taktiskum brellum.
25. Hcl Hxcl +
26. Dxcl
26. — Bf6?
Eftir 26. - e4 ynni svartur fljót-
lega. Ég leit á 27. Dc4 Bf6 28. d6+
Kh8 29. Dc7 Dc6!. 30. Df7 Dcl +
31. Kg2 e3+ 32. Kh3 Dfl+ og það
er svartur sem mátar á undan.
En þegar ég sá svarið 27. Bxe4,
skyggndist ég ekki lengra, þvi á
hina leikjaröðina hafði ég notað
mikinn ti'ma. — Nokkrum leikjum
siðar leit ég aftur á 27. Bxe4
(slæmur vani) og sá mér til hrell-
ingar, að 27. - Dxe4 28. Dc8+ Kg7
29. Dxa8 d3! hefði gert út af við
hvitan.
27. Dc2
Að sjálfsögðu blokkerar hvitur
peðin, oggetur þannig veitt harð-
vitugt viönám.
27. — Dd7
28. De4 Bb7
29. Bg2 Dc7
30. Kf 2
Hér ákvað ég að hætta öllum
vangaveltum, hvað möguleika
hvitsá Rxg6 varöaöi oglékstrax,
þó svo ég væri ekki i timahraki.
Einhvern veginn áttaöi ég mig
ekki á þvi, að ég átti ekki lengur
drottningarskákina á cl.
30. — Kg7??
31. d6!
Svartur gafst upp, þvi hann
tapar manni eför 31. - Bxe4 32.
dxc7. Ljótt að tarna. I staðinn
fyrir 30. - Kg7, átti svartur enn
vinningsvonir eftir 30. - Dc3, eða
30. - Dcl (31. Rxg6? De3+ og
vinnur).
Yfirsjónir eru allt eins mögu-
legar i' forskák eins og i hefð-
bundnu tafli. Teflendur verða að
vera mjög vel á verði, sökum
Pípulagnir
Nýlagnir, breyting-
ar, hritaveitutenging-
ar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir kl. 7 á
kvöldin)
j þeirra óvenjulegu staða sem upp i
! geta komið.
(Grein þessi birtist nú fyrir j
skömmu i timaritinu SKAK og j
kemur hér . fyrir augu lesenda \
Þjóðviljans með góðfúslegu leyfi j
útgefanda Skákar, Jóhanns Þóris
Jónssonar).
í róðri
Framhald af bls. 9
er tæplega tvö tonn á tólf stampa.
Þegar viö erum komnir i land,
býður Roald á hinum bátnum
okkur að fara upp i verbúð og fá
meira kaffi. Þar hittum við land-
formanninn hans, konu um
fertugt, hún er þá einmitt aö hella
uppá. I pilsum hennar hanga
tveir roDingar og heimta is i
frostinu. Dóttir hennar nýlega
fermd að sjá situr við borðið,
biður eftir kaffinu og skammar
bræður sina góðlátlega. Henni er
umsvifalaust skipað upp i búð að
kaupa meölæti. A meðan tökum
við skólamennirnir konuna tali.
Hún byrjaði að beita kl. sex i
morgun, segir hún og búin með
sex stampa á hádegi. Lætur það
duga, er nú farin að eldast segir
hún og sköðar sárar hendurnar.
Það er mikið unnið i Lófóten á
vertiðinni, a.m.k. á norskan
mælikvarða. Hér gildir ekki nýja
vinnulöggjöfin norska (sam-
kvæmt henni má heita aö bannað
sé að vinna yfirvinnu).
Lærðir menn hafa nýlega fund-
ið út, aö fiskimenn hér vinni flest-
ir a.m.k. 3000 vinnustundir á ári.
Til samanburöar má geta þess að
fólk i landi vinnur víst u.þ.b.
1600-1700 tima á ári, þegar allt er
talið. (Þessi tala gildir um fólk
sem vinnur I iðnaði). Auk þess er
vinnan erfiöari en i landi. Það
hafa lærðir menn loksins fundið
út hér f Noregi. Sjómennskan ku
jafnvel vera erfiðari en hið fræga
skógarhögg, og er þá langt til
jafnað. Svona tölur koma náttúr-
lega engum á óvart sem til þekkir
en ég læt nú fróðleikinn samt
fljóta með svona til gamans. En
það eru fleiri en sjómennirnir
sem vinna hér. Konurnar beita og
vinna i fiski og krakkarnir skera
gellur oghjálpa til. Þegar fiskur-
inn hverfur héðan frá Lófóten
vanalega rétt eftir páska fara
flestir bátarnir á ýsu upp I
Finnmörku og eru þar fram á
haust. „Enþá tökum viölika fri,”
segir strákurinn og brosir.
„Plássið tæmist. Liðið allt á
Spáni eða Kanarí. Fara islend-
ingar ekki lika þangað? Já var
það ckki, stelpurnar kannski
lika?” Ég brosi og segi aö þaö sé
bara að hafa augun hjá sér.
Konan hans Roalds keyrir
okkur f veg fyrir rútuna. A leið-
inni kemur i ljós að hún er sænsk.
Við rekum upp stór augu
félagarnir þvi hún talar mállýsk-
una lýtalaust að þvi ég best gat
heyrt. Já ég er nú fædd inni I
miðri Sviþjóð segir hún hálf-
raunamædd og segist sakna
skógarins þvi kallinn hennar leit
ekki út fy rir aö haf a nokkurn tima
komið upp úr bát. Kunnum samt
ekki við að spyrja nánar út i
einkamálin. „Hér vaxa heldur
ekki blóm nema með herkjum og
þá vanalega öll i keng”. „Mér
þótti þetta voða rómo fyrst”,
segir hún, „berangursleg fjöllin
og sólin sem aldrei settist. En nú
er mig farið að dreyma skóg á
hverri nóttu”.
