Þjóðviljinn - 08.08.1979, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 08.08.1979, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 8. ágúst 1979. Jóhannes Siggeirsson hagfrœðingur ASÍ: Aukin félagsleg réttíndi Eftirfarandi grein birtist i 3. tbl. 29. árg. Vinnunnar, timarits ASÍ, sem er nýkomið út, og hefur Þjóðviljinn fengið leyfi til þess aö endurbirta hana iesendum til glöggvunar á þeim mikilvægu réttindum sem hér um ræðir. Hinn 1. desember 1978 áttu laun að hækka um 14,13% vegna hækkunar á verðbóta- visitölu. 1 lögum, sem sett voru i lok nóvember 1978 var ákveð- ið, að niðurgreiðslur yrðu auknar sem svaraði 3,01%: að rikisstjórnin myndi bgita sér fyrir lagasetningu til lækkunar skatta og gjalda á lágtekjufólki, sem metnar væru 2% og að ríkis- stjórnin myndi beita sér fyrir að- gerðum og lagasetningu til ým- issa félagslegra umbóta, sem metnar væru til kjarabta sem 3% af verðbótavisitölu. Samkvæmt framansögðu hækkuðu laun um 6,12% I staö 14,13%. Þegar ljóst var, að rikisstjórnin haföi i hyggju að takmarka visi- tölulækkun launa 1. desember 1978 en i staðinn kæmi til greina aukin félagsleg réttindi voru lögð fram af hálfu ASl drög að laga- frumvörpum og kröfur um ýmis aukin réttindi með öðrum hætti. í meðferð rikisstjórnarinnar var þar ýmsu breytt, en hér á eftir verður gerö grein fyrir þessum atriðum eins og þau eru nú eftir setningu eða ákvörðun stjórn- valda, en öll þessi mál hafa nii veriö afgreidd að undanteknum þeim sem snúa að sjómannastétt- inni. Hvað skattabreytingar snertir þá var ekkert samráð haft við verkalýöshreyfingunaum þær endaerekki útlit fýrir, að skattar lágtekjufólks, sem hlutfall af tekjum tekjuársins, verði lægri 1979 en 1978. Ekkert mat hefur verið lagt á það af hálfu ASÍ hvort þau félags- legu réttindi, sem nú liggja fyrir séu 3% viröi eða ekki. Þau eru mikils viröi fyrir suma en minna viröi fyrir aðra og deila má um hvort þetta sé rétta aðferðin til að ná fram félagslegum umbótum. Hér er hins vegar um að ræða mál, sem verkalýðshreyfingin hefurlmörgum kjarasamningum reynt að ná fram en ekki tekist. Einnig má fullvíst telja, að rétt- indi þessi séu varanleg, en verði ekki aftur af mönnum tekin. Hér veröa rakin helstu atriðin I hinum auknu réttindum. 1. Lög um rétt verka- fólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysatilfella. 1.1. Uppsagnarfrestur 1. Verkafólk. sem unnið hefur samfellt I eitt ár hjá aðilum, sem fást við atvinnurekstur innan sömu starfsgreinar, hefur eins mánaðar upp- sagnarfrest. 2. Verkafólk, sem ráðið hefur veriðhjá sama atvinnurekanda I þrjú ár samfleytt, hefur tveggja mánaða uppsagnar- frest. 3. Eftir fimm ára samfelldaráðn- ingu hjá sama atvinnurekanda hefur verkafólk þriggja mán- aða uppsagnarfrest. Verkafólk telsthafa unniö innan atvinnugreinar eða verið ráöiö hjá atvinnurekanda I eitt ár, ef það hefur mnið samtals a.m.k. 1.550 stundir á siðustu 12 mánuð- um. Rétt er einnig og nauðsynlegt að vekja athygli á þvl, aö laun- þega sem rétt á til uppsagnar- frests skal skylt að tilkynna með sama fyrirvara, ef hann óskar að hætta störfum hjá atvinnurek- anda. Uppsögn skal vera skrifleg og miöast viö mánaöamót. 1.2. Laun, þegar fjarvistir stafa af vinnuslysum eöa atvinnusjúk- dómum. Verkafólk, sem forfallast frá vinnu vegna slysa viö vinnu, á beinni leið til eða frá vinnu, eða vegna atvinnusjúkdóma, sem or- sakast af henni, skal fá greidd laun sem hér segir: 1. Allt verkafólk skal fá greidd laUn fyrir dagvinnu I allt að 3 mánuöi semkvæmt þeim taxta, HVAÐ ER f FÉLAGSMÁLA- PAKKANUM? sem viðkomandi fólk tók laun eftír, enda sé unnið hjá aðila, sem fæst við atvinnurekstur i viðkomandi starfsgrein. Auk þess skal það á fyrsta ári hjá sama atvinnurekanda eigi missa neins af i launum, i hverju sem þau eru greidd i 2 daga fyrir hvern unninn mán- uð. 2. Allt fastráðið verkafólk, sem ráðiö hefur verið hjá sama at- vinnurekanda I eitt ár samfellt skal eigi missa neins i af laun- um sinum, I hverju sem greidd eru, i einn mánuð auk dag- vinnulauna i 3 mánuði eða 4 mánuöi alls. 3. Verkafólk, sem ráðið hefur verið hjá sama atvinnurekanda I þrjú ár samfellt, skal eigi missa neins af launum sfnum, i hverju sem greidd eru, i einn mánuð auk dagvinnulauna i 4 mánuði eða 5 mánuði alls. 4. Verkafólk, sem