Þjóðviljinn - 30.05.1979, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 30.05.1979, Blaðsíða 2
2 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 30. mai 1979 BLAÐBERAR ÞIOÐVILIANS Rukkunarheftin eru tilbúin. Vinsamlegast sækið þau á afgreiðslu blaðsins sem fyrst. MOÐVIUINN Þjóðviljinn, Siðumúla 6, Simi 81333 F ramkvæmdast j óri Staða framkvæmdastjóra við Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri er laus til umsóknar. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf berist til stjórnar Fjórðungs- sjúkrahússins fyrir 30. júni n.k. Staðan verður veitt frá 1. ágúst n.k. eða eftir samkomulagi. Umsækjendur með menntun i sjúkrahús- stjórnun, viðskiptafræði eða hliðstæðum greinum sitja fyrir veitingu að öðru jöfnú. Laun samkv. kjarasamningi starfsmanna Akureyrarbæjar. Allar nánari upplýsingar veitir stjórnar- formaður Stefán Stefánsson, simi 96-21000. Stjórn F.S.A. Blaðberar óskast VESTURBORG: Laufásvegur (1. júni) Öldugata (1. júni) uJODVIUINN Siðumúla 6, simi 8 13 33 Við grunnskóladeild FJÖLBRAUTASKÓLANS A AKRANESI eru lausar kennarastöður. Kennslu- greinar: stærðfræði, eðlisfræði og liffræði. Æskilegt er að umsækjendur hafi B.S. eða B.Ed. próf i þessum greinum. Upplýsingar veitir skólameistari i sima 93-2544 kl. 9-15 virka daga. Skólanefnd Verður Burmeíster og Wain lokað? Frá skipasmlöastöö Burmeister og Wain i Danmörku. Flugslysiö dregur dilk á eftir sér Allar DC-10 þotur kyrrsettar vegna málmþreytu Eins og sagt var frá i blaöinu i gær fyrirskipaöi bandaris ka flugmálastjórnin skoðun á bolta i hreyfilfestingu allra DC 10 þota i Banda- ríkjunum. Stjórnin tilky nnti I gær aö allar þoturnar skyldu kyrr- settar þar til farið hefur fram rannsókn á öllum hlutum hreyfil- festingarinnar vegtia gruns um málmþreytu. Þessi ákvöröun kemur i kjölfar flugslyssins mikla i Chicago en þar fórust amk. 273 manns en taliðer aö tala látinna eigi eftir aö hækka vegna þess aö börn undir 10 ára aldri eru ekki talin á farþegalistum. Stjórn A Iþjóðagjaldeyrissjóðsins á Portúgal Þingið vill ekki kyngja og neitar aö samþykkja jjárlög Ný stjórnarkreppa viröist nú vera yfirvofandi i Portúgal þar sem þingiö hefur enn ekki sam- þykkt fjárlög fyrir þetta ár. „Utanflokkastjórnin” hefur sett fram breytingatillögur til þess aö f reista þess aö fá þingið til þess aö samþykkja fjárlögin i kvöld. Breytingarnar eru að draga úr gengissigi og lækkun vaxta. Samkvæmt kröfu Alþjóöagjald- eyrissjóðsins voru vextir hækk- aöir oggengiö látið siga um 1% á mánuöi. Nú standa fyrir dyrum undir- skriftir á nýju samkomulagi við Alþjóöagjaldeyrissjóöinn um 50 miljón dala sérstakar dráttar- heimildir og verður ekki af þeim fyrr en eftir samþykkt fjárlaga. Kommúnistaflokkur Portúgals hefur þegar tilkynnt að hann muni bera fram i þinginu vitur á styðja viturnar ef hún gerir það ekki. Stjórnin veröur að segja af sér ef þingiö samþykkir ekki traustsyfirlýsinguna og einnig ef þingið samþykkir vitur tvivegis með 30 daga bili. Mikill urgur er i þingmönnum sósialista og kommúnista vegna þessaðEanes forseti staöfesti ekki sakar- uppgjöf þingsins til þeirra, sem gerst hafa brotlegir við stjórn- og herlög eftir byltinguna 1974. bessir tveir flokkar hafa hreinan meirihluta á portúgalska þinginu og hafa gagnrýnt „óeðlilegan þrýsting” frá hernum á yfirvöld, en yfirmenn hersins hafa varað við þvi að þingið samþykki aftur sakaruppgjöfina og segja það geti „leitt til agaleysis i hernum”. Þingmenn bíða nú eftir þvi að for- setinn skýri af hverju hann stað- Frá fréttaritara Þjóöviljans i Kaupmannahöfn, Gesti Guð- mundssyni, 