Þjóðviljinn - 30.05.1979, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 30.05.1979, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 30. mai 1979 afeirlendum vettvangi Klofningur í Sósíalistaflokki Spánar Ljóst er aö alvarlegur klofningur er í Sósialista- flokknum á Spáni, öðrum stærsta stjórnmálaf lokki þess lands. Hinn ungi vin- sæli leiðtogi flokksins, Felipe González, hefur lýst því yfir, að hann gefi ekki kost á sér til endur- kjörs sem aðalritari flokksins. Sumir frétta- skýrendur telja að vísu að þetta sé bara pólitískt bragð hjá Gonzálwz og að hann muni áreiðanlega hætta við að hætta, en hvað sem því líður er Ijóst að klof ningurinn er fyrir hendi. Deila þessi snýst i stórum dráttum um þaö, aö hve miklu leyti hugmyndafræðilegur grund- völlur skuli ráða ferð flokksins eða hin ýmsu timabundnu við- fangsefni. Þetta er nokkuð sem flestir stjórnmálaflokkar i ev- rópskum þingræðislöndum kann- ast við. González lagði til að framvegis yrði ekki sérstaklega tekiö fram i stefnuskrá flokksins, að hann væri marxiskur, enda þótt hann legði jafnframt áherslu á að fræði Marx yrðu áfram leið- arljós flokksins. González gerir sér vonir um, að ef dregið sé úr hinum marxiska svip flokksins, muni honum takast að ná til sin allmörgum miðjukjósendum, sem i undanförnum kosningum hafa stutt miðdemókrata (öðru nafni miðjubandalag) Suarezar forsætisráðherra. Sósialistar og sósíaldemókratar Þetta telja margir liösmenn Sósialistaflokksins spænska alltof mikla hentistefnu, enda var til- laga Gonzálezar um að fella orðið „marxiskur” burt úr upptalning- unni á megineinkennum flokksins kolfelld á flokksþinginu sem nú stendur yfir i Madrid. Þetta gefur nokkra innsýn í viss einkenni suðurevrópskra stjórnmála, sem kunna að koma mörgum Norður-Evrópumönnum spánskt fyrir sjónir. Sósialista- flokkurinn spænski og nafnar Gonzáiez — meö hugann viö miöjukjósendur. hans í öðrum rómönskum löndum Suður-Evrópu kunna af ýmsum að verataldir sósialdemókratisk- ir, en sumir þessara flokka að minnsta kosti hafna þeim titli mjög eindregið. Meðal liðsmanna Sósialistaflokksins i Frakklandi er orðið „sósialdemókrat” skammaryrði; eitthvað svipað er það hjá spænska Sósialistaflokkn- um og Sósialistaflokkarnir á Italíu og i Portúgal munu varla telja sig sósialdemókratiska heldur. Hinsvegar eru að minnsta kosti í Portúgal og á Italiu flokk- ar, sem kalla sig sósialdemókrat- iska, en eru eitthvað álika langt tii hægri og Alþýðuflokkurinn á Islandi. González vantar valds- mennsku Þegar þetta er haft i huga þarf kannski engan að undra, þótt liðs- menn spænska Sósialistaflokks- ins séu á varðbergi gegn þvi að vera dregnir i átt til hægri. Vissir fréttaskýrendur kenna það að nokkru klaufaskap Gon- zálezar að svona fór. Meðal ann- ars byrjaði hann að viðra hug- myndir sinar um breytingu á stefnuskránni i Astúriu, sem er eitt harðasta vigi vinstristefnu á Spáni. Sumir segja lika að þótt González sé klókur að átta sig á hugarfari kjósenda og vinsæll af almenningi skorti hann þá valds- mennsku sem sé mikið atriði fyrir leiðtoga stórs stjórnmálaflokks. Vist er um það að González misreiknaði sig herfilega, þvi að jafn slyngur stjórnmálamaður og hann er sagður vera hefði átt aö geta séð það fyrir að tillaga hans var dauðadæmd á flokksþinginu. Ágeiningurinn milli landshluta kom hér lika fram eins og I öðru. Fulltrúarnir frá námu- og iðn- aðarhéraðinu Astúriu gengu fram fyrirskjöldu til að ónýta tillöguna fyrir aðalritaranum, sem þegar til kastanna kom fékk ekki mik- inn stuðning nema frá fulitrúum flokksdeildarinnar i Sevilla, en þaöan úr sveit er hann sjálfur ættaður. Vestur-þýskir kratar með í spilinu Lika heyrist að erlendir aðilar hafi átt sinn þátt i að svona fór, og Þeir, sem kaupa Visi i dag fá svo sannarlega nóg að lesa. Auk fréttablaðs dagsins fá þeir 48 síðna litprentað Danmerkurblað i hendur án nokkurs aukakostnaðar. í Danmerkurblaðinu er fjallað i fréttum, frásögnum og viðtöl- Íum um fjölmörg málefni sem tengjast Danmörku og snerta mörg hver jafnframt ísland. Visir vill með þessu framtaki leggja sitt að mörkum til þess að veita landsmönnum aðgengilegar upplýsingar um Danmörku og dönsk málefni þessa stundina. Þú ættir að tryggja þér eintak af Visi strax eftir