Þjóðviljinn - 29.05.1979, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 29. mal 1979
Kvennaskólinn í Reykjavík
INNRITUN
Næsta vetur verður sú breyting á starf-
rækslu Kvennaskólans i Reykjavik að haf-
in verður kennsla á uppeldissviði og verð-
ur tekið við nemendum á fyrsta ári þess
sviðs.
Starfræktar verða þrjár brautir, mennta-
braut sem leiðir til stúdentsprófs eftir
fjögur ár, fóstur- og þroskaþjálfabraut og
félags- og iþróttabraut, sem ljúka má á
tveimur árum en einnig geta leitt til stúd-
entsprófs eftir fjögur ár.
Innritun fer fram i Miðbæjarskólanum i
Reykjavik dagana 5.-6. júni ásamt innritun
annarra framhaldsskóla höfuðborgarinn-
ar. Innritunin stendur frá kl. 9 til 18 hvorn
dag,en einnig verður skrifstofa skólans að
Frikirkjuvegi 9, simi 13819, opin þessa
viku og hina næstu, kl. 9-17, og verður þar
hægt að fá allar nánari upplýsingar.
Samkvæmt ofanskráðu verður ekki tekið
við nemendum i 1. bekk skólans (7. bekk
grunnskóla) næsta vetur.
Skólastjóri
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreiðar og
camper-sendibifreið, auk þess nokkrar
ógangfærar bifreiðar,
er sýndar verða að Grensásvegi 9, i dag
þriðjudaginn 29. mai kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð i bifreiðasal að
Grensásvegi 9, kl. 17.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Fóstrur athugið!
2-3 fóstrur óskast á dagheimilið Sunnu-
borg frá 1. ágúst og siðar.
Upplýsingar i sima 36385 hjá forstöðu-
manni.
Siglufjörður
Staða sparisjóðsstjóra við Sparisjóð Siglu-
fjarðar er laus til umsóknar. Góð launa-
kjör.
Ráðning frá 1. október 1979.
Umsóknir sendist til formanns stjórnar
Sparisjóðsins fyrir 1. júli n.k., sem gefur
allar nánari upplýsingar.
Lausar stöður
Tvær kennarastööur, önnur 1 efnafræöi en hin I dönsku
(2/3), viö Menntaskólann i Kópavogi eru lausar til
umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf skulu hafa borist menntamálaráöuneytinu,
Hverfsisgötu 6, fyrir 22. júni n.k. — Sérstök umsóknar-
eyöublöö fást i ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
23. mai 1979.
Laus staða
Kennarastaöa I stæröfræöi er laus til umsóknar viö
Menntaskólann aö Laugarvatni.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf, skulu hafa borist menntamálaráöuneytinu,
Hverfisgötu 6, fyrir 25.júnl n.k. — Sérstök umsóknareyöu-
blöö fást I ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
23. maí 1979
Athugasemdir frá Ríkisútvarpinu vegna málflutnings
Félags íslenskra leikara:
r
Astæðulaus og ótíma-
bær misskilningur
Félag fslenskra leikara hefúr i
bréfi til menntamálaráöherra,
útvarpsstjóra og útvarpsráös
krafist þess, og geröur veröi
samningur milli Rikisútvarpsins
og félagsins um leiklistarflutning
i hljóövarpi og sjónvarpi, sem
„yröi fyrstogfremstbindandi um
þaö, hver hlutur leiklistar yröi í
dagskrá Ríkisútvarpsins”, eins
og segir I bréfinu. Forsendur
kröfugeröar þessarar eru órök-
studdar fullyröingar um sam-
drátt I leikflutningi hljóövarps og
sjónvarps, ogsiöan er henni fylgt
eftir meö hótunum i fimm liöum,
san væntanlega mundu, ef þær
næöu fram aö ganga, stööva allan
flutning Rfkisútvarpsins. hljóö-
varps og sjónvarps, á leiknu efni,
bæöi innlendu og erlendu. Stjórn
F.I.L. hefursiöan kynntefni bréfs
þessa á blaöamannafundi, og hef-
ur veriö frá þvi greint i fjölmiöl-
um.
Af þessu tilefni telur Rikisút-
varpiö rétt, aö fram komi eftir-
farandi athugasemdir:
Ekkert um
magn efnis
1 gildi eru samningar milli
Rikisútvarpsins oe F.I.L. um
störf félagsmanna i hljóö-
varpi og sjónvarpi. Hljóövarps-
samningurergeröur 23. mai 1977.
Hann er i gildi a.m.k. til ársloka
1979. Sjónvarpssamningurinn var
geröur 9. ágúst 1978 og er upp-
segjanlegur meö þriggja mánaöa
fyrirvara eftir 1. júli 1979. Hlýtur
hann þvi aö gilda a.m.k. til 1.
október 1979. Rikisútvarpiö telur,
aö vinnustöövun leikara, bann viö
endursýningum og aörar
þvingunarráöstafanir, sem F.l.L.
boöar, séu ólöglegar, meöan
samningar þessir eru i gildi.