29.5. ’79. Aðaleigandi Burmeister og Wain, Jan Bonde-Nielsen, kom dönskum almenningi enn einu sinni á óvart i gær, þegar hann lýsti þvi yfir að skipasmiðastöð- inni yrði lokað 1. febrúar á næsta ári. Hannsetti þó fram fyrirvara að hætt yrði við lokun, ef arðbær verkefni fengjust fyrir 1. ágúst n.k. begar hafa verið gerðar áætlanir um fækkun starfsmanna og verður helmingi skrifstofu- manna, eða um 100 sagt upp nú á fimmtudag, en aðrir hinir 1200 starfsmenn skipasmiðastöövar- innar fá uppsagnarbréf sin á timabilinu fram til 1. febrúar. Einungis sárafáir þeirra fá ráðningu á öðrum vinnustöðum B&W. Talsmen'n verkafólks hafa fallist á uppsagnarskilmálana og minni hluthafar fyrirtækisins hafa lýst ánægju sinni með þetta tiltæki. Skipasmiðastöðin er nú 15% af B&W hringnum i heild og telja meðeigendur Bonde-Nielsens að hún sé veikasti hlekkur fyrir- tækisins. Tvenns konar skýringar eru á lofti vegna yfirlýsingar Bonde-Nielsens. Margir búast við lokun á þessum aldna og þjóö- fræga vinnustað, en aðrir telja yfirlýsinguna enn eitt bragð þessa slóttuga athafnamanns. Með henni hyggst hann knýja á um betri fyrirgreiöslu frá stjórn- völdum, þannig að fyrirtækinu verði útveguð arðbær verkefni fyrir 1. ágúst og um leið hafi hann frjálsar hendur til að stokka upp framleiðsluaðferðirnar án andstööu starfsfólks. Oliuframleidslan dregst enn saman í íran Hækkar hún enn? íranska ollufélagiö Nioc tilkynnti i gær aö oliufram- leiöslan heföi minnkaö i þessum mánuöi úr liölega 4 miljónum fata i 3.4 miljónir fata, á dag aö rneöaltali. Fyrirtækið gaf engar skýringar á þessu, en iranska byltingarstjórnin hafði áður tilkynnt að hún ætlaði aðláta framleiöa um 4 miljónir oliufata á dag. Jafn- framt tilkynnti talsmaöur Nioc aö laun verkamanna i oliuiðnaðinum hefðu verið hækkuö um 7500 riala (milli 30og 40 þúsund isl, krónur) á mánuði og auk þess hefðu kjör verkamanna verið bætt að öðru leyti svo sem trygg- ingar og húsnæöi ofl. Til- kynning þessi um launa- hækkun var gefin út viku eftir aö forstjóri Nioc heim- sótti suðurhéruö Irans en þar hefur gætt mikillar ólgu meöal verkamanna i oliu- iðnaðinum. Talið er að verkamenn standi en ótrauö- ir gegn áætlunum fyrirtækis- ins um aðfá að nýjutil^tarfa erlenda sérfræðinga i oliu- iðnaðinn, en þeim var visað burt i kjölfar byltingarinnar. sgt rikisstjórmna og Sósialista- flokkurinn hefur krafist þess að stjórnin leiti eftir traustsyfir- lýsingu þingsins og hótað að ekkert uppi um afstöðu sina til trausts á stjórninni fyrr en það verður. sgt Evrópskir kennarar þinga FRÁ BORGARBÓKASAFNI Hljóðbókasafnið verður lokað til 11. júni n.k. Verður þá opnað i Hólmgarði 34. Opið mánudaga — föstudags kl. 10 — 4. BÓKIN HEIM Heimsendingaþjónusta á prentuðum bókum við fatlaða og aldr- aða verður áfram i Sólheimasafni, simi 83780. Simatimi mánudaga og fimmtudaga kl. 10 — 12. BORGARBÓKAVÖRÐUR Kreíjast 24 stunda vinnuviku Evrópskir kennarar sem héldu tveggja daga ráðstefnu I Bonn I V-Þýskalandi kynntu I gær kröfur sinar sem eru aö vinnuvikan veröi 24 stundir, aö fækkaö veröi I bekkjardeildum og eftirlaunaald- ur færist niður. Ráöstefna þessi var sótt af full- trúum kennarasamtaka i átta löndum Efnahagsbandalagsins, en itölsku fulltrúarnir komust ekki til hennar, auk fulltrúa frá Austurríkiog Sviss. Ráðgert er að kennarar móti kröfur sinar frekar á fyrirhuguðum fundi i Birmingham i október á þessu ári, en formælandi kennaranna i Bonn kvað þá hafa komist að þeirri niöurstööu að kennarasam- tök hinna ýmsu landa ættu að samræma baráttu sina og að- ferðir. sgt

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.