hádegið, þegar hann er, ásamt Danmerkublaðinu, kominn á sölustaði. eru þá helst nefndir vesturþýskir sósialdemókratar, Vesturþýsku kratarnir, sem siðustu áratugina hafa öllu fremur verið einskonar miðjuflokkur með frjálslyndis (liberala) stefnuskrá en eiginleg- ur sósialdemókrataflokkur, hafa um skeið með bæði fé og fortölum leitast við að sveigja sósialista Pýreneaskagans sem lengst frá gamla Marx. Þar hefur flokkur Schmidts kanslara mikla mögu- leika og margvislega, með efna- hagslega stórveldið Vestu-Þýska- land á bak við sig. óljós markalina Klofningurinn i spænska Sósial- istaflokknum gæti leitt til veru- legrar umstokkunar vinstra meg- in i spænskum stjórnmálum. 1 Kommúnistaflokknum, aðal- keppinaut Sósialistaflokksins um vinstrafylgið, er hliðstæður ágreiningur fyrir hendi, enda þótt til þessa hafi betur tekist að jafna hann. 1 þeim flokki eigast við len- inistar og evrópukommúnistar, og hafa þeir siðarnefndu yfir- höndina og fengu þvi ráðið, að flokkurinn felldi leninismann úr stefnuskrá sinni. Það segir sig sjálft, að þegar svo er komið hlýt- ur að vera heldur óljós marka- lina milli andstæðinga González- ar i Sósiaiistaflokknum og ev- rópukommúnistanna i Kommún- istaflokknum. Yrði lina González- ar ofan á i flokki hans, væri eins vist að hinn marxiskari armur flokksins færi yfiri Kommúnista- flokkinn. dþ. Þórsmerkurhúsiö á Krossáraurum. Valahnúkur Ibaksýn. Myndina tók Grétar Eiriksson þegar húsiö var komiö klakkiaust yfir ána, en þetta mun vera I fyrsta sinn sem heilt hús er fluttyfir Krossá. Ferðafélagshús flutt í Þórsmörk Um helgina fóru menn á vegum Ferðafélags Islands með 37 fermetra hús úr Reykjavik austur i Langadal i Þórsmörk. Húsið var flutt tilbúið og gekk ferðin mjög vel að sögn Grétars Eirikssonar, sem var einn leiðangursmanna. Húsið verður verkfærageymsla og jafnframt verslun. Ferðafélagsmenn lögðu af stað með húsið kl. 2 aðfaranótt laugar- dags og komu á áfangastað kl. 11 á laugardagsmorgun. Engir farartálmar voru á leiðinni og mjög litið vatn i Krossá. Ferðafélagið er nú að láta byggja tvö hús til viðbótar. Eru það sæluhús til notkunar fyrir göngumenn og verða á syðri Fjallabaksleið. Aætlaður kostnað- ur við byggingu og niðursetningu allra þriggja húsanna er 20-25 miljónir kr. — eös Kosning í Verslunarmanna- félagi Suðurnesja Þar sem tveir listar hafa bor- ist til kjörs stjórnar og trún- aðarmannaráðs Verslunar- mannafélags Suðurnesja fer fram allsherjaratkvæðagreiðsla miðvikudag og fimmtudag kl. 14—22 á skrifstofu félagsins, Hafnargötu 16, Keflavik. Listarnireru þannig skipaöir: A-listi. Listi fráfarandi stjórnar og trúnaöarmannaráös: Aðalstjórn: Valur Margeirs- son formaður, Matti Ó. Asbjörnsson varaformaður, Arni Björgvinsson ritari, Guðmundur Margeirsson gjald- keri, Kolbeinn Pálsson, Birna Valdimarsdóttir og Sigurhans Sigurhansson meðstjórnendur. Varastjórn: Gunnar Arnason, Guðfinnur Sigurvinsson, Marius Sigurjónsson. Trúnaðarmannaráð: Gunnar Sigurgeirsson, Anna Marteins- dóttir, Sólveig Sigfúsdóttir, Guðmundur Kristberg Helga- son, Stefania Magnúsdóttir, Einar Júliusson, Agústina Andrésdóttir, Varamenn i trún- aðarráð: Guðmundur Jónsson, Rut Olsen, Ingibjörg Björns- dóttir Asa Asmundsdóttir, Kristin Ingólfsdóttir, Rikharð Olsen, Hildur Gunnarsdóttir. Endurskoðendur: Sigurður Sturluson, Loftur Jónsson. Varamaöur: Magnús Gunnars- son. B-Iisti. Borinn fram af Valgarði Kr ist m undssy ni, Magnúsi Gislasyni og fleirum: Aðalstjórn: Valgarður Kristmundsson formaður, Magnús Gislason varaformaður, Ingibjörg Elias- dóttir ritari, Einar Júliusson gjaldkeri, Helga Albertsdóttir, Nicoali Bjarnason og Asbjörg Eggertsson meðstjórnendur. Varastjórn: Jóhannes Jensson, Þorsteinn Þorsteins- son, og Þóröur Pétursson. Trúnaöarmannaráö: Geir Þorsteinsson, Haukur Ingi Hauksson, Guðrún Eliasdóttir, Aslaug Húnbogadóttir, Hólm- friöur ólafsdóttir, Ólafur Júliusson, Jón Newmann. Varamenn i trúnaðarmanna- ráð: Guðjón Guðjónsson, Guðm. H. Valdimarsson, Anna Lisa Asgeirsdóttir Kristjana Þorsteinsdóttir Guömundur A. Brynjólfsson, Helgi J. Kristjánsson, Agnes Ásta Gunnarsdóttir. Endur- skoðendur: Hólmbert Friðjóns- son, Birgir Guðmundsson . Varamaður Birgir Friöriksson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.