1 samningunum eru engin
ákvæöi um magn leikins efnis,
hvorki i' hljóövarpi né sjónvarpi. 1
sjónvarpssamningnum stendur
hinsvegar þessi grein: „Aöilar
eru sammála um aö koma nú
þegar á viöræöunefnd um sér-
stakt samkomulag, sem heföi i
fór meö sér aukna framleiöslu
sjónvarps á útsendingarefhi skv.
samningi þessum. Nefnd þessi
skal hafa lokiö störfum fyrir 20.
september 1978.”
i framhaldi af störfum nefnd-
arinnar samþykkti þáverandi út-
varpsráö á fundi sinum 19.
september 1978 svofellda yfir-
lýsingu:
„I tilefni af yfirstandandi
samningagerö sjónvarpsins viö
Félag islenskra leikaraum vinnu
félagsmanna I þágu sjónvarpsins
vill útvarpsráö árétta afstööu
fyrra útvarpsráös, frá 14. april
1970, þar sem „taliö var æskilegt,
aö sýnt yrði eitt Islenskt leikrit
mánaöarlega aö „vetrinum” og
„megináherslu bæri aö leggja á
flutning nýrra leikrita, sem
samin væru fyrir sjónvarp ”,
Stefnu- eða
viljayfirlýsing
Útvarpsráö telur æskilegt, aö
tekin séu upp eigi færri en átta
sjónvarpsleikrit árlega. Þó er
taliö eölilegt, aö talan lækki, ef
einhver verkefnanna eru óvenju
umfangsmikil eða kostnaöarsöm.
En stefna ættiaöþvi, aö frumflutt
islensk leikrit og leiknar kvik-
myndir nemi eigi minna. en átta
klukkustundum á ári, og eru þá
meötalin barnaleikrit, sem flutt
eru af atvinnuleikurum, svo og
myndaflokkar og framhalds-
mvndir, ef um slikt er að ræöa.”
Svo sem ljóst má vera, er hér
ekki um neina skuldbindingu að
ræða, heldur aðeins stefnu- eöa
viljayfirlýsingu, sem hiýtur aö
vera háö margvislegum og
breytilegum forsendum m.a.
fjárhagslegum. Einnig veröur aö
hafa I huga, aö nýtt útvarpsráö er
lögum samkvæmt kosiö aö af-
stöönum hverjum kosningum til
alþingis, og óeðlilegt er, aö
nokkurt útvarpsráö geti markaö
stefnu nema fyrir sitt kjörtima-
bil, eöa bundiö hendur þeirra Ut-
varpsráða, sem siöar koma. Af
sömu ástæöu er útilokaö, að
Rikisútvarpiö geti gert nokkra
samninga, viö leikara eöa aöra,
sem fela 1 sér sllka bindingu.
Þaö útvarpsráö, sem fyrr-
greinda samþykkt geröi, lét af
störfum um siöustu áramót. Skal
nú á það litiö, hvernig tókst á
slöastUðnu ári aö fylgja þeirri
stefnu, sem þaö markaöi.
A árinu 1978 voru frumflutt i
sjónvarpi þessi leikrit:
Dýrin i Hásaskógi, siöari hluti
(Torbjörn Egner). Lengd 60,51
min.
Skripaleikur (Gisli J. Ast-
þórsson). Lengd 49,32 min.
Póker (Björn Bjarman). Lengd
66,02 min.
Maöurinn, sem sveik Barrabas
(dr. Jakob Jónsson). Lengd 30.22
min.
Skollaleikur (Böövar
Guðmundsson). Lengd 102,49
min.
Skólaferð (Agúst Guömundsson).
Lengd 51.35 min.
Silfurtungliö (Halldór Laxness).
Lengd 118,03 min.
Þó aö hér komi á skrá abeins
siðari hluti „Dýranna i Hálsa-
skógi” mun hann mega teljast
igildi miölungs sjónvarpsleikrits,
og „Silfurtúnglið” má óhikaö
telja igildi tveggja slikra, hvort
sem miðað er viö lengd eða- til-
kostnaö. Alls eru þessi sjö leikrit
479 min. og 14 sek. aö lengd.
Þannig skortir 46 sek. á aö 8 klst.
markinu væri náö á siðasta ári.
Þess má geta, aö auk fyrrtal-
inna sjö leikrita, sem frumsýnd
voru á siðasta ári, voru fimm
leikrit endursýnd, en samkvæmt
samningum greiöist leikurum
fyrir endursýningu hálft frum-
sýningargjald, eins og þaö mundi
vera á þeim tima, þegar endur-
sýning fer fram, m.ö.o. 50% af
öllum vinnulaunum viö undir-
búningogupptöku leikritsins meö
verölagsuppbótum.
Greiðslur til leikara
og leikstjóra
Dagskrárgreiðslur til leikara
og leikstjóra i sjónvarpsleikritum
á árunum 1977 og 1978 hafa veriö
sem hér segir:
hljóövarpi var óvenju mikil áriö
1977.
