Þjóðviljinn - 21.07.1979, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 21.07.1979, Blaðsíða 19
Laugardagur 21. júll 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 19 Kvenfélag Islands þingar Allar konur fái fæðingarorlof Kvenfélagasamband tslands hélt nýlega landsþing sitt, hið 23.1 röðinni. Þingið samþykkti fjölda ályktana en eitt helsta baráttu- mál sambandsins er aö starfs- maður Leiðbeiningastöðvar hús- mæðra komist á launaskrá rikis- ins og njóti sömu réttinda og opin- berir starfsmenn. Auk þess legg- ur sambandið áherslu á að fjölga ráöunautum um heimilisrekstur svo að unnt verði að veita aukna þjónustu við heimili utan höfuð- borgarsvæðisins. A þinginu var kosinn nýr for- maður, Sigriður Thorlacius lét af formennsku og var Marfa Péturs- dóttir kosin I hennar stað. Mörg mál voru til umræðu á þinginu og má nefna að samþykkt var áskorun til alþingis um að þeg- ar á næsta hausti verði gerðar breytingar á tryggingalöggjöf- inni, þannig aðallar konur á land- inu njóti fæðingarorlofs. Þá var samþykkt tillaga þess efnis að barnaársnefndin gangist fyrir þvi að öll börn fái tækifæri til að heimsækja foreldra sina á vinnustað og verði valinn til þess ákveðinn dagur. Þingið beinir þeim tilmælum til foreldra að hafa hugfast að skyld- ur foreldra og annarra uppalenda við börn takmarkast ekki af þvi að sjá þeim fyrir efnahagslegum þörfum. Tilfinningalegur og fé- laglegur þroski barna ræðst af þvi að þeir fullorðnu veiti þeim ástúð og öryggi, segir i ályktuninni. Einnig lagði þingið áherslu á að lögum um kennslu I heimilis- fræðum verði framfylgt. Kvennfélagasamband íslands er eitt fjölmennasta samband landsins. Félagar eru um 25 þús. og hefur ekkert samband karla Starfsmenn „Hárskerans” og nýju innréttingarnar. neitt svipaðan fjölda félags- manna. I sambandinu eru kven- félög, stéttafélög, pólitfsk félög og ýmis sérfélög sem hafa ákveðin baráttumál. Margvisleg starfsemi fer fram á vegum sambandsins, má þar nefna leiðbeiningarmiðstöðina, útgáfu bæklinga, námskeið um bilaviðgerðir, I tungumálum o.fl. A fundi með nýkjörinni stjórn og starfsmönnum sambandsins kom fram að mikið er leitað til leiðbeiningastöðvarinnar, jafnt af konum sem körlum, enda er þetta eina þjónustan af þessu tagi sem völ er á. Sambandið gefur út timaritið Húsfreyjuna sem fjallar um ýmislegt það sem varðar heimil- ishald og neytendamál. Þeim stjórnarkonum bar sam- an um að frá þvi að sambandið var stofnað 1930 hefði það tekið miklum breytingum I samræmi við breyttar aöstæður og verkefn- in eru sibreytileg. „Hárskerinn” Skúlagötu 54 hef- ur breytt um svip og annaðist teiknistofan Kvarðinn hönnun á nýjum innréttingum. Þjónusta „Hárskerans” hefur einnig verið aukin verulega, enda eru karlmenn nú orðnir ófeimnari við að láta lita á sér hárið eða setja I það permanett en áður. „Hárskerinn” hefur einnig á boð- stólum þýska hártoppa og á stof- unni eru gerð göt i eyru þeirra sem þess óska. Starfsmenn „Hárskerans” eru Pétur Melsteð, Guðleif Einars- dóttir og Hugrún Stefánsdóttir og sjást þau á myndinni sem hér fylgir meö. — AI Framhald á 22. siðu. „Hárskerinn” breytir um svip Góð húsgögn ó góðu verði Furu húsgogna- SÝNIN6 í dog laugardag kl. 10-18 Komið og sjóið sýnishorn eg,\ager(/y Eyjagötu 7, Orfirisey Reykjavik simar 14093—13320 TAlllB EABO 0B SOMABBÚSTM HÚSBÚEH m sm Hiifi ■■ nuRm birrir hugsið um stofnkostnað, rekstrarkostnað og velliðan i rétt upphituðu húsi nwm m w raf- ■UB BnH Ahitun býður allt þetta Hárnákvæmt hitastil. ADAX ofnarnir þurrka ekki loft. Yfir 20 mismunandi gerðir. isl. leiðarvisir fylgir Samþykktir af raffangaprófun. Rafmagnsv. rikisins ------------T----------— EC i Til Einar Farestveit & Co hf Bergstaðastræti 10a Reykjavík Ég undirritaður óska eftir bæklingum yfir ADAX rafhitun Nafn________ Heimilisfang Blikkiðjan Ásgarði 1, Garðabæ önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI53468 Askriftarsími Þjóðviljans 8-13-33

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.