Þjóðviljinn - 21.07.1979, Síða 24

Þjóðviljinn - 21.07.1979, Síða 24
Aukatekjumar hafa stóraukist segir yfirborgarfógeti. „Finnst þetta vera orðið of mikið núna,9 Laugardagur 21. júll 1979. Aöaisimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum. Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs- menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, afgreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. S81333 Kvöldsími er 81348 Austurstræti 3. Búnaðarbankinn hefur sótt um að fá að rifa húsið. Nýbyggingar og niðurrif Alþýðubrauðgeröin vill byggja fimm hæða hús við Laugaveg Gömul hús í Reykja- víkurborg og framtíð þeirra eru stöðugt til um- ræðu. Hvaða stefnu á að marka í skipulagningu og verndun á komandi árum? Á það mun reyna á næst- unni. Nú liggja fyrir hjá bygginganefnd borgar- innar beiðnir um niðurrif og nýbyggingar húsa við Laugavegól -63, Vitastíg 8, Grettisgötu 5 og Austur- Annar hluti útvarpskönnunar: Nær ekkert hlustað á sígíldu tónlistina Nýlega eru komnar út niður- stöður úr 2. hluta útvarpskönnun- ar, sem Hagvangur hf. hefur gert. Fyrsti hluti könnunarinnar fór fram vikuna 19.-25. nðvember 1978 og vöktu niðurstöðurnar þá talsverða athygli og deilur. Ann- ar hlutinn náði hins vegar til vik- unnar 13.-19. mai 1979. Helstu niðurstöður 2. hluta könnunarinnar eru á þá leið, að varöandi sjónvarpsdagskrána virðist mest vera horft á fréttir og fasta framhaldsþætti. A sama hátt er mikiö hlustað á fréttir og fréttatengda þætti i útvarpinu en varöandi tónlistina virðist skipt- ast i tvö horn sem i fyrri hluta könnunarinnar. Mun minna er hlustað á „þyngri” tónlist heldur en tónlist af „léttara” taginu. Þá er áberandi hve mikið er hlustað á útvarp á fimmtudagskvöldum, þegar sjónvarps nýtur ekki við. 215 svöruðu Alls voru send út 365 spurninga- eyðublöð. 19 þeirra voru endur- send og 131 svaraði ekki. Innsend svör voru 215 eða 62,1% af 346 út- sendum svörum, þegar hin 19 endursendu hafa verð dregin frá. Hér er um mun hærri svarpró- sentu aö ræða heldur en i fyrsta hluta. Aðstandendur könnunarinnar segja þrjár ástæöur einkum hugs- anlegar fyrir betri þátttöku. 1 fyrsta lagi var spurningaeyðu- blaðið einfaldað. Þannig var fellt út mat hlustenda á einstökum dagskrárliðum, hvort hlustaö hafi verið meö eftirtekt o.s.frv. 1 öðru lagi var spurt um dagskrá sjón- varpsins, sem ekki var gert í fyrsta hluta könnunarinnar, og i þriðja lagi var reynt að kynna könnunina á markvissan hátt I útvarpinu sjálfu. t úrtakið völdust einungis þeir sem fæddir voru á timabilinu 1.1.1903- 31.12.1960. Hlutfallsleg skipting aldursflokkanna og dreifing svarenda eftir búsetu samsvara all-vel upplýsingum frá Hagstofu tslands. Fréttir og prúðuleikarar Mest var hlustað og horft á dag- skrárliöinn „Fréttir og veður” i sjónvarpinu, eða frá 65,6-80,5%. Aðrir dagskrárliir, sem fleiri en 60 af hundraði sögðust hafa horft á i þessari viku, voru: Húsið á sléttunni (64,2%), Valdadraumar (60,5%), og Prúðu leikararnir (63,3% . Aöeins einn dagskrárlið- ur sjónvarps þessa viku hlaut at- hygli færri en 10% aðspurðra. Það var „Knattleikni — hlutverk útherjans”, sem 9,8% fylgdust með. Klassíkin við núllið Mest er hlustað á hádegisfrétt- ir og fréttir kl. 19 I útvarpinu. Hlustunin á þessa fréttatíma er frá 55,8% til 72,1%. 