Þjóðviljinn - 22.06.1979, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 22.06.1979, Blaðsíða 5
Föstudagur 22. júnl 1979 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 5 I fyrri KúbuferOum hafa Noröurlandabúarnir aöallega stundaö byggingarstörf. Hér sjást nokkrir þeirra viö skurögröft. Vinnuferd tíl Kubu Öryggismál að Grundartanga Námskeiði hætt í miðjum klíðum Forsvarsmenn málm- blendiverksmiöjunnar aö Grundartanga hafa látiö fög- ur orö falla um aöbúnaö og öryggi á þessum nýja vinnuátað. Svo viröist sem allt veröi gert til aö tryggja öryggi verkamannanna. 1 þvi skyni var efnt til nám- skeiðs i skyndihjálp og sjúkraflutningum nú I vor. Sérmenntaður maður var fenginn til að skipuleggja kennsluna og beitir hann kerfi sem kennt er við Möltu- hjálparþjónustuna. Alls voru 19 manns á námskeiöinu og luku þeir allir fyrri hlutan- um, sem var skyndihjálp. En þá kom babb i bátinn. öryggisstjóranum fannst námskeiðiö taka allt of lang- an tima og krafðist þess að þvi yrði lokið áður en hann færi i sumarfri. Afleiðingin varð sú aö einungis 5 menn luku seinni hlutanum, sjúkraflutningunum, og eru allar likur til þess að ekki verði lokið við námskeiðið. Þegar til kastanna kemur virðist fullkomin kennsla og besta öryggi ekki skipta þá kumpána miklu máli, en verkamenn eru að sjálfsögðu óánægðir, enda hefur kennsla af þessu tagi verið litil og brýn þörf á að úr veröi bætt. -ká Tiu islendingum gefst kostur á þátttöku i vinnuferö til Kúbu um miðjan desember nk. á vegum Vináttufélags islands og Kúbu (VIK), sem undanfarin ár hefur skipuiagt þátttöku héöan I sam- norrænum vinnuferöum til Kúbu, Brigada Nordica. U.þ.b. 200 manns frá öllum Norðurlöndunum taka þátt i þess- um ferðum, sem farnar eru I tvenns konar tilgangi: annars- vegar til aö kynnast landi og þjóð, hinsvegar til að sýna samstöðu með kúbönsku byltingunni og leggja litið lóð á vogarskál hinnar sósialisku uppbyggingar. Næsta ferð verður farin um miðjan desember á þessu ári. Tiu Islendingum gefst kostur á þátt- töku. Ferðin mun taka fjórar vikur. Þaraf verður unnið i landbúnaði og/eða byggingarvinnu i þrjár vikur, og ferðast um landiö i eina viku. Dvalist verður i vinnubúö- um, og verður þar ýmislegt gert til skemmtunar og fróðleiks, m.a. sýndar kvikmyndir, haldnir fyrirlestrar og fariö i kynnisferðir á vinnustaði, i skóla, á bað- strendur osfrv..Kúbanskir náms- menn og verkamenn taka þátt i störfum norræna hópsins. Skilyrði fyrir þátttöku eru: 1) að viðkomandi sé meðlimur i Vináttufélagi Islands og Kúbu (inntökubeiðnir má senda i póst- hólf félagsins), 2) kunni eitthvert erlent tungumál (spönsku.ensku eða eitthvert Norðurlandamál- anna) og 3) sendi inn umsókn um þátttöku fyrir 1. ágúst n.k. Félagið áskilur sér rétt til að velja úr umsóknum, og verður- umsækjendum tilkynnt það li ágústmánuði, hvort þeir hafa orð- ið fyrir valinu. t september hefst: svo undirbúningsnámskeiö fyrir væntanlega Kúbufara. Þar verða fluttir fyrirlestrar um Kúbu og; veittar allar upplýsingar um ferðina. Aætlaður kostnaður fyrii- hvern þátttakanda er u.þ.b. kr. 400.000-. Innifaliö i þvi verði er: feröir til og frá Kúbu, allt uppi- hald, ferðir og skemmtanir á staönum. Póstfang VIK er: Pósthólf 318, Reykjavik. Opinn fundur um hvala- vernd Starfshópur Náttúru- verndarfélags Suðvestur- lands um hvalavernd heldur fund, mánudaginn 25. júni að Hótel Loftleiðum kl. 20.30 (ráöstefnusalurinn). Efni fundarins verður hvalavernd og stefna Islendinga i hval- veiðimálum. Fundurinn er öllum opinn. Ætlunin er aö bjóöa full- trúum þeirra aöila, sem beint eða óbeint eiga hlut að máli. Má þar til nefna islensk stjórnvöld, alþingi, visindamenn (ef til vill erlendis frá), Hval h.f., Greenpeacesamtökin. Fram að þessu hefur litið sem ekkert veriö rætt um hvalavernd og stefnu Islands 'I hvalveiöimálum. Ætti þvi þessi fundur að gefa fólki kost á aö kynnast þessum mikilvægu málefnum frá fleiri en einni hlið. Ástralía að lokast? Aströlsk yfirvöld hafa ákveðið að frá og með 1. júli 1979 muni breska sendiráðið i Reykjavik ekki lengur gefa út áritanir fyrir Astraliu, segir i tilkynningu frá þvi. Fólk sem hyggur á ferð til Astraliu þarf að hafa sam- band við ástralska sendiráð- ið I Stokkhólmi. Heimilisfang sendiráðsins i Stokkhólmi er: Australian Embassy Box 40046 103 42 Stockholm 40 Sweden ÖKUÞÓ minnir á sýningu fornbilaklúbbsins í Laugardalshöll Ökuþór er nú fáanlegur í bókaverslunum Verð í lausasölu kr. 1.490 Verð til áskrifenda kr. 1.000 Áskriftarsímar 82300 og 82302

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.