ráðiö hefur veriöhjásama atvinnurekanda i fimm ár samfellt skal eigi missa neins i af launum sinum, i hverju sem greidd eru, i einn mánuð auk dagvinnulauna i 5 mánuði eða 6 mánuði alls. 1.3. Þegar fjarvistir stafa af al- mennum veikindum eöa slysum. Þegar um er aö ræöa sjúkdóma aðra en atvinnusjúkdóma og slys önnur en vinnuslys skulu launa- greiöslur vera meö eftirtöldum hættí: 1. Á fyrsta starfsári hjá sama at- vinnurekanda skal verkafólk eigi missa neins af I launum, i hverju sem greidd eru, i tvo daga fyrir hvern unninn mán- uð. 2. Allt fastráðiö verkafólk, sem ráðiö hefur verið hjá sama at vinnurekanda ieitt ársamfellt, skal eigi missa neins af I laun- um sinum, i hver ju sem greidd eru. I einn mánuð. 3. Verkafólk, sem ráðið hefur verið i þrjú ár samfellt hjá sama atvinnurekanda, skal eigi missa neins af i launum slnum, 1 hverju sem greidd eru, i einn mánuð auk dagvinnulauna i einnmánuö eða samtals laun I 2 mánuöi. 4. Verkafólk, sem ráöið hefur veriö I fimm ár samfellt hjá sama atvinnurekanda,skal eigi missa neins af i launum sinum, i hverju sem greidd eru, i einn mánuðauk dagvinnulauna itvo mánuði eða samtals greidd Meðal aukinna félagslegra réttinda f félagsmálapakkanum var stór- bættur réttur verkafólks til launa I veikinda- og slysatilfellum, þegar fjarvistir stafa af vinnuslysum eða atvinnusjúkdómum. laun i 3 mánuöi. Auk þess eru ákvæöi I lögunum um að atvinnurekendur skuli greiöa minnst 1% af útborguö- um launum verkafólks I sjúkrasjóð viðkomandi stéttar- félags. 2. Breyting á lögum um 40 stunda vinnuviku. Þegar dagvinnu er skilaö með 8 klst. vinnu á dag frá mánudegi til föstudags, skal næturvinna taka við á föstudögum strax og lögboö- inni eöa umsaminni vinnuviku er lokið. 3. Breyting á lögum um orlof Launagreiðanda er nú skyld að veita innheimtuaðila orlofsfjár upplýsingar um greitt og van- greitt orlofsfé starfsmanna sinna. I þvi skyni að staðreyna slikar upplýsingar er inheimtuaöila or- lofsfjár heimill aðgangur aö bók- um og bókhaldsgögnum launa- greiðanda. 1 nýútkominni reglugerö er kveðið á um að Póstgiróstofan greiði fólki orlofsfé þó um vanskil sé aðræða hjá atvinnurekendum. Þá hefur rikisstjðrnin ákveðið aöhækki vexti af orlofsfé úr 5% I 11,5% og er sú hækkun komin til framkvæmda. 4. Breyting á lögum um rikisábyrgð á launum við gjaldþrot. Aðalbreyting á þessum lögum felst I þvi aö forgangsréttur launakrafna og annarra þeirra krafna, sem rikisábyrgð tekur til, er lengdur úr 6 mánuðum I 18 mánuði. Þá er rikisábyrgðin látin ná til bóta sem launþegi á tilkall öl vegna örorku af völdum vinnu- slyss. svo og til þeirra bóta, sem maki eða börn eiga tilkall til vegna dauðsfalls af völdum vinnuslyss. Auk þess er rikis- ábyrgöin látin ná til þess kostnaö- ar, sem á launþega kann að hafa fallið vegna innheimtuaðgerða hans á hendur launagreiðandan- um. Þessar lagabreytingar ná til allra þeirra krafna, sem gjald- fallnar eru á árinu 1978. Einnig hefur verið gefin út reglugerö, sem rýmkar rétt launþega til að fá vaxtagreiöslur af kröfum sin- um. 5. Breyting á lögum um iögtak og fjárnám án undanfarins dóms og sáttar Með breytingu á lögum er heimilað að taka beint lögtak, án undanfarins dóms eða sáttar, hjá atvinnurekendum vegna vanskila á umsömdumgreiðslum I sjúkra-, orlofs- og styrktarsjóöi, svo og ið- gjaldagreiðslur i lifeyrissjóði. Réttur verkafólks til launa í veikinda- og slysatilfellum Starfs- tími: Vinnuslys, atvinnusjúkdómar Onnur slys en vinnuslys og aSrir sjúkdómar en atvinnusjúkdómar A 1. ári Tveir dagar fyrir hvern unninn mánutl á fullum launum + 3 mán. dagvinna Tveir dagar fyrir livern unninn mánuS á fullum launum Eftir 1 ár: Einn mánuður á fullum launum + 3 tuán. dagvinna 4 mán. samtals Einn mánuSur á fullum laununi Eftir 3 ár: Einn mánuður á fullum laununt + 4 mán. dagvinna 5 mán. samtals Einn mánuSur á fullum launum + % mán. á dagvinnulaunum 2 mán. samtals Eftir 5 ár: Einn mánuSur á fullum launum + 5 mán. dagvinna 6 mán. samtals Einn mánuSur á fullum launum + 2 mán. dagvinna 3 ntán. samtals Með fullum launum er átt við svokallað „staögengilskerfi”, þ.e. þau laun.sem sáhefursem tekurviö starfi þess sem forfallast, en þar getur verið um að ræða yfirvinnu, vaktavinnu o.s.frv.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.