1 öðru sæti er þátturinn „1 vikulokin” (62,8%), þá „Óskalög sjúklinga” (61,9%), „A frivaktinni” (61,4%), Veður- fregnir kl. 12.45 (47,9-54%), „Morgunpósturinn” (40% að jafnaði) og tilkynningar I hádeg- inu komast hæst i 41,4%. 39,5- 40,5% hlustun var á tónleikana „Viö vinnuna.” „Góði dátinn Svejk” sveik ekki hlustendur I iestri Gisla Halldórssonar leik- ara, enda hlustuðu 44,2% á 14. lestur sögunnar. Af öðru föstu útvarpsefni, sem mikið er hlustað á, má nefna Framhald á 22. siðu. stræti 3. Öll utan eitt gömul timburhús. Þaö er Alþýðubrauðgerðin sem sækir um að fá að reisa ibúðar-, verslunar- og skrifstofuhús upp á fimm hæðir á horni Laugavegs og Vitastigs. Þá fer Búnaðarbank- inn fram á að húsið við Austur- stræti 3 verði rifið, en þar er nú verslun Jóns Brynjúlfssonar. Þessum beiðnum hefur verið vlsað til skipulagsnefndar og borgarminjavarðar til umsagn- ar. Ef að likum lætur eiga þessi mál eftir að valda deilum, einkum hvað varðar húsið viö Austur- stræti 3 sem er gamalt og fallegt timburhús. Húsin við Laugaveg eru lágreist og óneitanlega myndi þaö breyta svip þessa horns verulega ef þar á eftir að risa bygging upp á fimm hæðir. Nú reynir á meirihluta borgar- stjórnar í skipulags- og verndar- málum. A að rifa eða ekki,og hvað á að koma i staðinn? —ká „Ef þú ert að fiska eftir tekjun- um hjá mér, þá er best aö slá upp i skattskránni. Þú getur séð þær þar,” sagði Friðjón Skarphéðins- son yfirborgarfógeti, þegar blaðamaður Þjóðviljans spurði hann hvort borgarfógetaembætt- iðhefði yfirlit um innheimtur em- bættisins á sl. ári og aukatekjur af þeim. Spurt var um aðrar inn- heimtur en rikissjóðsinnheimtur, þar á meðal tekjur af uppboðum, skiptingu dánarbúa og þrotabúa og innheimtu fyrir Gjaldheimt- una og Tollstjórann. Langstærstur hluti aukatekna borgarfógetans fæst af fyrr- greindum embættisverkum, en eins og komið hefur fram i blað- inu virðist harla erfitt að fá yfirlit yfir þessar aukatekjur, þar sem hvorki fjármálaráðuneytið, dómsmálaráðuneytið né rikis- bókhaldið hafa slikt heildaryfir- lit. Þá fengust nokkuð loðin svör hjá yfirborgarfógeta um það, hvort embættið hefði slikt yfirlit. Friðjón Skarphéðinsson sagði að mikið verk væri að taka slikt yfirlit saman og það væri aðeins gert um áramót. „Ég hef það nú ekki,” sagöi hann hinsvegar, þeg- ar hann var spurður hvort hann hefði þá yfirlit um tekjur af upp- boðum sl. ár. Friðjón sagði að aukatekjurnar hefðu hækkað gifurlega á milli áranna 1977 og 78. Ýmislegt fleira kæmi lika til, ef reikna ætti auka- tekjur embættisins. Aðrir fógetar væru þannig með sjálfstæðar aukatekjur af slnum störfum. Yfirborgarfógeti sagðiaðauka- tekjur vegna innheimtu fyrir rlk- issjóð væru litill hluti aukatekn- anna I heild. „Ég held ég hafi nú ekki fengið þær fyrr en I fyrra,” sagði hann. „Ég skildi ekkert i þvi að þeir fóru allt i einu að senda mér eitthvað þrjú eða fjög- urhundruð þúsund fyrir rlkiseinn- heimtur. Þetta kom alveg