Nú ke mur rút an o g v ið kv eð jum
þessa skógarlausu konu. En innst
inni veit ég að ætti það fyrir mér
aðliggja að setjast að I útlöndum
yrði það að vera i einhverjum
skóglausum útrassi þar sem lifið
snerist um fiska. Ég nefni þetta
við félaga minn sem hlær við.
Tromsö29/4 1979
Kristján Kári Jakobsson.
Einokun
Framhald af 14. siðu
á stofn hefur staðiö til boða að
nefndin gerðist ein af stofnunum
Sameinuðu þjóðanna. Þetta hefði
haft I för með sér auknar skyldur
af hálfu IWC (s.s. tillit til heildar-
hagsmuna og sjónarmiða flest-
allra aðila SÞ) en á hinn bóginn
stóraukna möguleika til að
tryggja visindalegan grundvöll
stefnumörkunar og ekki sist
framkvæmd stefnunnar. Þessu
var þó ávallt hafnað. IWC hefur
fram að 1972 — og reyndar að
mestu leyti fram að deginum i
dag — einungis verið þröngur
félagsskapur manna sem fyrst og
#ÞJÓÐLEIKHÚSIB
STUNDARFRIÐUR
i kvöld kl. 20. Uppselt
þriðjudag kl. 20
A SAMA TÍMA AÐ ARI
miðvikudag kl. 20
Fáar sýningar eftir
PRINSESSAN A BAUNINNI
fimmtudag kl. 20
Siðasta sinn
Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200.
LKIKFfilAÉaS/a®'
. RnYKIAVlKlÍR
STELDU BARA
MILLJARÐI
i kvöld kl. 20,30,
föstudag kl. 20,30,
Siðasta sinn
ER ÞETTA EKKI MITT LÍF
5. sýn. miðvikudag uppselt
Gul kort gilda
6. sýn. fimmtudag uppselt
Græn kort gilda
Miðasala I Iðnó kl. 14-20,30,
simi 16620
NORNIN BABA-JAGA
Aukasýning vegna mikillar.
aðsóknar.
i dag kl. 15.
Miðasala i' Lindarbæ alla daga
kl. 17-19. Sunnudaga frá kl. 13.
Sími 21971.
fremst hafa gætt stundar- og
einkahagsmuna sinna. Röksemd-
ir þeirra um að það sé lika þeirra
hagsmunamál að hvalastofnarnir
haldi stöðugri meðalhámarksvið-
komu hafa hingað til ekki getað
sannað sig miðaö við starfsemi
IWC sjálfra: æ ofan I æ hafa
(pólitiskir fulltrúar) IWC leyft
veiöi hvala af ýmsum tegundum
þangaö til I algert óefni er komiö
og stofnarnir aö öllum likindum
dauðadæmdir, þá fyrst hefur
komiö til friöunar.
Brugðust skuldbindingunni
Fulltrúi Mexikó sagði 1974 um
IWC: „...Þessarar nefndar mun
verða minnst I sögunni sem litils
hóps manna, sem brugðust hinni
mikilvægu skuldbindingu við
heiminn að starfa á ábyrgan hátt,
og vernduðu hagsmuni fárra
hvalveiðimanna I stað framtiðar
þúsunda hvala.”
Þar sem IWC vildi ekki gerast
ein af stofnunum SÞ gat um-
hverfismálaráðstefna SÞ ekki
gert annað en beina þvi að rikis-
s.tjórnum heimsins að notfæra sér
pað að IWC-aðild er öllum rikj-
um, sem áhuga hafa, opin.
Tilmælin um að „efla Alþjóða
hvalveiöinefndina” eru meö
öðrum orðum m.a. dulbúin til-
mæli um að riki sem áhuga hafa
gangi I IWCog rjúfi með þvi
einokunaraðstööu hvalveiði-
manna og fulltrúa þeirra I nefnd-
inni, en einnig tilmæli til þeirra
rikja, sem stundað hafa hvalföng-
un án þessað vera aðilar að IWC.
Auk þess fela þessi tilmæli i' sér
að IWCskuli fá fleiri fasta starfs-
menn en þann eina ritara sem
nefndin hafði fram að þvi.
Við þetta bætist aö nokkur riki,
sem áður stunduðu hvalveiðar,
hafa upp á siðkastiö alveg breytt
um stefnu og munu fylgja tilmæl-
unum um 10-ára bann við allri
„commerciai whaling” hart eftir.
Bandarikin og Astralia munu
leggja fram sllka tillögu á 31. árs-
fundi IWC. ,sem verður haldinn i
Lundúnum 9. — 13. júli i sumar.
Rétt um þessar mundir eru 19 riki
aöilarað IWC . Vísindanefnd IWC
kemur saman stuttu fyrir fund-
inn.
Sumarsýning
Framhald af bls. 24
Asgrimssafn hefur einnig látið
prenta kynningarit á ensku,
dönsku og þýsku um Ásgrim
Jónsson og safn hans, og er það
látið gestum i té án endurgjalds.
Einnig kort i litum af nokkrum
landslagsmyndum safnsins, sem
seld eru þar.
Asgrimssafn, Bergstaðastræti
74, verður opið alla daga, nema
laugardaga, i júni, júlí og ágúst
frá kl. 1.30-4. Aðgangur ókeypis.