Þjóðviljinn - 30.05.1979, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 30.05.1979, Blaðsíða 12
12 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 30. mai 1979 Guöriln Stephensen og Gunnar Rafn Guömundsson „valsa” fyrir verkamenn i Sundaskála. Ljósm. Leiíur. í ábæti List MF A sýnir VALS eftir Jón Hjartarson Leikstjóri: Jón Hjartarson Hinn 17. mai var frumsýndur i Sundaskála i Reykjavik leik- þátturinn Vals eftir Jón Hjartarson, sem hlaut fyrstu verðlaun i leikþáttasamkeppni Menningar og fræöslusambands alþýöu sem haldin var á siðast- liðnu ári, en alls bárust 15 leik- þættir í þá keppni. Undirritaður sá aðra sýningu háttarins, i mötuneyti Oliufé - lagsins að Gelgjutanga þar sem starfsfólkið sat i góðu yfirlæti eftir matinn og fékk list i ábæti. Var ekki annað sýnilegt en sá ábætir rynni ljúflega niður og fólk sýndi verulegan áhuga á þvi sem fram fór. Vals eftir Jón Hjartarson er hálftima leikþáttur, sniðinn þannig að hægt er að sýna hann hvarsem erogtekur uppsetning tækja og sviðs aðeins örfáar minútur. Hann fjallar um mál sem ofarlega á baugi þessa dag- ana, stöðu fyrrverandi heima- húsmóður i atvinnulifinu. Amman, sem Guðrún Stephen- sen lýsir af öruggri kimnigáfu og hlýju, er búin að missa manninn sinn og þar með hlut- verk sitt i lifinu. Hana langar til að verða eitthvað, finna sér nýj- an vettvang, en kemst að þvi að henni standa engar dyr opnar, hún hefur verið lögð til hliðar. Þetta er afar raunverulegt vandamál fyrir mikinn fjölda fólks og Jón hefur gert þvi mjög þokkaleg skil af töluverðri kimni og hugkvæmni. Jón hefur einnig sviðsett verkiðog farist það vel úr hendi. Leikur er hófsamlega stilfærður og áhersla lögð á einfalda og skæra tjáningu. Auk Guðrúnar koma fram þrir ungir og efni- legir leikarar , þau Ólafur örn Thoroddsen, Gerður Gunnars- dóttir og Gunnar Rafn Guð- mundsson. Hér er á ferðinni afar merki- leg nýjung. Hér á landi hefur leiklis tin verið alltof bundin við leikhúsin og alltof litill skilning- ur rikt á þvi að ekki er aðeins unnt að hafa leiklist i frammi nánast hvar sem er heldur getur þaðeinnig verið nauðsynlegt tii að losa um hefðbundnar viðjar og tryggja endurnýjun og ný- sköpun að fara með leiklistina út úr s inum göm lu stof nunum og út á göturnar, vinnustaðina, krárnar, hvert sem er. Þessi starfsemi er einnig merkilegur liður i viðleitni MFA til að glæða áhuga alþýðu manna á listum og menntum. Hér er kjörin leið til að ná til stórra hópa fólks sem ekki fer að staðaldri i leikhús og tala til þeirra á máli leiklistarinnar um efni sem þvi kemur beint við og vekja það þannig til skilnings á leiklist og til umhugsunar um ýmis þjóðfélagsmál. Hér hefur verið vel og farsællega af stað farið og vonandi að mikið og gott framhald verði á þessari starfsemi. Sverrir Hóimarsson Sverrir Hólmarsson skrifar um ÍGikhús Stangaveiðifélag Reykjavíkur (SVFR) er 40 ára um þessar mundir, en stofnfundur félagsins var haldinn 17. maf áriö 1939. Forgöngu um stofnun SVFR höfðu þeir Gunnar E. Benedikts- son lögfræðingur og Friðrik Þor- steinsson húsgagnasmiöameist- ari, og var Gunnar fyrsti formaö- ur félagsins. Stofnfélagar voru 48 talsins, og eru nú 7 þeirra á lífi. Tilgangurinn með stofnun fé- lagsins var sá, að bæta aðstöðu félagsmanna til stangveiði, efla samstöðu meðal stangveiði- manna, veita fræðslu um stang- veiðiiþróttina, stuðla að ræktun fiskistofna i ám og vötnum og vinna gegn veiðiaðferðum, er lik- legar væru til að spilla veiði. Nú hefur félagið 10 ár og vatna- svæði á leigu eða i umboðssölu, en þær eru Elliðaár, Leirvogsá, Grimsá og Norðurá i Borgarfirði, en þá siðarnefndu hefur félagið haft óslitiði 35 ár, Álftá á Mýrum, Flókadalsá i Fljótum, Lagar- fljótssvæðið, vatnasvæði Breið- dals i Suður-Múlasýslu, Stóru- Laxá i Hreppum og Tungufljót. • Blikkiðjart Asgaröi 7, Garöabæ Önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verötiiboö SIMI 53468 Stjórn Stangaveiöifélags Reykjavikur og starfsliö á skrifstofu