Þjóðviljinn - 29.05.1979, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 29.05.1979, Blaðsíða 8
.8 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Þriöjudagur 29. mal 1979 Ritgerðasam- keppni útvarps um hernámsárin: „Þegar fréttist af rit- gerðasamkeppni út- varpsins um hernáms- árin var ég spurð að því, hvort ég myndi ekki eitt- hvað merkilegt frá þeim árum. Fyrst fannst mér svo ekki vera. En svo fór eitt og annað að rifjast upp, og þá sagði ég sem svo: Það er þá best að ég skrifi þetta niður sjálf, þetta eru mínar eigin endurminningar." Svo fórust orö Huldu Péturs- dóttur, húsfreyju i trtkoti á Kjalarnesi, sem hlaut fyrstu verölaun i ritgeröasamkeppni sem útvarpsráö ákvaö aö efna til i fyrra og byggöi á endur- minningum fólks um hernáms- árin. Alls bárust 66 ritgerðir eftir 64 höfunda. Dómnefnd og verölaunahafar. Frá vinstri: Auöur Auöuns, Hjörtur Pálsson, Hulda Pétursdóttir, Pétur Ólafsson, Guömundur Erlendsson og Stefán Júliusson. —Ljósm.: Leifur. Húsfreyja á Kjalarnesi varð hlutskörpust Hulda kvaðst ekki hafa mikiö fengist við skriftir áöur, en skrifað nokkrar minningar- greinar. Hún vann um mánuö aö ritgeröinni, sem lýsir þvi einkum hvernig hernámiö gjör- breytti lifi venjulegrar fjöl- skyldu i Reykjavik, atvinnu- háttum, tekjum, hugsunarhætti. önnur verölaun hlaut Pétur ólafsson hagfræöingur. Hann Jýsir i sinni ritgerö hernáms- deginum sjálfum og skyggnist um leið á bak við tjöldin i þjóö- lifinu áriö 1940. Þriöju verðlaun hlaut Gunnar Erlendsson .tæknifræöingur, Kópavogi. Hann segir frá - hernámsárunum i Hafnarfiröi eins og þau komu fyrir sjónir - ungs drengs, sem varö vitni aö margvisiegum atburðum, spaugilegum og harmrænum — hann varð meira aö segja vitni aö aftöku i herskálahverfi. Ritgeröirnar veröa lesnar upp i sumar og að likindum fleiri en þær sem verölaun hlutu. I dóm- nefnd voru þau Auður Auöuns, Hjörtur Pálsson og Stefán Júliusson. Dómnefndarmenn sögöu, aö þeim hefði þótt mestur fengur aö ritgeröum sem geymdu I senn persónulegar minningar og spegluöu almenna reynslu. Þeir sögöu að margir heföu numið staðar við ákveöinn at- burö, einkum hernámsdaginn. Margir lýstu Bretavinnunni og þó nokkrar ritgeröir segja frá persónulegri reynslu af „ástandinu”. Margir höfundar eru meö ritgerðunum að rifja upp bernskuminningar sinar. Allmargir byggja þær upp eins og smásögur. Hjörtur Pálsson dagskrár- stjóri sagöi ennfremur, aö fyrir utan ipargar ágætar lýsingar væri i ritgeröunum að finna drjúgar heimildir um lif og siöu hernámsáranna. —áb I ■ I ■ I ■ I I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I Nordisk Folke Reso með aðalfund á íslandi: Aukið samstarf milli ferða- skrifstofa norrænu alþýðusamtakanna Nú stendur yfir i Reykjavik aöalfundur samtakanna Nordisk Folke Reso sem eru norræn samtök ferðaskrifstofa alþýöu- og samvinnusamtaka á Norður- löndum. Formaöur samtakanna hefur verið Gunnar Niisson, forseti sænska alþýöusambandsins, en hann lét af þeim störfum, og var forseti danska alþýöusam- bandsins kjörinn I hans staö. A blaöamannafundi sem efnt var til i tilefni af aöalfundinum kom fram aö eitt af helstu stefnu- mibum samtakanna er aö hamia gegn gróöatúrismanum og gefa alþýöufólki kost á fræöandi orlofsdvöl i sifellt lengri frium. Samtökin hafa ma. i þessu skyni lagt til viö norrænu menningarmálanefndina að gerð veröi viöæk könnun .á þvi hvaö fólk hefur fyrir stafni i frium og hverjar óskir þess eru i þvi efni. Þá leggja samtökin áherslu á þaö á næstunni aö efla samstarf inn á við á Norðurlöndum og beina feröafólki miili Noröur- landanna sjálfra. Reyndar er þaö svo nú þegar aö yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem feröast meö NFR feröast innan Noröur- landa eða um 2 miljónir manna, en aöeins 5-600 þúsund ferðast á vegum samtakanna til staö a utan Norðurlanda. Orlofsdvölin er viöast með þeim hætti aö ibúö- irnar eru i eigu viökomandi orlofssamtaka eða feröaskrif- Frá aöalfundi NFR I Reykjavik. samtakanna ávarpar fundinn. stofu og td. er danska fyrirtækið Dánsk Folke-Ferie nýlega búiö aö láta reisa orlofsbúðir á Möltu. Starfsemi Nordisk Folke Reso er sem fyrr segir ekki rekin i hagnaðarskyni og sú fjárfesting sem lögð er i orlofsheimilin skilar ekki ágóöa nema þeim sem felst i þeim kjörum sem félögum alþýöu- og samvinnusamtaka býöst i leyfum