flatt upp á mig. Svo fór ég að spyrjast fyrir um þetta og þá skildist mér að þeir hefðu breytt reglunum eilthvað. En ég fylgist nú aldrei með þeim og veit ekkert um það, hvernig þær eru.” Eins og kom fram i f rétt í Þjóð- viljanum I vikunni, var reglugerð um laun innheimtumanna rlkis- ins fyrir innheimtu breytt I ágúst 1978, þannig aö afnumið var há- markshlutfall aukatekna fógeta af uppboðum o.fl., sem miðast hafði við 50% af föstum tekjum Framhald á 22. siðu. Afnám ákvœðis um hámark aukateknafógeta: Reglurnar virkudu alls ekki sem hvati segir Árni Kolbeinsson í jjármálaráöuneytinu „Ástæðan fyrir þessari breyt- ingu, fyrir utan vilja manna til að hækka sln laun, var sú að skerð- ing aukatekna hafði þau áhrif að menn urðu áhugalausari um að sinna þessum innheimtum sem skyldi,” sagði Arni Kolbeinsson deildarstjóri I tekjudeild fjár- málaráðuneytisins um niðurfell- ingu á 50% „þakinu” á aukatekj- ur fógeta og sýslumanna. „Innheimtutekjurnar voru skertar á greiðslum sem ekki komu rikisinnheimtu við, fyrst og fremst á uppboðum. Þaö kom i ljós, að þar sem rlkið átti mest I húfi, virkuðu þessar reglur ekki sem hvati, eins og til var stofnað. Skeröingin var það mikil. Þetta var meginástæðan fyrir breyting- unni.” Blaðið hefur eftir áreiðanlegum heimildum, að bæjarfógetar i Hafnarfirði, Kópavogi og Reykja- vik hafi einkum þrýst á um af- nám ákvæðisins um hámark aukatekna. I ■ I i i ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ L Gerumst SAM-sek Dagskrá úr verkum Sigurðar A. Magnússonar kl. 2 í Austurbœjarbíói t dag kl. 2 gefst öllum vinum og velunnurum Siguröar A. Magnússonar tækifæri til að sýna honum samstöðu og styrkja hann vegna hæsta- réttardóms þess sem hann fék nýlega I málaferlum Varins lands. Fólk lætur vonandi ekki gott veður aftra sér frá þvi að eyða stund við að hlusta á lestur úr verkum SAM. Ekki er að efa að það yerður hressileg lesning, þvi Sigurður er þekktur fyrir skorinorðan málflutning.ekki slst gegn máls- vörum hernámsins. Þjóöviljinn hafði samband við Brynju Benediktsdóttur sem verður kynnir á samkomunni og innti hana eftir því hvað þar yrði flutt. Brynja sagði að dagskráin skiptist i fimm þætti. Fyrst verður lesið úr skrifum. SAM um landann, næst koma þættir um skáldskap, skrif gegn her I landi, heimspeki og ljóðræna.og siðast veröur lesið úr nýrri skáldsögu sem væntanleg er á markað I haust og ber heitið Undir kalstjörnu. Sigurður er nú staddur i Grikklandi þar sem hann vinnur við fararstjórn og herma fregn- ir að hann njóti mikilla vinsælda fyrir leiðsögn sina, enda talar hann grisku og þekkir vel til allra aðstæðna. Munu margir minnast skrifa Sigurðar um þá illu herforingjastjórn sem árum saman hélt um stjórnartauma þar suður frá með járnhönsk- um. Þá hafa þær fregnir borist hingað noröur að SAM hafi boð- ist hlutverk I kvikmynd hjá Grikkjanum Vulgaris. SAM-koman hefst sem áður segirkl. 2 i Austurbæjarbiói og þaö eru SAM-sekir sem að henni standa. Markmiðið er að safna heilli miljón, pg nú verður hver og einn að leggja sitt lóð á vogarskálarnar. —ká

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.