féiags- ins, taliö frá vinstri: Karl Guömundsson ritari, Karl ómar Jónsson varaformaöur, Eyþór Sigmundsson meöstjórnandi, Hanna Marta Vigfúsdóttir skrifstofumaöur, Magnús Ólafsson formaöur, Friörik D. Stefánsson framkvæmdastjóri, Þóröur Jasonarson gjaldkeri, Runólfur E. Heydal, óiafur G. Karisson og menn. 1 þessum ám hefur félagið til ráðstöfunar rúmlega 4000 lax- veiðidaga, og eru þá Lagarfljóts- svæðið og Tungufljót ekki meðtai- in, auk rúmlega 3000 silungsveiði- daga. Félagið hefur reist veiðihús við ýmsar ár, og má þar einkum nefna veglegt hús við Norðurá og Grimsá, auk ýmissa smærri húsa. Frá árinu 1947 hefur SVFR gef- ið út Veiðimanninn, en hann er Sverrir Þorsteinsson varastjórnar- eina timaritið um lax- og silungs- veiðimál, sem út kemur hér á landi. Eru tölublöð Veiðimanns- ins nú orðin 100 talsins. Félagsmenn eru nú hátt i 1400 talsins, og er SVFR langfjöl- menriasta og öflugasta félag sinn- ar tegundar hérlendis. Félagið er opið öllu áhugafólki um stang- veiði. Umsvif félagsins eru nú mikil og vaxandi, og á þessu ári mun velta félagsins nema um 170 milljónum króna. Stangaveiðifélag Reykjavíkur •• a r r fjortiu ara baekur The Thirties and After. Poetry, Politics, People 1933—75. Stephen Spender. Fon- tana/Collins 1978. Spender skrifar um þá tima, þegar hann og ýmsir kunnir vinir hans, svo sem Auden, Mac Niece og Day Lewis, höfðu fundið lausn flestra vandamála samtiðarinnar og vissu nákvæmlega hvað var sannleikur. Þessi hópur og ótal fleiri horfðu vonaraugum til framþróunarinnar, þeir vissu að élin, sem myrkvuðu heimsbyggð- ina milli styrjaldanna, myndu hverfa sem dögg fyrir sólu eftir þvi sem fleiri sæju i hverju lausn- in væri fólgin. Spender lýir þess- um timum og afstöðu sinni, sem virðist hafa verið nokkuð tviátta þegar á leið. Spender kemur viða við i þessum stuttu minningum sinum-. Spánarstyrjöldin, heims- styrjöldin siðari og Kalda striðið. Hann minnist á Encounter hneykslið og fráhvarf sitt frá timaritinu vegna fjárveitinga Cia til þess. lllar tungur segja þó að hann hafi vitað um það mál frá upphafi. Fjöldi manna kemur við sögu og bókinni lýkur á eftirmæl- um þeirra manna sem frægastir voru meðal skálda. Þetta er læsi- leg ,,snakk”-bók á hærra plani en gerist með slikar bækur. The Mystical Qabaiah. Dion Fortune. Ernest Benn 1976. Höfundur segir i inngangi, að aðeins fáir þeir, sem leggi stund á dulspeki, viti nokkuð um hvaðan dulspeki þeirra er runnin og flestir þeirra viti ekkert um þá vestrænu arfleifð. Mönnum geng- ur illa að átta sig á þeim feluleik sem hinir innvigðu hylja sig i og fræði sin. Höfundur segir, að þeir hafi bæði fyrr og nú gert ailt til þess að halda kunnáttu sinni leyndri og það litla sem liggi á glámbekk rugli fræðimenn frem- ur en veiti nokkrar bitastæðar upplýsingar. Fortune segir, að margir yrðu undrandi ef þeir fengju að glugga i þau fræði og heyra þau sannindi, sem ásamt þeim brotum sem útgefin eru mynda fuilkomið kerfi vestræns jóga. Þessi jógaiðkun er reist á Qabalah, eða visdómi Hebrea, og þaðan er vestræn dulspeki runn- in. Fortune kveðst ætla með þessu riti að opinbera mönnum þau not sem dulhyggjumenn geta haft af þessu visdómskerfi Hebrea. Siðan rekur hann nokkuð afstöðu kirkjunnar og fræðimanna til þessara dulfræða, en fræðimenn álita að það litla, sem heimildir tjá um þessi fræði, byggist á föls- unum gerðum á miðöldum og kirkjan barðist gegn þessum kenningum sem villutrú. Meginhluti rits Fortunes fjallar um aðferð sem menn skulu ástunda til að öðlast þá æðri spekt og þá uppljómun hugar, sem opn- ar mönnum æðri viddir. Og vilji menn kynna sér þessi fræði, þá lesi þeir bók Fortunes. Rit þetta hefur verið prentað 12 sinnum, fyrst 1935. 1 bókarlok eru myndir varðandi fræðin, m.a. af Tré lifs- ins. Bókinni lýkur með efnisyfir- liti. Pípulagnir Nýlagnir, breyting- ar, hitaveitutenging- ar. Simi 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 á kvöldin)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.