sinum. Þaö kom fram á þessum fundi aö erfitt hefur veriö fyrir Islendinga að taka fullan þátt i þessari norrænu starfsemi vegna þeirrar ein- Gunnar Nilsson fráfarandi formaöur okunar sem er á flugi til og frá Islandi. íslensk yfirvöld veita mjög treglega leyfi til leiguflugs, en það er meginforsenda þess aö islensku alþýöufólki gefist raun- verulegur kostur á að njóta þess sem norrænu alþýðusamtökin bjóöa félögum sínum. A þessum fundi samtakanna i Reykjavik er ma. rætt um hvernig auka megi samskipti Islendinga viö þessi öflugu samtök. Þau fara fram i gegnum islensku aðildarskrif- stofuna Landsýn/Samvinnuferöir og er ma. rætt um að fólk geti skipt viö fólk á Noröurlöndum á Ibúö og bil i sumarleyfinu en feröaskrifstofan annist feröirnar. 1 fyrra var ein slik ferö farin á vegum Landssambands sam- vinnustarfsmanna og þótti takast vel. Fargjaldiö i slikri ferö er u.þ.b. 55 þúsund krónur fyrir manninn og helmingsafsláttur fyrir börn. Þá er þess aö geta að á komandi sumri munu Islendingar dvelja i orlofsbúöum dönsku verkalýðs- hreyfingarinnar bæði I Danmörku sjálfri og i hinum nýju búöum á Möltu. — sgt Tveir fyrirlestrar um félagsfræði Doktor Stephen Wieting, prófessor viö fylkisháskólann i Iowa, flytur tvo opinbera fyrir- lestra I boöi féiagsvfsindadeildar Háskóia tslands. Fyrri fyrirlesturinn veröur fluttur i kvöld, þriöjudaginn 29. mai, kl. 21 I stofu 101 i Lögbergi húsi lagadeildar H.L.Fyrirlestur- inn nefnist Saga Stories and Sociologv Litterature in the Com- parative Study of the Family. 1 fyrirlestrinum gerir Wieting samanburö á bókmenntalegum og félagsfræðilegum aðferöum viö aö skoöa fjölskylduna. Seinni fyrirlesturinn veröur flutturá morgun, miövikudag áo. mai, kl. 21 I stofu 101 i Lögbergi, húsi lagadeildar H.L.Fyrirlestur- inn nefnist Form as Content and Media as Messages in Education. 1 fyrirlestrinum ræöir prófessor Wieting um notkun mismunandi miöla viö kennslu, svo sem tölvur, segulbönd og myndsegul- bönd. Einnig ræðir prófessor Wieting um hvernig þessir miðlar tengjast heföbundnum kennslu- aðferöum s.s. fyrirlestrum og skrifuöu máli. Báöir fyrirlestrarnir eru fluttir á ensku. LJr nýsamþykktri vegaáætlun Vegurinn til Þorlákshafh- ar bundinn á næsta ári Þorlákshafnarbúar sjá nú fyrir endann á langri baráttu sinni viö fjárveitingavaldið, fyrir endurbótum á einum fjölfarnasta vegi landsins. I vegaáætluninni sem Alþingi samþykkti á siöasta degi er gert ráö fyrir 230 miljónum i bundið slitlag á Þorláks- hafnarveg frá vegamótum hans og Þrengslavegar á næsta ári. Jafnframt eru 270 miljónir fttlaöar á árinu 1982 i bundiö slitlag á Þrengsla- veg. 46 miljónir í Bláfjallaveg á næstu tveimur árum Ein af þeim breytingatil- lögum sem fjárveitinga- nefnd Alþingis geröi á vega- áætlun var að leggja til aö 46 miljónum yrði variö til þess aö leggja veg úr Bláfjöllum og niöur I Hafnarfjörö. Er fé þetta tekiö af þvi sem ætlað var til nýrra framkvæmda i Reykjaneskjördæmi þessi ár. Nýr prótó- kollstjóri Hinn 1. þessa mánaðar tók Arni Tryggvason viö störfum i utanrikisráðuneytinu sem prótokollstjóri, en hann hefur gegnt sendiherrastörf- um i Osló siöan á öndveröu ári 1976. Blanda af mjólkurfitu og sojaolíu Kemur nýtt viðbit á markaðinn? Landbúnaöarráöherra lagöi fram á Alþingi sam- kvæmt beiöni Osta- og smjörsölunnar frumvarp til laga um breytingu á lögum frá 1933 um tilbúning og verslun meö smjörliki. Þaö var gert i þeim tilgangi aö mjólkuriönaöurinn gæti hafiö tilraunaframleiöslu á nýju viöbiti, sem er blanda af mjólkurfitu og sojaoliu. Þetta viöbit var sett á markaöinn I Sviþjóö á árun- um 1969 og 1970 og var skýrt „Bregott”. Siöan hefur framleiösla og sala á „Bregott” veriö hafin I nokkrum löndum. Bregott þykir sameina Jestu eiginleika smjörs og borösmjörlikis. Þaö er smyrjanlegt viö kæliskápa- hitastig en hefur bragðeigin- leika smjörsins. Næringa- lega séö einkennist „Bregott af hinum mikla fjölbreyti- leika smjörsins i tegundum fitusýra og er auk þess vita- minbætt, aö þvi er nemur hluta jurtafitunnar. Innbyrö- is hlutfall fitusýra breytist nokkuö vegna ómettaöra fit- usýra i jurtaolíunni. Breytingin á lögunum, sem nú var óskaö eftir,felst i þvi aö setja mark miöaö viö aö nota mætti allt aö 25% af annarri feiti en mjólkurfitu Framhald á blp, 15.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.