Aðrar greiöslur til leikara skv.
fyrrnefndum samningum nema
verulegum upphæöum, bæöi i
hljóðvarpi og sjónvaröi, svo sem
fyrir upplestur, þátttöku i
skemmtiþáttum, flutning varna-
efnis o.fl.
Enn má geta þess, aö greiðslur
i Menningarsjóö (utanfararsjóö)
F.l.L. nálguöust eina miljón
króna á siöasta ári frá hljóövarpi
og sjónvarpi samanlagt.
Heildargreibslur Rikisútvarps-
ins til félagsmanna F.I.LtJ mun á
siðasta ári hafa numið um 80 milj.
króna.
Engin ákvörðun
um samdrátt
Rikisútvarpinu var svo naumt
skömmtuö hækkun afnotagjalda
á fyrri hluta þessa árs, aö mjög
- mikiö vantar á aö afnotagjöldin
haldi raungildi sinu. Viö blasir
þvi sú staöreynd, aö Rikisút-
varpið hefur stórum minna fé til
ráðstöfunar á þessu ári en hinu
siöasta, nema veruleg leiörétting
fáist á þessu á siöarihluta ársins.
Af þessum ástæöum sá útvarps-
ráð sig til neytt að senda frá sér
viðvörun um, aö til samdráttar
gæti komiö i dagskránni, ef ekki
yröi úr bætt. Til þess hefur þó
ekki komið enn, og engin
ákvöröun tekin, er hnigi i þá átt.
Aö þvi er leikritagerð sjón-
varpsins varöar er rétt aö minna
á, að verið er að sýna leikna
kvikmynd, alls 50-60 min. i Stund-
inni okkar um þessar mundir.
Akveöiö hefur veriö aö leggja i
kvikmyndun „Paradisar-
heimtar” 35 milj. kr., og telur
sjónvarpiö aö sú mynd jafngildi
þremur islenskum leikritum aö
þvi er aö leikurunum snýr. Þaö
má einnig koma fram, aö sjón-
varpið hefur komið þvi til leiöar,
aö „Paradísarheimt” verður
islensk mynd, leikin af islenzkum
leikurum, en ekki þýskum.
Heildarkostnaður við gerö mynd-
arinnar er áætlaöur um 615 milj.
isl. króna. Þá hefur þegar verið
tekin ákvöröun um upptöku
þriggja sjónvarpsleikrita að auki,
en um hiö fjóröa liggur fyrir sam-
þykkt útvarpsráös frá fyrri tið.
Enn er I undirbúningi leikin mynd
i tveimur hlutum um Snorra
Sturluson, og er sú mynd stærsta
viðfangsefni, sem sjónvarpið
hefur ráöist i til þessa, enda mun
þar koma til fúlltingi annarra
Leikflutningur I Isl. sjónv. 1977 kr. 15.605.756 1978 26.107.369
Sýn. á isl. leikr. á Noröurl. kr. 1.604.280 5.317.260
Samtals kr. 17.210.036 31.424.629
Hækkun milli ára nemur tæp-
lega 83%, og mun ekki auövelt aö
færa rök aö þvi, að hér sé um
„samdrátt” aö ræða, þrátt fyrir
veröbólgu.
Skylt er að geta þess, aö ofan-
greindar upphæðir hafa ekki
runniö alveg óskiptar til félags-
manna F.l.L.,Fyrir kemur, aö
ófélagsbundnir leikarar koma
fram I sjónvarpsleikritum, en
sliku eru svo þröngar skorður
settar 1 samningi sjónvarpsins viö
F.I.L., aö það breytir engu, sem
máli skiptir hér.
I hljóðvarpi námu greiöslur
fyrir leikflutning á árinu 1977 kr.
25.860.230, en á árinu 1978 kr.
34.300.128. Sú hækkun nemur
aöeins tæplega 33%, en skýring á
þvi er sú, aö uppsöfnun leikrita i
Norðurlanda. Aö visu mun fram-
kvæmdahraði þessara fýrirætl-
ana ráöast mjög af þvi hvernig úr
rætist um fjárhag stofnunarinnar
á siðari hluta ársins, en hitt
verður ekki meö sanni sagt, að
áhuga vanti til aö gera hlut leik-
listar i sjónvarpinu sem vegleg-
astan, þótt fjárhagur sé örðugur
nú um sinn.
Orösending sú, ser felst i fyrr-
nefndu brefi Félags i'slenskra
leikara, er byggö á misskilningi
og þvi ástæöulaus og ótimabær.
Riksiútvarpið telur samvinnu
milli þess og leikara báöum
aöilum nytsama og nauösynlega,
en lýsir áhyggjum sinum út af
þvi, aö orðsendingin og birting
hennar kunni aö torvelda slikt
samstarf I næstu framtið.
Auglýsið í
Þjóðviljanum
DJOÐVIUINN